-Bryndís-

þriðjudagur, september 30, 2003

...kaldhæðni...

Ég las á bloggsíðu í dag að ein gömul skólasystir væri að bjóða sig fram sem formaður ungra jafnaðarmanna... svo mér datt í hug að skoða síðu ungra jafnaðarmanna, bara svona að gamni mínu. Sjá hver hinn frambjóðandinn væri og svona. Fylgjast með einhverju sem gerist á skerinu. Svo ég heimsótti síðuna sem heitir því fínasta nafni lifandi.is... nema síðan er bara gjörsamlega steindauð og hefur verið það síðan um kosningar í vor. Ef þetta er ekki kaldhæðni dauðans þá veit ég ekki hvað.

En hvað þetta var nú hugljúft

Síðasta septembersólin

Tilvistarkreppa

Annars er einhver tilvistarkreppa að herja á mig. Reyni að segja sjálfri mér að þetta verði í góðu lagi. Virðist vera eitthvað langur fattarinn um þessar mundir. Strax og ég er búin að setja þetta niður í texta, reyni ég að sannfæra sjálfa mig að þetta sé ekki svona slæmt. Þetta lagast þegar þú ferð að vinna. Þetta lagast þegar þú kynnist fólki. Þetta lagast þegar... ég vil það sjálf. En ég er samt einmanna og finnst ekki gaman.

Valgeirsdóttir fer til læknis

Í gær fór ég að heimsækja heimilislækninn. Sem er nú ekki í frásögur færandi. En mér fannst dáldið skemmtilegt þegar hann kallaði á mig. Valgeirsdóttir. Eitthvað sem maður verður að venjast í nýju landi.

sunnudagur, september 28, 2003

Sunnudagsfrásögnin

Í gær fór ég í fjallgöngu :) Ég er voða stolt af sjálfri mér. Ég þurfti ekkert svo mikið að stoppa til að hvíla mig heldur rigsaði bara upp fjallið. Fjallið heitir Gaustatoppen. Og það er frægasta fjallið í Noregi eftir því sem ég kemst næst. Við fórum í fjallgönguna af því tilefni að Þorri, bróðir hans Styrmis, átti afmæli á föstudaginn og við fórum að heimsækja hann. Það var svo gott veður að mamma hans Styrmis stakk upp á því að við færum í fjallgöngu. Þau hafa alltaf ætlað að fara og labba á fjallið en aldrei fundið góðan tíma til þess fyrr. Svo við drifum okkur af stað... héldum reyndar að þetta væri kannski klukkutímaganga en við vorum tvo og hálfan tíma á leiðinni upp og klukkutíma á leiðinni niður aftur. Svo fórum við í sund í glænýju sundlauginni í Rjukan. Flottasta sundlaugin í öllum Noregi eftir því sem mér skilst. Hún er rosalega flott og fín en það þarf einhver að kenna norðmönnunum á hitastillinn á heita pottinum!! Pottarnir voru bara rétt pissvolgir (38°c) og það var frekar lítið spennandi. En það var æðislegt gufubað á staðnum sem var óspart notað á meðan stoppað var. Enda gott að lina upp vöðvana (fyrir okkur annars stælta íþróttafólkið). Svo var brunað til Notodden aftur og borðað íslenskt hangikjöt með kartöflum og hvítri sósu. Og heimalagaður kirsuberjagrautur í eftirrétt. Það fór enginn svangur frá matarborðinu þar frekar en fyrri daginn.

fimmtudagur, september 25, 2003

Brrr

Mér sýnist á veðurálfinum að það sé frost(-2°C) í Reykjavík. Þegar ég vaknaði í morgun (kl. 9) var 15 stiga hiti fyrir utan gluggann minn. Það var mun skárra en 7 stiga hitinn í gærmorgun.

