Nýjar myndir
Nýjar myndir af mér :p Gat ekki sett inn myndir á tímabili og þegar ég gat sett þær inn þá nennti ég því ekki... en loksins er þetta komið inn. Enjoy.
Nýjar myndir af mér :p Gat ekki sett inn myndir á tímabili og þegar ég gat sett þær inn þá nennti ég því ekki... en loksins er þetta komið inn. Enjoy.
Allt er blátt, eldhúsið, ég og áhöldin sem ég notaði til þess að aflífa allar mórellurnar með áðan. Yndislegar svona mórellur. Safaríkar og sætar. Mórellur eru afbrigði af kirsuberjum, líta eins út nema dökkarsvartar/fjólubláar en bragðast á engann hátt líkt. Styrmir er að vinna með mórellubónda og sá gaf honum fulla fötu af berjum. Þetta eru alvöru gæða ber, sem eru svo fín að þau eru ekki einu sinni seld í Noregi heldur flutt út til Bretlands og Frakklands. Fyrsta flokks vara! Við heppin :) Nú annars í dag er ég ekki búin að gera mikið af viti þannig. En eitt er vert þess að minnast á. Fór og settist á bekk niður við ána um hádegisbil með kaldan drykk í sólinni. Allt um kring voru litlar finkur (held ég) fljúgandi um. Ótrúlegar kjánadúllur þessir bíbíar. Allavegana, mjög spakir og prúðir og settust á bekkinn hjá mér og svona. Allt í einu sá ég einn sem var alveg eins og fuglarnir sem langamma Friðbjörg skreytti litlu jólahrísluna sína með. Góð minning á ferðinni þar. Pönnukökur og knús hjá langömmu kom oft fyrir á meðan hún bjó ennþá í Bólstaðarhlíðinni. En aftur að bíbíunum, þeir flugu voða mikið fram og aftur og settust svo í runnana. Nema einn sem ætlaði að vera ofurklár og setjast á eitthvað svona illgresi sem hafði vaxið upp úr runnunum, þótt bíbí væri lítill þá var hann samt of þungur fyrir illgresið svo það sökk gracefully ofan í runnann. Ótrúlega kjútt. Kodak moment ef ég hefði verið með vélina. Hefði samt þokkalega aldrei náð að smella af á réttum tíma. En ég hló og það oftar en einu sinni! Verð að fara og heimsækja þessa furðufugla aftur bráðum og þá með myndavél. Er núna að bíða eftir að Styrmir komi heim úr vinnunni, það er síðasti vinnudagurinn hjá honum í dag, svo er það bara sumarfrí :) Verður væntanlega dekrað eitthvað við kallinn þegar hann lætur sjá sig ;)
Stundum er ég bara kjánaleg. Ég var að vinna í gær og það var bara flott. Í dag átti ég í raun að mæta korter í níu eins og í gær. En ég átti inni 1,5 tíma sem ég gat bara tekið út í fríi svo úr varð að ég mæti seinna í dag. Plús það að það eru svo fá börn að þær sem hafa fastan vinnutíma hafa tekið sér það bessaleyfi að fara aðeins fyrr á daginn. Og þær þessar elskur vorkenndu mér svo mikið að þurfa að vinna heilan vinnudag að ég fékk 45 mín í viðbót í frí í dag. Svo ég mæti um hádegi og er búin um fjögur. (Þvílík spilling, ég veit! Ekki segja frá, ussss). En að kjánalátunum, það er bara eitthvað svo yndislegt að sitja heima og drekka kaffi og vita að maður er að þéna peninga. Kaffið bragðast betur og ég veit ekki hvað. Mætti halda að ég hefði tekið tvöfaldan skammt af happiness í morgun. En hvað um það, það er komið sumar hérna og sólin skín. Ég rembist við að ná sem flestum sólargeislum en húðin á mér er ekkert alltof mikið fyrir samvinnu. Ég er alltaf æðislega heppí þegar ég kem inn úr sólbaði, alveg svona glóandi (á fallegan hátt, ekki sólbrunnin) með fullt af freknum. Og auðvitað bara jess!!!! loksins smá litur. En svo hverfur hann alltaf áður en dagurinn er liðinn. Það vantar greinilega tappana í pigmentin mín, því liturinn sem ég safna lekur bara strax út aftur. Þetta fer að minna á Bakkabræðurna sem voru að safna sól í húsið sitt :$
