-Bryndís-

fimmtudagur, janúar 30, 2003

Helgarfrí enn á ný :) Ég var að komast að því að ég náði seinna endurtektarprófinu mínu sem þýðir að ég hef möguleika á því að útskrifast í vor!!!!!!! Ég hélt semsagt að ég væri fallin sem hefði þýtt að ég hefði þurft að taka prófið aftur næsta haust... en ég náði... jeiiiiiii !!!!!!!!!! Ég ætla að vera dugleg um helgina, fara á kaffihús, fara í klippingu, fara í partý og læra. Þvílík sæla að vera loksins komin með vissu fyrir þessu prófi, ég get svarið það að ég snerti varla jörðina þegar ég labba núna :D

mánudagur, janúar 27, 2003

Helgin var fín... lá mikið í leti, lærði pínu og fór í veislu út í sveit. Horfði á Ghostworld á laugardagskvöldið sem mér skilst að sé gerð eftir teiknimynd. Frekar súr mynd en samt fín. Thora Birch og Steve Buscemi leika aðalhlutverkin. Svo horfði ég á hálfa My big fat greek wedding... þegar við vorum búin að horfa á hálfa myndina kom í ljós að það var skemmd á síðari hluta disksins og hann þess vegna óáhorfanlegur... sem mér fannst mjög svekkjandi því myndin dó akkúrat þegar kærastinn var búinn að segja við verðandi tengdamóðir sína "nice boobs" á grísku þegar hann ætlaði að segja takk. Það var litli bróðirinn, verðandi mágur, sem var svona skemmtilegur við nýja fleimið hahahaha. Mig hlakkar frekar mikið til að sjá restina af myndinni sem mér fannst annars mjög fín. Bara þetta að það vantaði seinni hlutann. Smá vesen. Rán er búin að vera í þvílíku kúrustuði um helgina, hún er að ná sér af flensunni sem hún fékk gefins á föstudaginn. Ég hélt hún ætlaði að sofna á fótunum í gær, hún lokaði augunum og svo hallaðist höfuðið alltaf lengra og lengra niður nær borðplötunni en svo fattaði hún að leggjast niður, hehe. Ekkert smá sætt. Ég fór í sveitina í gær, það var í tilefni þess að langamma Friðbjörg hefði átt afmæli. Hún hefði orðið 94 ára. Mjög huggulegt, það var boðið í morgunverð kl. 11 og svo var auðvitað setið fram eftir degi og spjallað við ættingjana. Ágætt að rifja upp svona hvernig andlitin þeirra líta út. Ég fór svo í mat til pabba í gærkvöldi og ekki vildi betur til þegar Salvör var að skutla mér heim en við vorum stoppaðar af löggunni. Þeir voru svo sem alveg nice... voru bara að minna á það að bíllinn átti að vera löngu farinn í skoðun. Ég held að löggan sé að taka sig á í firðinum því við mættum öðrum löggubíl og hann gerði sig líka líklegan til þess að stoppa okkur en hafa svo líklega séð "séns" miðann. Þeir allavegana stoppuðu okkur ekki. Ég er reyndar ekki búin að heyra hvernig heimferðin fór hjá Salvöru. Las í fjarðarpóstinum að löggan í Hafnarfirði ætli bara að uppræta lögbrot í eitt skipti fyrir öll. Hljómar fallega, sjáum til hvernig tekst til ;)

laugardagur, janúar 25, 2003

Þvílíkt letilíf!! ég er heima að dúlla mér með Rán, við lásum Fréttablaðið yfir morgunkaffinu. svo erum við búnar að vera ofsalega duglegar að laga til og snurfusa... ég held samt að ég verði að fara að læra núna... sérstaklega fyrir áðurnefnda rekstrarhagfræði. Ég hélt í alvörunni að þetta væri ekki svona mikið mál!!!! Fór með Rán í fyrstu bólusetningu í gær, hún var þvílíkt stillt og góð. Dýralæknirinn var kona og hún var svo yndisleg, alveg tilbúin að svara öllum spurningum og það sást svo innilega hvað hún elskar dýr. Þau voru með læðu sem var mjög lík Rán, ferlega sniðugt. Svo voru þau líka með hund sem var nú svona meira líkur kálfi en einhverju öðru. Gæti trúað að hann sé eitthvað skyldur stóra-dana en hann var samt svo feitur held ég miðað við svoleiðis. Ég hef ekkert vit á hundum, best að taka það fram bara strax. Allavegana þá gekk þetta bara þvílíkt vel og hún fann held ég varla fyrir því þegar hún var stungin. Það heyrðist ekkert í henni. Dúllan, var alveg hress eftir bólusetninguna, var ekki sátt við það að þurfa að dúsa ofan í töskunni sem ég setti hana í á leiðinni. Á ekki burðarbúr en þarf virkilega að splæsa í svoleiðis það er alveg greinilegt. Eina sem ég sá öðruvísi við hana var að hún var obboslega sybbin í gærkvöldi svaf í fanginu á mér í marga klukkutíma á meðan ég horfði á sjónvarpið. Ég var reyndar líka obboslega sybbin steinsofnaði yfir fréttunum sem ég settist sérstaklega niður til að horfa á... sá bara fréttayfirlitið í byrjun og aftur í endann. hahaha