miðvikudagur, september 24, 2003

Á morgun, á morgun... verður allt betra

Það er svo merkilegt hvað við mannfólkið erum ótrúlega dugleg að segja okkur að nú verðum við bara að komast yfir næsta hjalla og svo verður þetta betra. Án þess yrði auðvitað engin þróun. Málið snýst um að ýta aðeins meira, bara nokkra klukkutíma enn. Já þetta eru bara þessar vikur eða dagar í viðbót. Ekki satt? Ég fann þessa grein á netinu um daginn, í henni er bent á að gleyma ekki að hafa það gott í núinu og vera ekki alltaf að bíða eftir að þetta tímabil af stressi og mikilli vinnu verði búið. Live a little. Ég á aldrei eftir að gleyma þessum löngu nóttum og verkefnatörnum sem ég upplifði í HR. Samt er ég stundum að gleyma því hvað ég er fegin að vera búin með þetta nám loksins og geta notið þess að gera hluti sem mig langar til. En það er víst grunneðli mannsins að vilja meira. Núna langar mig ekkert meira en að finna mér vinnu sem gefur mér verkefnatarnir og langar nætur... ;) Ég reyni að vera æðislega sátt við að vera að leita að vinnu, ég er auðvitað í hálfgerðu fríi. Veit að það fyrsta sem ég á eftir að sakna þegar ég verð farin að vinna verður að geta sofið til níu og lesið svo blaðið í eldhúsinu með kaffibollann í annarri og ristað brauð í hinni.

þriðjudagur, september 23, 2003

Dear Music Industry.

Dear Music Industry. Opið bréf til tónlistarbransans, þess virði að lesa

Muundu eftir mjólkinni

Muundu eftir mjólkinni :D

Rán is pulling a Garfield...

Rán er að verða svo mikil kisubumba að það var ákveðið á þessu heimili að reyna að setja hana í "megrun". Hún er svo snjöll nefnilega... ég er svo mikill sökker fyrir því þegar hún kemur inn og mjálmar og malar og knúsar mig. Og þá gef ég henni að borða því hún er svo obboslega dulleg kisa. En litli snillingurinn ekki lengi að fatta þetta og nú hleypur hún inn og út allan daginn. Og ætlast að sjálfsögðu til þess að fá að borða í hvert skipti sem hún kemur inn!!!! Svo núna er hún bara í fýlu þegar hún kemur inn en fær ekkert að borða... I'm a terrible kittymom :$

En annars er allt í fínu...

Ég var að fá spennandi verkefni í hendurnar fyrir helgina. Tengdapabbi er sjálfstæður forritari (freelans) og hann fól mér að færa forrit í C yfir í C++... ég er enn að komast inn í C kóðann. Þetta er ekkert auðvelt. Og ég er bara dauðhrædd við þessa forritun og allt þetta. Ég á víst að kunna eitthvað í þessu ;)

Hatemail til Rob Zombie...

Ég ætlaði bara að vekja athygli á því að ef þér skyldi detta í hug að þig langi til að sjá The house of a 1000 corpses með Rob Zombie... þá langar þig það ekki!!! Dont even try it. Þetta eru næstum 2 tímar af lífi mínu sem ég fæ aldrei aftur!!! Æl, þessi mynd er bara svo gróft ógeðslega mygluð og leiðinleg líka. Rob Zombie rot in hell, þeink jú.

mánudagur, september 22, 2003

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag...

Og þá er dagurinn loksins runninn upp... Styrmir loksins orðinn jafngamall og ég :D

föstudagur, september 19, 2003

Vespertine

Ég er búin að vera að hlusta á Vespertine diskinn með Björk undanfarið. Ég verð að segja að þetta er með uppáhaldsdiskunum mínum. Næstum öll lögin eru frábær, það er svo mikið í gangi en samt er þetta svo einfalt. Ég er líka algjör sucker fyrir svona "ástarsorgar/ástfangin" lögum. Textarnir eru svo hlaðnir af tilfinningum. Sem er að nokkru leyti hægt að samsama sig með en líka finna til með henni. Ég vildi að ég gæti opnað mig svona þó ekki væri bara fyrir sjálfri mér ;)

