-Bryndís-

sunnudagur, september 29, 2002

Jæja enn einn sunnudagurinn rennur upp og enginn til að deila honum með... leiðinlegt. ég fór að djamma aðeins í gær, ætlaði að vera rosalega stillt og góð en endaði auðvitað á því að djamma langt fram eftir nóttu og vera dáldið þunn í dag. Fór með Björgu á Kofa Tómasar frænda þar sem ég fékk mér rauðvín og hún fékk sér appelsín. Elli og Andri komu og hittu okkur á Kofanum. Björg fór heim en ég var eftir með strákunum. Við fórum svo á Victor að dansa og það var fínt, alltaf gaman að dansa þar. Hitti frænku mína og spjallaði heilmikið við hana. Mjög heppin að týna ekki veskinu mínu því ég gleymdi því hjá henni þegar ég kvaddi hana, úffff. Kannski dáldið drukkin ?? ehh, nei nei hmmmm. En allavegana þá var þetta fínt og það varð töluvert meira úr kvöldinu heldur en ég átti von á, haha. Var búin að búa mig undir það að horfa á einhverja leiðinlega mynd í sjónvarpinu og láta mér leiðast. Svo, takk fyrir Björg mín að draga mig út aðeins :) Ég er nú búin að vera þokkalega dugleg að læra í dag, bara stolt af sjálfri mér :)

laugardagur, september 28, 2002

Það sem ég get verið löt... ég fór ekkert í baðhúsið í dag... er að fara að læra bara og býst ekki við að gera neitt annað í allan dag. Spennandi tilhugsun, ég varð bara að kíkja aðeins hvort ég hefði fengið póst eða eitthvað spennandi væri að gerast... það eru ekki einu sinni nýjar fréttir á mogganum hvað þá annað... allavegana ekki neitt sem mig langar að lesa :( En nú ætla ég að vera ýkt dugleg :) Bjarki er að koma í heimsókn og ég stærðfræðibreinið ætla að reyna að hjálpa honum í stærðfræði... hmmm þetta hljómar eitthvað öfugsnúið... ég hefði haldið að það ætti að vera á hinn veginn. En sjáum til, kannski slæ ég í gegn og verð kölluð Bryndís stærðfræðibrein upp frá því!!! hmmm... setjum kannski dáldið stóran fyrirvara á þetta ;)

fimmtudagur, september 26, 2002

Æ ég gleymdi næstum því... batnaðarkveðjur til Lasarusar... get well soon :) hljómar skringilega á íslensku, vertu betri bráðum?? LOL

merkilegt hvað það er alltaf mikil sól í Reykjavík skv. þessum weatherpixie hér til hliðar á síðunni... ég er nú stödd í Rvk næstum allan daginn yfirleitt og ég hef bara einhvern veginn alveg látið þessa sól fram hjá mér fara!!!! ég verð nú að fara að glenna upp glyrnurnar betur greinilega :D ég hlakka ýkt til að fara í baðhúsið á eftir og taka aðeins á því, ef það verður ekki of troðið ætla ég að reyna að fá leiðsögn í tækjasalnum, því ég bara kann alls ekki á allar þessar græjur sem í boði eru! svo í kvöld ætla ég að elda mér góðan mat og jafnvel horfa á eina góða mynd ;)

miðvikudagur, september 25, 2002

aaahhhh mér líður betur... mig vantaði bara að koma þessu frá mér!! Mér líður núna eins og ég hafi fengið tækifæri til þess að segja frá deginum mínum... þessi bloggur kemur að stóru leyti í staðinn fyrir það að share-a deginum sínum með the significant other. Sniðugt og ef þér leiðist að lesa þetta, farðu þá bara eitthvað annað, I don't mind, really... ég veit alveg afhverju ég er í þessu fagi sem ég er í, það er nefnilega alveg ótrúlega mikið um að mar fái að dunda sér bara í friði og þurfi ekki að hafa svona ógislega mikið samband við fólkið í kringum sig.... jájá segðu mér það bara. Mér er alveg sama :D

Djöfull er ég að fokking missa mig hérna.... ég þoli ekki þegar fólk er að tapa sér úr gleði yfir því að gera einhver hundfúl verkefni, arrrrgggggg ég er að reyna einbeita mér en alls staðar er troðið af fólki sem þarf að tala svo hátt og tjá sig svo mikið!! ef það er ekki um þessi blesssuðu verkefni sem það er að fokkast í þá er það fjölskyldan, eða vinnan eða bara eitthvað annað ómerkilegt sem mig langar bara ekki baun í bala að vita!!! haldiði bara djöfulsins kjafti og látið mig í friði!!!!!! það eru takmörk, jú nóv.