föstudagur, janúar 24, 2003

Jæja ég var að horfa á íslensku tónlistarverðlaunin. Þau voru barasta fín :) Gísli Marteinn og Guðrún Gunnars voru kynnar og mér fannst þau komast bara nokkuð vel frá þessu. Voru voða mikið að gera grín en náðu að komast yfir þessa yfirborðskennd og helgislepju sem verður svo oft til á svona íslenskum hátíðum og viðurkenningadóteríi. Og tónlistarmennirnir voru bara nokkuð stilltir í ár og voru ekkert að mótmæla því að hafa fengið verðlaun ;) (Reyndar minnir mig að það hafi verið á Eddunni í fyrra þar sem einhver listamaðurinn rakkaði verðlaunin niður þegar hann þakkaði fyrir sig? man einhver??) Reyndar voru þónokkrir sem notuðu tækifærið og mótmæltu virkjun við Kárahnjúka. En verðlaunaafhendingin fór bara vel fram og þetta var bara þrælskemmtilegt. Hera fékk verðlaun sem besta söngkonan og þar var mikið gert grín að því að Samkeppnisstofnun væri komið í málið því fram að þessu hafa Björk og Emilíana Torrini alltaf hlotið verðlaunin :o) ég hafði ekki áttað mig á því. Sýnir hvað ég fylgist gífurlega mikið með. Ef ég sný nú umræðuefninu algjörlega í kross... þetta dæmi með Kárahnjúka?! Ég veit ekki hvað ég á að halda. Ég vil ekki vera á móti bara til að vera á móti en mér finnst samt eitthvað svo gruggugt við hvað ríkisstjórnin og sá pakki er að KEYRA ÞETTA Í GEGN á miklum hraða og í raun án þess að hlusta á mótrökin virðist vera. Afhverju fjárfesti Ísland ekki bara með Green og hirti ágóðann... sami ágóði á nokkrum mánuðum sem á að koma á næstu 15 ÁRUM frá Kárahnjúkavirkjun. Sem hlýtur að sýna að Kárahnjúkar eru nú ekki að skila neinum geggjuðum gróða!!!!!!! Æ ég hef barasta ekki hugmynd um hvað ég er að tala eða hvað? Mér finnst samt rangt að sökkva öllu þessu landflæmi... mér sýndist ég hafa séð að þetta væri hættulegt fyrir tilvonandi ferðamenn á svæðinu. Var það missýn hjá mér kannski þegar ég var að lesa DV yfir öxlina á einhverjum lífsþreyttum manni á Hlemmi í dag? Ég gæti setið hérna í alla nótt og bloggað út í hið óendanlega ;) Ég er komin í helgarfrí og ætla að fara með afkvæmið mitt til dýralæknis á morgun... vona að hún verði æðislega samvinnuþýð og glöð... right! Þarf að vera dáldið dugleg að læra um helgina... er að reyna að komast inn í rekstrarhagfræði og það bara gengur alls ekki sem best. Mér finnst kennarinn alls ekki vera að gera þetta skýrara fyrir mig. Það er eins og hann reyni að tala dulmál svo ég nái örugglega ekki því sem hann er að segja!!!! Ég er farin að njóta helgarfrísins :þ

