Ég er í Svíþjóð í heimsókn hjá systir hans Styrmis henni Lísu skvísu :) kom eftir hádegi í dag, er mjög fegin að hafa ákveðið að skreppa aðeins í frí, þar sem ástandið heima við hefur verið viðkvæmt... fer ekki nánar út í það hér. það er sól og bjart veður í Gautaborg, við sátum úti um eftirmiðdaginn og borðuðum vöfflur með ís, vinkona hennar Lísu kom í heimsókn og þetta var bara æðislegt. Núna erum við fara að borða íslenskt lambakjöt, VSOP steik af gasgrillinu... getur lífið orðið betra... það er danskt fólk í heimsókn, mikið rosalega er gaman að heyra danskan hreim aftur. Ekki það að ég skilji nú allt sem fer fram ;) Styrmir er í Lundi á leiðinni hingað frá Danmörku... kemur um hálfellefu. Ég elska sumar og sól og vildi að allir sem eru að fara í 25 ára afmælið hennar Svövu væru hérna í garðinum að halda upp á afmælið, það er sko æðislegt veður. annars er ég hálfutan við mig, svaf ekki svo mikið í nótt... hlakka til að hitta Styrmir minn og knúsa hann!! Nökkvi er æðislegur, hann er orðinn svo stór!! þetta er fljótt að gerast, áður en maður veit af verður hann kominn í skólan og svona ... jæja ilmurinn af matnum er bara hreint og beint æðislegur... ég ætla að fara að kíkja á krásirnar.
laugardagur, júlí 27, 2002
fimmtudagur, júlí 25, 2002
Jíha, það er spáð sumri um helgina!!! það er búið að rigna meira og minna allan júlí mánuð, met-rigning í áraraðir... jei :( Styrmir er enn í Danmörku... fór til köben í gær, ég hlakka til að fá að heyra hvað það hefur verið æðislegt ;) Það er lítil kisa sem er farin að halda til hérna fyrir utan,,, bara lítill kettlingur, hún er svo mikil rúsína. Ég er næstum viss um að hún ratar ekki heim til sín... en hvað á maður að gera?? Mig langar bara að taka hana inn og fara svo með hana heim til Íslands í haust.... mjáá. Maðurinn hennar tengdó er kominn heim, kom greinilega með sólina með sér frá Íslandi af öllum stöðum... Litlu krakkarnir eru alveg í skýjunum, þau eru búin að sakna hans síðan hann fór um miðjan maí. Ég er búin að segja upp blaðburðarvinnunni :) jei fæ að sofa út í næstu viku!!! það átti einhver að koma í morgun og læra hringinn af mér en sá einhver mætti ekki. ótrúlega pirrandi, ég beið og beið og fór svo bara af stað... gat ekki beðið fram að hádegi eða hvað??!!? Er að spá í að fara í ferðalag um helgina, fá Styrmir til að stoppa hjá Lísu sinni í Gautaborg og hitta hann þar. Þá gætum við vel verið þar um helgina... er svona að pæla í þessu. Annars ætla ég að fara eina helgi í ágúst til Svíþjóðar og versla mér föt fyrir veturinn... sænska krónan er svo lág gagnvart norsku krónunni að ég ætti að græða heilan helling ;) jæja ég ætti að fara að koma mér í vinnuna, nóg sem liggur fyrir í dag... ég er búin að kíkja á flugmiða heim, er ekki búin að panta ennþá... vona að ég þurfi ekki að borga silljón fyrir miðann :}
þriðjudagur, júlí 23, 2002
Jæja þá er Styrmir komin hálfa leiðina til Danmerkur eða svo :) ég er bara að grasekkjast hérna ... er að vinna ótrúlega mikið þessa viku,,, ekki gaman. verður allt betra í næstu viku... þá ætla ég ekki lengur að vakna um miðja nótt til að bera út blöðin, jeiiii. Sniglapóstur fékk nýja merkingu í morgun... það var á þvílíkt mörgum stöðum þar sem voru sniglar á póstkössunum... þeir hljóta að hafa verið síðan í gær að skríða upp í kassana... enda passaði ég mig á því að loka póstkössunum varlega svo þeir myndu ekki detta niður.... alltaf svo góð. annars er ekkert að gerast og þá meina ég ekkert!! nema hvað... reyni bara að skrifa meira seinna þegar eitthvað gerist ;)
laugardagur, júlí 20, 2002
Ég get ekki ákveðið mig hvort ég á að liggja útí sólinni og rembast við að fá lit eða hvort ég á bara að sleppa því og hanga inni, hmmmm. Ég þarf eiginlega að segja frá þessu: Ég hef aldrei verið nein mikil dýramanneskja og sérstaklega köttum hefur ekkert líkað neitt brjálæðislega vel við mig... ekki að þeim hafi líkað neitt illa við mig þannig... þeim bara hefur verið svona slétt sama. En allavegana fórum við Styrmir í heimsókn um daginn og þar var svona hreinræktaður síamsköttur og hún var æðisleg, kom og hringaði sig í fangið á mér og lá bara og sofnaði svo þegar ég var búin að klappa henni í smástund.... henni fannst bara geðveikt að liggja hjá mér... enginn smá knúsukisa. Svo var ég úti í garði áðan þá kom önnur svona svört lítil venjuleg kisa og bara henti sér á mig og ég átti að klappa henni og klóra og bara mátti ekki hætta!! Ég var dáldið hissa?!!! Hún var æðislega falleg, kolsvört með gul augu. Og núna er hún bara að hanga í garðinum og að elta flugur og svona. Leyndur aðdáandi, ha?? Ég verð bara að fá mér eina svona litla sæta knúsukisu í haust til að klappa og knúsa þegar ég verð alein í litlu íbúðinni minni... hmmm. Hvernig ætli gömlu læðunni á loftinu líki það?
