-Bryndís-

sunnudagur, febrúar 27, 2005

Allir að sjá Ásdísi í Grindavík

Mæli með sýningu Ásdísar í Saltfisksetrinu í Grindavík. "Ásdís Elva Pétursdóttir Prinsessa 101 Opnar Sýningu í listsýningarsal Saltfisksetursins í dag 26. febrúar kl: 14:00 Sýningin stendur til 14. mars og er opið alla daga frá 11:00 til 18:00. Prinsessa 101 er innsetning sem samanstendur af 101 kjól, neon skiltum, grænum baunum og kórónumyndum." Tenglar: Hér, hér og hér.

Blaður dagsins

Var að lesa grein um tollverði og hvernig þeir eru farnir að nota líkamstjáningu sem hluta af vinnunni sinni við að finna þá sem eru að smygla efnum eða áfengi. Áhugavert og að sjálfsögðu er þetta alveg upplagt því að fólk á ekki létt með að skýla algjörlega sínum tilfinningum. En svo var líka talað um mikilvægi þess að horfa ekki framhjá stereótýpum. Eins og konan sem var stoppuð með barnavagn í London á leiðinni til Noregs. Tollvörðunum fannst barnið eitthvað fölt og rólegt. Í ljós kom að barnið var dáið og innri líffæri höfðu verið fjarlægð og fyllt upp með fíkniefnum. Hversu lágt er hægt að sökkva? Hvernig ætlaði konan að komast í gegnum flugferðina þegar barnið er algjörlega líflaust og hljóðlátt allan tímann? Trúi því ekki að enginn hefði tekið eftir í fluginu að barnið var óeðlilegt.

laugardagur, febrúar 26, 2005

Tónleikar/djamm

Fórum á tónleika/djamm í gær með Hege&Tore og Barbro úr vinnunni. Það var ágætt, það var bandið Boots frá Notodden sem var að spila á Velvet. Tónlistin var alveg í lagi, búið að hræða okkur Styrmi mikið með því að þetta væri alvöru kontrý. En það var næstum ekkert fólk inn á staðnum, sem var pínu leiðinlegt. En við skemmtum okkur vel og hausverkur er í lágmarki í dag. Get ekki sagt að framkvæmdagleðin sé í neinu all time high svo þetta verður færsla dagsins... ble ble

fimmtudagur, febrúar 24, 2005

Íslandshestar

Það er svo mikill áhugi fyrir Íslandi hjá norðmönnum. Það er ekkert minna en tvær sem vinna með mér sem hafa keypt sér ferð til Íslands núna. Reyndar varð töf á þeirri sem ætlaði að fara í Íslandsferð í dag. Maðurinn hennar var svo slæmur í bakinu og það kom að honum í aðgerðaröðinni. Svo þeirri ferð var frestað um óákveðin tíma, þau eru þó ákveðin að nota miðana á árinu. Svo er númer tvö sem keypti sér miða til New York með fríu stoppi á Íslandi á bakaleiðinni. Hún verður á Íslandi um miðjan maí og var spyrja mig hvort ég vissi um gott hótel eða gistihús í Reykjavík. Ég hef lítið(ekkert!) þurft að nota svoleiðis í höfuðborginni svo ég er frekar græn. Er ekki einhver þarna úti sem veit um og getur bent á gott og ódýrt hótel/gistiheimili í miðbænum? Ef þið hafið einhver ráð endilega skiljið eftir skilaboð hérna fyrir neðan :D

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

Þú _ ferð til _ eða _ !

Já hver vildi ekki vera með í því? Og svo sá ég að DV í dag birtir símanúmer stjarnanna!!! VIÐ heppin, hver ætlar að vera fyrstur að hringja í þetta vonlausa wannabe lið þarna í amríkunni? Ég er eitthvað skrýtin í dag, hef bara enga löngun til að hringja. Glætan að þetta lið sé ekki allt líka búið að skipta um símanúmer again! Verð að viðurkenna að æsifréttir á forsíðu DV kitla forvitnina en samt er þetta svo mikið low eitthvað. Manni líður illa bara að finna fyrir forvitninni fyrir því að komast að því að einhver hafi gert sig að fífli eða gert eitthvað sem hann hefði ekki átt að gera. Merkilegt með þennan eiginleika manneskjunnar að langa til að komast að innstu gory leyndarmálum annarra. Bara til þess að líða svo illa með blóðbragð í munninum og hjartslátt á eftir. Ég persónulega vil bara lesa fréttir um fluffy kisur og sniðuga hunda. Komin með svo nóg af uppslögum æsifréttablaðanna. Hversu mikil EKKI FRÉTT er það að Jude Law sér þreyttur og uppgefinn á því að unga nýja kærastan hans sé alltaf á djamminu og hafi gaman af?

