-Bryndís-

miðvikudagur, apríl 30, 2003

Ég er að hlusta á Erykah Badu... þvílík snilld þessi kona. Ótrúlega fín tónlist sem ég verð aldrei leið á :D

Það fylgir auðvitað þegar ég er komin hérna yfir að fylgjast með konunglega slúðrinu :) Konunglega liðið er með fasta dálka í Se&Hör sem og Her&Nå. Martha Louisa og Ari Behn eru búin að eignast dóttur, hún er víst 50 cm og 3,6 kg. Og voða "pen". Þá vitið þið það ;) ps. fyrir þá sem ekki vita þá er Martha prinsessan sem afneitaði opinbera prinsessutitlinum til að geta gifst draumaprinsinum. Or somehting.

Halló halló! Ég er enn á lífi ;) Það hefur gengið eitthvað voðalega hægt að koma sér að þessu bloggi, fólk er búið að vera að skamma mig pínu fyrir að vera svona hrikalega löt hehe. Ég vona að þetta bæti missirinn og ég ætla nú að reyna að vera duglegri héðan í frá. Ég kom hérna út á fimmtudaginn, vildi að ég gæti sagt í þvílíkum hita og blíðu, en það var bara kalt í Osló. Þegar ég fór af stað að heiman var um 10 stiga hiti og flugmaðurinn tilkynnti í byrjun flugs að það væri 2 stiga hiti í Osló, leit ekki vel út en ég hugsaði með mér að það myndi nú hlýna á þessum tíma sem tæki að fljúga yfir. En nei, það var 4 stiga hiti í Osló þegar við lentum.... brrrrr kalt!! Ég náði mér í einhverja smá flensu áður en ég kom svo ég lá bara slöpp á föstudaginn og laugardaginn með nefrennsli og hósta en á sunnudaginn fór þetta nú að skána sem betur fer. Núna er ég bara nefmælt :D Ég hef nú varla gert mikið markvert síðan ég kom svo það er harla lítið að segja frá. Við elduðum íslenska lambasteik á sunnudaginn og buðum tveim samleigjendum Styrmis að borða með okkur, þeir voru bara hrifnir af kjötinu en fundu ekki mikinn mun frá norsku lambakjöti. Ég man ekki hvernig norskt lambakjöt bragðast svo ég er eiginlega ekki dómbær á það heldur. Ég er líka búin að sjá Spidermann síðan ég kom, það var nú alveg eitt af markmiðunum svo þetta er allt að koma ;) Annað markmið er að læra stærðfræði og ég er byrjuð á því líka, búin með einn kafla af skrilljón en ég er þó allavegana byrjuð ;) Ég er líka að setja saman ferilskrána mína á norsku svo ég geti farið að labba í fyrirtækin og dreifa þessu fagnaðarerindi. Það er þó nokkuð af tölvufyrirtækjum hérna svo ég ætla að vera bjartsýn á að fá að gera eitthvað hérna í Kongsberg. Ef ég fæ ekki vinnu hérna í tölvubransanum þýðir það eiginlega að ég verði að fara til Osló og ég er að reyna að komast hjá því í lengstu lög. Það tekur allavegana einn og hálfan tíma að fara þangað með rútu... já alla 60 kílómetrana :s. Alveg brilliant þessir sveitavegir um allt! Í gær fór ég niður í bæ og skilaði skattaskýrslunni minni í póst, fæ líklega 1000 kall til baka svo það er eitthvað til að hlakka til ;) Fór líka á vinnumiðlunina og komst að því að til þess að eiga rétt á atvinnuleysisbótum þarf ég að hafa verið atvinnulaus í 6 mánuði svo það er nú eiginlega alveg út úr myndinni, ég má ekkert við því að vera atvinnulaus svo lengi, ég væri löngu búin að finna mér þá eitthvað annað að gera tímabundið. Er annars alltaf á vaktinni á aetat sem er vinnumiðlun fyrir Noreg, rekið af ríkinu að sjálfsögðu. Þetta er ágætis hugmynd, þú getur leitað í þínum bæ eða um allan Noreg og jafnvel hægt að finna störf í útlöndum. Fín síða hjá þeim og virkar eftir því sem ég kemst næst. Í dag ætla ég að fara niðrí bæ aftur og kaupa&senda eina afmælisgjöf sem ég gleymdi í gær. Svo er það bara stærðfræðin... ég er svo sem alveg sátt við að vera að læra stærðfræði, þetta gæti verið verra, ég gæti verið að læra einhver ancient forritunarmál sem enginn notar. Ég er búin að fá 2 einkunnir, í "rekstrarbókhaldi og skattskilum" og í "viðskiptalögfræði" og náði báðum, ánægð með það. Nú er bara að hinkra eftir næstu einkunnum, þrjár eftir... jæja ætli þetta sé ekki ágæt svona fyrsta færsla hérna frá Noregi. Ég held ég reyni bara að blogga aftur seinna í dag. Það er farið að vera ótrúlega bjart hérna, sýnist bara að sólin ætli að kíkja fram úr skýjunum í dag, það er ekki leiðinlegt. Það var spáð 11-13 stiga hita í dag, það má alveg standast :D Hafið það gott í dag, skrifa meira seinna...