Sól sól skín á mig ský ský burt með þig!! það er sól og það eru ský... ég er búin að liggja úti í garði í klukkutíma og ákvað að taka mér smá siestu hérna inni, svo ég verði nú ekki alveg eins rauð og eplin á eplatréinu í garðinum. Ég á húsið alein í dag :D Tengdó fór með Eydísi og Einar í Sommerland, sem er vatnagarður í 25 mín. fjarlægð... Styrmir fór í Seljord að vinna og tók aðgangskortið mitt í Sommerland með sér :| mér er nú samt eiginlega alveg sama ;) Þannig að ég á pleisið... enginn að hlaupa um og vesenast og grenja... ágætis tilbreyting svo sem Ég heyrði svo flott lag í útvarpinu um daginn, textinn hljómar þannig: "Det er metrologisk institut ... ikke mere regn men bare sol" svo man ég ekki meir á norsku en textinn er semsagt eins og veðurstofan sé að syngja veðurfréttirnar og vill bara spá góðu veðri en ekki rigningu... æðislegt lag, svo hresst og upplífgandi. Ég er þvílíkt farin að fíla músíkina hérna,,, verst hvað Norðmenn eru mikið fyrir country tónlist, ég get bara ekki fílað hana eins og þeir?? En ég held að þetta tengist því að ég er farin að skilja miklu meira í norsku en áður :) Ég fór í gær og keypti miða á Blueshátíðina sem verður 1-4 ágúst hérna í Notodden. Mig er nú bara farið að hlakka til að fara... Keypti miða á Ana Popovic sem er ung kona, spilar á gítar og syngur.. svo er eitthvað meira á sviðinu en ég veit ekki alveg hvað það er. Birgir og Lísa koma yfir til Noregs og ætla á tónleikana með okkur. Þetta verður voða stemming, búið að selja hátt í 20 þús. miða af 30 þús mögulegum... Fólk kemur frá mörgum stöðum í heiminum, og Noregi auðvitað, til þess að taka þátt í hátíðinni. Það er tjaldað um allan bæ og það kemur meira að segja fyrir að umferðareyjur eru notaðar til að pota niður tjöldum. Slóðin er www.bluesfest.no
fimmtudagur, júlí 18, 2002
þá er ég formlega komin á netið :) ég er með slóð á síðuna hérna nú þarf ég bara að laga síðuna aðeins svo ég geti farið að setja inn myndir, hlakkar til að stússast í því. Styrmir er að fara til Danmerkur í eina viku að heimsækja pabba sinn og ég verð hérna. Þannig að ég á eftir að eiga fínan tíma til að stússast í þessari síðu... ekki það að hann er nú ekki heima núna. Þessi maður er vinnuóður þessa dagana, er með aukaverkefni, unnið í akkorði og ég hef eiginlega ekki séð hann neitt þessa vikuna!! En þetta gefur fínan pening og það er svo sjaldan sem maður hefur á móti honum ?!?! Mig langar svoooo mikið að fara með honum til Danmerkur en er sjálf að vinna svo mikið að ég kemst ekki. Verð semsagt að keyra út blöðin og svo að skúra frá 8-5, æjislegt!! Þessi bær er svo lítill að ég er farin að kannast við einhvern í bæjarblaðinu á næstum hverjum degi, það er dáldið slappt. Það búa nú einhverjar 15 þús hræður hérna eftir því sem ég kemst næst... aðeins minna en í Hafnarfirði en samt, ekki kannast ég við svona marga þar!! Það er svo frábært hvað fólk er þolinmótt þegar ég er að tala... ég tala sko algjöra skandinavísku! Ég hef skilgreint þetta þannig að ég tali dönsku með íslenskum hreim, en svona þegar ég fór að pæla meira í þessu þá er þetta ekki danska... stundum bæti ég meira segja frönsku inn í!! og Styrmir segir að ég sé með sænskan hreim... vonlaust. En það er bara að vona að næsti mánuður geri mér gott og ég nái að einbeita mér að norsku :) Mér finnst mjög gott að skilja yfirleitt, þeir tala svo skýrt og greinilega. ég var ekki búin að segja að ég fór í