-Bryndís-

mánudagur, janúar 31, 2005


Who wants
Posted by Hello

sunnudagur, janúar 30, 2005

Hvernig er það...

Og lífið bara gerðist... Er þetta ekki flottasta orðatiltækið sem þú hefur heyrt? Er að lesa fréttablaðið í pdf, alveg orðin húkkt á að kíkja yfir það. Og það er semsagt viðtal við mezzósópraninn Alina Dubik, hún kemur frá Póllandi og kom til Íslands fyrir 16 árum, ætlaði að stoppa stutt. Hún og maðurinn sem er líka pólskur hafa semsagt búið hérna saman í þennan tíma, svo er hún spurð afhverju hún búi á Íslandi og hvort hún ætli að halda því áfram. "Þegar Alina kom til Íslands fyrir sextán árum ætlaði hún aðeins að dvelja hér í nokkra mánuði ásamt eiginmanni sínum sem einnig er tónlistarmaður. „Svo ákváðum við að vera aðeins lengur og síðan fæddust börnin hér, fóru í leikskóla og skóla og lífið bara gerðist.“" En er það ekki þetta sem kemur fyrir alla? Ég er til dæmis alltaf að bíða eftir að þetta og hitt gerist svo ég geti farið að lifa. Veit samt í undirmeðvitundinni að lífið er það sem gerist á meðan þú ert að bíða. Ég er með svo mikla munnræpu í dag, hefði svo þörf á því að spjalla yfir kaffibolla. Getur ekki einhver kíkt yfir?

Hvað er betra á sunnudegi en að hanga í náttfötum og hlusta á tónlist, lesa blaðið, drekka kaffi og bara slappa af. Ekkert held ég. Nema ef væri brunch með öllum bestisunum mínum... hugsanlega. (Útskýring: bestis er besti vinur á sænsku, finnst þetta svo ógó flott orð). Talandi um sænsku, er að heillast meira og meira af talmálinu í sænsku. Finnst svo margt flott sem þeir segja, finnst reyndar skrifmátin ekki eins flottur. Mikilvægar upplýsingar um mig, ekki satt? Fór að sjá hryllingsmyndina The Grudge í gær, var pínu myrkfælin á leiðinni heim og hló mikið svona taugaveikluðum hlátri. Það jafnaði sig mikið þegar ég kom heim og ég var bara með pínu draugahroll þegar ég slökkti ljósið og hoppaði upp í rúm. Líður bara vel í dag og fékk engar martraðir í nótt ;)

laugardagur, janúar 29, 2005

Virkilega skerí mynd

Var að koma úr bíó, við fórum að sjá The grudge með Sarah Michelle Geller í aðalhlutverki. Þetta er endurgerð af japönsku myndinni. Þetta var virkilega skerí mynd og ég hélt í hendina á Styrmi næstum allan tímann. Bara einu sinni þurfti ég að taka fyrir augun. En fékk nokkrum sinnum aukinn hjartslátt!! Mæli með þessari mynd hún var alveg mjög fín. Sagan var kannski ekki svo ýkja merkileg þannig en hún endaði á óvæntan hátt. Held ég gefi svona 3 1/2 af 5 stjörnum mögulegum.

miðvikudagur, janúar 26, 2005

Frítt stopp á Íslandi...

Ansi fínt tilboð hjá flugleiðum af öllum fyrirtækjum ;) Þeir eru að bjóða flug frá Oslo til New York með fríu stoppi á Íslandi. Semsagt þú ferð í fríið til New York og færð að stoppa í allt að 3 daga á Íslandi. Getur valið hvort þú stoppar á íslandi fyrir eða eftir NY. Og herlegheitin eru á 3150 NOK. Ekki slæmskur prís það. Eru flugleiðir nokkuð að gefa sæti frá íslandi til NY? Nei, átti svosem ekki von á því. Er að spá í að hringja og athuga hvort ég geti bara fengið fría stoppið, get alveg geymt NY ferðina aðeins ;)

mánudagur, janúar 24, 2005

Múraðir íslendingar eða hvað...