miðvikudagur, apríl 23, 2003

Gleðilegt sumar! ég sit hér á hótel Ættingjar og rita þessar línur á blogginn minn... hef lítið verið við tölvuna undanfarið. Ansi mikill tími hefur farið í að troða drasli í kassa og flytja það. Svo þurfti að þrífa úr hornum og skúmaskotum og loks í gær var íbúðin komin í það ástand að hægt var að afhenda lyklana. Og var það gert með nokkurri ánægju en einnig óneitanlega töluverðri eftirsjá. Fimm ár líða alltof hratt... ýmsar minningar rifjast upp þegar verið er að troða draslinu ofan í kassa. Í dag er ég búin að snúast um allan bæ, breyta heimilisfangi, póstfangi, segja upp þessu og hinu... fá mér isic skírteini, nýtt batterí í úrið... ná í dót úr hreinsun... reyna að segja upp áskriftinni hjá rúv en þeir ákváðu að það væri ekkert sniðugt svo ég fékk ekkert að segja því upp ... alltaf gaman að slást við svona batterí ;) Í kvöld ætla ég að fara á tónleika í Turninum með Lúðrasveit Hafnarfjarðar, kominn tími til, hef alltaf verið í prófum eða í önnum þegar þeir hafa verið haldnir. Ég flýg út í fyrramálið til Osló en kem svo aftur heim í maí... ég verð í netsambandi all the time líklegast, svo þið finnið mig á msn ;)

miðvikudagur, apríl 16, 2003

Jæja búið að ganga frá kaupsamningnum... þetta er bara frágengið, núna þurfum við bara að fara að hypja okkur úr íbúðinni :p Erum búin að pakka slatta en alveg nóg eftir svo sem... rosalega á ég mikið af drasli! Eins gott að ég fékk Styrmi heim til að pakka, annars hefði ég aldrei komist yfir þetta hehehe.

mánudagur, apríl 14, 2003

Jæja, það er víst mánudagur og ég sit bara hérna heima og hef það gott... er að byrja að pakka í huganum. Fór í geðveika fermingarveislu í gær, hún var haldin á Apótekinu í salnum á 3. hæðinni. Einar bróðir fermingarstelpunnar, Siggu, er kokkur þarna og hann bara töfraði fram alveg meiriháttar veislu. Ég fékk mér kjúkling, folaldakjöt (held ég), nautatartar og risa hörpudisk, hvað öðru betra. Það var líka í boði túnfiskur og lax, ég fattaði ekki túnfiskinn og þorði ekki að smakka svo þegar ég fattaði var hann búinn, verð bara að fara og panta mér túnfisksteikina someday... Svo var í eftirrétt creme brulee og marsipanterta... ég fæ bara vatn í munninn af því að hugsa um þetta!! Annars hafði ég það bara náðugt, glápti á sjónvarpið og naut þess í botn að vera búin með prófin og þurfa ekki að læra. Er núna að byrja að laga til og undirbúa pakkningu og flutning... og síðast en alls ekki síst er ég að bíða eftir því að klukkan verði hálffjögur og flugvélin með Styrmi innanborðs lendi í Keflavík :D

laugardagur, apríl 12, 2003

Ég er búin í prófunum í bili :D Þvílík sæla, ég bara snerti varla gólfið!!!! LOL Ætla að grilla í góðum félagsskap í kvöld sem og að fá mér eins og einn öllara eða tvo eða þrjá... Njóta veðurblíðunnar og bara slaka á... Er að fara í fermingarveislu á morgun sem verður haldin á Apótekinu, dinner og fínerí... ég hlakka svo til. Hef ekki hitt þetta fólk síðan snemma á síðasta áratug síðustu aldar... best að reyna að sjá þetta lið áður en mar stingur af til útlanda.

föstudagur, apríl 11, 2003

Svona var veðrið í Kongsberg í dag :) Ég hélt það væri komið sumar :'(

fimmtudagur, apríl 10, 2003

Hérna á svo sannarlega við máltækið, betra er seint en aldrei. Þau giftu sig eftir 57 ára sambúð, hún aðeins 107 ára og hann 87 ára. And they lived happily ever after.