klippingu, það var nú aldeilis kominn tími á það!! Hárið var algjörlega komið ofan í augu en núna er þetta bara fínt... Ég verð nú að viðurkenna að ég hafði engar vonir til þess að norskar konur kynnu að klippa, því það eru svo margar sem eru með gjörsamlega vonlausar klippingar... en þetta tókst semsagt bara með ágætum. og kostaði ekki svo gegt mikið... bara 260 kr. já norskar. það eru ca. 3100 íslenskar. en ég fékk nú hárþvott sem var yndislegur og vax í kollinn á eftir... svo ég er bara sátt. jæja klukkan er að verða níu og ég er að fara að hátta... þarf að vakna klukkan 3:30 jess... Styrmir var að koma heim úr vinnubúðunum í dag, hann lítur út eins og villimaður ekki búinn að raka sig síðan um helgi!! jæja best að fara að sinna honum fyrst hann er kominn heim... bæjó
miðvikudagur, júlí 17, 2002
Ahh jesss, sólin skín ennþá... það leit út fyrir að sólin myndi bara ekkert láta sjá sig í dag en svo kom hún blessunin fram úr skýjunum... að sjálfsögðu :) Just for me!! ég vaknaði klukkan 3.30 og fór að bera út blöðin,,, kom heim kl. 6.30 og hellti mér upp á kaffi... ég elska þessa rólegu stund sem ég á hérna alveg alein. Ég er farin að hlakka dáldið til að koma heim til Íslands en samt er auðvitað þessi stóri svarti skuggi að Styrmir kemur ekki með mér... það sem ég myndi ekki gefa fyrir að fá lífið mitt aftur!! En þetta hlýtur allt að vera fyrirfram ákveðið og ég verð víst bara að bíða og sjá hvað gerist eins og allir hinir, ekki satt?? Pirrandi bara stundum að vita ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér :( Ég reyni að vera jákvæð og hugsa um að þetta sé nú ekki langur tími einn vetur í sundur, en svo verð ég svo neikvæð og hugsa bara um að þetta sé bara allt búið og hvað verði um þetta samband!!??! Það er einni ákveðinni manneskju að "þakka" að framtíðin mín lítur svona út og ég veit innst í hjartanu mínu að ég á aldrei eftir að fyrirgefa það ef þessi vegur endar hér. En svona á maður nú ekki að hugsa, skamm. Ég er mikið að velta því fyrir mér að segja frá þessum bloggi mínum en er eitthvað feimin við það... Skrýtið því þetta er nú auðvitað opið og það "geta" allir séð þetta. en ég býst nú ekki við því að það sé neinn að hlusta. Þetta er nú svo sem ekki um neitt... Nenni ekki meiru núna... kannski ég setji einhverjar staðreyndir inn næst...?? bara kannski
föstudagur, júlí 12, 2002
vá ég var bara búin að gleyma að skrifa... ég er í noregi og sólin skín, loksins er að koma sumar, held ég!!!! júní var svona ekkert spes en það er búið að spá hitabylgju núna um helgina, jeiii það er bara alltaf það sama að gerast hjá mér... vakna kl. 3:15 og fer að bera út blöðin, er svona 3 tíma að því og er komin heim til að kyssa Styrmi bless áður en hann fer í vinnuna kl. 7. svo legg ég mig aftur og sef til 10 eða kannski nær 11 og fer þá í vinnu númer tvö :) skúra til 17:30 og fer þá heim. Nú svo gerist eiginlega ekki svo mikið meira, það er kvöldmatur og svo fer maður að sofa aftur ;-) en nú verð ég líklega ekki að bera út blöðin meira svo ég fæ að sofa heila nótt í einu :) það hljómar nú svosem ekkert svo illa, hehe... Núna eru bara rúmar fimm vikur þar til ég þarf að fara heim aftur, afhverju er tíminn svona fljótur að líða??? en var svo lengi þegar ég var að bíða eftir því að komast hingað út? Týpískt!!! Jæja kannski ég fái mér kaffbolla og setjist út í sólina fyrst hún er nú byrjuð að glenna sig á annað borð? Segjum það, Bryndís ...
