-Bryndís-

laugardagur, október 30, 2004

Jákvæða hliðin á lífinu

Það er dýrt að lifa á þessari jörð, en það er innifalin ókeypis hringferð um sólina á hverju ári. Afmælisdagar eru góðir fyrir þig - því fleiri sem þú átt, því lengur lifirðu. Hamingjan kemur inn um dyrnar sem þú veist ekki einu sinni af að þú hefur opnað. Hefurðu tekið eftir því að fólk sem kemur of seint er oft mikið glaðara en fólk sem hefur þurft að bíða eftir því? Það getur verið að þú sért stundum eina manneskjan í heiminum, en þú ert líka ef til vill allur heimurinn fyrir eina manneskju. Sum mistök eru allt of skemmtileg til að gera þau bara einu sinni. Ekki gráta af því að því er lokið, brostu af því að það gerðist. Raunverulega hamingjusamur maður er sá sem getur notið þess sem gerist þegar hann endurtekur ferðina. Eða eins og einn maður sagði - það að vera hamingjusamur er ákvörðun . Eigðu frábæran dag og vittu að einhver sem þykir þú skipta máli hefur hugsað til þín í dag!.. Og þessi einhver er ég......

fimmtudagur, október 21, 2004

Ég er á lífi

Bara svo það sé á hreinu, þá komst ég heilu og höldnu heim frá Svíþjóð. Það er bara búið að vera pínu mikið að gera hjá mér þessa viku. Var á námskeiði á mánudaginn og þriðjudaginn. Og svo er ég búin að vera að vinna fullan dag og vel það í gær og í dag. Var svo ofboðslega uppgefin í gærkvöldi að ég sofnaði í sófanum klukkan níu og rumskaði um hálftíuleytið og ákvað þá að fara bara að sofa. Svaf mjög sætt alveg til klukkan sjö í morgun. Það var kominn tími á að taka þennan svefn sem "gleymdist" um helgina ;) Við Lísa fórum að sjá Anastaciu á tónleikum á laugardagskvöldið i Scandinavium. Anastacia stóð sig bara vel. Hún hefur geðveika rödd þessi kelling. En hún hefði alveg mátt syngja meira og kjafta minna. Hún er voða upptekin af brjóstakrabbanum sínum og antiwar umræðu. Það var ekki það sem við komum til að sjá. En obboslega er nú fyndið að sjá hvað hún er lágvaxin í raun og veru. Ekki það að hún reynir allt sem hún getur til að blekkja áhorfandann. T.d. er hún með lágvaxna dansara í kringum sig. Og aðrir tónlistarmenn á sviðinu sitja þegar hún þarf að standa nálægt. En við erum að tala um að hún var jafnhá flestu liðinu þegar hún stóð en hin sátu. En hún er hörkuskvísa og átti mörg góð átfitt sem sýndi okkur á meðan á tónleikunum stóð. Svo einkunnin er 3 stjörnur af 5 mögulegum. Styrmir stóð sig eins og hetja og passaði á meðan við mágkonurnar(segir maður það ekki annars?) fórum á djammið. Hann skutlaði okkur niðreftir og var svo að rúnta um Gautaborg með Nökkva sem er 4 ára og litlu systur sem er 2 mánaða. Hann ætlaði nú reyndar að fara með þau heim í millitíðinni en þegar heim var komið var parið bara sofnað svo hann nennti ekki að vera að rífa þau upp til að hanga inni í stuttan tíma áður en hann færi að sækja okkur aftur. Svo það var bara cruisað um hin ýmsustu hverfi í fína bílnum. Og allir voru sáttir :) Á sunnudeginum gerðumst við svo menningarleg og fórum á Konstmuseet, listasafn Gautaborgar. Þar skoðuðum við ýmislegt, allt frá samtímalist til málverka eftir gömlu meistarana, Picasso, Rubens, Manet o. fl. Mjög skemmtilegt að prufa þetta og litlu systkinin voru alveg til fyrirmyndar stillt og prúð á safninu. Helgin var mjög fín og það varð alveg heilmikið úr þessu stutta stoppi. Við erum farin að hlakka til þangað til næst :)

miðvikudagur, október 13, 2004

Vetur

Í noregi nálgast vetur konungur. Það er farið að frjósa á nóttunni og það er kuldalegt á daginn. Í morgun var myrkur til klukkan átta. Ég var sannfærð um að það væri byrjað að snjóa svo dimmt var það. Ég fann nú fljótt út þegar ég kíkti út að það var snjólaust ennþá. Haustið er búið að vera fínt, hlýtt marga daga og ofsalega fallegir haustlitir. Enda er nú nóg af trjánum til að skarta þeim. Við Styrmir erum að fara til Gautaborgar um helgina. Vorum búin að ákveða fyrir löngu að fara þessa helgi. Lísa keypti nefnilega miða handa mér og henni á Anastacia tónleika. Það ætti að verða fjör. Ég þyrfti reyndar kannski að verða mér úti um diskinn svo ég þekki lögin betur. Hef bara heyrt lögin hennar í útvarpinu.