mánudagur, apríl 07, 2003

Testo numero treo finidos.... yessss. Mér gekk bara sæmilega miðað við allt, var orðin svo hrikalega stressuð á þessu dóti í gær... svo núna er það bara heim að læra undir næsta. Ætla að fara í bodypump í kvöld, rosalega er það gaman og tekur geðveikt á!! Latero ;)

laugardagur, apríl 05, 2003

Jæja próf númer 2 er búið :D Gekk bara fínt, hef meiri áhyggjur af mánudagsprófinu... er að viða að mér síðustu fyrirlestrardruslunum til að lesa yfir :þ Hitti vin vinkonu minnar eftir prófið, hann var einmitt í prófi líka. Hann leit svo vel út, langt síðan ég hef hitt hann. Hann er á fyrsta árinu í HR, að taka tölvunarfræðina í fjarnámi. Verð að segja að ég dáist svo að fólki sem tekur þetta nám með vinnu. Fyrir utan bara álagið af vinnunni og náminu þá hlýtur að fylgja þessu alveg heilmikil persónuleg ögun. Ég er nú nokkuð viss um að ég ætti erfitt með að koma mér að því að gera verkefni og lesa skruddur eftir vinnu. Er núna sest við rekstrarhagfræðina sem er viðfangsefni dagsins. Oohhh hvað ég þoli ekki framboð og eftirspurn, teygni, verðaðgreiningu, leikjafræði, nash-jafnvægi og margt fleira sem ég get ekki einu sinni "skrifað fram". Ojjjjjj. Kannski bara best að segja þetta eins og það er. Ég hef ekki hugmynd um hvað ég var að spá í að velja þennan áfanga. Skilst að það sé aðeins of seint að hætta við núna :'( Ok, vorkunn dagsins er lokið og nú aftur í bækurnar...

Líklega hef ég sjaldan séð jafn furðulegan mann og núna áðan í strætó. Hann kom inn í Kópavoginum, hvar annars staðar :o Hann var semsagt hálf svona rónalegur, í skítugum gallabuxum og vaxaðri veiðiúlpu. Nema hvað, hann var stífmálaður og með eldrautt naglalakk, í ullarsokkum og bláum bandaskóm!! Hvað á maður að halda eiginlega?

föstudagur, apríl 04, 2003

Ef það er að satt að maður er það sem maður borðar þá er ég og

fimmtudagur, apríl 03, 2003

Why does Microsoft believe in open standards? Does Microsoft support open standards? What a load of crap!!!

Jiminn, ég fékk bara stórt sjokk núna!!! Er hérna í tölvunni að lesa undir próf og allt í einu er Rán komin inn og byrja að urra og hvæsa inn á baði. Ég hugsaði strax ónei! hvað er hún búin að koma með inn núna?? Rotta, mús... hvað er það? Svo var þetta sem betur fer bara fullvaxinn köttur, kominn hérna lengst inn á bað. Og ég var bara "inni í tölvunni" og sá ekki neitt. Svo stóð ég upp og stóra dýrið var fljótt að stinga sér aftur út um eldhúsgluggann, sem betur fer. Alltaf einhver ævintýri í gangi í prófalestrinum!! Og Rán verður auðvitað rosa fúl yfir því að ég hafi lokað glugganum og þar með lokið útivist hennar í bili. Litla greyið, skilur ekki alveg mín sjónarmið :þ

Prófatörnin gengur bara sæmilega, búin með eitt próf sem gekk bara fínt. Er að undirbúa mig undir tvö næstu, það er svo stutt á milli númer 2 og 3. Ég hef svo innilega ekkert að segja. Fór í sund í gær, hef ekki komið í suðurbæjarlaugina í ár eða meira held ég. Hélt ég væri voða séð að fara um hálfsjö í laugina, "það eru ábyggilega allir heima að borða og horfa á fréttirnar" hugsaði hún ég. En nei, það kom nú annað á daginn, varla þverfótandi eða þversyndandi heldur, fyrir mannfjöldanum. Hellingur af rússum, slatti af hollenskum og dönskum skólakrökkum og svo bara fullt af venjulegu skjannahvítu íslensku fólki. Fyrir utan Magga Bess hann var ekki hvítur ;) Bara brúnn og sællegur. Hmmm, ég ætlaði örugglega að segja frá einhverju öðru en því. Hitti fólk sem ég þekki sem er jafngamalt og ég. Þau voru bæði með fimm ára stelpurnar sínar á sundnámskeiði. Hljómar ekkert svo illa svona rútínupakki. Well, eftir nokkur ár kemur þetta allt saman :D

þriðjudagur, apríl 01, 2003

Hey þetta er kúl!! Leyfðu mér að lesa huga þinn!