-Bryndís-

fimmtudagur, nóvember 28, 2002

Salvör stóra litla systir mín var að taka bílprófið í dag og náði með glæsibrag að sjálfsögðu!! Til hamingju með það :D Jesssss loksins einhver til að skutla mér út um allt ;)

Ég er byrjuð að læra C# og .net... það er bara gaman ennþá. Verð í þessu næstu vikurnar fram að jólum. Erum að fara að byggja upp .net vefþjónustu sem heitir kjaftaskar.com... Spennandi!! Ég hélt þetta yrði rólegt, en annað hefur komið í ljós, kennarinn vill allavegana halda því fram að við eigum ekkert erindi heim fyrr en 19. des, hehe.... svona tölvunördahúmor er svoooo skemmtilegur. Ég ætla að vona að ég fái far hjá mínum yndislegu systrum í kvöld í frænkuboðið... ég kem um átta ;) Sjáumst þá...

þriðjudagur, nóvember 26, 2002

Búin í prófinu, gekk fínt :) er að velta því fyrir mér hvað ég eigi að gera núna... ætla ekki að læra meira í dag. Ekki oft sem ég á frítíma til að eyða í eitthvað sem mig langar, ég man ekki lengur hvað mér finnst skemmtilegt að gera :o Þetta er nú frekar aumt :$ Ég veit allavegana að ég ætla í ræktina eftir vinnu með Björgu :D

laugardagur, nóvember 23, 2002

Sólin skein í smástund í dag, það var fínt :) ég fór í baðhúsið klukkan tíu, mjög dugleg því að til að ná í tíma klukkan tíu þarf ég að fara af stað um níuleytið heiman að frá mér... ég hlakka mjög mikið til þegar minns fær að eignast bíl :) ef ég fæ þá ennþá að keyra þegar að því kemur, kannski verð ég bara látin taka prófið aftur vegna lítils aksturs? hehe Er búin að vera að læra í dag fyrir forritunarmálapróf á þriðjudaginn en ætla núna að fara og kaupa mér eitthvað í svanginn, er að reyna að ákveða hvort ég eigi að byrja á því að fara í bónus og sækja svo "farangurinn minn" hérna í skólann eða fara bara með "farangurinn" í búðina... erfitt val!?! ítreka það að minns hlakkar mjög mikið til þegar minns fær bíl!!!

föstudagur, nóvember 22, 2002

Fjórar vikur to go... það eru 28 dagar þar til... ... ég verð búin í skólanum. ... ég byrja í jólafríi. ... Styrmir kemur heim!!!!!! Ég er ánægð með það :D

fimmtudagur, nóvember 21, 2002

Ég kann ennþá norsku :) Ég var að hringja til Noregs og spjalla við konuna sem ég vann fyrir í sumar og það gekk bara svona rosalega fínt. Ég held bara að hún hafi skilið allt sem ég sagði :D Ég er ánægð með það!

miðvikudagur, nóvember 20, 2002

úff hvað ég er löt... :( ég er búin að hanga hérna heima í allan dag og verð nú að segja að ég lærði ekki mikið... eiginlega bara sjónvarpsdagskrána utan að... ekki nógu gott. ég er í hálfgerðu skammdegisþunglyndi... stærðfræðiprófið gekk herfilega, held ég sé öruggt fallin. Jólin eru á næsta leyti en samt er mánuður í þau... samt þegar ég sé jólaauglýsingarnar þá rifjast upp fyrir mér að ég á engan pening til að kaupa jólagjafir né nýja flík fyrir jólin. Ég á svo þokkalega eftir að fara í jólaköttinn *synical laughter* Í einum þröngum dal í Noregi eru háleitar hugmyndir í gangi sem fjalla um það að setja upp stóran spegil efst í fjallinu til þess að hægt sé að beina sólarljósi, þ.e. birtu, niður í dalinn því hluta af árinu skín sólin ekki. Svipað og á vestfjörðum líklega. Mig langar að biðja um svona spegil fyrir mig. Það er ekki nógu bjart hérna til þess að ég fái minn dagskammt af sólarljósi og birtu. Kannski væri þetta reyndar betra ef ég væri úti þann hluta af deginum þegar er bjart? Það er bara alltaf myrkur hjá mér, ég fer í skólann í myrkri og heim aftur í myrkri. Ef ég ynni í gluggalausu umhverfi gæti ég allt eins haldið að það yrði ekki bjart yfir daginn. Þetta pirrar mig og ég finn hvernig orkan þverr og mig barasta langar ekki að gera neitt. Helst horfa á sjónvarpið eða bara horfa út í loftið. Ég reyndi að skrifa eitthvað í gær í dagbókina mína en það eina sem mér datt í hug var eftirfarandi: "Blank, blanco, eyða, ekkert". Mig langar í sólina og birtuna og ylinn. Svo finnst mér líka svo leiðinlegt að ég veit alveg hvað gerir mér gott, hitta annað fólk, fara í líkamsræktina eða bara jafnvel út að labba. En ég bara get ekki ímyndað mér það, það er bara of mikið. Og þegar ég dríf mig af stað eins og í ræktina, þá finnst mér allt hitt fólkið vera svo óþolandi, pirrandi og heimskt. Svo þá er nú betra að hanga bara heima og gleyma því. Ætli þetta sé ekki orðið ágætt af sjálfsvorkunn í bili? Stundum er bara svo gott að hugsa svona upphátt.

