jæja... (einhverjir forvitnir lesendur kannski farnir að undrast um mig... NOT) heilir fjórir dagar síðan ég bloggaði! Hef bara ekki haft lyst á því að blogga undanfarið... ég er búin að vera að vinna síðustu 3 daga (jeiiii, peningur) á leikskóla (sem er allt í lagi í stutta stund). stóð mig eins og hetja, fékk hrós frá öllum sem vinna þarna og krakkarnir fíluðu mig og þetta var bara ágætis upplyfting... eftir stendur samt að ég er enn atvinnulaus :( ég hefði aldrei getað ímyndað mér að það gengi svona vel að labba inn á leikskóla og passa börn. En ég virðist vera natural talent :D Takk takk, engar myndir plís. Svo hjálpaði nú þvílíkt til hvað þetta voru skemmtileg og þæg börn. Það er dáldið sérstakt að fara svona aftur í tímann og setjast í sandkassann, pota skóflunni í sandinn og moka. En kannski ágætis þerapía í sjálfu sér... ( nú eða barnapía ;-) ) svo komst ég auðvitað að því að það er algjörlega vanmetið starf að vinna á leikskóla. Þetta getur alveg verið skemmtilegt og þarf ekkert að vera svo þreytandi ef maður passar bara að láta aðstæðurnar ekki ná tökum á þér heldur hafa full control all the time. well, ég er heima í dag... sit og hálfvona að fleiri leikskólakennarar verði veikir hehehe (því þá verður kannski hringt í mig og ég beðin að vinna) ...nenniggimeir
fimmtudagur, október 30, 2003
sunnudagur, október 26, 2003
may god pless you
Fékk þetta ansi skemmtilega bréf í innboxið mitt í dag... Áhugavert, sérstaklega þar sem engar upplýsingar eru gefnar um það hvert maður myndi snúa sér ef maður hefði áhuga á því að styðja þetta verkefni sem er talað um í bréfinu. Frekar tilgangslaust að senda svona bréf, enginn sem skrifar undir einu sinni. "ATTN: DEAR SIR/MADAM, FIRST I THANK GOD FOR ARE INDIVIDUAL LIFES TODEY BECOUSE WITH HIM ALL THINGS ARE POSSIBLE, WE CAN NOT DO WITHOUT HIM EACH DAY IN ARE LIFES. I AM MR.JOHN IBE, THE CHIAR MAN OF THE CHURCH COMMETEEAT OUR LADY OF FATIMA CATHOLIC CHURCH AJUDA(NIGERIA) IN RESPECT OF THE NEW CHURCH BUILDING OF ST PADRE PIO OUT-STATION WE THE FOUND RAISING COMMETEE (FRC) HAVE DISIDED TO GET IN CONTACT WITH BOTH IN AND OUT THE COUNTRY FOR THERE POSSIBLE SUPPORT TUWWORD THE NEW OUT-STATION,THE CHURCH AND THE ORDER BRANCHES HAVE BEEN ABLE TO RAISE 7 MILLION WHICH WE ARE TOLKING ABOUT 21 MILLION THAT HAVE BEEN ORDER BY THE CONTRACTORS. WE ARE HOPPY TO BE IN TOUGH WITH YOU IN RESPECT OF THE CHURCH FOUND FOR YOUR SUPPORT, NO AMOUNT IS TOO SMALL TO SUPPORT THE CHURCH FORTHE NEW BUILDING. WE THE COMMETEE ARE NOT PUTTING FORCE ON YOU FOR SUPPORT BECOUSE IS LEFT FOR YOU TO DESIDE STRAIGHT FROM YOUR HAERT BECOUSE IT IS SIAD IN THE BIBLE, GIVE AND IT SHALL BE GIVEN ONTO YOU. YOU ARE WELCOME TO BE ARE JUESS BE YOU A CATHOLIC OR NOT IT DOSNT MATTER, WE ARE ALL BORN TO COME TOGETHER AS ONE IN THIS WORLD. PLEASE BELLOW ARE SOME CONTENT YOU CAN STILL SUPPORT WITH. WEARS FOR THE NEEDY CLOTHINGS: USED OR UNUSED, MALE ,FEMALE SHOES: /// // // // /// //// ETC. SUPPORT WITH MONEY NO AMOUNT IS TOO SMALL ALL DIPEND ON YOU THE AMOUNT YOU WANT OR FILL LIKE TO SUPOORT US WITH, A LITTLE OF YOUR SUPORT I BELIEVE WILL MAKE A DIFERENCE AND IMPACT TO THE CHURCH. HOPING TO HEARING FROM YOU SOON AND MAY GOD BLESS AND BE WITH YOU ALL THE DAYS(AMEN)."
fimmtudagur, október 23, 2003
Cheers me up
Smelltu hér stundum þegar heimurinn virðist ekki snúa manni í hag, þá vantar mann eitthvað til að brosa yfir... Þetta er sko öruggt eitt af því sem fær mig til að brosa og já jafnvel hlæja!!!
miðvikudagur, október 22, 2003
Hvað er flugverji ?