Norðurljósamyndir Plús official norsk heimasíða fyrir norðurljós
Ótrúlega krúttlegar myndir... verst að ég á engin börn til að láta taka myndir af. Well here goes Bara smella á myndir
Enn á ný hafa 20 km verið stignir í tilefni dagsins. Samtals 80 km í þessari viku. Vigtin virðist samt ekkert ætla að láta þetta stíga sér til höfuðs og dettur ekki í hug að slá af eitt einasta gramm. Ég er svo hlessa. Sjáum hvað setur í næstu viku þegar ný met verða sett! Er að grufla í hausnum á mér hvað ég eigi eiginlega að hafa í matinn í dag. Hversu leiðinlegt er það að þurfa að hugsa fyrir þessu á hverjum degi. Hverjum datt þetta eiginlega í hug að maður þyrfti að hafa mismunandi mat á hverjum degi. Er mikið að spá í að fara að setja upp fastan matseðil fyrir vikuna bara. Fisk á mánudögum (að sjálfsögðu). Kartöflur á þriðjudögum. Grænmeti á miðvikudögum. Pasta á fimmtudögum. Kjöt á föstudögum. Og allt fer í vitleysu um helgar, þá getur Styrmir eldað. Well... sjáum hvað setur. Hefur einhver góða hugmynd að kvöldmat handa mér?
En heilsan er auðvitað mikið meira virði en að vinna í lottó. Ég er búin að vera ýkt dugleg að rækta heilsuna í þessari viku. Búin að borða hollan mat, (að eigin mati allavegana). Og ég er búin að hjóla 3x út í Saggrenda út að baðstaðnum. Það eru 60 km samtals :) Ég er ótrúlega stolt af sjálfri mér sko! Ekki montin samt, best að hafa það á hreinu. Er að velta fyrir mér stórri spurningu þessa dagana en finn ekki svarið. Voðalega getur verið erfitt að taka ákvarðanir. Samt er þetta eiginlega ekki spurning. Bleehhh. Það eru 13 dagar í Ísland og loksins sumarfrí fyrir mig! Hrikalega slítandi að sitja hérna og þurfa að vaska upp og skúra og þvo þvott. Og liggja í sólbaði þess á milli. Ég er alveg uppgefin. Styrmir er algjör hetja, heldur út að vakna um miðjar nætur til að fara í vinnuna og koma heim seint og um síðir, til þess eins að borða og fara aftur að sofa. Hann fær blóm dagsins... Ekki spurning!
Ég skrifaði þennan fína lista í gær og allt var upplagt. Framkvæmdi hlutina á listanum einn eftir einn með góðri samvisku. En nei, samt vann minns ekki í lottóinu. Ég er bara móðguð. Fékk ekki einu sinni 3 rétta.
Why?
Posted by Hello
Það er engin önnur en hún Júlía vinkona mín sem á afmæli í dag. But don't worry, ég næ þér von bráðar ;) Býst reyndar ekki við að hún sjái þessa kveðju þar sem hún er algjörlega úr sambandi við netheima :þ Ég er enn þokkalega stolt af mér fyrir afrek dagsins. Hjólaði semsagt samanlagt 20 km og hafði gaman af! Og núna er ég búin að kaupa ffffiskibollur og brúna sósu í kvöldmatinn. Þetta eru nú svosem engar Diddubollur (ömmusystir mín býr til langbestustu fiskibollur í geimi) en við ættum samt að koma þeim niður. Nú annars er Rán alltaf liðtæk í ruslafötustarfinu. Ótrúlegt með þennan kött, hún borðar ALLT! og þá meina ég allt. Reyndar ekki rosalega hrifin af appelsínum eða chili. En hún þekkir sko mjólkurfernuna og jógúrtdollur. Rekur upp harmakvein um leið og annaðhvort er dregið út úr ísskápnum. (En hún fær ekki í hvert skipti!) Eiginlega það eina sem hún er ekkert sérstaklega spennt fyrir er kattamynta, sem á að vera gjörsamlega the all time favorit of cats. Mín kisa er bara öðruvísi. Hún hefur sjálfsagt einfaldan smekk, velur bara það besta ;) Well, nú má Styrmir alveg fara að birtast heim úr vinnunni. Érrrr svöööööng!