föstudagur, nóvember 15, 2002

Það er opinbert. Ég er hlaðin af neikvæðum straumum og "úsa" þeim yfir fólk hvar sem ég fer. Eins og t.d. í gær fór ég í Bónus og var að kaupa í matinn og það var kona sem stóð við hliðina mér með dóttur sinni og var að spá í hvernig hrökkbrauð hún ætti að kaupa, nema dóttir hennar vildi öðruvísi og þær voru að skeggræða þetta fram og til baka... ég spurði hvort þær gætu ekki bara keypt bæði hrökkbrauðin (ég var ekki dónaleg sko) nema það að konan hrökklaðist í burtu en þegar ég sá hana seinna í búðinni var hún búin að fara aftur og sækja hrökkbrauðið... ég verð víst að viðurkenna það, ég terrorisera fólk í búðum. Ég ætlaði samt ekki að gera það og ef ég hefði yfirleitt tekið eftir því hvernig konan leit út þá myndi ég biðja hana afsökunar ef ég hitti hana aftur, alveg satt. Kannski ég biðjist bara opinberlega fyrirgefningar... er ekki blogg annars opinbert? Kona, fyrirgefðu að ég sagði þér að kaupa bara bæði.

Ég er algjör klaufi, alltof mikið utan við mig... það er manneskja sem á afmæli á morgun... mér datt í hug í morgun að plotta um afmælisgjöf við systur mínar... nema... það vill svo skemmtilega til að ég sendi sms-ið beint á tilvonandi afmælisbarnið :o Er hægt að vera meira utan við sig? LOL

fimmtudagur, nóvember 14, 2002

Googlism : for: styrmir styrmir is white and styrmir is experienced in showing successfully at competitions and as a consulter about breeding styrmir is available for a clinic at your place ??!? styrmir is a place of ancient power styrmir is his name

Googlism : bryndis is living aboard the marine corps air ground combat center in twentynine palms bryndis is well bryndis is a really bryndis is about to say more when an explosion nearby cut them off bryndís is one of the founders of “trio nordica” and a member of the “caput” ensemble bryndís is active as soloist and chamber music player as well as accompanist with singers bryndís is a compound name from the prefix "bryn" right!??!

miðvikudagur, nóvember 13, 2002

Stærðfræðiprófið nálgast óðfluga og þá þarf ég að taka upp á því að vera slöpp. Hvað á þetta að þýða? Ég sem verð næstum aldrei lasin... mér finnst þetta eiginlega vera svindl. En ég er búin að sofa dáldið mikið í dag eftir að ég kom heim. Og ætla bara að fara að sofa núna aftur. Get ekki bloggað meira... hef ekkert að segja frá.

sunnudagur, nóvember 10, 2002

Ég ætti kannski að útskýra þessa upphrópun hérna fyrir neðan? Ég er að gera heimadæmin mín í stærðfræði og er frekar sátt við það að það er enginn að þurfa að hlusta á pirrrrrrrrið í mér eða yfirleitt að vera í seilingarfjarlægð. Ég gæti alveg þurft að fara út að hlaupa núna!!

