sunnudagur, mars 24, 2002
laugardagur, mars 23, 2002
Núna eru bara fjórir dagar þar til ég fer út... get ekki beðið!! verður gott að fá smá vetrarfrí... ég horfði á myndina Brauð og túlipanar í gærkv. hún var bara fín, ítölsk mynd um konu sem ákveður að gera eitthvað nýtt þegar fjölskyldan hennar gleymir henni þegar þau stoppa í sjoppu í sumarfríinu, hún verður eftir og ákveður að gera eitthvað nýtt, fer til Feneyja og byrjar nýtt líf :) Evrópskar myndir eru æðislegar!! þessi fær þrjár stjörnur :)
miðvikudagur, mars 20, 2002
Nanananana ég er að fara til útlanda um páskana!! jei!! ég get ekki beðið eftir að það komi páskar og ég komist til að hitta kallinn minn :þ en þangað til þá tel ég bara dagana!!!! Það sem ég elska þennan mann mikið, ég hefði ekki trúað því að ég af öllum gæti verið svona heppin að fá að njóta hans... mmmm. en jæja focus, ég verð að klára þessi dæmi í kvöld =)
þriðjudagur, mars 12, 2002
Það er svo flott þegar snjóar, stórar flygsur detta niður úr himninum og allt er svo fallegt og bleik birtan svo rómantísk. Þá man ég eftir því hvað mér finnst gott og gaman og hverjum ég vil helst eyða tímanum mínum með :) Vonandi heldur áfram að snjóa í alla nótt og nóttin vefur mig inn í víðfeðma snjóbreiðuna og ég vakna endurnærð og allt er svo bjart.
mánudagur, mars 11, 2002
Það er alveg gaman að vera til sko!! Líka þegar maður kemst loksins að því hvað það er sem maður virkilega vill :) Stundum getur maður bara verið svo sljór að maður fattar ekki... Mér þykir svo vænt um vini mína sem muna eftir mér og hringja í mig bara til að láta mig vita að þeim þyki vænt um mig ;) Mig langar svo að skreppa í smá ferð og ætla að láta það eftir mér... þarf bara að finna mér rétta tímann !!
mánudagur, mars 04, 2002
ég er að læra, skemmtilegasta sem ég geri eða þannig... ég veit nú alveg að ég verð að vera dugleg í dag, en samt.... afhverju nenni ég þessu...