"I like hearing myself talk. It's one of my greatest pleasures. I often have long conversations all by myself, and I'm so clever that sometimes I don't understand a single word of what I'm saying." -Oscar Wilde-

þriðjudagur, september 24, 2002

Æji vitiði hvernig þetta er, eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt ?? það er líka svona með raddir :D og núna er ég sátt og ánægð og þvílíkt ástfangin upp yfir haus... stundum er mar bara búinn að hugsa í alltof marga hringi og verður allt of ringlaður til að hugsa "beint" (e. straight) en ég er allavegana á góðri leið með að verða þokkalega hamingjusöm núna ;)

mánudagur, september 23, 2002

Mánudagur til mæðu!! svo sannarlega, ég er pínku dáldið soldið ansi þreytt uppgefin eða svoleis sko það er eitthvað svo mikill mánudagur... og ég er bara stundum svo hrikalega seinheppin hvað þá þegar það er bara leiðindamánudagur... en mér er alveg sama Það hlýtur að koma að því að þessi leiðindamánudagur breytist í þriðjudag ;)

sunnudagur, september 22, 2002


which mr. men/little miss are you?
take the quiz & find out! :)
quiz made by

laugardagur, september 21, 2002

Ææææ *sakn* *sakn* ég vil hafa kallinn minn hérna til að kúra hjá og knúsa skrýtið hvernig suma daga er þetta bara allt í lagi og svo allt í einu hellist þetta yfir mig... og það eru margir x margir dagar þar til ég fæ að sjá hann næst. Er nokkur sem á ónotaðan miða til Noregs sem hann langar að gefa mér,,, eða bara pening fyrir miða ?? Nei ég hélt ekki :| en þetta lagast nú sjálfsagt bráðum, einhvern tímann í vikunni eða mánuðinum :/ æji þetta er kannski ekki alveg svona slæmt sko... byrja ég að hughreysta mig again ooohhhhh, óþolandi að vera alltaf svona skynsamur og raunsær ;) ég fór í suðræna sveiflu í morgun, það var meiriháttar og ég er bara ekkert fjarri því að ná sporunum held ég ;) kannski best að leyfa öðrum að dæma um það reyndar... ég svitnaði allavegana fullt og þetta var mjög gaman :) fyrir utan þennan ótrúlega uppáþrengjandi geitung x 2 sem var alltaf að fljúga á hausinn á mér þegar ég átti ekki von á því. Svo veit mar að þeir eru "suicidal" þessa síðustu ævidaga sína og gætu tekið upp á því að stinga mann bara svona að gamni sínu, ekki gaman. Sérstaklega ekki þegar kom að því í laginu að klappa reglulega, mar var bara dauðhræddur um að þeir tækju þetta sem persónulega ögrun við sig og reyndu að verða á milli... ojjj. Ég nenni ekki að gera neitt af viti eiginlega... ég ætla samt að fara að læra núna... af því að ég er svo ýkt dugleg :)

föstudagur, september 20, 2002

Jæja föstudagurinn er kominn... ég segi bara loksins. Er búin að vera að bíða alla vikuna eftir þessum degi, verst hvað hann er svo fljótur að líða þegar hann loksins rekur nefið inn í gættina. En mér er alveg sama... þá get ég bara fyrr farið að hlakka til þess að það komi næst föstudagur... svona recursive jú nóv ;) Það er hugsanlega kannski maybe að koma leigjandi til mín, ég ætla ekki að fullyrða neitt fyrr en fyrstu leigupeningarnir rúlla inn á reikninginn ;) nánari lýsingar (eða jafnvel yfirlýsingar) síðar Ég fór í baðhúsið áðan, hljóp og notaði tækin aðeins... gerði svo um það bil skrilljón magaæfingar og teygði vel á eftir... yndislegt!! Og ég ætla að fara í suðræna sveiflu í fyrramálið ;) Mér finnst að það ættu allir að stunda líkamsrækt, manni líður bara svo miklu miklu miklu miklu miklu miklu (have I made my point?) bestast þegar mar er búinn að taka aðeins á og svitna. Ekki það að það er auðvitað hægt á aðra vegu, hentar bara ekki í mínu tilviki eins og er ;) Skrýtið með þessa broskalla, ég nota alltaf smákallana eins og :) og ;)... get bara einhvern veginn ekki notað hina með nefið :-)... það bara er ekki ég... held það sé að ég finni samkennd með litlu brosköllunum frekar en þessum stóru, hmmmm... ég þarf að sálgreina þetta... kannski birtist niðurstaðan hérna síðar, bara kannski! ég læt þetta duga til þess að koma mér inn í helgina í bili. Góða helgi og surfið nú ekki yfir ykkur ;)

Ég er alveg virkilega svekkt yfir því þegar mar er búinn að eyða ýkt miklum tíma í eitthvað og svo gengur það barasta ekki upp :( ojjj, það ætti að banna svoleis!!!!!!!!!!