Ég er búin að vera duglegust í geimi í dag!!!!! Ég hjólaði nefnilega út í Saggrenda sem er 10 km frá Kongsberg. Í Saggrenda er baðstaður bæjarbúa og mikið & stórt safn um námugröftinn. Nú er ég að velta því fyrir mér hvort ég eigi að fara í sund. Langar svo rosalega í gufu en ekkert sérstaklega í þennan litla skítapoll sem þeir kalla sundlaug. Skítkalt vatn og alltof mikið af æpandi krökkum. Og enginn heitipottur, sem ætti náttlega bara að vera bannað. Ég hefði kannski bara átt að hafa sundfötin með mér í hjólaferðina áðan. Finnst samt ekkert voðalega spennandi að baða mig í vatninu þarna. Og svo er hitinn sjálfsagt ekki nema 15-17 gráður oní. Allavegana voru bara krakkar sem létu sig hafa það að stinga tánum oní á meðan fullorðna fólkið lá um allar trissur útbreitt á handklæðum og sólstólum. Ég fer bara hérna út í garð í sólbað og fer svo í góða sturtu á eftir.
Virgo You've been doing very well, dear Virgo, but today you might be feeling more focused than ever. The path ahead of you seems clear and well defined, and you're looking forward to the future with motivation and anticipation. You might be considering taking a long trip abroad, or perhaps going back to school for an advanced degree. This is a good day to start doing some research and finalizing your plans. Go to it!

Aphrodite/Eros
?? Which Of The Greek Gods Are You ??
brought to you by Quizilla
"Hvernig gastu gert þetta? Þegar ég var hvolpur, skemmti ég þér með skrípalátum og fékk þig til að hlæja. Þú kallaðir mig barnið þitt, og þrátt fyrir nokkra nagaða skó og ónýta púða, varð ég besti vinur þinn. Í hvert skipti sem ég var "óþekk", hristir þú höfuðið og spurðir: Hvernig gastu gert þetta??- en svo brostir þú og veltir mér á bakið til að klóra mér á maganum. Að gera mig húsvana tók aðeins lengri tíma en það átti að gera, þú varst svo upptekinn, en við unnum að því saman. Ég man þær nætur þegar ég kúrði hjá þér uppi í rúmi og hlustaði á játningar þínar og leynda drauma, og ég hélt að lífið gæti ekki verið fullkomnara. Við fórum í langa göngutúra og skokkuðum í almenningsgarðinum, bílferðir, keyptum ís (ég fékk bara að borða brauðformið því þú sagðir að ís væri ekki góður fyrir hunda), og ég lagði mig í sólinni og beið eftir því að þú kæmir heim í lok dagsins. Smám saman fórstu að vera meira í vinnunni og eyða meiri tíma í starfsframa þinn, og meiri tíma í að leita þér að maka. Ég beið eftir þér þolinmóð, og huggaði þig í ástarsorgum og vonbrigðum, skammaði þig aldrei fyrir lélegar ákvarðanir, og hoppaði af gleði í hvert skipti sem þú komst heim og þegar þú varðst ástfanginn. Hún, sem er nú konan þín, er ekki hundamanneskja- samt bauð ég hana velkomna inn á heimili okkar, reyndi að sýna henni ástúð og hlýddi henni. Ég var ánægð vegna þess að þú varst ánægður. Svo komu börnin og ég var alveg jafn spennt og þú. Ég var agndofa yfir því hvað þau voru bleik, hvernig þau lyktuðu, og ég vildi hugsa um þau eins og þau væru mín eigin. En hún og þú höfðu áhyggjur af að ég gæti meitt þau, og ég eyddi mest