þetta er ekkert gaman :(

hljóp í póstkassann í morgun og þar lá umslag með nafninu mínu á. Reyndi að vera vongóð þar sem ég hljóp inn í húsið í grenjandi rigningunni. En nei, þetta var bara ekki þannig dagur. Í bréfinu stóð bara stórt NEI! Svo ég er ekkert lengur að bíða eftir að fá að vita úr viðtalinu. Nú er ég formlega bara atvinnulaus heimasæta. Og það sem meira er, það er ekkert verið að auglýsa neitt eftir starfsfólki í dag, ekki einu sinni í skúringar. En ég er kannski pínu með vonleysisgleraugun á mér í dag? Held að helgin verði fín til þess að leita að bjartsýnisgleraugunum. Fór annars í góðan göngutúr í gær, rölti við á báðum líkamsræktarstöðvunum sem finnast hér í Kongsberg. Líst svona skítsæmilega á þetta, kostir og gallar. Held samt að ég verði að fara að kaupa mér kort og mæta í hreyfingu og upplyftingu. Meira hvað norsararnir eru mikið leyndó, leyndó. Það má enginn vita kennitöluna þína. Það er eitthvað voða leyndó og hush hush... Búið að vera rosa mál í fréttunum undanfarna daga, það var búið til nýtt kerfi til að skrá grunnskólanemana og foreldra þeirra. (Gæti hugsað mér að íslendingar með sitt kennitöluæði, hefðu verið viðriðnir útfærsluna). Til þess að þú fáir upplýsingar um barnið þitt ef það skyldi slasa sig á skólatíma, verður þú að láta kennitöluna fylgja með skráningarupplýsingum. En nei, norðmenn geta ekki sætt sig við það. Þetta eru bara hreinar og klárar persónunjósnir!!!! Og íslendingar sem geta nú varla keypt sér bland-í-poka án þess að gefa kennitölu. Þetta virkar hlægilegt fyrir mig. Og meira um þetta leyndó, ég spurði semsagt um verðið á líkamsræktarkortinu á annarri stöðinni og ég rétt gat kreist það upp úr stelpunni í afgreiðslunni. Þetta er semsagt mest svona "special price for you, my friend" á þessari stöð. Hún vildi vita hvort ég væri í skóla eða að vinna og þá hvar. Því að vinnustaðir eru semsagt líklega með sérdíl. Eina sem ég gat sagt henni að ég væri nú bara aumingi með hor og slef sem ynni hvergi. Og að ég vildi fá að vita hvað það kostaði. Þá svona rétt gat hún mjakað því út úr sér. Ótrúlegt :D En þetta er alls ekkert gefins spriklið hérna. Á fyrsta staðnum Trim & Trivsel kostar 6 mánaða kort 2.399 en á seinni staðnum KIF kostar semsagt 6 mánuðir 2.550 + 800 í ársgjald/meðlimagjald. Ég gleymdi nú að spyrja hvað maður fengi fyrir 8 hundruð kallinn. Er ekki alveg ákveðin hvað ég geri, býst við að fara á ódýrari staðinn, þó að þar sé minna af tækjum og tímum.