Vertu stilltur eða ég heilda þig!!

laugardagur, nóvember 09, 2002

Var að horfa á Reality Bites í kvöld, hef ekki séð hana held ég síðan hún var í bíó... góð mynd með góðum leikurum og góðri músík :) Dáldið klassískt efni... á alltaf við

föstudagur, nóvember 08, 2002

Ég er svo brjáluð út í markaðsfræðikennarann og fagið bara í heild sinni að ég get ekki einu sinni bloggað um þetta. Ef að ég gæti mögulega, þá myndi ég segja mig úr þessu fagi!!! Ég get ekki einu sinni hugsað um þetta fag án þess að byrja að gnísta tönnum af gremju!

Best að blogga meira fyrst ég er byrjuð. Horfði á Beðmál í borginni... þátturinn var svoooo saaaad að ég grét næstum bara allan tímann. Þetta var jafnvel verra en þegar ég slysaðist til að horfa á þennan eina þátt af Charmed þegar vonda systirin dó. Ég verð að fara að finna mér lök til að hafa hjá mér þegar ég er að horfa á sjónvarpið :'( Hvað er þetta annars með að hafa atriði þar sem mamma einhvers deyr í þætti sem heitir SEX and the city? Whatever... Ég get ekki sofnað... ég er bara ekki þreytt. Ég hef áhyggjur af nokkrum fólkum en það virðist bara vera eitthvað svo takmarkað hvað maður getur gert. Ég las grein í blaði á læknastofunni í dag... þar var viðtal við þjóðþekktan mann og hann var að tala um það að það eina sem maður getur gert er að reyna að gera eitthvað gott fyrir annað fólk. Af því verður maður þekktur og kannski dæmdur? Ekki því sem maður hefur í hyggju að gera eða gerir fyrir sjálfan sig. Það er mikið til í þessu. Mér finnst erfitt að vera svona hjálparlaus eitthvað. Mér finnst það í rauninni næstum því alveg óþolandi þegar ég sé eitthvað sem er að og ég get ekki lagað það. Þetta heitir meðvirkni og ég þjáist af henni alveg að þónokkru marki. En ég reyni að lifa með því.

fimmtudagur, nóvember 07, 2002

Það er bara bloggað í hrúgum núna :) Er heima... sit hérna berfætt í lopapeysunni minni og er að hlusta á disk með Nina Natassja, held það sé skrifað svona. Skemmtileg. Þessi dagur er bara búinn að vera aldeilis fínn... við héldum loksins þennan markaðsfræðifyrirlestur í morgun og hann tókst bara ágætlega. Fáum líklega einkunn á morgun... vona að þetta verði ekki hræðilegt. Jæja framhald,,, gleymdi mér aðeins, var að gera kennslumatið, loksins fékk maður að segja það sem maður vildi um þessa kennara og allt án þess að vera undir nafni!!! Ekki það að ég myndi alveg vilja segja sumt af þessu beint við kennarana. Ég var næstum búin að gleyma því hvað það er gott að vera berfætt! Og eina ástæðan fyrir því að ég get verið berfætt hérna núna er sú að það er hlýtt hérna inni hjá mér... svo þetta berfætta blogg er í boði Hitaveitu Suðurnesja :D Vá hvað ég er skáldleg! Ég fór í Smáralindina í dag... eða ég hljóp réttara sagt í gegn. Fór í Zöru og skoðaði föt, rosalega sætt lúkk á búðinni en samt virðist ég aldrei finna neitt sem passar mér vel. Mátaði buxur sem virkuðu sætar, kostuðu bara 1600 krónur svo mig langaði mjög mikið til að þær pössuðu, þá hefði ég keypt þær,,, en þær voru svo asnalegar eitthvað. Svo ég keypti engar buxur :( En í staðinn hljóp ég út í Sporthús þar sem ég hitti Hrönn og við klifruðum nokkra stiga... mjög fínt. Enda er ég þvílíkt slökuð og fín núna... mér líður bara þónokkuð vel. Ástæðan fyrir því að ég fann mig í Smárahverfinu í dag var sú að ég fór að láta taka mynd af fæðingarbletti... nei mig langaði ekki að ramma hana inn. Hann var bara dáldið dökkur svo mér fannst réttast að láta tékka á þessu. Það kom í ljós að hann er alveg þokkalega eðlilegur, bara svona "bjútí-spott" ;) Gott að vita það. Dagarnir mínir eru tilbreytingarlausir og innihaldssnauðir og ég held að bloggurinn minn sýni það alveg. Ég basically fer í skólann, ræktina og heim aftur. Það er svosem alveg fínt. Ég gleymi alveg að ég fór í sápubúðina í Kringlunni í dag, þar er til margt mjög skrýtið, t.d. sjampó í föstu formi sem ég áttaði mig alls ekki á að hefði verið til "í gamla daga" eins og stelpan í búðinni útskýrði fyrir mér. Hún var mjög áhugasöm og sýndi mér held ég bara allt safnið! Hún hefði nú samt alveg getað verið smekklegri þegar hún var að benda mér á vörur sem ég ætti að kaupa. Ég veit alveg að ég er með bólur... ég er að vinna í því ;) En hárið á mér, mér finnst ekkert sérstaklega mikið að því... söluaðferðir hennar hittu ekki í mark hjá mér, því miður. En ég vildi samt að ég ætti baðkar svo ég gæti prufað eitthvað af þessum yndislega spennandi baðkúlum sem eru seldar þarna. Til dæmis rósabaðkúlan sem inniheldur rósablöð og miklu fleira. Ég er hins vegar ekki viss um að ég myndi fíla allt þetta glimmer dóterí sem á að vera svo vinsælt núna fyrir jólin. Ég mæli alveg með því að fólk kíkji á þetta... það er frekar sterk lykt þegar maður kemur inn í búðina en hún venst alveg strax. Ekki svona höfuðverkjalykt þúst ;) Það er rosalega margt sætt þarna sem mætti gefa í jólagjafir til dæmis, ekkert svo dýrt ;) Ég ætla núna að fara að horfa á Beðmál í borginni og setja berfættu tærnar mínar upp í loft... kannski ég ætti að lakka neglurnar??