þriðjudagur, janúar 21, 2003

Þetta verkefni sem ég er að vísa í hérna fyrir neðan er ótrúlega sniðugt... að þetta sé hægt að láta svona ólíka hópa vinna saman. Listaspírur og viðskiptafræðingar í eina sæng... ekki það trúlegasta í heimi!! Ég er ótrúlega löt við að blogga, hef bara ekkert að segja, er að reyna að vera ótrúlega dugleg að læra. Það gengur svona upp og ofan. Skrýtinn mánuður þessi janúar... það er orðið ótrúlega bjart en samt er eitthvað svo dimmt inn í mér. Mér finnst ennþá drungalegra en þegar það var næstum dimmt allan sólarhringinn fyrir jól. Hvernig er þetta hægt eiginlega? Ég verð bara að fara að taka vorhreingerninguna inn í mér svo ég trúi því einhvern veginn að þessi vetur verði búinn og vorið taki við. Ég verð að segja það að mér bara hundleiðist, það er ekkert öðruvísi!! Samt er ekki eins og ég nenni að fara að gera neitt. Alls ekki! Ég er að hugsa um ritgerð sem ég þarf að gera fyrir Stjórnunaráfanga sem ég er að taka, er ekki alveg viss um hvað mig langar að skrifa um. Það er samt farið að bóla á hugmyndum svona innst inni... ritgerðin á að vera 10 síður með línubili 2. Það sem ég er að hugsa um er, ætli það verði ekki erfitt að takmarka sig við þessar tíu síður? Það kemst ekki svo mikið fyrir á tíu síðum. Best að byrja vinnnuna svona, ekki mikla fyrir sér að þurfa að skrifa tíu síður heldur mikla fyrir sér hvernig hægt verður að minnka öll þessi óskaplegu ritverk mín niður á tíu síður í línubil tveir. Það er kannski best að byrja bara og sjá svo til hvernig gengur að ná tíu síðum. Gæti verið gott til árangurs. Ég held það sé best að fara að gera eitthvað... annars dey ég bara úr leiðindum hérna :þ Fór aðeins í byggt og búið í dag, sem er ekki í frásögur færandi en verð að koma því að að ljósaseríurnar eru á tilboði og ég sá pizzaofn sem mig langar mjög mikið í... og mínútugrill sem mig langar meira í. En þessi blessaði pizzaofn kostar 20 þúsund krónur!!! þvílíkt verð, bara fáranlegt fyrir hlut sem hægt er að elda pizzur í og ekkert annað. En mig langar samt í hann...

Konunglegt hundafæði, föt með meiningu, lautarkarfa úr pappír, fyrirmynd ungra stúlkna og rakáhöld fyrir leyndustu staði kvenlíkamans eru verkefnin sem send verða á London International Advertising auglýsingakeppnina. Verkefnin eru afrakstur sameiginlegs námskeiðs fyrir nemendur HR og Listaháskólans og var verkefnið að hanna nýja vöru, gera áætlun um markaðssetningu hennar erlendis og jafnframt að fullgera auglýsingar og kynningarefni. Verkefnin eru til sýnis í Háskólabauninni, matsal HR. Listaháskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík leiða saman hesta sína!

föstudagur, janúar 17, 2003

Þessi væri nú góður til að hlýja sér með!!

Fimmtudagur og ég er komin í helgarfrí, þvílík sæla ;) Ég elska stundaskrána mína, hún gerir alveg ráð fyrir því að ég nenni ekki alltaf á fætur fimm daga vikunnar til að fara í skólann.... verst að ég hef verið ívið latari á mánudögum í vetur úbbsss. En án gríns þá hef ég lofað sjálfri mér að vera ógislega samviskusöm að læra í vetur og mæta alltaf í alla tima. Alltaf heilög loforð gefin svona í byrjun annarinnar ;) Ég er að hugsa um að skrifa bók. Og hún mun heita "Bókin um Rán. Fyrsta gæludýrið mitt. Og allar kúnstirnar sem hún leikur. Og öll prakkarastrikin hehe" Kannski dáldið langt nafn? En ég verð nú að blogga aðeins pínkulítið um Rán. Hún er algjör dúlla og púki og prakkari og fallegasta kisan í öllum Hafnarfirðinum. Ég hefði aldrei trúað því að svona lítið kríli myndi stela hjarta manns svona um leið. Alveg um leið og ég fékk hana og hún var mín. Og mér finnst það bara sætt þegar hún hoppar á hausnum á mér um fimmleytið á morgnana alveg "shiny and new" eftir sinn þriggja stunda blund. Ég er kannski oggupoggulítið að ýkja núna... mér finnst það ekki fyndið þarna um fimmleytið en núna þegar ég hugsa um það þá finnst mér það bara gegt sætt. Ég hefði aldrei trúað því að þetta væri svona mikið hlutverk að ala upp kettling. Það þarf alltaf að vera að passa upp á að hún fari sér ekki að voða. Stundum er ég að ímynda mér að þetta sé svona að hluta til eins og að vera með lítið barn, þannig að þetta er kannski ágætis æfing svona til að byrja með. Ekki það að ég er viss um að það er hundrað sinnum erfiðara að vera með ungabarn. Eftir að vera búin að tætast út um öll gólf og upp um alla veggi þá er hún sofnuð blessunin, hún liggur í fanginu á mér, alveg búin að vera og malar hástöfum. Hversu sætt er þetta? Hjartað mitt bráðnar bara. Ég held ég gæti skrifað hetjusögur af henni í alla nótt... en ég geymi það fyrir bókaskrifin ;) En ég verð að segja bara eina... nágrannakona mín benti mér á að köttum væri illa við álpappír og hún gerði það með sína kisu, setti álpappír á sófann á nóttunni þar sem hún mátti ekki klóra... svo ég prófaði það. En nei! litla hetjan beit bara í hann og henti honum á gólfið og var nokkuð sama um það að köttum ætti að vera illa við álpappír. Það hlýtur að vera ógislega gaman að lesa þessa sögu... þetta er sérstaklega fyrir allar vinkonur mínar sem finnast kettir leiðinlegir ;) Ég veit líka að þær eru þeir einu sem lesa hann hehe. (Þetta er allt liður í kattavæðingunni... sem er aðal samsæriskenningin um þessar mundir hahahaha)