fimmtudagur, september 18, 2003

bæbæ bördí

ble ble Styrmir storkur, hafðu það gott í svíþjóð

Parkinsonsamtökin á Íslandi

Afi minn þjáist af parkinsonsjúkdómnum. Sjúkdómurinn smá ágerist eftir því sem tíminn líður. Hann hefur samt verið að mér skilst pínu heppinn og veikin hefur ekki lagst eins hart á hann, eins og suma aðra. Eða það er kannski skýrara að segja að þetta gerist hægar hjá honum heldur en sumum öðrum. Þetta er samt ofsalega erfitt fyrir hann og fyrir ömmu og fyrir fjölskylduna sem getur ekkert gert nema horfa upp á þetta gerast hægt og hægt. Því það er engin lækning til við Parkinsons, eina sem hægt er að gera er að reyna að halda einkennunum niðri með lyfjum. Ég veit að hann saknar þess ofsalega mikið að geta ekki farið og gert það sem hann langar. Hann elskar sumarbústaðinn sinn og landið í kring. Það hefur verið líf og yndi hans og ömmu að geta farið í bústaðinn. Þau hafa verið svo ótrúlega iðin við að gróðursetja, snyrta, setja niður kartöflur & grænmeti og dytta að öllu. En hann er orðinn svo kraftlaus og óstöðugur á fótunum, elsku kallinn, að hann getur ekki farið lengur til þess að vinna í landinu sínu. Um daginn varð hann afi minn 75 ára. Hann afþakkaði gjafir en þeir sem vildu gátu sett aur í bauk til styrktar parkinsonsamtökunum. Hérna eru myndir af afa og ömmu, dætrunum þeirra og dótturdóttur þar sem þau fóru í gær og afhentu gjöfina.

Í bloggheimum

fann ég óvart síðuna hans Orra Harðar. Hann er tónlistarmaður sem kemur frá Akranesi og það sem ég tengi helst við hann er diskurinn Drög að heimkomu sem hann gaf út 1993 sem ég hlustaði mikið á. Tóndæmi er að finna hér. Þessi strákur er 3 árum eldri en ég. Hann skrifar á blogginn sinn um alkóhólisma sem hann hefur barist við lengi. Mér fannst einhvern veginn þegar ég las þetta eins og hann væri fimmtugur. Hann virðist nú vera kominn réttu megin við ruglið núna, eftir því sem hann segir.

miðvikudagur, september 17, 2003

Retro er svo töff

Ég varð bara að yfirgefa sjónvarpið mitt því í kvöld var þátturinn Retro sýndur og þar var Sven Ingvars fremstur í flokki :) Imagine the rest!!! Mér varð hugsað til þess hvað retro er mikið inn í dag. Allir í einhverjum voðavoða retro fötum og hlusta á retro músík og sonna. Má ég bara spyrja hversu oft er Sven Ingvars spilaður í Retro búðinni á íslandi? Ég verð líka að tjá mig aðeins um það að ég er of gömul til að fíla svona retró föt... litirnir og fötin bara í það heila... mér líður illa bara af því að hugsa um það, sorrý. Ég er nú svosem engin tískudrottning sjálf en herregud. bara þessir grænu og gulu litir fá mig til þess að líða illa. Og akrýlpeysurnar!!! æl!!! Hugsa gleðilegar hugsanir, hugsa gleðilegar hugsanir... Grifflur og netasokkabuxur, líta alveg jafn illa út núna og þegar madonna var ennþá virgin!! Sorrý stína!!! Ég missti eiginlega bara af þessu þegar ég var teen, það var ekki svona klikkuð comeback tískubylgja,,, það var bara Sautján. En ég átti nú svosem Bossanova klossana ;) Samt ekki fyrr en það var eiginlega komið úr tísku... hehehe

þriðjudagur, september 16, 2003

Ákvað að gera eitthvað við letinni

og fór í bæinn. Byrjaði á að fara á hótelið og tala við Hafstein, yfirkokkinn, sjá hvort hann vantaði duglegan íslending til starfa. Svo reyndist ekki vera. Skildi samt eftir símanúmerið mitt svo hann gæti náð í mig ef hann vantaði. Svo rölti ég í skóbúðina og dáðist að öllum flottu stígvélunum sem fylla búðirnar um þessar mundir. Dreymi dreymi. Ákvað svo að ég þyrfti að kaupa eitthvað í kvöldmatinn. Hafði ekki hugmynd um hvað það átti að vera... svo ég endaði með gulrætur, sveppi, papriku, kotasælu, wokgrænmetisblöndu og kornfleks! Verð að reyna að finna upp á einhverju stórsniðugu til að malla úr því :þ

Og bara eitt enn...

