Do good and others will follow...
Jæja ég held ég neyðist nú bara til að blogga nokkrar línur... þannig er mál með vexti að bloggin sem ég les, virðast vera eitthvað biluð... þau uppfærast bara ekki neitt!! Svo fór ég að hugsa þetta og ég er ekki búin að blogga neitt heldur í heila viku. Það hefur bara ekkert verið að gerast. Alveg satt!!! Ég er að fá heimsókn frá Íslandi í kvöld, Bjarki litli frændi minn er að koma í heimsókn. Hann tilkynnti mér í fyrrakvöld að hann væri að panta sér flugmiðann. Það verður svo fínt að fá hann í heimsókn. Ég ætla að sýna honum Kongsberg og Notodden líka. Ég hef verið með svo mikla heimþrá upp á síðkastið og þetta á örugglega eftir að hjálpa til við að lækna hana í smástund. Ég pantaði auðvitað helling í ferðatöskuna og á von á lambakjöti, harðfisk, appolló lakkrís og fleira góðgæti. Það er kannski ekki alveg satt að það hafi ekki neitt verið að gerast undanfarið. Við Styrmir kíktum í bæinn á síðasta laugardagskvöld með hjónunum á neðri hæðinni. Þau eru voða hress. Hann heitir Patricio og hún heitir Aase(Ása). Hann er frá Chile, indíáni og hún er norsk. Þau eiga húsið og við leigjum af þeim. Þau voru að koma heim frá Spáni, þau eiga íbúð í Torrevieja og voru þar í fjórar vikur með krakkana sína. Þau eru búin að segja að við megum fá íbúðina lánaða og ég held það gæti bara alveg gerst á næsta ári. Við sáum myndir frá íbúðinni og ströndinni og sundlauginni og það leit bara meiriháttar vel út. En allavegana bæjarferðin var svona frekar sorgleg, fyrst sátum við hjá þeim og spjölluðum og drukkum. Það var mjög kósý. Síðan kíktum við í bæinn. Byrjuðum á því að koma að lokuðum dyrum á skemmtistaðnum á hótelinu. Þá ákváðum við að kíkja á Krags Møteplass, það var stemming þar en tónlistin var svo hávær að það var ekkert hægt að tala saman. Svo við röltum okkur áfram, ætluðum inn á Circa, sem er uppáhalds kaffihúsið mitt en þar var troðið. Svo við fórum á einhverja hallæriskrá sem heitir eitthvað Gamle Norge Pub. Það var frekar glatað og ég ætla aldrei að fara þangað inn aftur. En allavegana þá var klukkan farin að nálgast hálfþrjú og við ákváðum að rölta bara heim á leið. Sem var líka bara ágætt. Á leiðinni heim tók ég eftir því að það var stjörnubjart og sá einasta stjörnumerkið sem ég þekki... sem var litli björn eða var þetta kannski stóri björn? hmm... allavegana það er hluti af Karlsvagninum svo ég ætti eiginlega bara að segja að ég hafi séð Karlsvagninn. Alltaf fínt að skoða stjörnurnar :D Það er allavegana alveg nóg af himni hérna í Noregi, svo ég ætti að sjá þær í vetur. Það er líka alveg fríkeypis hobbý!!!! Well, var að heyra í litla frænda hann er sestur upp í fyrri rútuna sem hann þarf að taka til mín. Á von á honum eftir rúmlega 2 tíma... nú er bara að finna sér eitthvað að gera þangað til.