Mér finnst svo gaman að lesa morgunblaðið og sjá þegar hægt er að tengja beint á milli þess hver skrifar hvaða greinar, þó að aldrei sé skrifað undir með nafni, sem mér finnst galli. T.d. er þessi grein um flugvélastarfsmenn (?) sem eru kallaðir flugverjar, sem er nú þegar maður fer að hugsa um það ansi nothæft nýyrði. (Ég hef allavegana aldrei heyrt það áður) Svo rakst ég á aðra grein sem ég geri ráð fyrir að hafi verið skrifuð af sama blaðamanni. Þar talar hann um að Sálin hafi ákveðið að gefa lag á netinu. Sem er nú kannski ekkert merkilegt í sjálfu sér. En þá kallar hann meðlimi hljómsveitarinnar "Sálverja". Eða ég held allavega að hann hafi verið að vísa til meðlima hljómsveitarinnar. Nema þetta sé nýji fanklúbburinn? Er ekki alveg viss. Allavegana, Morgunblaðið blífar bigtime :D
Aetat: Fastansettelse : ABAP programmer
Aetat: Fastansettelse : ABAP programmer: "Kandidater som ikke har utdannelse, men som har jobbet med utvikling siden de var 8 år er også aktuelle. " Já og þar höfum við það! Ég er víst bara ein af þessum fáu óheppnu sem hafa ekki unnið við þróun síðan þeir voru 8 ára. Verð víst að reyna að finna mér eitthvað annað að sækja um :s
þriðjudagur, október 21, 2003
Snjórinn, snjórinn allstaðar
Nei ég er að ýkja aðeins... en það eru samt að falla fyrstu snjókorn vetrarins hérna í Kongsberg :) Á ég þá að segja að það sé kominn vetur? Þetta er voðalega friðsælt... þau svífa bara og falla til jarðar... fleiri og fleiri... ég held þau séu að safna liði. Þau fara stækkandi líka úúúú. En hvað þetta er nú fallegt!!! Ég held það sé augljóst að ég er HRFSf (hopeless romantic for snowflakes) hehe
mánudagur, október 20, 2003
Kannski kominn tími á annað uppfyllingaefni en stjörnuspána?? Ég er bara svo löt að blogga fínt að linka bara á stjörnuspána, sem er lítið spennandi nema náttlega fyrir þá sem eru í sama stjörnumerki og ég :) Ég átti fína helgi, sú besta lengi. Ég grófkláraði forritunarverkefnið á föstudaginn og hef verið að halda upp á það um helgina með því að gera ekki neitt. Hef ekki einu sinni setið neitt sérstaklega lengi við tölvuna. Fór og heimsótti sundlaugina í fyrsta skipti á laugardaginn. Tékkaði fyrst á ljósabekkjunum og eins og við mátti búast voru þeir frá tíma vel fyrir aldamótin. En það er fínt fyrir mig, ég brenn þá ekki á meðan :þ Svo henti ég mér í sundlaugina en hefði mátt athuga betur hvenær var barnasundtími og hvenær fullorðinssundtími. Það var nefnilega opið fyrir þessa litlu skæruliða til þrjú en bara opið fyrir stóra skæruliða eftir þrjú. Ætla næst að mæta í stóra skæruliðahópinn frekar... þessir litlu kunna eiginlega ekkert að synda og eru bara fljótandi um alla laug í kútum og á frauðplastplötum. Svo það var frekar erfitt að komast heila ferð yfir laugina. En mér var svo sem alveg sama. Synti bara lítið í þetta skiptið. Fór svo upp úr og prófaði saunaklefann, hann var ágætur en mér finnst gufubað mikið betra. Saunan er eitthvað svo þurr eitthvað. Allavegana sundlaugin fær 4 stjörnur af 6 mögulegum, þokkalega