...

Ástfangnar gulrætur :D

Gvöð hvað þetta eru dúllulegar gulrætur!!! Það er einmitt gulrótarseason hérna líka ;) ég keypti heilt búnt af gulrótum fyrir 10 krónur um daginn, við erum búin að borða þær allar upp til agna, svo núna þarf ég að taka nýtt búnt næst þegar ég fer í búðina. Dálítið sérstakt hérna finnst mér, ávextir og grænmeti er oft verðlagt í stykkjatali en ekki eftir þyngd. Oft með kálhausa og svoleiðis. Og þeir geta verið misstórir, ekki satt? Og ég græði ekkert á því að kaupa risastóran kálhaus ef hann skemmist svo bara í ísskápnum :( Ef ég man rétt þá er flest allt grænmeti og ávextir seldir eftir vigt heima. Alveg upp á grammið. Jæja þetta var nú aldeilis spennandi grænmetisblogg... lýsir kannski hugarástandinu??

mánudagur, september 15, 2003

Morgunblaðið á Netinu

"Frosnun brauðum stolið úr vörugámi Tilkynnt var á föstudag um innbrot í vörugám sem stóð í iðnaðarhverfi í Garðabæ. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Hafnarfirði var stolið allmiklu magni af frostnum brauðum. " Óskaplega er eitthvað erfitt hjá moggamönnum að fá skrifandi fólk í vinnu hjá sér!!!! Mér finnst þetta orðið frekar algengt, eins og fréttamenn kíki ekki einu sinni lauslega yfir áður en fréttinni er dúndrað inn.

sunnudagur, september 14, 2003

Sunnudagur

ég er svo löt að blogga, nenni því ekki... vildi að það væri bara hægt að tala inn á þetta dæmi. Ég held allavegana að ég myndi nenna því, lofa engu. Við fórum í bíó á fimmtudagskvöldið. Fórum á Pirates of the Caribbean... sem er án efa með bestu og skemmtilegustu myndum sem ég hef séð! Söguþráðurinn er stórskemmtilegur og alls ekki eins og ég átti von á. Johnny Depp og Orlando Bloom fóru á kostum og stelpan Keira Knightley var fín. Það sem stendur upp úr er leikur Johnny Depp sem var svo einstaklega suðrænn og seiðandi að það hálfa hefði nú verið alveg hellingur. Og þegar hann dillaði rassinum svona líka ótrúlega hommalega í gegnum alla myndina dó ég næstum úr hlátri! Mig langar að sjá þessa mynd aftur og aftur og aftur!!! Í gær fórum við í heimsókn til Notodden. Við kíktum á módelflugsýningu sem varð nú aldeilis drama þegar upp komst um truflaðan mann sem var að eyðileggja sýninguna. Hann sat í bíl, einhvern spöl frá sýningarsvæðinu með alls kyns útbúnað sem varð til þess að "flugmennirnir" misstu stjórn á vélunum sínum. Það hröpuðu fjögur flugmódel með látum, þar af kom eitt fljúgandi á fullri ferð inn í áhorfendaskarann. Það var módel af stórri farþegaþotu TWA. Einn maður úr áhorfendaskaranum greip hana í fangið og hélt henni fastri, mótorinn var á blasti og "flugmaðurinn" kom á stökki og slökkti með því að ýta á einhverja takka á vélinni. Það þarf ekki að taka fram að þetta var auðvitað stórhættulegt fyrir áhorfendur. Og mikið tap fyrir eiganda módelsins. Svona módel kostar kannski milljón kall (ISK) efnið, það er skrokkurinn og vélin. Svo fara mörg hundruð tímar í að setja þetta saman og stilla allt svo vélin fljúgi. Það er varla hægt að ímynda sér hvað fer í gegnum hugann á svona trufluðum gaur sem gerir að gamni sínu að skemma þessi verðmæti fyrir fólki og skemma skemmtunina fyrir alla hina sem koma til að fylgjast með. Áhorfendur setti hljóða þegar var lesin upp tilkynning um að bíll mannsins hefði sést í nágrenninu og að lögreglan væri nú að elta hann. Svo urðu margir alveg fjúkandi reiðir, sem mér finnst mjög skiljanlegt. Þessi maður gerði víst það sama í fyrra. Nóg til af trufluðu fólki sem þarf að skemma fyrir. Svo er dagurinn í dag bara búinn að vera rólegur. Ég ákvað að vera dugleg húsmóðir og baka brauð í morgunmatinn... það varð nú meira svona hádegisbrauð og auðvitað var það mjög gott. Var að prófa að baka með kvargi. Ofsalega fitusnautt og hollt. Yndislegt að borða nýbakað brauð með smjöri og fullt af osti... namm. Svo horfði ég aðeins á formúluna en sofnaði yfir endanum, þvílík spenna fyrir þessu öll saman *geisp* *roðn*.