fimmtudagur, september 19, 2002

Well það er fimmtudagur og helgin nálgast sem óð fluga... ég vildi að ég væri að fara að djamma um helgina!! en það verður víst ekki mikið um það... ég er enn að leita mér að meðleigjanda og þar til það er í höfn á ég ekkert líf... ég vil ekki flytja úr sætu krúttlegu íbúðinni minni :'( var reyndar spurt um herbergið í dag, vona að ég heyri meira á morgun!! ég sit hérna í skólanum og sé fram á langan dag... alltaf verið að vinna einhver verkefni :) ég sem var að vona að þetta ár yrði svo létt og lítil vinna ;)

mánudagur, september 16, 2002

Ég vil gefa þér aðeins eitt blóm svo þú sjáir hve fagurt það er Ég vil gefa þér aðeins eitt tár til þess að þú finnir hve tregi minn er djúpur Ég vil gefa þér aðeins einn vin svo að þú vitir hve auðugur þú ert (höf: Þuríður Guðmundsdóttir)

sunnudagur, september 15, 2002

Sunnudagur og ég er barasta ekkert þunn :) er með dálitlar harðsperrur eftir púlið í Baðhúsinu í gær, allavegana var nú líka nóg um hreyfingu í gærkvöldi/nótt.. fór á Nasa í fyrsta skipti og féll bara algjörlega fyrir stemmingunni...Dansaði alveg frá því ég kom inn þar til ég fór út :) ógislega flottur staður, OK það er fullt af snobbý fólki þar en það var ekkert að bögga mig svo mér var alveg sama... reyndar var dáldið af svona desperate köllum með útlitsgalla sem voru eitthvað að halda að þeir ættu einhvern séns í okkur stelpurnar sem vorum að dansa þarna en við sluppum alveg í heilu lagi frá því,,, kannski nokkrar martraðir hér og þar en ekkert alvarlegt :þ ( lýsir þetta ekki rosalegum hroka? Gott!! ) rosalega er þetta stór staður, ég hefði aldrei trúað því... eins og inngangurinn er nú borulegur og beint við hliðina á einhverri ruslageymslu or something ;) ég tók svo leigubíl með vinkonu minni sem er að fara út (og hélt partýið) og skutlaði henni fyrst í stóragerðið áður en ég brunaði í hafnarfjörðinn. ferlega fínn bílstjóri sem skutlaði mér heim, hann var með atvinnuleyfi sem á stóð "dánarbú", mér brá dáldið þegar ég sá það, hélt kannski að hann væri þá ekki hérna megin við móðuna miklu en hann sannfærði mig um það að hann væri bara að keyra fyrir dánarbúið... ég var allavegana mjög fegin að hann var lifandi :þ

föstudagur, september 13, 2002

Jeiiii það er föstudagur!!!!!!!!! skemmtilegt lag í útvarpinu og ég er í þvílíku dansstuði... var að koma heim úr skólanum, búin að vera í allan dag að klára verkefni og svoleiðis skemmtun. Núna er ég komin í frí alveg þar til á morgun :) en þá ætla ég að vera dugleg að læra og lesa, right! (ég er alltaf svo "robboslega" dugleg ;) en allavegana, helgin er komin og ég er sátt við það... ég er ein heima og var einmitt að velta því fyrir mér hvenig þetta yrði þegar ég verð komin með meðleigjanda(ég er semsagt að gera ráð fyrir því einhvern tímann í vetur!!! vonandi).. má maður þá ekki lengur setja græjurnar á fullt blast þegar mar kemur heim, hmmm?? ég ætti kannski að setja það með í leigusamninginn, "bryndís má setja græjurnar á fullt blast þegar hún kemur heim" :þ annars hitti ég Styrmi á netinu áðan og hann var bara hress, var að fara að elda sér mat... mig langar að borða með honum í kvöld.. kom einmitt nettilboð í pósthólfið mitt í dag frá okkar frábæra alíslenska flugfélagi, þar sem ég kæri/kæra var boðin velkomin að bóka ferð til Osló... mig langar það ekkert... NOT! NOT + NOT = Yes please!!!!!! annars er bara gaman að vera til svona annars :þ Shakira - dansing the tango... mig langar að læra að dansa, verst að ég hef engan til að dansa við :| ég er að fara í partý á morgun, hlakka mikið til, hitta skemmtilegt fólk og síðast en ekki síst að fá að fara út að dansa :D ennþá sár fyrir að hafa ekki náð Sálarballi á agureyri... mig langar svo að prófa :) spurning hvort það sé nokkuð varið í að fara á broadway, ábyggilega obboslega mikið af fólki undir aldri... ekki svo gaman þegar manni líður eins og maður sé að passa eða eitthvað. well þetta er að leysast upp í vitleysu, svo ég ætla að fara og dansa brjáluð í stofunni, ketchup lagið er í útvarpinu... og svo vöfflur ;) góða helgi (",)

