Æ þetta er gaman, alltaf ný próf á hverjum degi, jeiiii... Prófiði þetta endilega
![]() | You are Rowlf! |
Æ þetta er gaman, alltaf ný próf á hverjum degi, jeiiii... Prófiði þetta endilega
![]() | You are Rowlf! |
Hahaha frábært próf hérna fyrir neðan :) Skólinn byrjaði í dag... það var fínt, fór í markaðsfræði og fjárhagsbókhald. Keypti dáldið af skólabókum og hitti fólk. Fór á skagann í dag og hitti ömmu og afa sem ég hef ekki séð síðan í maí. Það er alltaf gott að koma þar sem maður er svona velkominn og alltaf fullkominn :) Hitti líka ömmu hans Styrmis, hún var jafnhress og alltaf. Ég á afmæli á morgun... ekki lengur 25 en mér líður þvílíkt vel og held bara að þessi aldur sé sá besti hingað til,,, held að ég ætli bara að líða þannig sem lengst áfram, þannig að þegar ég verði 64 þá verði það besti aldurinn þangað til :)

Tíminn líður og skólinn byrjar á mánudaginn,,, alvaran tekur við!! ég er semsagt komin heim aftur og Styrmir er úti í Noregi. gaman gaman :/ fór að djamma í gær, það var ferlega fínt... sungið og spilað í partýinu og bara fínasta stemming. Kíktum svo á Viktor og dönsuðum fram á morgun :) djöfull er ég löt, ég nenni engu ég vaknaði um hálftvö og bangsinn minn lá við hliðina á mér... hann er svo traustur félagi ;) ég er pínu einmanna, sakna Styrmis... verður veturinn langur eða stuttur?? það kemur víst bara í ljós með tímanum ekki satt? Er að hlusta á nýja diskinn minn með Mariu Mena... ferlega fínn
Jæja loksins a neti aftur!!! vid erum flutt... buum nuna a Egne Hjems gate 11... sem er tha i beinni thydingu Eigid heimili gate sem er ekki fjarri sannleikanum... mer lidur eins og heima hja mer. Fæ ad hafa Styrmi bara ut af fyrir mig :) Eg er a leidinni heim, var næstum buin ad gleyma ad segja fra thvi... ekki svo litill partur eda hvad?? Pantadi midann heim i dag kem 22. agust :) hef ogislega litid annad ad segja... eda annars Styrmir er buinn ad fa herbergi i Kongsberg mjog fint, fær ad flytja um helgina... vid forum ad skoda thad i dag. Thad er gott ad hann se buinn ad fa husnædi... einum færri hlut ad velta fyrir ser. Svo ætlum vid til Gautaborgar um næstu helgi ad heimsækja Lisu, Birgi og Nokkva toffara... Nenni ekki meiru i bili... ætla ad fara ad tjekka a myndum sem eg a i svona NetBilder... kannski komast thær jafnvel inn a sidu... aldrei ad vita.
Það er frídagur verslunarmanna á Íslandi Ekkert svoleiðis í Noregi, ég fór bara að vinna í morgun. Blueshátíðin fór fram um helgina, þetta var bara mjög fínt, rosalega mikið af fólki í bænum, þessum litla bæ sem er nú hálfsofandi á kvöldin og um helgar eftir því sem ég veit best... Við fórum á tónleika með Ana Popovic,,, fín. Stelpa frá Ungverjalandi jafngömul mér, hún var bara flott...