Dagarnir koma og fara, koma og fara, koma og fara.... allt til enda veraldar án efa.
Þetta er búinn að vera skrýtinn dagur... ég er að hugsa um að kenna sólgosum undanfarinna daga um þetta allt saman.
Mér leið hrikalega illa þegar ég vaknaði. Dúndrandi hausverkur, hálsbólga, hósti og almenn vanlíðan... samt fór ég út og mætti áskorun dagsins. Enn ein ferðin á skattstofuna, HVERSU miklar upplýsingar þarf eiginlega til að skrifa út eitt vesælt skattkort. Ég bara spyr!!
Mér finnst ég vera outkast í samfélagi dagsins í dag, engin vinna, engir skattar, enginn tilgangur. Ég fæ ekki einu sinni leyfi fyrir að hafa almennilegt debetkort. Nei, hraðbankakortið verður víst að duga enn um sinn.
Mér finnst ekki gaman að fara inn í stofnun og þurfa að segja söguna eina ferðina enn,,, já, ég ætla að vera hér lengur en í 6 mánuði, já, ég er búin að fylla út svona eyðublað og já þetta líka. Nú já, nýtt. Allt í lagi. Nei, ég var bara ekki búin að sækja um skattkort því ég hef ekki unnið neitt á árinu. Eins og stendur á fína eyðublaðinu þínu þá verður maður að skrifa atvinnurekanda og helst hvað maður fær í laun á árinu til að geta fengið útprentað eitt vesælt skattkort. Svo þá er nú ekki til neins að sækja um skattkort þegar maður hefur engan atvinnurekanda og ekki grænan guðmund um hvort maður fær yfirleitt krónu í laun!! (Já, ég veit að þetta er ekki þér að kenna, er bara orðin dáldið þreytt á að útskýra sama hlutinn 500 sinnum fyrir fólki sem hlustar ekki einu sinni).
Þetta eru svona hlutir sem skipta ekki máli, en stundum fær maður bara nóg af því að vera að þeytast um allan bæ að sækja pappíra sem eru svo einskis virði eða eins og svo oft "ekki rétti pappírinn". Nú já, var það þetta sem ég átti að fá, afhverju sagðiru það þá ekki strax????
Annars er bara allt ágætt... er bara dáldið pirruð á skilningsleysi fólks gagnvart mér. Það er ekki eins og ég biðji um mikið.
Það er hundleiðinlegt að eiga við skriffinna þegar maður flytur svona á milli landa í stuttan eða langan tíma. Það er alltaf eins og enginn hafi spurt um svona áður. Ég neita að trúa því að ég sé fyrsti útlendingurinn sem sækir um skattkort hérna í Kongsberg. Ég neita að trúa því að allir skapaðir hlutir þurfi að vera svona ofsalega flóknir og þvældir.
Ég var að vinna í gær, fór meðal annars að sjá barnaleikrit um Askeladden. Það var mjög gaman. Krakkarnir voru nú pínu smeykir. Ég sat með þrjú nánast í fanginu þegar mest var. hehe. Samt var þetta nú ekki einu sinni skerí leikrit. En svona er lífið. Þau venjast þessu... geta ekki ímyndað mér hvernig afþreyingarbransinn verður þegar þau verða skriðin yfir tvítugt. (Er að hugsa um KillBill myndina, sem virtist einbeita sér sérstaklega mikið að því að láta sem mest blóð sprautast úr hverri manneskju sem særðist eða var drepin... mér fannst hún góð samt, ekki misskilja).
Fer að vinna á morgun líka frá átta til hálffjögur. Það er fínt. Ég er mikið að spá í að labba heim eftir vinnu á morgun, það tekur rúman hálftíma. Verður ábyggilega mjög fínt, það á ekki að vera of kalt eða blautt. Er ekki svo huguð að ég nenni að labba í vinnuna, tekur alltof langan tíma og þá er ég alltof sjúskuð þegar ég mæti, (að mínu mati).
Enníveis... var að taka eftir því í gær að þeir eru byrjaðir að sýna Judging Amy aftur,,, alveg primetime eða hittó... klukkan 00.25... Hlýtur að vera endursýning á gömlu seríunni. Ég fylgist annars alltaf með þætti sem heitir Crossing Jordan og er rosa fínn. Um stelpu sem er coroner eða líkskoðari eins og orðabókin mín þýðir það????? Er það kannski réttarlæknir? Allavegana rosa fínn þáttur svona oftast... Hún er rosa lögga í sér og neitar að gefa frá sér málin fyrr en hún er búin að leysa morð/slysa/andláts -gátuna... Rosa drama hehehe
Ég er alveg komin með gubbuna fyrir þessu útliti á bloggnum mínum!! En ég get ekki fundið neitt sem mig langar í frekar... finnst algjört svindl að Blogger bjóði ekki upp á fleiri lúkk :(