snyrtileg en það vantar að sjálfsögðu alveg heitu pottana. Ég eyði yfirleitt mestum tímanum þar í sundi á Íslandi ;) Svo í gær fengum við tengdó í heimsókn með krakkana, það var fínt. Ég var náttlega brjáluð húsmóðir, skúraði og lagaði til áður en þau komu og bakaði svo vöfflur :) Svo huggulegt hjá mér :D Hún kom færandi hendi, eins og svo oft áður, með hálfa blómabúð. Þannig að stofan okkar er frekar mikið græn núna. Þetta eru ofsalega falleg blóm og svo heimilislegt að hafa í stofunni. Horfði á sjónvarpssöfnun í ríkissjónvarpi norðmanna í gærkvöldi. Þeir hafa svona sjónvarpssöfnun á hverju ári og velja ein hjálparsamtök sem þeir gefa ágóðann. Til þess að leggja enn meiri áherslu á hversu úr samhengi fjárráð norðmanna eru miðað við íslendinga. (Ok, þeir eru fleiri, viðurkenni það! En samt!!) Þá er best að nefna töluna sem þeir söfnuðu. Alls söfnuðust yfir 150 milljónir, NORSKRA KRÓNA!!!! Já það er rétt, það eru 1,5 milljarður íslenskra króna. Ríkisstjórnin ein gaf 25 milljónir (250 milljónir ISK) og restin kom frá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum. Það er ansi ótrúlegt að hugsa um þessar upphæðir. Þessir peningar renna allir til Save the children samtakanna, en þau berjast fyrir því að öll börn fái að ganga í skóla. Þau starfa víða um heim t.d. í Afríku og Asíu. Já, ég held að norðmenn hafi sofið vel í nótt eftir góðverk ársins.
sunnudagur, október 19, 2003
Eins og talað út úr mínu hjarta!
"MEYJA 23. ágúst - 22. september Þú ert að velta fyrir þér nýjum fjáröflunarleiðum en í raun snýst málið um lífsviðhorf þitt. Þú ert í raun að leita að einhverju sem veitir þér ánægju og lífsfyllingu. " Þetta á ansi vel við í dag, þegar ég eins og flesta aðra daga er að hugsa um hvað í ósköpunum myndi gera mig ánægða vinnulega séð. Hvað get ég fundið mér að gera, þar sem störf þar sem ég get nýtt menntun mína liggja ekki á hverju strái. Ég veit svo vel að ég yrði ekki ánægð með að gera eitthvað þar sem engrar heilastarfsemi er krafist. Svo leitin heldur áfram að draumstarfinu eða næstum draumastarfinu.
föstudagur, október 17, 2003
Mikið til í þessu
"MEYJA 23. ágúst - 22. september Staldraðu við og íhugaðu hvað það er mikil ást í lífi þínu. Varastu að líta á ástvini þína sem sjálfsagðan hlut. Láttu þá finna að þeir skipti þig máli."
fimmtudagur, október 16, 2003
Pirates II
Pant sjá þessa mynd fyrst!!! omg, hvað biðin mun verða löng og ströng og margir dagar munu fara í dagdrauma... Johnny hang in there... you can do it!!!!!
Vikan þýtur framhjá mér
MEYJA 23. ágúst - 22. september Þú gætir fundið nýja lausn á gömlu vandamáli ef þú gefur þér tíma til að liggja yfir því. Þú gætir líka fundið nýja fjáröflunarleið eða hagstæðari leið til að gera hlutina. Hljómar vel :D Ég er að hlusta á Beth Orton, ég uppgötvaði hana á Rokkland disknum og núna er hún mikið í uppáhaldi. Sérstaklega Stolen Car lagið... ógeðslega fínt lag!
miðvikudagur, október 15, 2003
Well this is fun
Get ekki opnað blogger síður en get samt farið hérna inn til að skrifa.... furðulegt!