öllum mínum tíma lokuð inni í öðru herbergi eða í hundabúri. Mikið langaði mig til að elska þau en ég varð fangi ástarinnar. Þegar þau stækkuðu varð ég vinkona þeirra. Þau hengu í feldinum mínum og toguðu sig upp á völtum fótum, potuðu í augun á mér, grandskoðuðu eyrun mín, og kysstu mig á trýnið. Ég elskaði allt í sambandi við þau og snertingu þeirra, því þín snerting var svo sjaldgæf núorðið, og ég hefði varið þau með lífi mínu ef ég hefði þurft þess. Ég laumaðist upp í rúmið þeirra og hlustaði á áhyggjur þeirra og leynda drauma, og við biðum saman eftir að heyra í bílnum þínum í innkeyrslunni. Einu sinni var það svo að ef fólk spurðir hvort þú ættir hund, þá sýndir þú þeim mynd af mér sem þú varst með í veskinu og sagðir sögur af mér. Síðustu ár svaraðir þú bara já og breyttir um umræðuefni. Ég breyttist frá "hundinum þínum" í "bara hundur", og allur kostnaður varðandi mig fór í taugarnar á þér. Nú bauðst þér ný vinna í annarri borg, og þú og þau fluttuð í íbúð þar sem ekki má vera með gæludýr. Þú tókst rétta ákvörðun fyrir "fjölskyldu" þína, en einu sinni var ég eina fjölskylda þín. Ég var yfirspennt yfir bíltúrnum þangað til við komum að dýra-skýlinu. Það lyktaði af hundum og köttum, af ótta og vonleysi. Þú fylltir út eyðublöð og sagðir: Ég veit að þið finnið gott heimili fyrir hana. Þau andvörpuðu og gáfu þér vonleysislegt augnaráð. Þau vita hvað bíður miðaldra hunds, jafnvel þó hann sé með ættbók. Þú varðst af rífa son þinn lausan frá hálsólinni minni á meðan hann hrópaði: nei pabbi, gerðu það! Ekki láta þau taka hundinn minn! og ég hafði áhyggjur af honum, og hvaða lexíur þú hafðir kennt honum um vináttu og tryggð, um ást og ábyrgð, og um virðingu fyrir öllu lífi. Þú kvaddir mig með klappi á kollinn, forðaðist að horfa í augun á mér, og kurteisislega afþakkaðir að taka hálsólina mína og tauminn með þér. Þú hafðir takmarkaðan tíma og það átti einnig við um mig núna. Eftir að þú fórst sögðu konurnar tvær að þú hefðir líklega vitað fyrir nokkrum mánuðum að þú þyrftir að flytja en reyndir ekkert til að finna gott heimili handa mér. Þær hristu höfðuðið og sögðu: hvernig gastu gert þetta? Þær reyna að sinna okkur hérna í skýlinu eftir bestu getu en það er alltaf mikið að gera. Þær gefa okkur að borða, auðvitað, en ég missti matarlystina fyrir mörgum dögum. Í fyrstu, í hvert skipti sem einhver fór framhjá búrinu mínu, hljóp ég að hurðinni og vonaði að það væri þú, að þú hefðir skipt um skoðun, að þetta væri allt saman slæmur draumur.. eða ég vonaði að þetta væri að minnsta kosti einhver sem stæði ekki á sama og myndi kannski bjarga mér. Þegar ég sá að ég gat ekki keppt við litlu hvolpana, sem vissu ekkert hver örlög þeirra yrðu, bakkaði ég aftur í eitt hornið og beið. Ég heyrði fótatak hennar þar sem hún kom að sækja mig í lok dagsins, og ég rölti við hliðina á henni inn ganginn inn í aðskilið herbergi. Óþægilega hljótt herbergi. Hún setti mig upp á borð og nuddaði á mér eyrun og sagði mér að hafa ekki áhyggjur. Hjarta mitt barðist ótt og títt af kvíða