-Bryndís-

fimmtudagur, mars 27, 2003

Going, going gone! Þetta tók aldeilis stuttan tíma, ég bjóst nú við að íbúðin myndi seljast frekar hratt en kannski ekki svona hratt. Tilboðið var samþykkt í dag og við erum semsagt "búin að selja". Það verður gengið frá öllu þegar Styrmir kemur heim í páskafrí og afhent eftir páska. Í gær var svona íííí við erum að selja - en í dag er það svona meira ég trúi þessu ekki, verð ég þá að flytja og fara. En það er víst best að horfa bara á björtu hliðarnar og vera ánægð - og hugsa bara um hvað við eigum eftir að kaupa næst, sem verður nú væntanlega ekki alveg á næstunni. En næsta mál á dagskrá eru víst vorpróf og nóg af þeim! Alveg heil fimm stykki :o Svo ég verð víst bara að hætta að hugsa um flutninga og fara að grúfa mig oní glósurnar, jeiiiii. Fyrsta prófið er á þriðjudaginn kemur, viðskiptalögfræði og næsta á eftir því á laugardaginn, ný tækni, svo rekstrarhagfræði á mánudaginn og skattskil einstaklinga föstudaginn og stjórnunII á laugardaginn 12. apríl. Ég hlakka til kl. 12, laugardaginn 12. apríl :D Það er víst ekki eftir neinu að bíða og best að fara að kasta sér í þetta.

mánudagur, mars 24, 2003

Varúð Súkkulaði er ekki bara fitandi, það getur verið lífshættulegt!!

Jæja það er bara allt að gerast. Slatti af fólki búið að koma og skoða íbúðina. Og fólk svoleiðis keppist við að segja mér hvað ég sé smart og búi fallega ;) Ekki leiðinlegt hehe. Við erum búin að fá fyrsta tilboðið í íbúðina og þurfum að svara því á morgun. Þetta ætlar að ganga allt voða hratt fyrir sig. Það er ágætt. Annars er ég bara með báða fætur á jörðinni or NOT og er að hugsa um skólann svona inn á milli sem ég dagdreymi til Kongsberg. Þetta er svo spennandi, finna vinnu, finna íbúð, vera til :)

sunnudagur, mars 23, 2003

I was born in the Year
1976
And my favorite color is Blue

föstudagur, mars 21, 2003

Rosalega er lítið að gerast á bloggrúntinum :) Var að sýna íbúðina í fyrsta skiptið, það gekk bara fínt :) Núna er ég að fara í það að klára skattaskýrsluna og svo ætla ég að hafa það náðugt í kvöld. Elda mér eitthvað gott í svanginn og glápa á sjónvarpið. Ég ætla til dæmis ekki að missa af Diddú hjá Jóni Ólafssyni!!

look! cute little kittens! blogjam random kitten generator Þetta er nú alveg það sem þarf í amstri dagsins :)

Saddam? Spurningin er þessi hvar er hann og hver þeirra er hann??

miðvikudagur, mars 19, 2003

Michael Moore skrifar Bush opið bréf. Og hey það er svo mikið til í þessu og það er meira að segja bara fyndið líka.