þriðjudagur, október 14, 2003
well, þetta var klaufalegt... var búin að skrifa þessa fínustu færslu og svo bara klúðraðist ég á einhvern takka og kabúmm! allt farið... er að hlusta á bítlana... fékk allt í einu löngun til þess að halda partý og bjóða skemmtilegu fólki. Sitja svo saman og syngja. Hef komist af því að Here comes the sun gerir mér BARA gott. Það á sko heima í geðræktarkassanum mínum. Verst hvað ég fatta sjaldan að setja það á þegar ég er niður. En allavegana, I am the walrus er líka rosa fínt... en djöfull voru þeir steiktir í textasmíðum og söng á þessum tíma... væru sko örugglega á sama báti og Bowie í dag ef þeir hefðu lifað af... sem þarf að hafa textann með sér á sviðið þegar hann syngur SÍN EIGIN lög! Segið mér svo að fíkniefni séu bara fín :Þ
mánudagur, október 13, 2003
Jæja, verkefninu miðar bara sæmilega.. loksins þegar ég sest niður við þetta af einhverri alvöru. Það eru ábyggilega margir að undrast hvað ég er búin að vera óskaplega marga daga með þetta verkefni. Hlýtur að vera risastórt!! Nei, því miður er málið bara að ég er svo mikill kleyfhugi, er alltaf að pæla í milljón hlutum í staðinn fyrir að einbeita mér að einhverju og klára það og onto the next one... Þetta lítur allavegana sæmilega út núna :)
föstudagur, október 10, 2003
Skattalistar fyrir Noreg tekjur 2002
Skattakóngarnir í Noregi Já, ég get nú ekki annað sagt en að ég er orðlaus. Skattakóngur noregs er með 1.010.268.400 norskar krónur í laun fyrir árið 2002. Svo við leggjum dæmið upp í íslenskum krónum þá útleggst það sem 10.102.684.000. Það eru rúmir 10 milljarðar í laun :) Og í skatt borgar þessi hamingjusami einstaklingur aðeins rétt rúma 2,9 milljarða. Það mætti kannski nefna að þessi maður á eina af stærstu matvörukeðjunum hér í Noregi. En kommon það tekur því ekki að nefna það. Hversu mikil er álagningin eiginlega í búðinni? En eignamesti maðurinn er sem fyrr Kjell Inge Rökke... the daredevil himself... sem er by the way mjög nálægt gjaldþroti (og ég er ekki að grínast)... en hann á eignir fyrir 23.897.490.000 ISK. Þ.e. er skv. skattayfirvöldum... en við þekkjum nú svona sögur. Kjell Inge er nefnilega með engar tekjur á síðasta ári!! Hversu skrýtið er það?? Mjög eðlilegt á íslenskan mælikvarða... sjá bara J.Ó.!! Gleymi auðvitað að nefna aðalatriðið en þetta gefur mér mjög mikinn innblástur í amstri dagsins til þess að finna mér vinnu og fara að græða silljónir eins og hinir norðmennirnir. Hmm, nú þarf ég bara að eignast verslanakeðju. Hvar ætli maður finni svoleiðis??
Jólagjöfin í ár!!
Ég er sko þokkalega komin með hugmyndir fyrir jólagjafirnar í ár... það kemur annað veifið svona fáranlegur bæklingur með allskonar drasli sem þú vissir ekki að þig vantaði í póstkassann minn. Ég fletti í gegnum hann pjúrlí fyrir skemmtanagildið. Ljótleikinn og lítið sem ekkert notagildi fær mig til þess að hugsa um það hverjir panta eiginlega svona shitt?? En allavegana þá var hin mesta snilld í bæklingnum sem kom núna síðast... Robosweep!! Þetta er auðvitað nauðsyn á öll heimili. Þetta er semsagt svona flatt tæki með batteríum í og moppuklút neðan á. Svo bara "brúmmar" tækið um íbúðina þína og hreinsar gólfið í leiðinni. Og þú bara situr uppí sófa og horfir á... eða gerir eitthvað annað nytsamt, því þetta er náttúrulega þvílíkur tímasparnaður! Það er með innbyggðum skynjara svo það beygir áður en það klessir á veggi eða sófa eða önnur húsgögn. Hversu mikil snilld er þetta og kostar innan við 5000 kall (ISK). Ég prófaði og hef verið öll önnur síðan!! Mæli með Robosweep... líka gott fyrir þá sem eru einmanna og vilja hafa eitthvað lítið krútt á ferðinni í íbúðinni :) bwaahahahahahha... (Bryndís, kannski dáldið að missa sig... bara svo hrikalegt, það er enginn sjónvarpsmarkaður í sjónvarpinu mínu :o fráhvarfseinkennin arrrggg)
I have a dream
Ég á mér draum um ... ...að einn daginn vakni ég og veröldin verði alveg einstaklega jákvæður og réttlátur staður. ...að þegar ég verð stór þá hafi ég æðislega mikla stjórn á lífi mínu. ...að á hverri stundu muni birtast í póstkassanum bréf sem segir að ég sé komin með vinnu. ...að á hverri stundu muni birtast í póstkassanum bréf sem segir að ég hafi unnið í happdrættinu. ...að allt verði betra á morgun! en svo átta ég mig á því að þetta er allt bara dagdraumar og óskhyggja... well nice dream anyway! Minns langar bara ekki að eyða tímanum í vitleysu lengur :|
fimmtudagur, október 09, 2003
Loksins nothæf hugmynd
Þakka þér herra kráareigandi. Mér finnst bara skrýtið að þetta hafi ekki verið fundið upp fyrir löngu síðan :D Myndi sko nota þetta ef þetta væri fyrir hendi þar sem ég versla!
miðvikudagur, október 08, 2003
Mikið er ég innilega búin eftir þennan dag... hvernig væri það nú ef maður ynni allan daginn fyrir einhvern annan :þ Nú ætla ég að fara og knúsa kallinn minn og kannski sjá hvort það sé eitthvað frambærilegt í TV-kassanum...
