Gleðileg jól og allt það
Veit ekki alveg hvað er í gangi hjá mér en ég hef bara ekki haft eirð í mér til að blogga neitt undanfarna daga. Byrjaði tvisvar en svo var eitthvað sem kallaði mig frá tölvunni. Girnilegt konfekt, íslenskt nammi, nýjar bækur, skemmtilegar bíómyndir. Hmmm bara búið að vera geðveikt mikið að gera hjá mér að gera nákvæmlega ekki neitt. Og það sem meira er, ég er að verða ógislega góð í því!! Það verður erfitt að takast á við grámyglaðan hversdagsleikann aftur þar sem ég sit hérna heima og geri ekki neitt. En þá verður ekkert nammi :/ Annars er ég að vera dugleg að semja atvinnuumsóknir og finna öll störf sem ég get sótt um. Reyni að vera bjartsýn á að þetta gangi upp núna fljótlega. Líkur eru á því að ég verði þá að ferðast til Osló í vinnu en það verður þá bara að vera þannig. Jólin hafa liðið ósköp hægt og hljótt hjá okkur fyrir utan hvað jólatréinu hefur gengið illa að standa kjurru. Rán hefur nefnilega séð til þess að tréið hristist og skelfur við mörg tækifæri á dag. Sérstaklega finnst henni gaman að leika við tréið þegar við Styrmir erum að fara að sofa. Svo maður neyðist eiginlega til þess að standa upp, akkúrat þegar sængin er orðin hlý og sussa á hana eða úða hana létt með vatnsbrúsanum sem var nú annars rykfallinn inni í skáp eftir margra mánaða fjarveru. En jólatréið hefur sloppið án sjáanlegra skemmda hingað til, reyndar er jólaserían orðin hrikalega sigin eitthvað. Við höfum greinilega séð þetta allt fyrir þegar við keyptum jólaskrautið þarna um árið, langflestar kúlurnar eru barn/kattheldar og við settum þessar brothættu bara ofarlega svo við þyrftum ekkert að grenja yfir því. Þetta er búið að vera yndislegt að vera heima í rólegheitunum en mikið sakna ég þess nú að hitta ekki vini og fjölskylduna. Verð sko þokkalega að reyna að bæta það upp á næsta ári! Heimþrá 2003, verð að fara að leggja fyrir fyrir flugmiðunum að ári ;) Áramótin nálgast og ég er farin að velta fyrir mér áramótaheitinu. Er að reyna að finna mér eitthvað raunhæft en samt ögrandi heit í ár. Skólafélagi hans Styrmis er búinn að bjóða okkur í mat á gamlárskvöld og svo verður partý á eftir. Ætti að verða stemming. Ég var himinlifandi þegar við fengum boðið. Var farin að sjá fyrir mér að ég yrði farin að sofa fyrir miðnætti á gamlárs :o Knús og kossar, sakna ykkar geðveikt!