fimmtudagur, september 11, 2003

Ég elska Are og Odin...

sem eru tveir fíflalegir gaurar sem eru með þátt á Petre kl. 13:04-14:00 á hverjum virkum degi og fyrir hádegi á laugardögum. Þeir eru svo ógeðslega fyndnir að það ætti að vera bannað. Ég hef aldrei skemmt mér jafnvel að hlusta á útvarpsþátt áður. Mér finnst samt skemmtilegast þegar þeir syngja "Hvilken dag er det i dag"... lagið byrjar á því að annar syngur Hvilken dag er det i dag og hinn syngur Er det mandag og eftir því hvaða dagur er þá halda þeir áfram... t.d. á fimmtudegi, eins og í dag: Hvilken dag er det i dag, hvilken dag er det i dag, er det mandag, er det mandag nej.... Hvilken dag er det i dag, hvilken dag er det i dag, er det tirsdag, er det tirsdag nej.... Hvilken dag er det i dag, hvilken dag er det i dag, er det onsdag, er det onsdag nej.... Hvilken dag er det i dag, hvilken dag er det i dag, er det torsdag, er det torsdag jaaaaa.... og þetta er sungið í svona bouncy hálfvitalegum stíl... Hversu skemmd er ég LOL!!!!!!!!! Svo syngja þeir líka oft afmælissönginn... því það er jú alltaf einhver sem á afmæli... of course! Veit ekki hvort það hefur verið vinsælt heima á Íslandi, lagið þarna Were gonna party, It's your birthday... were gonna party, like it's your birthday... þeir taka það líka nokkuð oft. Krúsí-smúsí-dúllur

miðvikudagur, september 10, 2003

Útskriftarmyndirnar eru loksins komnar og svona lítur hópmyndin út. Get nú ekki sagt að það sé nú mjög greinilegt hverjir eru á myndinni, en ég veit allavegana hvar ég er og man hverjir stóðu við hliðina á mér :D

