-Bryndís-

þriðjudagur, maí 27, 2003

Ég náði prófinu og er að fara að útskrifast frá Háskólanum í Reykjavík 7. júní... ég get ekki lýst því hvað þetta fyllir mig mikilli ánægjutilfinningu

Jæja ég er komin heim á klakann, búin að taka próf og farin að slaka aðeins á. Fór með Rán í dag til dýralæknisins í ófrjósemisaðgerð og eyrnamerkingu... ég sótti hana um tvö leytið og greyið hún er svo sljó og völt á fótunum. Ég vorkenni henni ýkt mikið... hún sofnar ekki en liggur bara og starir út í tómið. Ég vona að henni líði ekki illa. :$ Hún er búin að brölta aðeins um og búin að ná að detta aftur fyrir sig af litla stofuborðinu og hoppa tvisvar upp í rúm og niður aftur. Hún reyndi að hoppa upp í glugga áðan en var ekki alveg að drífa þetta... svo gubbaði hún og mér líður alveg svakalega illa yfir því að vera búin að fara með hana í þessa aðgerð :( En henni á eftir að líða betur á morgun... ég reyni að hugga mig við það. Það er búið að panta flutning á búslóðinni til útlanda... fer í næstu viku á fimmtudaginn, svo ég verð að vera komin með allt niðrá bryggju f. hádegi á miðvikudeginum. Á morgun ætla ég að fara upp á Akranes að heimsækja afa og veita honum félagsskap. Á meðan ætlar amma að bregða sér norður í land á nemendamót. Hún gat ómögulega hugsað sér að skilja afa eftir aleinan þegar hann gæti gleymt lyfjunum sínum eða eitthvað komið fyrir. Hann er orðinn pínu lélegur, farinn að gleyma að taka lyfin og er dáldið valtur á fótunum. Mér finnst það nú bara sjálfsagt mál að leggja lið og ég hef bara gaman af því að fá að fara á Skagann. Held jafnvel að ég horfi á gamalt skaup í tilefni dagsins og rifji upp allar ferðirnar sem maður fór með Akraborginni til að komast í sæluviku hjá ömmu. Þá var elduð pizza og horft á gömul skaup... góðar minningar :D

föstudagur, maí 23, 2003

Við erum búin að finna íbúð... hún er nálægt miðbænum, stór og björt og kostar ekkert svo rosalega rosalega marga peninga... kannski oggulítið fleiri en við ætluðum en þetta var bara of góð íbúð til að sleppa. Svo ég get farið að flytja lögheimilið mitt og hugsa hvernig ég ætla að raða húsgögnunum :D Frábært!!

fimmtudagur, maí 22, 2003

Rán er fundin :-) Kettir eru ótrúlegir, ég var nærri búin að afskrifa hana og þá finnst hún þar sem engum hefði dottið í hug að leita að henni. Litla greyið hefur nú ekkert vitað hvert hún var að fara samt... hún fannst í Kópavoginum við skiptistöðina í Hamraborginni. Ótrúleg tilviljun... pabbi keyrir strætó í Kópavoginum og sá einhverja stelpu með hana. Svo hann hentist út úr bílnum til að sjá hvort þetta væri hún og jú það passaði, hún hafði elt þessa stelpu og hún bara losnaði ekki við litla dýrið... Ása hringdi í mig klukkan tvö í nótt á mínum tíma og hún var á leiðinni með hana heim alveg í skýjunum... ég er rosalega ánægð með þessi málalok!!! Vonandi að henni hafi ekki orðið meint af þessu ferðalagi sínu... hún hefur ábyggilega tryggt sér algjöra eftirtekt með þessu allavegana... fær ekki að fara út á svalir nema undir eftirliti eftir þetta hehe. Annars er nú mest lítið að frétta.. 3 dagar þar til ég kem heim.

þriðjudagur, maí 20, 2003

Ekkert að frétta svo sem... er að læra stærðfræði. Rán er ennþá týnd og ég er satt að segja orðin frekar úrkula vonar að hún finnist... hún er svo lítil og ábyggilega ekkert auðvelt að finna sér mat einhvers staðar úti... :'( Það ætlar að standa eitthvað á vorinu hérna í Kongsberg... það er svo sem ekkert kalt kannski en samt ekki hlýtt... gróðurinn er að rembast við að verða grænn en ég held svei mér þá að tréin hafi verið farin að bruma meira á Íslandi áður en ég fór heldur en hérna núna... þetta er allt saman hið furðulegasta mál. Við erum alltaf að leita að íbúð en ekkert hefur gengið enn... flestar íbúðirnar sem verið er að auglýsa eru svo litlar að við treystum okkur ekki til þess að búa þannig næstu 3 árin. Það verður að segjast að 40-45 fm eru bara of lítið þegar maður á stofuhúsgögn. Þetta gæti gengið ef mar ætti ekki neitt... þá væri hægt að fylla upp í hornin með ryki eða eitthvað. En það þýðir ekki annað en að halda í vonina... það hlýtur að koma að því að við finnum réttu íbúðina. Ég er ekki komin með vinnu, sótti um forritunarstöðu hérna í Kongsberg en það er enn verið að ákveða sig... þetta kemur allt með kalda vatninu :D