laugardagur, febrúar 19, 2005

Gardínur og kuldavörn

Í dag keypti ég gardínur fyrir eldhúsgluggann. Frá því að við fluttum inn hefur glugginn verið "ber". Við höfum reyndar haft mikið af plöntum í gluggakistunni svo þetta hefur bara verið fínt. En ég fann gardínur sem mér fannst passa við litagleðina í eldhúsinu og þær voru næstum gefins svo það var bara að smella sér á þær. Og það var útsala í búðinn og 30 prósent afsláttur af öllu, svo ég keypti dúk fyrir afganginn og er svona alsæl með "nýja" eldhúsið mitt að ég brosi bara allan hringinn :D Smelli inn myndum á eftir. Update: Hérna eru myndirnar. Reyndar er þetta með útsölur orðið frekar teygt dæmi hérna, það eru alltaf útsölur eða tilboð í þessum búðum hérna í Kongsberg. Sem er auðvitað bara jákvætt fyrir budduna mína. Fékk mér nýja flíspeysu í dag svo nú ætti ég að halda lífi út veturinn hérna í tölvustólnum.

þriðjudagur, febrúar 15, 2005

Og þá vitum við það!

Meyja Meyjan þarf að sanna sig í dag og vill ekki síst að sýna fram á að hún hafi sínar eigin þarfir og sérvisku. Hún vill ekki láta skipa sér á bás með öðrum.

sunnudagur, febrúar 13, 2005

Til hamingju

Jei, glæsilegt hjá Valdísi Óskars að fá Bafta verðlaunin, það var nú bara tímaspursmál hvenær kæmi að því að hún fengi viðurkenningu fyrir sína vinnu :D

fimmtudagur, febrúar 10, 2005

Vítamín, holl eða ekki?

Ég sá í Schrödingers katt(norskur fræðiþáttur sem fjallar um nýja tækni og vísindi) í dag að rannsóknir sýna að of mikil neysla á A vítamíni getur valdið beinþynningu. Sem er frekar merkilegt. Sænskar konur þjást mest af beinþynningu og í sænskri rannsókn var athugað með mataræði kvenna yfir 40 ár sem höfðu brotið bein. Þar kom í ljós að Svíar borða mat sem inniheldur frekar mikið magn af A vítamíni, þ.e. mjólkurvörur, feitan fisk og fleira. Svíþjóð er líka eina landið á norðurlöndum sem vítamínbætir mjólk með A vítamíni (skv. þessum þætti allavegana). Þetta kemur víst líka illa niður á sænskum karlkroppum öll þessi A vítamínneysla. Skv. Manneldisráði á Íslandi er RDS fyrir konur 800 µg og 900 µg fyrir menn (µg = míkrógrömm var það ekki?). Og ofan á allt þetta veldur ofneysla á betakaroteni í töfluformi, (sem verður að A vítamíni í kroppnum) meiri hættu á lungnakrabbameini, sérstaklega hjá reykingafólki. Einnig var talað um að nýjar rannsóknir sýna að C vítamín kemur ekki í veg fyrir kvef. Það getur samt hjálpað þannig til að líkaminn komist yfir kvefið fyrr.

Örnen

Ég er að horfa á þriðja þátt af Örnen skandínavíska glæpaþættinum. Í þessum þætti færist leikurinn til Noregs og í einu atriðinu keyrir meira að segja íslensk/danski lögginn í Kongsberg :D Hann er á skíðasvæði og sér svo glæpókall og keyrir á eftir honum. Fyrst í gegnum skóglendi og svo keyrir hann inn í bæinn. Þar sést lítil sæt kirkja og svo nokkur hús, það er gamli bærinn í Kongsberg semsagt. Ég er alveg að fíla þennan þátt, ofsalega gaman að sjá þessar fallegu myndir af Íslandi og svo er talað á íslensku öðruhverju. Elva Ólafsdóttir er systir hans löggumannsins semsagt. Jæja ég ætla að horfa á meira.

sunnudagur, febrúar 06, 2005

Bolludagur

Í dag baka norðmenn bollur af miklum móð og borða með rjóma og jafnvel sultu. Þeir eru hins vegar ekki svo æstir í glassúr ofaná. Þeir baka hveitibollur og vita næstum ekki hvað vatnsdeigsbolur eru. Í dag er Fastelavnssøndag, man ekki hvað það heitir á íslensku. Ég bakaði sætar hveitibollur í dag, skreytti þær með alltof dökku súkkulaði, þeytti rjóma og notaði rifsberjasultu á bollurnar. Það er bara að nota það sem er við hendina, ekki satt? Súkkulaðið var eins og ég sagði alltof dökkt, svo ég varð að skafa aðeins af bollunum, þetta var bara ekki alveg að blífa. En bollurnar voru alveg ágætar bara. Og alls ekki slæmt að nota rifsberjahlaup með rjómanum. Í minningunni þá bakaði mamma alltaf vatnsdeigsbollur, á þeim var súkkulaðiglassúr og bláberjasulta og oftast rjómi. Eitt árið var bláberjarjómi á bollunum, það var gott. Á næsta ári ætla ég að baka vatnsdeigsbollur og borða með glassúr og bláberjarjóma.