mánudagur, september 08, 2003

jæja, ég er svona að jafna mig

Búin að borða yndislega góða heimabakaða pizzu með óhóflega mikið af osti, guðdómlegu beikoni, lauk, sólþurrkuðum tómötum, fersku oregano og marjoram... nammi Búin að fara í norskunámskeiðið og tjá mig helling um stjórnmálaflokkinn Arbeiderpartiet og sitthvað fleira sem viðkemur pólitík og stjórnmálum og hrossakaupum og því öllu. Ég er að jafna mig á því að þurfa að bíða í minnst tvær vikur eftir að fá að vita hvort ég kem til greina í næsta viðtal eður ei. Ég fékk þær upplýsingar í dag að ég væri á "prioritered" listanum. Sem þýðir að ég verð að bíða ennþá og er ekki alveg úti í kuldanum. Mér finnst nú samt orðið ljóst að ég verð að finna mér eitthvað að gera á meðan þetta blessaða fyrirtæki ákveður hvort það ætlar virkilega að fá nýjan starfsmann eða hvort þau hætta bara gjörsamlega við þetta allt saman. Það má vera ljóst af allri þessari bið að það er ekki akút þörf á nýjum starfsmanni :/ Væntanlega sjá allir í gegnum línurnar hjá mér að ég er nokkuð pirruð á allri þessari bið. En svona er lífið, endalaus bið. Life's a bitch and then you die! Stjörnuspáin mín sagði að ég ætti ekki að taka neinar stórar ákvarðanir í dag, svo ég ætla að sofa á þessu og sjá hvort það bíður ekki eitthvað stórt tækifæri handa mér á morgun þegar ég vakna. Hver veit nema fyrirsögnin í blaðinu verði: "Við viljum þig í vinnu hjá okkur" ;) Það má alltaf láta sig dreyma!!!

I'm the 289,387,187 richest person on earth!


Discover how rich you are! >>

nú er ég orðin dáldið hissa á því að hafa ekki fengið símtal ennþá... bíð í hálftíma og hringi svo. update 14:40 : ég hringdi í fyrirtækið núna fyrir 5 mínútum síðan. Aðalsjéffarnir eru í burtu þessa viku og næstu vegna tölvumessu. Ég er alveg að missa vonina um að það komi nokkuð út úr þessu. En ég hef svo sem engu að tapa og verð bara að bíða róleg. Mér finnst bara svekkjandi að vera búin að bíða í mánuð eftir svari úr þessu viðtali sem ég fór í. Umsóknarfresturinn rann út um miðjan júli og með þessu áframhaldi verða þeir varla búnir að ráða fyrir jól :( Ég er bara í þónokkru uppnámi yfir þessu öllu saman :s

CWINDOWSDesktopCinderella.JPG
What movie Do you Belong in?(many different outcomes!)
brought to you by Quizilla

sunnudagur, september 07, 2003

afmælisbarn dagsins...

er afi minn, Kristmundur Guðmundsson 75 ára í dag. Til hamingju með afmælið afi!

föstudagur, september 05, 2003

föstudagur, loksins komin helgi ;)

munar svo miklu fyrir mig hvort það er virkur dagur eða helgi nefnilega... Styrmir hefur verið boðaður í vinnu á morgun, svo það verður nú næstum eins og virkur dagur fyrir mig :D annars er það helst í fréttum að ég er ekki enn búin að fá að vita um vinnuna. þá verður það á mánudaginn. Koma tímar koma ráð! við skruppum á bókasafnið í dag, fengum okkur ýmsar bækur, linux biblíu!, bók um Gaudi, tvær bækur eftir Knut Hamsun og tvær svona heimspekibækur... ansi fjölbreytt efni! svo fórum við á kaffi PI sem er á/í hótelinu... voða huggó kaffistaður versluðum aðeins í matinn og bara höfðum það gott í hlýjunni. Það er nefnilega alveg mjög hlýtt ennþá hérna... það var 16 stiga hiti þegar við röltum niðrí bæ og virkaði alveg meira í sólinni :D spurning að sækja sólstólinn aftur niðrí kjallara á morgun ef það verður svona gott veður!!