föstudagur, maí 16, 2003

Rán er ennþá týnd... dáldið vont að hún er ekkert merkt. Hálsólin hennar var orðin alltof lítil svo hún var ekkert með hana... hún átti að fara í dag í tattóveringu á eyrað... Hún hefur ábyggilega heyrt um það að hún átti að fara í svæfingu og aðgerð í dag og ákveðið að stinga af... "ekkert vera að krukka í mér takk fyrir hrrmmmpppffff". Sé þetta alveg fyrir mér hehe. Jæja vonandi finnst hún nú greyið... búin að vera úti í 3 nætur núna. Hún er bara 6 mánaða.

fimmtudagur, maí 15, 2003

Kisan mín er týnd :'( Hún týndist frá Laufvangi 2 í fyrrakvöld... stakk sér niður af svölunum líklegast... ef einhver sér hana þá má hann gjarnan senda mér póst bryndisvaff @ hotmail.com

miðvikudagur, maí 14, 2003

Þetta er bara snilld og ég hefði sko örugglega notað þetta ;-) iLoo Internettengd á toilettinu... á Glastonbury, ég hefði þokkalega skráð mig á msn til að spjalla. *LOL*

mánudagur, maí 12, 2003

Jæja loksins eitthvað að segja frá. Búin að panta mér flugmiðann heim, kem 24. maí og fer aftur 8. júní. Erum að fara að skoða íbúðir í dag, vona að það sé eitthvað varið í þær... ein er í gamla bænum en hin er aðeins meira í svona íbúðahverfi. Báðar eru samt frekar nálægt miðbænum. Það er svo sem ekki svo mikið verið að auglýsa íbúðir sem eru ekki nálægt miðbænum. Bara nauðsynlegt að vera nálægt miðbænum og búð þegar mar á ekki bíl. Ætlum að reyna að finna eitthvað út úr því líka bráðlega. Verst hvað bílar eru ógiiiiiislega dýrir hérna. *Ok, allir sem búa á Íslandi að vera æðislega ánægðir með hvað nýjir bílar og notaðir eru ódýrir miðað við Noreg allavegana!!!!*

föstudagur, maí 09, 2003

Þetta eru nú bara mestu snilldarauglýsingar sem ég hef nokkurn tímann séð!!!!! I4 Colors Beige GSpot 3Steps Hljóð er auðvitað algjör nauðsyn!

þriðjudagur, maí 06, 2003

Jæja allar einkunnir komnar og dagsetning á endurtektarprófið... verður haldið 26. maí... 20 dagar til stefnu. Best að skella sér í bækurnar ;) Svo ég er líklega á leiðinni heim einhvern tímann um það leyti, best að vera mættur tímanlega. Spáðu í því að heita Paprika :o pínu skrýtið, ekki satt? Paprika Steen er dönsk leikkona sem hefur leikið í mörgum af dogma-myndunum, sem og fleiri myndum einnig. Ferlega fín.

mánudagur, maí 05, 2003

Well now, nú eru allar einkunnir komnar og ég náði öllum prófunum :) Ég er að sjálfsögðu í skýjunum með að hafa náð öllu, vildi alveg hafa fengið hærra í 2 þeirra en það er nú um að gera að vera ekki heimtufrekur og vera bara hæstánægður með að hafa náð þessu öllu saman. Það lítur allt út fyrir að ég sé að fara að útskrifast. Mig dreymdi svo ofsalega skrýtinn draum í nótt og mig langar svo að vita hvað hann þýðir... best að finna draumaráðningar á netinu.

Hey, ég er að gleyma því mikilvægasta sem ég ætlaði að muna að skrifa :D Júlía, til hamingju með að vera búin með Verkefnið... ég vona að þú sofir vært sem aldrei fyrr ;) Sakna þín krúsídúlla, þín Bryndís

Ég reyni að muna alltaf eftir því að skoða Dilbert,,, hann er bestur :-) Annars fór ég í bíó í gær, þetta er ótrúlegt framtak hjá mér, ég er búin að fara tvisvar í bíó núna á einni helgi... Ég man ekki einu sinni hvenær ég fór síðast í bíó heima, held það hafi verið samt þegar ég fór að sjá Gangs of New York... hmmm. Ég og Styrmir fórum með Håvard sem er meðleigjandi hans. Við fórum að sjá Xmen2, loksins höfðum við það af. Myndin var þrælspennandi og skemmtileg. Fær fullt hús stiga hjá mér. Mæli með henni, nema fyrir þá viðkvæmustu, það er dáldið mikið af ofbeldi og sollis í henni ;-) Núna er ég að fara að hlaupa út í búð og kaupa nýtt brauð og fínerí. Svo ætla ég að setjast niður við stærðfræðibækurnar, jeiii. Er annars búin að fá einkunnir úr tveimur prófum í viðbót, náði þeim báðum. Svo núna er bara síðasti horrorinn eftir. Hlýtur að koma inn síðdegis... langar að vita en samt ekki :o