mánudagur, nóvember 04, 2002

Kominn tími á að blogga pínupons ;) er búin að vera upp í skóla í allan heila dag. Fyrst var skóli og svo var tekið á því í þessu markaðsfræðidóteríi... loksins er þetta að verða búið. Eigum eftir lokasprettinn á morgun og svo ætti að vera hægt að fara að æfa fyrirlesturinn og lokapunkturinn verður á fimmtudag um hálftólf!!! Þá verður þetta markaðsfræðirusl loksins búið!! Ég er annars bara nokkuð sátt við lífið og tilveruna, þvílíkt fegin að hafa loksins komist heim, svöng og uppgefin eftir allt þetta comprehensive hópastarf í næstum allan dag!! það er nú bara takmarkað hvað maður getur verið nice í marga klukkutíma í einu... hehe. Helgin var mjög róleg hjá mér, var upp í skóla á laugardaginn frá eitt til fimm í markaðsfræðinni og aftur á sunnudaginn í tvo tíma. Annars var ég bara hérna heima í letikasti. Setti í þvottavél og vaskaði upp =) Sunnudagurinn var frekar kósý og mig langaði ekki baun í bala að fara upp í skóla en lét mig samt hafa það. Fór svo í mat til pabba&co um kvöldið og rölti svo heim í blíðunni. Alveg nauðsynlegt að nýta sér það að frostið fór og það kom hlýja og stilla. Alveg yndislegt til að fá sér gönguferð, ég rölti niður Arnarhraunið og þar er allt með svipuðu móti og áður. Síðan rölti ég meðfram tjörninni, finnst lýsingin sem er búið að setja og hellulögnin og þetta allt saman alveg til fyrirmyndar. Svo fínt, alveg eins og í alvöru bæ!! ;)

laugardagur, nóvember 02, 2002

Hvað er sambýlissveppur?

föstudagur, nóvember 01, 2002

Skrifaði þráðlaust á tölvu nágrannans

Ég horfði á mynd í gærkvöldi. Bjarki frændi kom yfir með nýja lappann sinn og var með þvílíkt úrval af nýjum myndum að það var bara erfitt að velja á milli! Við ákvaðum að lokum að horfa á Panic Room, með Jodie Foster og fleirum. Hún var bara virkilega fín. Og í þessum líka frábærlega góðu gæðum :D Mæli með þessari mynd, (nema fyrir Björgu alltaf mikil spenna!! hehe) byrjunin var þvílíkt spennandi, ég var ekkert smá fegin að vera ekki ein að horfa! Reyndar kom kafli í myndinni þar sem hún varð oggu pínu langdregin. Myndatakan var líka ógeðslega flott, meira að segja ég tók eftir því!!!