föstudagur, janúar 10, 2003

Jæja ég læsti mig ekkert úti í gær :) Ég fór í skólann í einn tíma... þægilegur dagur... fór í Kringluna og keypti mér rauða skó í X-18... ógislega ánægð með þá. Fékk svo buxur í Mambo í Hafnarfirði, diesel gallabuxur... nú á ég bara eftir að finna mér jakka ;) Ég er að fara í sumarbústað upp í Svignaskarð með skólastelpum, fengum Matvísbústað, mér skilst að hann sé bara mjög fínn það er allavegana pottur og bústaðurinn á að vera sæmilega stór... svo á bara að djamma og djúsa og hafa það mjög gott alla helgina ;) Ég er búin að redda pössun fyrir Rán, svo ég þarf ekki að vorkenna henni að vera einni heima... mér finnst þetta ótrúlega sætt að hugsa til þess að hún er að fara í pössun. Pabbi & co ætla að taka hana að sér, voru bara mjög spennt yfir því að fá hana í heimsókn, ég vona að ég fái að fara með hana heim á sunnudaginn hehe. jæja ég nenni ekki meiru, set betri lýsingu á helginni síðar, skemmtið ykkur vel um helgina, ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera ;)

fimmtudagur, janúar 09, 2003

Jæja, þetta var nú bara ansi hreint skemmtilegur dagur... alveg óhætt að flokka hann sem "one of those days"!!! Svo sem alveg venjulegur dagur þar til klukkan eitt þegar ég kom heim til mín og uppgötvaði að ég var læst úti... og enginn heima á efri hæðinni til að hleypa mér inn, damn. Svo ég fór til pabba og fékk aukalykilinn, tók strætó aftur heim og komst inn um hálfþrjú leytið. Dagurinn var svo heldur viðburðarlítill þar til ég þurfti aftur að bregða mér út um sjö leytið og læsti mig þá aftur úti!!! Og allir fjórir húslyklarnir liggja inni á borðinu. Svo ég ætlaði bara að vippa mér inn í þvottahúsið og nota aukalykilinn en nei! þá er ég búin að týna honum. Svo ég var bara endanlega læst úti. Ég ákvað að fara í heimsóknina sem ég var á leiðinni í og kom svo aftur heim um ellefu og pabbi hjálpaði mér að brjótast inn.... at last er ég komin heim og er mikið að hugsa um að fara að láta setja svona keyring í naflann á mér svo ég verði ekki lyklalaus meir!!! hehe

mánudagur, janúar 06, 2003

Gleðilegt nýtt ár! Jæja grár hversdagsleikinn er tekinn við á nýjan leik. Jólafríið er búið, Styrmir farinn, skólinn byrjaður og allt að falla í sínar föstu skorður. Rútínan er svo sem allt í lagi... Hef verið hrikalega löt í jólafríinu, hef ekkert bloggað eiginlega... Þetta hefur nú liðið allt í friði og spekt, mikið borðað af góðum mat í góðra vina og ættingja hópi. Og svo merkilegt sem það er, þá hef ég barasta eiginlega ekkert að segja núna :| Reyni að spá í þetta aðeins hvað ég get tjáð mig um næst... Vona að allir hafi komið vel undan jólafríinu og séu heilir á líkama og sál... og hafi kannski náð að hvíla sig pínkupons ;) Ég er nú sjálf alveg hreint uppgefin eftir allt þetta afslappelsi!!!!