laugardagur, maí 03, 2003

Jæja við fórum til Osló og komum heim aftur, í heilu lagi, ekki að það væri von á neinu öðru ;-) Tókum rútuna um hálfeitt og vorum komin til Osló ca. 2 tímum seinna. Tókum sólina með okkur frá Kongsberg, ég var mjög fegin því það hafði verið spáð alskýjuðu og þá hefði nú bara verið kalt. Það er svo gott að finna sólina skína á sig og ég held meira að segja að ég hafi kannski fengið 1-2 freknur :-o Við fórum í margar búðir, Styrmir fékk á sig fínustu gallabuxur og bol, svo keyptum við okkur líka nokkrar pocket bækur til að lesa þegar við settumst niður á kaffihús. Ég fékk mér The Hobbit, Styrmir fékk sér heimspeki með Arne Næss og svo fengum við okkur saman aðra bók um Einstein... ferlega sniðug bók, hún heitir Einstein fyrir byrjendur og þar getur maður lesið í einföldu máli um það hver hann var og hvað hann gerði... Það var alveg heil sería af svona bókum, mig langaði í margar margar. Til dæmis um Sálfræði, Alheiminn, Freud, Heimspeki og fleiri sem ég man ekki núna. Ég elska að fara í bókabúðir, ég átti mjög erfitt með að komast út úr bókabúðinni, langaði að skoða alveg endalaust. Það er líka eitthvað svo flott þegar er bara svona heil búð með bókum sem mann langar að kíkja betur á. Ég á eftir að koma við þegar ég fer næst til Osló, pottþétt!! Nú svo settumst við niður á útikaffihúsi með bækurnar og byrjuðum að lesa, það var svo margt áhugavert í Einstein bókinni að ég komst bara á blaðsíðu 3 í Hobbitanum, hehehe. Þegar líða tók á daginn fórum við á ítalskan veitingastað sem heitir Pasta Factory og er einn af betri ítölsku stöðunum í Osló. Svo sagði allavegana í Restaurant gædinum. Maturinn var æðislegur, ég fékk mér marinerað hreindýrafilet með parmesan í forrétt, það var algjörlega sjúklega gott. Styrmir fékk sér disk með parmaskinku, salami, parmesan og salati, það var líka æðislegt. Svo yndislega góð svona parmaskinka og skemmir ekki að hafa parmesan ostinn með :p Í aðalrétt fékk ég mér númer 26, sem er Ravioli með papriku, eggaldin og kryddum borið fram í rjómalagaðri tómatsósu (man nú ekki hvað það hét á ítölsku) Það var æðislega gott eins og allt hitt sem við smökkuðum. Styrmir fékk sér númer 11, sem var Fettucini con Frutti di Mare, eða fettucini pasta með bláskel og humri, sem hljómaði ekkert smá vel. Það var líka mjög gott en skemmdi aðeins fyrir hvað það var rosalega mikil fiskifýla af bláskelinni. Humarinn var dáldið maukaður sem var ekki kúl, en við erum nú auðvitað skemmd eftir að hafa borðað humarinn á Við Fjöruborðið(hann er himneskur!!). Fyndnasta við réttinn hans Styrmis var að hann fékk einhverja rosa töng eða hnetubrjót á humarinn og svona eitthvað spjót til að ná fiskinum úr skeljunum. Svipurinn á okkur þegar hann kom með það á borðið :o Svo fengum við ítalskt kaffi í eftirrétt og sorbet með ferskum ávöxtum... sorbetinn var geggjaður, ein tegund með skógarberjum, önnur með sítrónu og lime og svo þriðja með mangó og passionfruit Svo eins og á alvöru rómantískum stefnumótum fórum við í bíó eftir matinn. Skokkuðum í bíóið og ætluðum að sjá Xmen2 en þá var hún ekki sýnd, í hvorugu bíóinu, en það eru tvö sitthvoru megin við götuna. Þannig að við fórum að sjá Første oppdrag eða The Recruit með Al Pacino og Colin Farrell. Hún var bara mjög góð og það sem var best er að það var ekkert hlé, engin truflun. Það er víst alltaf svoleiðis hérna í Noregi, mér líst bara vel á það. Í dag ætla ég að vera dugleg að lesa stærðfræði og kannski horfa smá á tímatökurnar í Formúlunni, svona í tilefni þess að ég er ekki búin að afreka það að sjá eina einustu Formúlu í þessari seríu. Og nei, það er ekki af því að Schumi vann síðast, ég held með Maclaren :D

föstudagur, maí 02, 2003

Í dag ætlum við að fara til Osló. Það er frí í skólanum hjá Styrmi og þess vegna tilvalið að nýta daginn og skreppa að sjá höfuðborgina. Við erum mikið að spá í að sjá XMen-2 í bíó, vona að við fáum miða á hana. Annars er nú ekkert markvert að gerast... McDonalds hringdi í mig í morgun, ekki veit ég hvað þeir vildu... kannski senda mér frían morgunverð :o skrifa meira í kvöld eða á morgun... hafið það gott í dag :D