um hvað myndi gerast, en ég fann líka fyrir smá létti. Takmarkaður tími fanga ástarinnar var búinn. Eins og ég er að eðlisfari, þá hafði ég meiri áhyggjur af henni. Byrðin sem hún þarf að bera, og ég veit það, á sama hátt og ég þekkti hvert geðbrigði þitt. Hún setti varlega æðaklemmu á framlöppina mína og tár rann niður kinn hennar. Ég sleikti hönd hennar á sama hátt og ég gerði þegar ég reyndi að hughreysta þig fyrir mörgum árum. Hún stakk nálinni varlega í æðina mína. Þegar ég fann stunguna og kaldann vökvann æða í gegnum líkama minn, lagðist ég syfjuð niður og mumlaði: Hvernig gastu gert þetta?. Hún sagði: mér þykir þetta svo leitt, kannski vegna þess að hún skyldi hundamálið mitt. Hún faðmaði mig og útskýrði í fljótu bragði að það væri hennar vinna að sjá til þess að ég færi á betri stað, á stað þar sem ég væri ekki hunsuð, misþyrmt eða yfirgefin, eða þyrfti að verja mig- stað þar sem er ást og ljós- staður sem er svo mikið frábrugðinn þessari jörð. Með síðustu orku minni reyndi ég að dilla skottinu mínu og láta hana sjá að þegar ég sagði hvernig gastu gert þetta?, þá var ég ekki að beina því að henni. Það varst þú, minn ástkæri húsbóndi, sem ég var að hugsa um. Ég mun hugsa til þín og bíða eftir þér að eilífu. Ég vona að allir sem þú kynnist í þínu lífi muni sýna þér jafn mikla tryggð og ég." Sá þetta á síðu hjá fósturmömmu systur minnar, varð bara að deila þessu með ykkur. Vona að þið séuð ekki útgrátin í vinnunni. (I did warn you guys). Þetta er einmitt mikið vandamál fyrir dýraverndaryfirvöld hérna í Noreginum. Alveg ótrúlegur fjöldi fólks sem fær skyndilega "ofnæmi" akkúrat þegar kemur að því að fara í sumarfríið. Fólk er svo samansaumað að það tímir ekki að kaupa vist á dýrahóteli fyrir dýrið. Og svo er fólk svo kalt, það hótar dýraathvarfinu með að drepa dýrið á einhvern subbulegan hátt ef þau taka ekki á móti. Og sumir hafa ekki einu sinni fyrir því. Skilja bara krílin eftir í plastpoka eða pappakassa við einhvern ruslagáminn. Hvernig í ósköpunum útskýrir fólk þetta svo fyrir börnunum þegar er komið heim úr fríinu? Hún var nú samt góð kellingin sem skilaði inn kisunni sinni fyrir sumarfrí í fyrra og sagðist vera með svo rosalega ofnæmi að hún bara gæti ekki verið með kött lengur. Fyrsta dag eftir sumarfrí var mín mætt í dýraathvarfið því hún vildi köttinn aftur. Ég verð svo reið þegar ég hugsa um hvernig fólk getur farið með þessi litlu grey sem treysta manni fyrir lífi sínu. Veit bara með sjálfa mig að ég yrði alveg eyðilögð ef það kæmi eitthvað fyrir Rán. Hún er litla barnið mitt. Ekki eitthvað skraut sem ég get montað mig af og sýnt.
Nei, svekkk aldarinnar. Flugleiðir bjóða spotprís á flugmiðum núna! Við erum að borga 20 þús meira fyrir flugmiðana af því að við keyptum þá í júní heldur en við hefðum keypt þá núna. Note to self: muna eftir ágústtilboðum flugleiða á næsta ári. En ég fékk gardínur á gjafverði í dag. Tvær lengjur fyrir 100 kall norskar. Þær eru meira að segja bara pínu sætar. Og ég var súperdulleg og þreif allt húsið, jibbí.