fimmtudagur, september 12, 2002

Af hverju er það að maður gefur sér ekki tíma til að setjast niður og hugsa... þetta kemur rosalega oft fyrir mig þessa dagana, búin að vera að hlaupa út og austur en svo þegar ég lít til baka yfir vikuna, þá hef ég nú ekki komið þannig neinu sérstöku í verk hmmm.. en allavegana, þá fór ég um síðustu helgi norður á Akureyri þar sem haldin var hin (vonandi kemst í hefð) Halló Hafnarfjörður hátíðin en þemað þetta árið var "boobies" :D já ímyndið ykkur away !! þetta var mjög skemmtileg og frjálsleg helgi og Iðunn skrifaði frábæra ferðasögu í blogginn sinn... þess vegna ætla ég að vera ýkt löt og skrifa hana ekki ;) annars er ég að vona að ég fái leigjanda í dag, fyrri leigjandinn hætti við á síðustu stundu :( jæja þetta gengur eitthvað hægt núna... er að spjalla svo mikið á netinu.

þriðjudagur, september 10, 2002

Sko fleiri en ég sem falla fyrir þessu :)

fimmtudagur, september 05, 2002

Fékk fréttir frá USA í gær, litla dúllan jafnar sig alveg og fær líklega að fara heim í dag með mömmunni sinni :) Kíkti á "skipulagningarfund" í gærkvöldi fyrir Akureyrarferðina :D Þetta á eftir að verða brjálað stuð, leggjum af stað eftir vinnu á föstudag og komum aftur á sunnudag. Mér finnst Akureyri æðisleg og hlakka þvílíkt til að kíkja þangað. Verð auðvitað að kíkja aðeins á ömmu og afa hans Styrmis, hef ekki hitt þau í langan tíma. Svo verður eins og lög gera ráð fyrir, auðvitað kíkt út á lífið á laugardagskvöldið, að sjálfsögðu :)

miðvikudagur, september 04, 2002

ég veit sko alveg hvað Keikó er að gera!! Hann er að sækja Styrmi fyrir mig :D Free Styrmir, leyfið honum að koma heim ;) þannig að please, þið brjálaða fólk í Noregi, ekki skjóta Keikó.... frétt af CNN

þriðjudagur, september 03, 2002

kemur þetta fyrir ykkur ?????? ????

HAHAHAHA :)

Ég er núna að bíða eftir fréttum frá Bandaríkjunum, stelpa sem er svona hálffrænka mín, var að eignast litla stelpu í gærkvöldi, hún var tekin með keisaraskurði og allt hefði átt að ganga vel, en litlan fékk vatn í lungun og þarf að vera á gjörgæslu í allavega 48 tíma. Hún var fædd 16 merkur svo hún ætti að vera hraust og geta hrist þetta af sér, ég vona allavegana það besta :| ég er að hugsa til ykkar, krílin mín, *knús*

Gaman gaman,,, ég hlakka til að fara norður um helgina :) ég er ógislega ánægð með að Styrmir er búinn að kaupa sér tölvu og er þessa stundina að púsla henni saman ásamt sambýlingunum sínum og getur þar af leiðandi skrifað mér bréf og talað við mig á msn að heiman. jeiiiiiiii hæ Styrmir ;)

Which Piercing are you?

Þessi mánudagur var bara ekkert skemmtilegur!! Ég er nú venjulega ekki mikið að láta mánudaga skemma fyrir mér daginn en þessi dagur verður settur í kistuna með hinum "svörtu" mánudögunum. Hann reyndar skánaði þegar var komið um kvöldmat, heyrði í Styrmi, spjallaði bara þannig séð lengi við hann. Ég er búin að sakna hans svooo mikið núna, allt er orðið svo venjulegt, bara rútína. Fara í skólann og koma heim til skiptis. Svo kíkti Björg til mín og við grilluðum saman í tilefni þess að það er kominn vetur. Það sagði Björg allavegana, það væri bara kominn vetur þegar væri kominn september. Ég er nú reyndar bara næstum því alveg sammála... Hittum Hafsteinu á Súfistanum, það var voða kósý, rólegt spjall bara. Ég er búin að læra bara heilmikið í dag, þá er tilvalið að kíkja aðeins á netið... hvort ég hafi nokkuð fengið póst frá því áðan... alveg heilir 5 tímar síðan ég kíkti síðast sko ;) Það er ótrúlegt hvað ég hef haft mikinn tíma til að hugsa síðustu daga, hef ekki nennt að gera neitt en bara sökkt mér í hugsanir. Gott mál á meðan þetta fer ekki útí eitthvað rugl... Það er nú alveg nauðsynlegt að hugsa stundum, ekki satt?