Ég veit, þetta er farið að líkjast munnræpu hjá mér hérna, hef ekki látið heyra í mér svo dögum skiptir og svo bara hrúgast færslurnar inn í dag. Veit ekki hvað er að gerast, reyndar veit ég það alveg, ég er í fríi í dag. Bara búin að vera að chilla í dag. En hérna, eins og ég var að segja var ég að skoða vefinn hjá tónlist.is, svo smellti ég á tengilinn fyrir concert.is. Þar er verið að selja miða á tónleika Kiri Te Kanawa og mér fannst þeir ekki beint ódýrir frá 10.900 upp í 17.900. (Hljóta að vera algjör krappsæti fyrir 11 þús). Nema hvað, svo datt mér í hug að smella líka á José Carreras og HALLÓ JEREMÍAS PÉTUR það kostar ekki nema 25 til 30 þús miðinn fyrir sætið í Háskólabíói af öllum stöðum. Er búið að selja einhverja miða á hann? Er virkilega fólk að fara að borga 50-60 þús fyrir hjónin fyrir klukkutímaprógramm með kallinum? Sumir myndu nú bara skreppa í helgarferð til einhverrar stórborgarinnar og skella sér í góðan dinner á góðum stað. Afsakið ef ég er eitthvað veruleikafirrt en ég er kannski búin að gleyma hvað allir eru múraðir á Íslandi.

Tónlist.is

ég var að uppgötva tónlist.is í nta skiptið, er búin að bæta link á það svo núna man ég vonandi eftir að kíkja þar inn oftar. Er einmitt að hlusta á brot af tónleikum með Eivør Pálsdóttur sem er að finna hér í augnablikinu. Þeir virðast nú ekki vera neitt að ofgera sér með að hafa of mikið af tónleikabrotum í boði. Man eftir að hafa hlustað á hálfa tónleika með Heru Hjartar, það er skemmtilegt að fylgjast með og maður fær stemminguna beint í æð. Fyrir þá sem eru að velta fyrir sér hvað þeir eiga að gera við 10 þús kallinn sem er alltaf að þvælast fyrir þeim mega alveg gefa mér áskrift af tónlist.is í 1 ár. Eða bara styttri tíma þess vegna, kostar bara 1495 fyrir einn mánuð ;)

What age do you act?

You Are 22 Years Old
22
Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe. 13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world. 20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences. 30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more! 40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.

Bækur og lestur

Ég hef tekið eftir því undanfarið að margir færa inn á síðurnar sínar hvaða bækur þeir hafa verið að lesa t.d. hefur Iðunn bætt við þessum fasta lið. Ég hef ekki lesið svo mikið undanfarin ár að það hafi akkúrat verið þörf á því að bókfæra þetta á neinn hátt. Ég tek þó svona syrpur inná milli og gleypi í mig ýmist efni. Styrmir hefur verið ótrúlega duglegur að "lesa" undanfarið, það er hann hefur legið algjörlega í hljóðbókum. T.d. hlustaði hann á da vinci lykillinn og angels & demons nánast í einum strekk. Hann var semsagt ekki við í fleiri fleiri daga, bara lá í sófanum og "las". Ég hef ekki komist alveg upp á lagið með hljóðbækur, ég er svo eirðarlaus og finnst erfitt að liggja/sitja lengi kjurr og hlusta. Hef þó ekki reynt mikið, hef kannski bara ekki komist yfir nógu spennandi og áhugaverðar bækur, gæti verið. En allavegana þá er ég búin að lesa tvær áhugaverðar bækur síðan um jól. Fyrsta bókin var alkemistinn eftir Paul Coelho, "bókin sem á eftir að breyta lífi þínu". Ok hún vekur mann alveg til umhugsunar, og að sjálfsögðu er það oft þannig að maður leitar langt yfir skammt. Önnur bókin er Litli prinsinn eftir Antoine de Saint-Exupéry, frönsk bók, skrifuð 1946 en á ekkert síður við í erli nútímans. Saga um þegar flugmaður sem hefur brotlent í Sahara eyðimörkinni hittir litla prinsinn frá smástirninu B612 og hvernig litli prinsinn kennir honum að meta það sem hann á. Yndisleg saga skrifuð fyrir börn eða hvað? Hún er eiginlega skrifuð fyrir fullorðið fólk sem myndi samt ekki lesa hana nema af því að hún er skrifuð eins og hún sé fyrir börn.

mánudagur, janúar 17, 2005

Bleikur sími

Hello Kitty síminn sem kemur út af tilefni 30 ára afmælis kisunnar sem hefur engan munn. Hvern langar ekki í svona?? Frumlegt, synd að segja annað.