ég verð að segja að ég er algjörlega á móti þessari innrás breta og bandaríkjamanna á írak. Eitthvað verður að taka til bragðs en ekki svona. bandaríkjamenn setja mikið fyrir sig að Frakkar hafi ætlað að beita neitunarvaldi hjá SÞ en fréttir herma að Frakkar séu tilbúnir að hafast eitthvað að ef það kemur í ljós að írak á efnavopn og notar þau. Þeir eru semsagt ekki meira á móti stríði við eða innrás á írak en þetta. Það sem Frakkar vilja ekki gera er að ráðast að fyrra bragði á írak án samþykkta frá SÞ. Þetta mál er allt hið skelfilegasta og það sem orkar tvímælis á mig er þetta sem usa segir að það taki bara örfáa daga að yfirbuga herinn og kasta saddam úr landi. Hversu sterkur og mikil ógn er þessi her þá ef það tekur aðeins þennan örstutta tíma að eyða honum?? Bara taka til aðeins og fara svo heim og horfa á Óskarinn?!?! Svo vil ég líka að það komi fram að ég er algjörlega á móti því að ríkisstjórn Íslands styðji við aðgerðir bandaríkjahers. Og mér finnst að þeir ættu einir að bera ábyrgðina á þeim kostnaði sem fellur til við uppbyggingu landsins eftir að þeir hafa sprengt það í tætlur. Íslendingar eiga alveg nóg með sig!! Annars fyrir utan stríðshrylling og hræðslu við það að heimsendir nálgist og verði jafnvel kominn fyrir lok vikunnar þá er það helst nýtt að við erum búin að setja íbúðina á sölumarkaðinn. Ég vona að þetta gangi bara hratt fyrir sig og eitthvað hamingjusamt fólk geti flutt inn fyrir sumarið :)

laugardagur, mars 15, 2003

En hvað þetta er góður dagur. Vaknaði um ellefu leytið og dagurinn hefur byrjað bara mjög þægilega. Fékk mér ristað brauð og kaffi í morgunmat og las fréttablaðið. Er að herða mig upp í það að byrja að læra, er að skrifa skýrslu um 3ju kynslóðar farsíma og svoleis dót. Mjög áhugavert. Það hittir einmitt þannig á að cebit ráðstefnan er í þýskalandi þessa viku og það eru allskonar skemmtilegar fréttir að koma þaðan. T.d. um nýja síma og hljóðlátustu tölvu í heimi. Annars ætla ég ekki að gera neitt merkilegt í dag... var að spá í að kaupa málningu og mála gluggana að utan en það er rigning svo það verður að bíða aðeins. Var að tala við Björgu á msn og hún er í mömmuleik um helgina, þvílíkt sætt. Steinar Örn var einmitt með henni á lyklaborðinu og sendi heilmikið dulmál til mín... rosa gaman að fá að vera með :D Bjarki kom yfir til mín í gærkvöldi og við héldum Friends maraþon! Að sjálfsögðu með ís og tilheyrandi, namm :þ Horfðum á átta þætti í röð... byrjuðum auðvitað á byrjuninni og tókum fyrstu seríuna fyrir. Rosalega var fyrsti þátturinn hallærislegur :o Og rosalega er ég sein að fatta þetta. Hafði séð kannski svona einn þátt samtals úr þessum þáttum. Samt fíla ég Friends alveg, hef bara aldrei komið mér að því að fá þetta lánað og glápa á.

föstudagur, mars 14, 2003

Myndir af Rán og fleirum reyndar... Bið ykkur að horfa ekki á uppsetninguna, henti þessu upp í Frontpage hérna á fimm mínútum... Var að skanna inn myndirnar og fannst tilvalið að henda þessu út á webbann í leiðinni. En skammast mín þokkalega fyrir uppsetninguna... nenni bara ekki að eyða meiri tíma í bili :)

miðvikudagur, mars 12, 2003

Sálarfrumurnar fundnar athyglisvert!

mánudagur, mars 10, 2003

Nei en sætt :) Til hamingju krakkar mínir :D

Hringdi á Gauk og þeir höfðu fundið jakkann minn :) æðislegt... hann var reyndar frekar shabby á að líta svo ég þarf að splæsa hreinsun á hann. En ég fékk hann allavegana aftur og í heilu lagi eftir því sem ég best sé! Eyddi eftirmiðdeginum með Júlíu, við fórum í súfistakaffi í mál&menningu, frekar huggulegt. Alltaf gaman að fara á súfistan með skemmtilegu fólki :) Þetta var bara nokkuð góður dagur og alveg yndislegt þegar sólin skín svona fallega. Ég verð nú samt að segja að þetta var algjört gluggaveður, það var skítakuldi úti!!