Jæja tíminn flýgur og nú eru aðeins stuttar 3 vikur þar til ég verð heima :) Ekki leiðinlegt að hugsa til þess. Sólin er búin að sýna sig aðeins í bænum í dag. Ég náði meira að segja að sitja alveg í korter áður en hún hvarf bak við stórt ský. Þess vegna sit ég hérna inni í kaffipásu og blogga. Er að hlusta á nýju uppáhalds söngkonuna mína, Joss Stone. Hún kom í heimsókn til Osló í vetur og vakti athygli mína en þá var enginn kominn með diskinn hennar á DC. Svo ekki varð mikið úr hlustun um þær mundir. En núna stóð betur til og ég er komin með diskinn hennar í playlistann svo um munar. Og svo er hún víst með disk númer tvö í vinnslu. Þvílíkt dugleg stelpa! Bara sextán ára trippi ;) En allavegana ég ætla að fara að þrífa hjá mér og þá er einmitt eitt lag á disknum sem á svo rosalega vel við. Það heitir Dirty Man og fer eitthvað á þessa leið. "Dirty Man" You're a dirty, dirty man And you gotta dirty mind You're a dirty, dirty man You and that other woman, you're 2 of a kind But you forgot 1 thing baby when you were doing me wrong That Im a good house keeper Im gonna take my broom and sweep All of the dirt out on the street You're a dirty, ooh, you're a dirty man Oh in so many, so many dirty ways You're a dirty, dirty man And you've been hidding your little dirt all over this here place I know you have Oh here's my chance baby to throw some mud in your face Coz Im a good house keeper Im gonna take my broom and sweep All of the dirt, yes I am, out on the street Oh, Im cleaning outl my whole house Fast as I can Its time to make everything spick and span You're a dirty, ooh you're a dirty man You do me dirty for so many years, yes u did You're a dirty, dirty man, yes u are And Im tired of you and your woman and your dog too You're a dirty man You're a dirty man Now get outta my house Dont u never, never, never come back again Dont u never You're a dirty, dirty man And Im done with your dirty ways
Nei snilld, það er til hljómsveit sem heitir Grupo Bryndis... afhverju hef ég aldrei fundið þetta fyrr á gúgul?
Ekki ímynda þér einu sinni að ég sé löt að blogga. Ég er bara að spara plássið mitt á blogger hehe. Ég er eitthvað andlaus þessa dagana, og það gengur ekki. Er að skrifa atvinnuumsóknir og það er búið að taka alltof langan tíma með eina hérna. Þetta á ekki að þurfa að vera svona erfitt! Heilög María hvað þetta er leiðinlegt. Afhverju er ekki bara nóg að hringja og segja "hey, viltu vera memm?" og svarið er " já, ok ". Ekkert gerist svo hratt í atvinnuumsóknarferlinu. Ekki nema þegar maður hringir og fær að vita að það er ekki séns að maður fái einu sinni að skila umsókn maður er svo fátækur af reynslu og menntun. En þá veit maður það allavegana. Það hefur reyndar bara gerst einu sinni, og mér var svosem ekki bannað að sækja um. Bara pent látið vita að ég væri jafnhæf og fimm ára frækorn. Hef komist að því að það segir ekki skít að vera tölvunarfræðingur hér í tæknibænum Kongsberg. Þeir vilja verkfræðinga í öll störf. Tölvuverkfræðinga. Vonandi að það segi þá eitthvað þegar Styrmir verður búin með sína afplánun. Að öðru. Ég mæli ekki með því að borða jarðaber í myrkri, allavegana ekki nema mar sé búinn að rannsaka þau í góðu dagsljósi fyrst. Sat og glápti á tíví í gærkvöldi og hámaði í mig gómsæt ber. Þar til ég beit í eitt stórt og djúsi... sem reyndist vera myglað. Get varla skrifað þetta án þess að kúgast. Þvílíkur vibbi. Eins og berin voru nú sæt og góð.