fimmtudagur, september 04, 2003

Stoltur eigandi nýrrar eldavélar

Sérdeilis er ég yfir mig ánægð í dag. Nágranninn bankaði upp á hjá okkur í gær og bauð okkur að kaupa gömlu eldavélina sína. sem var svo aldeilis ekkert gömul, rétt 2ja ára og lítur út eins og ný. Konan hans var að flytja til hans aftur og þau eiga núna tvennt af öllu. Svo við keyptum eldavél og fengum straubretti í kaupbæti. Þvílíkt fín kaup fyrir aðeins 1500 krónur norskar ;) Erum líka búin að panta okkur við. Pöntuðum birkivið, ábyggilega robboslega fínt. Kemur í dag eða á morgun. Svo við getum farið að kveikja upp á kvöldin og hafa það huggó ;) Annars er nú ekkert svo kalt lengur, hehe, þetta var nú bara hálfgerður hrollur í mér. En það verður samt kalt á nóttunni, held það fari nálægt frostmarki. Ætli veðrið sé ekki bara svipað og heima? Reyndar sá ég að hitastigið fór aðeins hærra á pixie-num hjá mér í gær en heima. 18 stig hér en 14 heima. Galdurinn núna er að opna alla glugga upp á gátt um hádegið og lofta kuldanum út og fá hlýjuna inn, haha. Annars eru við búin að sækja vetrarfötin í kjallarann og ermalausu bolirnir og stuttbuxurnar fara alveg að hverfa í kjallarann í staðinn. Nú er gott að eiga góðar peysur og ullarsokka!! Það er mikið um stórafmæli í fjölskyldunni minni í þessari viku. Elsa amma varð 75 ára á mánudaginn 1. september og afi Diddi verður 75 ára á sunnudaginn 7. september. Mér finnst alveg helling leiðinlegt að komast ekki í afmælin :( Afi Ási hefði líka átt afmæli í dag, hefði orðið 84 ára. Nýjasta hobbýið hjá Rán er að hoppa út um gluggann, niður af bílskúrnum og koma hlaupandi að útidyrunum og láta hleypa sér inn. Hún er haldin þeim ranghugmyndum að ég þurfi að hreyfa mig og það sé æðislega gaman að hlaupa upp og niður stigann 3x á hverjum hálftíma... prakkari!! En hvað getur maður gert þegar maður heyrir þetta litla grey væla og væla og vilja koma inn. Ég er svo dauðhrædd um að hún stingi þá bara af og flytji til vinar síns sem býr hinum megin við götuna. Bara meira vesenið að hún komist ekki upp á bílskúrinn aftur og inn um gluggann sjálf. Þá væri lífið einfalt og ég allavegana 2 kílóum þyngri :þ

þriðjudagur, september 02, 2003

Ehmm... eða já

Það er víst ekkert svo rosalega kalt í Kongsberg... ég er bara kuldaskræfa. hahaha Veðurfréttirnar sögðu að það yrði mjög svipað veður áfram og það er spáð 20 stiga hita á morgun og skýjað. tíhí... Mér skilst að það sé eiginlega bara kalt hérna inni hjá mér, ég hefði átt að fara í labbitúr í dag eins og ég ætlaði. Mig vantar nefnilega nýja skó og ætlaði að kíkja í skóbúðina og sjá hvað þeir eiga sniðugt á lager :D

Hringdi í fyrirtækið og fékk að vita að ég mætti eiga von á símtali á föstudaginn, síðasta lagi á mánudaginn. Er ekki alveg klár á því hvort ég misskildi eitthvað tímasetninguna eða hvort tímaáætlunin þeirra breyttist... ...allavegana. Ég veit að ég er að bíða fram á föstudag :) Það er skítakuldi hérna í Kongsberg þessa dagana. Ég skil bara ekki hvernig Móðir Náttúra getur verið svona nákvæm. Mér fannst ekkert kalt í ágúst. Ekki einu sinni 31. ágúst... en svo breyttist mánuðurinn í september og það er bara skítakuldi. Ég fór í norskuna í gær og þegar ég labbaði heim um hálfníu var 8 stiga hiti. Ég saknaði þess virkilega að hafa ekki vettlinga og húfu. Var þó allavegana með trefil. Hvernig verð ég eiginlega þegar verður komið 20 stiga frost í vetur? Brrrr... hugsa hlýjar hugsanir.

Myndir frá Oslóarferðinni

Myndir frá helginni eru hér Og myndin af stofugardínunum er hérna :)