A GOLD Dragon Lies Beneath!

I took the Inner Dragon online quiz and found out I am a Gold Dragon on the inside. My Inner Dragon is the most honorable of all. Golds are the third rarest of all the dragons (after Platinum and Chromatic dragons) and have a station in society that reflects their rarity. I am what one might call a Draconic Knight. Golds live by a strict code of chivalry and commitment. Remember Draco? Yep, Gold Dragon. My appearance is fearsome and all-mighty but I'd never stoop so low as to bring any harm to a human. I'm one of only two dragon types that are aligned "Lawful Good" and demonstrate great magical proficiency. My piety, beauty, wisdom, and inner strengrth are absolutely without parallel.

Of course, being a Gold Dragon isn't all high ethics and codes. I like to fly around scaring things, advise humans in their affairs, and shapeshift. Strike that, I LOVE to shapeshift. And I'm great at it. In fact, who's to say I'm not really a Gold Dragon after all? My favorable attributes are honor, truth, kindness, gold, wisdom, bravery, and trustworthiness. If anyone threatens or tries to kill me, I could strike back with my breath weapon - Fire. But then, no one's tried anything that stupid in the last couple thousand years. After all, I'm about 54 feet long.

Rosalega er mikil umferð á síðunni minni, ég setti upp teljara í síðustu viku og núna er hann kominn upp í hundrað... váááá. Held reyndar að ég eigi svona eins og 50 af þessum uppflettingum hehe. Alltaf að kíkja og fara eitthvað á linkunum mínum. Ótrúlega sniðugar upplýsingar á þessum teljara.is... ég var t.d. að skoða daginn í dag og þeir sem hafa kíkt á síðuna mína eru annaðhvort með 1024x768 eða 800x600 í upplausn á skjánum sínum. Langflestir samt með 1024. Allir sem hafa kíkt við hafa notað IE einhver er með IE 5.0 og aðrir með IE 6.0 og styðja java 1.3 :) Ótrúlega nytsamlegar upplýsingar eða hvað finnst ykkur? Innlitin eru bara innanlands held ég, allavegana sé ég ekki neitt nema .is eitthvað. Helgin var bara fín, fór á reunionið á laugardagskvöldið, rosa gaman að hitta alla þessu gömlu skólafélaga og allir bara voða svipaðir og þeir voru áður. Svona einstaka sem ég átti erfitt með að koma fyrir mig. Mín þurfti nú auðvitað að drekka alltof mikið og týna jakkanum sínum. Er að fara að hringja niðrá Gauk að tékka á honum. Fór í leikhús í gærkvöldi að sjá "Rómeó og Júlíu" með vinkonu minni henni Júlíu :) Sýningin var meiriháttar, þrælfyndin og klúr dáldið líka. Leikararnir fóru á kostum og ég hló mjög mikið fyrir hlé og táraðist fullt eftir hlé. Mæli hiklaust með þessari sýningu og hún fær sko fullt hús af stjörnum frá mér! Skemmir sko ekki fyrir þessir fallegu kroppar sem bregður fyrir hvað eftir annað, nammi namm :þ

föstudagur, mars 07, 2003

Results... Christina Ricci
You're Christina Ricci. Beautiful.