Þetta bara þýtur framhjá, finnst t.d. mjög stutt síðan í fyrra þegar við áttum fimm ár. Við erum semst sex ára í dag. Samkvæmt mogganum mínum er mjög eðlilegt skandínavískt sumarveður að hafa rigningu og lægðir liggjandi yfir öllu draslinu. Gvöð hvað ég er fegin að það hefur verið rigning og lægðir hérna síðustu 2 vikurnar. Það er svo leiðó að vera abnorm :p En veðurfræðingarnir, þessar elskur, eru samt að reyna að rembast við að spá sumri og sól í næstu viku. Sjáum til hvað þeir komast upp með ;) Það er ekkert svo skemmtó að vera í heimatilbúnu sumarfríi þegar er bara grátt og skýjað og suddalegt veður úti. Ekki einu sinni hægt að liggja í sólbaði eða neitt. Sólin kíkir fram öðruhverju hérna í dag, ég náði t.d. svona tíu mínútum í morgun á milli fjúkandi skýja. Er að hlusta á nýja uppáhalds diskinn minn On Your Side með Magnet. Hann sem ég fór á tónleikana með á jazzinum. Alger snilli þessi maður. Merkilegt samt hvað maður heyrir tónlistina öðruvísi eftir því hvernig stemmingu og skapi maður finnur sig í þá og þá stundina. En það er nú með marga tónlist, ekkert einsdæmi þessi diskur. Ég er að verða voða oft norsk í framburði. T.d. farin að apa eftir þeim hverng þeir segja jazz. Á norsku segir maður jass (með joði) en aftur á móti á íslensku segir maður djass. Og það sem mér finnst ljótt að segja jass. Fékk næstum taugaáfall þegar ég fattaði hvað ég hafði látið út úr mér. En ég stend sjálfa mig oft að því að hugsa á norsku og þá er jassinn allsráðandi :s Ég ætla að fara á tvær listasýningar á eftir. Fyrri sýningin heitir Waterloo sunset og er eftir Daniel Østvold. Hún hefur verið í gangi síðustu tvær vikur. Um að gera að ná í skottið á þessu þegar það er eitthvað í gangi. Hin sýningin heitir Space Invaders og hún er sett upp í gamla fangelsinu. Verður spennandi að skoða eitthvað sem vonandi hristir aðeins upp í hausnum á manni. Set kannski inn línu um hvernig sýningarnar voru þegar ég kem heim. Ble ble
Úffffff... þessi hreinsunarkúr er ekki jafnléttur og ég hélt hann yrði. Ég er samt að halda út ennþá. Mér líður samt mjög furðulega í dag. Er búið að svima geðveikt í dag. Þegar ég vaknaði í morgun heyrði ég hljóð fyrir utan húsið, sem er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi. En þegar ég bakkaði frá glugganum eftir að hafa kíkt út varð allt bara hvítt fyrir augunum á mér og mér fannst ég svífa að sófanum. Furðulegt. En mín stóra spurning er afhverju gerðist þetta? Er ég svona svöng eftir að hafa borðað bara grænmeti í gær? Eða er þetta bara part af programmet? Ég veit ekki hvort ég held þetta út í 3 daga... stefni allavegana á að halda út daginnn í dag, sé til á morgun hvað gerist. Verð að játa að ég hugsa ekki um annað en grófa brauðsneið með skinku og osti um þessar mundir. Hetjan! Líka alveg sérstakt hvað konur eru viljugar að prufa alla mögulega kúra á sjálfum sér. Sæi ekki beint fyrir mér að karlmenn myndu kvelja sjálfa sig með svona bulli :þ
Er þessa stundina að prufa 3ja daga hreinsunarkúr sem ég fann á netinu hjá morgunblaðinu mínu. Búin að borða grænmeti og drekka te í allan dag. Er ekki svöng og líður allt í lagi bara. Djö... langar mig samt í kolvetni!!! Ég er sko kolvetnisdjönkí numeró únó. Brauðsneið eða kartöflu eða pasta! Ég er sko brauðétandi pasta með kartöflum on the side, ef maður er það sem maður borðar. Ég á svo erfitt með að finna mér annað að borða en brauð yfir daginn. Og ég hef heyrt að það sé eitthvað voða af "HINU ILLA"!!!! En þetta er þá væntanlega bara af hinu góða að prufa 3 daga í röð án kolvetna í miklu magni. (Minnir nú að það sé eitthvað kolvetni í salati?) Ég fór í barnaafmæli í gær til, sonar hennar Barböru vinkonu minnar, hans Jóakims. Jóakim varð tveggja ára. Þar fékk ég dýrindis grillmat og margar sortir af kökum. Verð að segja að ég var frekar södd þegar ég kom heim. En þetta var yndislega kósý afmæli og veðrið var þvílíkt hliðhollt okkur, sátum út í garði frá fjögur til hálfátta. Ég varð náttlega eins og karfi í framan, hafði ekki gert ráð fyrir sól þar sem það hafði verið skýjað allan daginn, og var á sjálfsögðu ekki með sólkrem. Ég slapp nú samt án þess að brenna, er bara pínu rauð á nefinu í dag. Er frekar í grasekkjudeildinni um þessar mundir. Styrmir