-Bryndís-

föstudagur, desember 31, 2004

Gleðilegt nýttár!!

Hef eins og vanalega háar væntingar til nýs árs. Allt skal verða betra á nýju ári, þar með talin yours trúlí. Við Styrmir ætlum að borða hérna heima í kvöld og fara svo að tjútta nýja árið inn með fullt af miskunnugu fólki. Stelpa sem ég vinn með, Hege, er búin að bjóða okkur í partý heim til sín og kærastans. Hafið það sem best í kvöld, kveðja, Bryndís

miðvikudagur, desember 29, 2004

Gefum þeim sem þurfa á að halda!

Ég skora á alla að hugsa til fórnarlamba flóðbylgjunnar og gefa peninga til hjálparstarfs áður en keyptir verða flugeldar í ár.

þriðjudagur, desember 28, 2004

Hugleiðingar

Það er ótrúlegt hversu langt inn í hugann og hjartað atburðir í Asíu koma. Bara af því að það eru evrópskir og skandinavískir borgarar sem farast og slasast. Ég er alveg viss um að ég hefði ekki fellt eitt einasta tár ef það hefðu bara verið íbúar þessara landa sem hefðu látist. Það virkar einhvern veginn öðruvísi á mann þegar fólk frá næstu bæjum og borgum er að tjá sig um þegar það hleypur undan risaöldunni til að bjarga lifi sínu. Ég get ekki byrjað að ímynda mér hvernig það er fyrir fjölskyldur sem hafa misst börnin sín út úr höndunum á sér. Allavega tvær norskar fjölskyldur hafa lent í því, önnur með átta mánaða gamalt og hin með tveggja ára. Hvernig í ósköpunum kemur þú heim úr fríinu þínu og heldur áfram að lifa?

föstudagur, desember 24, 2004

Gleðileg jól

Óska öllum lesendum nær og fjær gleðilegra jóla og þakka fyrir áheyrnina :) Knús, Bryndís

laugardagur, desember 18, 2004

Frábær stjörnuspá

Meyja Þú kemur með eitthvað nýtt, skrautlegt eða tæknilegt inn á heimilið í dag, hugsanlega einhverja græju. Eitthvað nútímalegt apparat heldur innreið sína í líf þitt. Hmmm, hvað get ég keypt???

fimmtudagur, desember 16, 2004

Garfield

Garfield er fyndinn í dag

mánudagur, desember 13, 2004


Búin að fá mér nýtt hár ;)
Posted by Hello

sunnudagur, desember 12, 2004

Lazytown

Sportálfurinn í VG. Glæsilegt hjá Magga Schev. hann er að verða búinn að koma sér á kortið allsstaðar :)

föstudagur, desember 10, 2004

Gleðifréttir

Gleðilegar fréttir bárust mér í dag, það er fædd ný frænka í Cambridge. Litlu fjölskyldunni heilsast vel og hér með fá þau hamingjuóskir frá mér :)

fimmtudagur, desember 09, 2004

Dagatal

ég verð að segja að ég er ekki svo upptekin af því að telja niður til jóla. Er alveg viss um að jólin koma hvort sem ég tel eða ekki. Fann samt yndislegt dagatal á netinu áðan. Það er á norsku að sjálfsögðu.

þriðjudagur, desember 07, 2004

Results...

Results...: "mnjjk
Hello, you striking person! You are the gorgeous
poinsettia, but people should not let your
looks or personality fool them. You are the
type who could either be really nice or very
spiteful. Others probably don't want to be
around you when you are in a bad mood. You like
the presence of other people and you care about
them, but sometimes you could lash out at them,
which could be the side of you that you try to
control. Other than that, you are a great
person and you have a good heart. Merry
Christmas =)

What Christmas Figure Are You?
brought to you by Quizilla"

laugardagur, desember 04, 2004

Stjörnuspáin mín í dag

spamadur.is Meyjan (23.ágúst - 22.sept) Öryggi felst að þínu mati í fjármunum ef marka má stjörnu meyju, þó þú birtist ekki sem fégráðug manneskja. Ekki gleyma þeim eiginleikum sem þú býrð yfir þegar þarfir náungans eru annars vegar. Njóttu þín betur daglega (og ekki síður yfir helgina) með því að opna tilfinningagáttir þínar og losaðu þig úr þeirri prísund sem kann að angra þig sökum reynslu þinnar. Þú hefur eflaust komið þér upp tilfinningalegri fjarlægð við manneskju sem unnir þér. En það er án efa eðli þitt að draga þig í hlé þegar líðan þín er annars vegar til að kanna betur heildarmyndina en þú hefur án efa mikla þörf fyrir ást, nálægð og væntumþykju á þessum árstíma sér í lagi. Fólk fætt undir stjörnu meyju ætti ekki að hika við að tileinka sér að læra að biðja um og móttaka ást í desember og alls ekki gleyma sér í leitinni að öryggi í formi fjármuna. -Sannfæringarkraftur, kröfuharka og skipulag á vel við fólk fætt undir stjörnu meyju í desembermánuði.

miðvikudagur, desember 01, 2004

Blogger status og hryggurinn

Hérna er að finna upplýsingar um það sem hefur verið í gangi hjá Blogger og er enn. Þeir eru í vandræðum með gagnagrunnana sína sem eru alltaf að frjósa og þá þurfa þeir að restarta sem veldur vandræðum í að sjá bloggana og skrifa í þá. Vonandi finna þeir sem fyrst út úr þessum vandræðum sínum svo það verði hægt að nota þetta á þann hátt sem maður óskar sér. Er uppgefin á líkama og sál eftir þrjár síðvaktir. Það hafa verið veikindi hjá starfskonum í leikskólanum og þetta virðist ekkert vera að færast á betri veg. Kona finnur fljótt fyrir auknu álagi á sínum eigin hrygg :-/