sunnudagur, október 10, 2004

Tjása

Ég hef töluverða þörf fyrir að tjá mig. Hver hefur það ekki? Ég verð hins vegar að viðurkenna fyrir sjálfri mér að ég er orðin svo vön því að hafa engan að tala við að ég tjái mig ekki. Svo koma timabil þar sem djúp döpur tilfinning umvefur mig og ég hugsa til þess þegar ég var í góðu sambandi við vinkonur mínar. Stundum gátum við setið og spjallað svo tímunum skipti. Um allt og ekkert. Lífið, tilfinningar og kærastana. Skólann, föt og djamm. Mikilvæga hluti og svo aftur minna mikilvæga hluti. Ég hef sætt mig við að þessi tími er liðinn og kemur ekki aftur. Hver hefur svosem tíma til að sitja uppi fram á nótt eða morgun og tala. Það væri samt gott að hafa einhvern til að blaðra við svona annað veifið. Það kemur oft svo mikið út úr svona spjalli. Ég er af þeirri tegundinni sem þarf að láta hlutina detta upp úr mér svo ég fatti að ég er að hugsa um þá. Svo er aftur spurning hvort það breyti einhverju. En kona veit þá að hún er til ef hún hefur einhvern til að tala við.

laugardagur, október 09, 2004

Hamingjuóskir

Í dag þekki ég tvö sem eiga afmæli. í fyrsta lagi er það Unnur vinkona sem á afmæli. Og í öðru lagi er það Birkir sem er eiginmaður Friðbjargar frænku sem á afmæli. Hann á millistórt afmæli verður 45 ára kappinn. Hamingjuóskir með daginn :)

fimmtudagur, október 07, 2004

Peningar og vinna

MEYJA 23. ágúst - 22. september Peningar eru þér ofarlega í huga. Þú færð hugmyndir um að hvernig á að afla peninga og hvernig á að eyða þeim. Peningaflæðið er talsvert En hvað þetta passar vel fyrir mig. Ég er einmitt svo upptekin af því að afla mér peninga. Þá er bara að bíða eftir að hugmyndirnar flæði yfir mig svo ég geti byrjað að njóta peningaflæðisins. Annars er nú von á einhverju peningaflæði því ég hef samþykkt að vinna áfram á nýja leikskólanum. Vinn fulla viku í næstu viku og spurning með vikuna á eftir því. Verð svo með allavegana 19 tíma á viku eftir það. Og það fram að jólum eða þangað til draumastarfið lætur á sér kræla hvort sem kemur fyrr. Það verður allavegana upp í leiguna þessir 19 tímar. Betra en ekkert. Ég var mjög ánægð með þessa ákvörðun mína í gær að taka starfinu þarna frekar en upp á gamla leikskólanum. Það er yngra starfsfólk á nýja staðnum og mikið styttra í vinnuna. Ég er líka rétt að komast inn í starfið þar. Báðir staðirnir eru samt fínir vinnustaðir.

miðvikudagur, október 06, 2004

Winners of the Ig Nobel Prize

Ig Nóbelinn er ansi áhugaverður. Þar eru ýmsir vísindamenn sem fá viðurkenningu fyrir rannsóknir sínar. Um þetta var fjallað í Aftenposten um helgina og þá var sérstaklega nefnd ein rannsókn sem var gerð til að komast að því afhverju mælitæki sem áttu að geta sagt til um ferðir kafbáta í norskum fjörðum virkuðu ekki sem skyldi og héldu því fram að stöðugt væru kafbátar í fleiri fjörðum í einu. Á þessu fannst skýring sem var stórsniðug (og mér finnst hún fyndin, segir mikið um minn húmor) en hún var að síld hefur samskipti við aðrar síldir með því að prumpa. Og mælitækin námu þetta semsagt og héldu að þetta væru kafbátar. En þá var þetta bara prumpandi síld. Hversu fyndið er það??

þriðjudagur, október 05, 2004

Orkuleysi

Mér finnst ég endilega þurfa að bæta við færslum hérna á þessu bloggi. Er bara svo hrikalega andlaus og orkulaus þessa dagana að það er engu líkt. Ekki er myrkur hérna og fram að þessari viku hefur verið svo fínt haustveður. Hlýtt og sól. Svo varla getur þetta verið skammdegisþunglyndi. Nema að líkamsklukkan sé alveg með það á hreinu hvaða mánaðardagur er í dag. Gæti alveg hugsast. Er orðin ótrúlega uppgefin á því að vera dugleg. Er að reyna að vera dugleg að sækja um vinnur en finnst það bara leiðinlegt. Nú er verið að bjóða mér áframhaldandi vinnu á leikskólanum og ekki nóg með það, heldur er líka hringt í mig frá fyrri leikskólanum og þær vilja endilega fá mig í nokkra tíma á viku. Það hentar mér bara svo illa að vinna svona 50-60% vinnu og að vera ýkt virk í atvinnuleitinni á sama tíma. Þetta tvennt virðist bara ekki fara vel saman. 60% vinna er næstum það sama og full vinna. Jákvætt: styttri dagar. Neikvætt: ég er jafn "þreytt" eftir 5 tíma eða 7 og hálfan. Ég er að vinna yfir miðjan daginn þegar allt er í full swing og allir með orku í hámarki. Svo það er mikil action og hróp og læti. Svo er náttlega annað mál að 50% laun duga ekki langt í þessu ríkidæmi. Mig langar mest af öllu að skríða undir sængina mína og koma ekki undan fyrr en ég fæ SÍMTALIÐ. Þá meina ég að sjálfsögðu þegar hið eina útvalda fyrirtæki loksins opnar augun og fattar að ég er brjálað góður starfsmaður og klár og flínk. Tala mörg tungumál, vélrita mörg mörg orð á mínútu. Kann sæmilega það sem ég lærði í skólanum og hef ekki misst hæfileikann til að læra meir. Hef mikla löngun til að vinna fyrir fyrirtæki sem ég get verið stolt af að segja frá og gera allt sem ég get til þess að því vegni vel. En þetta er náttlega bara hálsbólgan mín að tala... ætla að fara að fá mér meira te. Allt verður betra á eftir.

sunnudagur, október 03, 2004


This I know...
Posted by Hello