er að vinna í Porsgrunn sem er í tveggja tíma fjarlægð héðan. Svo dagarnir hans eru langir og strangir. Þessi elska er svo duglegur. Á meðan sit ég hér eins atvinnulaus og hægt er að vera. En samkvæmt prófinu sem ég tók fyrr í dag þá er ég fullkomin kærasta, svo hann hlýtur að verða ánægður með það, alveg eins og ég (u dont think?) Norðmenn eru annars að fara af hjörunum vegna atriðis á Quart tónlistarhátíðinni þar sem par átti mjög svo augljósar samfarir á sviðinu á meðan ein hljómsveitin spilaði. Hljómsveitin hafði skipulagt þetta allt með 2ja mánaða fyrirvara og nú er allt að fara til fjandans. Sponsorar að tala um að styrkja ekki að ári og ríkisstyrkjanefndin að opinbera hugsanir um það sama. En þetta er bara ótrúlega glatað hvað þessi eina heimska hljómsveit og þetta eina athyglissjúka(og sick) par er að eyðileggja fyrir góðum hlutum. Quart tónlistarhátíðin er Roskilde norðmanna, kannski að því undanskildu að mér skilst að hún sé fjölskylduvænni (þar til í ár allavegana :p) En kannski gott dæmi um hvað norska ríkisapparattið á of mikið af pening, er að sick og athyglissjúka parið fékk einmitt úthlutað styrk frá atvinnuleysisskrifstofunni til að stofna heimasíðuna fuckforforest þar sem þau selja klámmyndir af sér til styrktar regnskógunum. Eina sem ég skil ekki er að það er bannað að selja klám í Noregi, hvernig gátu þau þá fengi styrk frá hinu opinbera til að selja klám? Well, ég var eiginlega kannski mest hissa á viðbrögðum mínum. Þetta kom eiginlega ekkert við mig þessi samfarasýning, mér fannst þetta bara heimskt. Unglingar og börn til staðar um miðjan daginn á tónlistarhátíð. Og svo er fólkið sem framkvæmdi svo sérdeilis óheppið með útlit líka. Ég er yfirborðskennd ég veit það hehehehe.

-Perfect- You're the perfect girlfriend. Which
means you're rare or that you cheated :P You're
the kind of chick that can hang out with your
boyfriend's friends and be silly. You don't
care about presents or about going to fancy
placed. Hell, just hang out. You're just happy
being around your boyfriend.
What Kind of Girlfriend Are You?
brought to you by Quizilla
... eða næstum því! Einasta sem pirrar mig núna er að ég þarf að fara út og það hellirignir (mínus í mínum bókum!!) En þá er bara að skella sér í pollagallann og finna regnhlífina og hlaupa syngjandi af stað. Ó svo rómó! Jazzhátíðin stendur yfir af fullum krafti. Ég kíkti út í gær og fyrradag. Í fyrradag sá ég dóttir Barbro, sem ég fór í bústaðinn til, syngja með bandinu sínu. Hún var bara mjög góð, með flotta rödd og frumlegt lagaval. Í gær fór ég svo og sá senegalann Solo Cissokho með sínu bandi. BBC uppgötvuðu hann í fyrra og það var alveg rétt hjá þeim því hann er flinkur. Hann var með annan senegala með sér á trumbur (já svona skinndæmi) og svo 3 norska kalla. Tónlistin var mjög flott, sumstaðar sterkir kaflar með rytma og trumbuslætti en annars blanda af vestrænni tónlist á milli. Í dag ætla ég að reyna að komast á tónleika með Susanna and the magical orchestra kl. 15. og svo verður eitthvað tjékkað á stöðunum í kvöld. Á morgun förum við Styrmir og Martin á "Magnet" & "Ralph Myers and the Jack Herren Band" sem troða upp í KongsbergHallen. Þessir dúddar eru allir norskir og koma frá Bergen. Þaðan sem margar af bestu sveitunum í Noregi koma frá. Magnet hefur annars verið að gera það gott í Bretlandi áður en hann ákvað að flytja aftur heim í rigninguna í Bergen.
Suma daga er bara erfiðara að vera til en aðra!! ég er að rembast við að vera jákvæð en mitt innra neikvæða hol bara tekur yfir og hræðir mig all day long. Djö... er ég þreytt á þessu valdaójafnvægi. stundum virkar svo hættulegt að taka upp símtólið og slá inn nokkrar valdar tölur. Hvað er það versta sem gæti gerst? Ever?? Gæti skotist ljótur dvergur og étið af mér hausinn. Nei einhvern veginn hljómar það ekki líklegt :$