Arrgggghhhh
Djöfull er erfitt að vera bjartsýnn! Sjálfsmeðvitund gerir það að verkum að ég sálgreini hverja einustu hreyfingu og hvern einasta andardrátt hjá mér núna undanfarið. Sjálfsforritun(NLP) er rosalega sniðugt tæki og við fyrsta tækifæri ætla ég að fá mér bók um málið. Þetta er bara fíflalegt. Ég er núna farin að stoppa sjálfa mig þegar ég reyni að kalla mig heimska og fattlausa. Alveg hérna nei, þetta er ekki svona slæmt. Þú ert nú bara nokkuð sleip í þessu. Sjáðu þetta gengur vel.... Afhverju í andskotanum gengur þetta andskotans mál ekki hraðar í gegn hjá mér!!! Ég gæti öskrað þakið af húsinu núna, er að farast úr pirringi. Þá er gott að hlusta á tónlist í botni í headphones og syngja með... Þetta hlýtur að fara að ganga yfir núna. Sólin er farin að kíkja inn um gluggann hjá mér og ylja mér í framan. Verð að vona það...
þriðjudagur, október 07, 2003
mánudagur, október 06, 2003
Hin árlega haustlitaferð var farin í gær
Nýjar myndir teknar í hinni vonandi komandi hefð fyrir haustlitaferð. Spurning hvort það verði nú ekki meiri litadýrð bráðum. Það er allt svo obboslega grænt eitthvað ennþá :þ
laugardagur, október 04, 2003
Hmmm, hvernig virkar þetta?
"MEYJA 23. ágúst - 22. september Júpiter er nú í meyju og það mun gera næsta ár gæfuríkt. Þú mátt búast við að fá ýmis tækifæri á næstu 14 mánuðum. " Þarf ég þá að gera eitthvað sérstakt í dag til þess að virkja gæfuna? En annars er ég nú bara sátt við það... vona að það gangi eftir :D
fimmtudagur, október 02, 2003
Stjörnuspáin
"MEYJA 23. ágúst - 22. september Enga sjálfsgagnrýni á sköpunarsviðinu. Kröfuharka gerir að verkum að þú blindast á eigin hæfileika. Þú ert betri en þú heldur. " En hvað þetta var nú kærkomin stjörnuspá :) Þetta var nákvæmlega það sem ég þurfti í dag!!
miðvikudagur, október 01, 2003
Hey allir að tala við mig, frítt á netinu!
Ég var að fá stórsniðugt forrit í hendurnar, auðvelt að setja upp og nota. Eina sem þú þarft er tölva og headset. Býst við að þú sért með aðgang að tölvu fyrst þú ert hér ;) Svo þá er bara að redda headsettinu... kostar ekki mikið ef þú átt ekki svoleiðis nú þegar. Slóðin er hérna: Skype. notandanafnið mitt er: bryndisv update: Skype virkar bara fyrir windows 2000 og XP. Hmmm.... reyndar líka ef þú ert með msn messenger, þá er hægt að tala í gegnum það! Bara redda headsettinu og við erum svo gott sem farin/farnar að spjalla :)
Háfleygt
Júlíus stjórnar viðburðum Það er örugglega kominn nýr penni á moggann. Hann skrifar svo skemmtilega háfleygt að það er bara tær skemmtun. Nýjast þetta "Forsætisráðherra hefur ráðið Júlíus Hafstein til að stjórna viðburðum sem efnt verður til í tilefni þess að 1. febrúar á næsta ári verða 100 ár liðin frá því að fyrsti íslenski ráðherrann, Hannes Hafstein, tók við völdum, framkvæmdavaldið kom til landsins og Stjórnarráð Íslands var stofnað". Nema náttlega að þetta sé tekið beint upp úr fréttinni frá forsætisráðuneytinu? En skyldi nafnið eitthvað hafa hjálpað honum að negla starfið? Hafstein -> Hafstein... I see a connection there... hmmm?
