-Bryndís-

fimmtudagur, febrúar 27, 2003

Go Libeskind! Síðan með hugmyndum Libeskind fyrir WTC svæðið Og hann vann hugmyndasamkeppnina :) Hann er meiriháttar arkitekt, sá þátt með honum óvart í sjónvarpinu einhvern tímann í haust og féll gjörsamlega fyrir því sem hann er að framkvæma. T.d. má nefna hús til minningar um helförina í Berlín. Og hugmyndir sem hann vann fyrir konunglegt safn í Englandi. Sem að hinir þurru englendingar voru vægast sagt ósáttir við!! Hlakka til að sjá útkomuna hjá honum. Þetta er alvöru arkitekt.

mánudagur, febrúar 24, 2003

MTV ætlar í stríðið Read all about it. MTV goes to war. Þá hlýtur þetta nú að vera allt í lagi. Sláum þessu bara upp í stórt partý. Hver ætli verði besti dansarinn?

Hættulegar bálfarir híhí :þ

sunnudagur, febrúar 23, 2003

Þvílík snilld :D samlokuvélin

Gleðilegan konudag :)

laugardagur, febrúar 22, 2003

Feitasti köttur heims í Rússlandi Mér finnst þetta bara illa gert, það á að banna svona... ég meina kötturinn borðar meira en ég borða á dag :þ

föstudagur, febrúar 21, 2003

Ojjjjjj hvað það er ógeðslegt slabb og ógeð úti!!! Ef ég væri ekki með bíl í láni þá hefði ég sko barasta ekkert farið út!!!!! En hvað um það... það er föstudagur og ég læt það nú ekki framhjá mér fara að blogga... þetta er nú einu sinni föstudagsbloggur :) sit hérna upp í skóla, var að prenta út verkefni í rekstrarbókhaldi, loksins búnar að stemma af... þvílík sæla þegar allt smellur saman :D Ég held því fram að endurskoðendur sú mjög abnormal fólk en samt kikkið sem mar fær þegar allt smellur saman aaaahhhhh ;) hahahaha nú þarf ég bara að fara að koma mér með Rán til dýralæknisins í bólusetningu-partTwo og þá get ég farið heim og kúrt mig heima í allan dag frh. síðar....

Unnið á lyklaborð út frá innrauðu ljósi Næstum eins og luftgítar þá? Galli í vinsælu netöryggiskerfi úbbosí, smá vesen :/

þriðjudagur, febrúar 18, 2003

Ég var að klára próf í rekstrarbókhaldi, held þetta hafi bara gengið alveg hreint sæmilega :D Kíkti á pixie-inn fyrir Reykjavík og hann er svona fallega bleikur himininn... hvað ætli það þýði... að sólin sé að koma upp or what??? en allavegana er 2 stiga hiti í Reykjavík og virðist ekki vera mikill vindur 16,6 km/klst ... kann ekki að reikna hvað það eru margir metrar á sekúndu... léleg mar :s

mánudagur, febrúar 17, 2003

Zeta Jones óhuggandi Hljómar þetta nokkuð eins og manneskja sem er í ójafnvægi vegna óléttu????

Jude og Nicole hittust á laun Það hefði nú kannski mátt setja meira í fréttina heldur en þessa einu línu og jafnvel hafa mynd af Jude Law líka hugsanlega.... slúðurfréttamenn eiga mjög bágt!!! kl. 12:11 update: kl. 14:21 Ég hef semsagt akkúrat hitt á þegar var verið að setja fréttina inn og þá stóð bara "Nicole Kidman og Jude Law hittust á laun í síðustu viku" og ekkert meira. Og fannst mér þetta heldur léleg blaðamennska... en það hefur semsagt bara verið uppkastið af greininni... því nú stendur eitthvað meira.

laugardagur, febrúar 15, 2003

Dollý er dáin :'( sniff sniff

fimmtudagur, febrúar 13, 2003

Þetta er fyndið stal þessu frá Björgu ;) ok núna er þetta fyndnara, er búin að laga linkinn, hehe Er hún heimsk?? Chris Martin, ég skal giftast þér :D update: 17/12/03 14:29 Komið hefur í ljós að Chris Martin heldur því fram að þau séu enn saman... kannski lifir hann í sjálfsblekkingu? Eða kannski lifi ég í sjálfsblekkingu... allavegana tilboðið stendur ennþá ;)

miðvikudagur, febrúar 12, 2003

Minns langar í sona!!!

Grey kisi

Var að koma heim, Hafsteina bauð mér í kaffi, skruppum á Cafe Aroma í Firði... þetta er bara ótrúlega kósý staður og þetta var mjög kósý kvöld... takk Hafsteina :D Það er þvílíkt hvasst úti, hvín í öllu hérna, þá er nú gott að vera bara inni í hlýjunni. Rán liggur í fanginu á mér og hrýtur, litla blessunin. Meira hvað hún er alltaf sybbin... svona er þetta. Ég gæti svo sem alveg hugsað mér að sofa allan sólarhringinn þegar veðrið er svona... allavegana til vara að þurfa ekki að fara neitt út og þrautavara að það sé þá ekki rigning og rok þegar ég þarf að fara út. Ég er að læra undir lögfræði... það er svo skemmtilegt málfar sem finnst í þessum lagabálkum öllum saman ;) Þetta er annars stórskemmtilegt og fyrr í kvöld las ég allt um hvernig héraðsdómur fúnkerar... mjög áhugaverð lesning hehehe.

laugardagur, febrúar 08, 2003

Hvernig sjá kettir?

föstudagur, febrúar 07, 2003

Jæja þetta er nú að verða hálfgerður föstudagsbloggur ;) ég er barasta ekkert búin að blogga í febrúar... þetta er rosalegt. Ég er bara búin að vera á fullu í skólanum og það er svo sem alveg nóg að gera ennþá. Náði að skila tveimur skilaverkefnum í dag og er bara sátt við þau. Þannig að núna er bara málið að snúa sér að næstu verkefnum :D Veiiii... Sit hérna og hef það notó með Rán... búin að kveikja á fullt af kertum, sem kjánaprikið nær ekki í by the way! Þetta verður bara róleg helgi hjá mér, þarf að gera ritgerð í Stjórnun er að spá í að skrifa um ethics eða svona siðfræði spurningar sem stjórnendur standa frammi fyrir. Svo þarf ég að lesa mörg hundruð blaðsíður í lögfræði. En það er nú bara skemmtilegt :)