sunnudagur, janúar 16, 2005

Raus helgarinnar

Þegar maður hefur ekkert að segja er þá ekki betra að fylla upp í eyðurnar með innihaldslausu rausi? Mér finnst klementínur besti ávöxturinn. Held mér hafi alltaf fundist það. Er búin að borða margar klementínur í desember og janúar. Góðar og gefa góða samvisku, þar sem ég er ekkert alltof virk í ávaxtaáti. Rán finnst súkkulaði gott, ég skildi eftir tvo súkkulaðimola í skál í gærkvöldi/nótt þegar ég fór að sofa. Sá þá áðan í skálinni og fann fyrir löngun til að borða þá. Sú löngun breyttist fljótt þegar ég fann og sá að þeir voru klístraðir í skálina og hálfétnir eða sleiktir. Vona að henni verði nú ekki meint af. Sunnudagar eru fínir. Ég hef setið hérna við heimildarsöfnun í allan dag. Búin að vera að lesa fréttir undanfarinnar viku í gegnum fréttablaðið í pdf formi. Tók líka góða syrpu í Veftíví stöðvar tvö. Og núna síðast var ég að horfa á Gísla Martein frá síðustu viku. Obboslega getur hann nú verið shallow stundum í svörum og viðmóti við viðmælendur. En hann náði sér svosem á strik. Ég naut þess að horfa á viðtalið við Emilíönu Torrini, hún hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér. Er mjög spennt að hlusta á nýju plötuna hennar og fékk jafnvel lyst á því að grafa upp gömlu plöturnar og hlusta á. Annars verð ég að segja að mesta sjokkið á opinberun fávisku fólks í sjónvarpi fékk ég við að horfa á matreiðslu frá veitingastað í borginni. Kokkurinn var varla talandi. Verð að nefna það að hann er íslendingur í húð og hár, eftir því sem ég komst næst. Hamingjuóskir til Bjarkarinnar minnar sem útskrifaðist með glæsibrag frá HR í gær. Megir þú eiga náðuga frídaga í framtíðinni :)

sunnudagur, janúar 09, 2005

Moment of clarity

Veit ekki alveg hvers vegna en ég er að upplifa moment of clarity. Erfitt að útskýra hvað það þýðir fyrir mér. Finnst ég geta hugsað skýrt eftir mikið þokukennt þvaður. Það er kominn tími til að takast á við lífið. Hvers vegna er ég alltaf að bíða eftir að lifið hefjist? Það er ekki eftir neinu að bíða. Mér er þetta bara svo tamt, bara klára skólann, klára þetta ár, léttast um 5 kíló, geri þetta á morgun... eða hinn. Ég þarf á því að halda að færa þetta á næsta stig. Núna gerist þetta, það er ekki neinn tími eftir til að eyða í vitleysu. Fyrir mig. Ég ætla að lifa lífinu fyrir mig. Margir opna sig ótrúlega mikið á netinu fyrir alla sem vilja heyra. Ég hef aldrei tilheyrt þeim hópi, það breytist ábyggilega ekkert úr þessu. Hefði gott af því samt að opna mig fyrir sjálfri mér og þorast að horfa í augu við sjálfa mig. Hef liðið áfram eins og svefngengill of lengi.

föstudagur, janúar 07, 2005

Myndir nýjar og eldri

Var að bæta inn myndum frá árinu 2004 :) Þær eru á myndasíðunni. Nú þarf ég bara að byrja að taka myndir á nýja árinu líka :)

fimmtudagur, janúar 06, 2005

Nýtt ár, nýtt ár

Vá hvað það gengur hægt að koma sér í gang á nýja árinu. Gæti nú verið í lagi að gefa frá sér lífsteikn samt? Það er ekkert sérstakt sem hefur drifið á mína daga undanfarið, svo ég hef ekki fundið neina ástæðu fyrir því að skrifa. Ég er með 50% vinnu út janúar, svo nú er tími til að finna nýtt að sýsla með. Ég fór í sund í gær, með Barböru vinkonu minni. Hún hringdi í mig og bauð mér með í heilsuræktina. Svo sem ekki í frásögur færandi, nema fyrir þær sakir að hún er ekkert sérstaklega vel synt. Svo ég synti nokkrar ferðir á meðan hún buslaði við bakkann. Æ hún er svo fín, ég er ekki viss um að ég hefði samt stungið upp á því að fara í sund ef ég kynni ekki að synda, hehe. Það er samt alltaf kósý að vera í vatni, svo ég skil það að vissu leyti. Mikið sakna ég samt heitu pottanna á Íslandi, það hefði passað ótrúlega vel eftir þessa sundspretti mína.