What sexy girl are you
brought to you by Quizilla

Results... My ideal mate is Aragorn!
Aragorn

Who is your Ideal Lord of the Rings (male) Mate?
brought to you by Quizilla

cute flirt
Cute Flirt

What Kind of FLIRT are you?
brought to you by Quizilla

...blog... ég held ég meiki ekki að blogga meir... jæja kannski ég reyni allavegana :) dagurinn er búinn að vera yndislegur, fór í baðhúsið með Júlíu... við fórum í tækjasalinn og fórum svo í pottinn á eftir, það var æðislegt!! Svo skutlaði ég Júlíu til mömmu sinnar og fór sjálf að versla í Fjarðarkaup... alltaf svo gaman í Fjarðarkaup :D Svo sit ég hérna heima hjá mér alveg uppgefin eftir að hafa átt svona rólegan dag... er að hugsa um að horfa bara á sjónvarpið og hafa það rólegt. Er að fara á morgun á "endurfundi" að hitta krakkana sem voru með mér í grunnskóla. Það verður spennandi að sjá hvort fólk hefur breyst eða hvað. Hlýtur allavegana að hafa þroskast eitthvað á þessum 11 árum sem eru liðin. Ég veit að ég hef gert það.

miðvikudagur, mars 05, 2003

Demmitt, ég er búin að týna lykilorðinu mínu að haloscan svo ég get ekki breytt þessu rusli aftur :( ohhhhh pirrandi lykilorðarusl!! update: Ég er búin að henda haloscan og öllu þessu útlenska drasli sem virkar ekki... og er farin að nota Commento í boði www.eitthvad.is :D og búin að taka gleði mína á ný! Takk fyrir mig :)


Jude Law: you like them romantic and British with
beauiful green eyes.

Which guy are you destined to have sex with?
brought to you by Quizilla

Ég verð að finna mér nýtt commentakerfi, þetta squawkbox.tv er alveg mjög fínt -nema- að það birtir ekki íslenska stafi :( svo ég held ég setji bara haloscan inn í staðinn aftur. Annars er nú mest lítið að gerast hjá mér. Tvö skilaverkefni í þessari viku og eitt próf. Ágætt. Ég fór að telja betur dagana sem eru eftir í kennslu hjá mér, ég á víst bara 13 daga eftir því ég er ekki í tímum á föstudögum :D Og annað eins í fríi til að lesa undir próf... jeiiii. Er að byrja að huga að leigjendamálum, það er ýmislegt sem þarf að huga að í sambandi við að leigja út íbúðina. Það sem veldur mér mestum áhyggjum er að finna skikkanlega leigjendur sem borga á réttum tíma og ganga snyrtilega um. Tilhlökkunin alveg í botni eða þannig. Mér var boðið í mat í gærkvöldi og fékk þvílíkt fína baunasúpu og saltkjöt að sjálfsögðu, ég verð nú að segja að mig hlakkar alltaf jafn mikið til á hverju ári að fá saltkjötið. Svo fékk ég líka klippingu og strípur á sama stað... svo ég verði nú algjört bjútí fyrir helgina hehe. Þýðir nú ekki annað en að reyna að skarta sínu besta á samanburðinum.

þriðjudagur, mars 04, 2003

Þetta er nú auðvitað alveg glatað, þegar ég smellti á post&publish þá hefur einhver kóðabútur þvælst inn í færsluna svo ég get ekki lagað hana... ég er ekki ánægð með bloggerinn minn í dag :(

Er þetta ekki bara alveg týpískt? Ég mætti loksins á réttum tíma, hefur verið frekar erfitt svona undanfarið, og kemur þá í ljós þegar ég mæti á svæðið að kennarinn er veikur... hversu pirrandi er það?? En fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott! Þetta þýðir að ég hef tíma til þess að blogga þessar línur. Og ég veit að mínir einlægu aðdáendur verða mjög hrifnir... hehe. Hæ þú :D En nóg grín svona í morgunsárið... það er bara alvara lífsins sem er hér við völd. Það er ágætt að núna eru bara 19 dagar í síðasta skóladag... þetta er alltof fljótt að líða... þetta þýðir auðvitað að ég verð að fara að undirbúa mig undir próf... jeiii. Uppáhaldshlutinn af vetrinum :) Ég er svo andlaus eitthvað að ekki verður bloggað meira að sinni. Góðar stundir :þ

sunnudagur, mars 02, 2003

Ég er að reyna að velja mér nýtt lúkk á blogginn... gengur ekki alveg nógu vel hmmm...