Myndir frá páskaferðinni
jæja ég er loksins komin með myndirnar frá páskaferðinni. Á reyndar bara eftir að bæta við texta, kemur alveg :) Hérna eru þær
jæja ég er loksins komin með myndirnar frá páskaferðinni. Á reyndar bara eftir að bæta við texta, kemur alveg :) Hérna eru þær
Mikið getur maður verið latur... Það er líka bara ágætt. Restin af ferðasögunni er vel við hæfi hérna. Við semsagt tókum lestina frá Odense til Gautaborgar á ókristilegum tíma á fimmtudagsmorgninum. Við snillingarnir vorum auðvitað ekkert að hugsa út í það að það væru kannski örfáir fleiri á ferðinni í lestarkerfinu svona á fyrsta frídegi í páskum ;) Þannig að þegar við ætlum að fara að kaupa miðana daginn áður var allt uppselt nema 5.52 lestin. En við hörkuðum þetta bara af okkur og vöknuðum klukkan fjögur :) Bara svipað og þegar maður fer í flug heima ;) Lestarferðin gekk tíðindalaust fyrir sig, við sváfum mest alla leiðina og vorum komin til Gautaborgar um hádegi. Lísa kom og sótti okkur á lestarstöðina og Saga með henni. Hún hafði stækkað heilan helling síðan við sáum hana síðast í nóvember. Litla sæta var nú pínu feimin við okkur til að byrja með en svo kom þetta allt saman. Við áttum tvo yndislega daga í Gautaborg og ekki skemmdi nú fyrir að vorið ákvað að tilkynna komu sína með sól og blíðu. Við náðum að túristast aðeins, kíkja í búðir og borða yndislega góðan mat a la Birgir gourmet-chef! Við fórum með Lísu, Nökkva og fleiri gestum út í Marstrand en það er eyja í um klukkutíma aksturs fjarlægð frá Gautaborg. Það er lítil ferja sem gengur á milli, sem við tókum yfir á eyjuna sjálfa, tekur bara 2 mín að renna yfir. Þar á fína fólkið hús & báta og eyðir miklum tíma á sumrin. Það er mjög fallegt þar og meðal annars reffilegt virki, Carlsten festning, sem við skoðuðum. Á laugardeginum fórum við í vöfflukaffi til, Villu & Heimis, vinapars Lísu & Birgis. Það var mjög kósý, sátum úti á palli og nutum veðurblíðunnar og gerðum okkur fulla grein fyrir því að þetta væri eins og besti sumardagur sem maður upplifir á Íslandi. Við tókum svo rútuna heim á leið um sexleytið, og vorum komin alla leið heim um ellefu um kvöldið. Home sweet home og Rán var mjög ánægð að fá okkur heim. Hún var víst orðin frekar einmanna síðustu dagana enda vorum við í burtu í 5 daga, sem er kannski í lengsta lagi. En hún hafði þetta af og var alveg afslöppuð, ekkert stressuð (þegar hún var í kattapössun um síðustu páska fór hún næstum alveg úr feldinum, henni leið svo illa). Eins og ég nefndi í fyrra bloggi, tókum við myndir og ég ætla að koma þeim á netið fljótlega. Kannski á morgun.
Erum komin heim í heiðardalinn, heilu og höldnu :D Erum búin að slaka á í dag, elduðum okkur lambafillet úr frystinum áðan og höfum það bara gott :D Nenni ekki alveg að skrifa meira í bili... kannski meira á eftir. Er að formatta tölvuna mína, loksins, búin að ætla að gera þetta í margar vikur.
Paskafriid er i fullum gangi. Komum hingad til Odense i gær eftir batsferd fra Larvik til Frederikshav og langa lestarferd fra Frederikshavn. Var med "sjoridu" eftir lestarferdina i allan gærdag og adeins i morgun. Ferlega furduleg tilfinning. I gær forum vid i skodunarferd um midbæinn, bærinn er ofsalega fallegur og thad sem mer finnst serstakt er ad tho ad husin seu frekar lik, mørg mursteinahus, tha eru allskonar smaatridi eins og munstur ur mismunandi litum mursteinum og svona munstur i kringum glugga og thak. Thad er mjøg falleg kirkja i midbænum og bærinn er reyndar bara fullur af allskonar fallegri nytjalist, meira ad segja ræsislokin eru skreytt. Svo kiktum vid a kaffihus, Biografen, ferlega flott kaffihus med biosal. Forum reyndar ekki i bio, bara i kaffi. Eldudum svo nautasteik i kvøldmatinn og kynntum okkur ferdatølvuna :D sem Styrmir var ad erfa fra pabba sinum. I dag forum vid a sofn, byrjudum a H.C. Andersen safninu sem er byggt vid husid thar sem hann fæddist. Ferlega flott safn og itarlega farid i ævi hans og listir. Eitt sem eg vissi ekki um H.C. Andersen er ad hann var mjog flinkur teiknari og svo bjo hann til klippimyndir ur pappir. Otrulega finar myndir og svo finlega klippt tho hann hafi vist verid med grofar hendur og ekki voru skærin finleg sem hann klippti med. Thau voru til synis ;) Annars eru ad verda 200 ar sidan hann fæddist og verdur haldid upp a afmælid hans 2. april med pompi og prakt herna i Odense. Vid forum lika a annad safn sem heitir Brandts klædefabrikk. Listasafn sem var sett upp i fataverksmidju. Thar var m.a. fin svona upplifunarsyning um dreka, mjog skemmtilegt fyrir krakka thar sem thau gatu klifrad upp a drekahala og sest inn i drekaegg og fleira. Einnig saum vid frettaljosmyndasyningu arsins eftir danska ljosmyndara, alltaf skemmtilegt ad sja svoleidis syningar. Og loks skodudum vid Museet for fotokunst sem innihelt margar ahugaverdar myndir. Svo forum vid a Bymuseum Møntergard thar sem var syning um kynlif sidustu 100.000 arin. Ahugavert efni, og ser flokkur um danska kynlifssogu sidustu hundrad arin. Danir eru opnir i thessum malum, thad er ohætt ad segja. Nu i kvøld er bara afsloppun og svo førum vid til Lisu & fjølsk. a morgun.
| Your Brain is 60.00% Female, 40.00% Male |
| Your brain is a healthy mix of male and female You are both sensitive and savvy Rational and reasonable, you tend to keep level headed But you also tend to wear your heart on your sleeve |
Páskafríið er komið í hús og velkomið skal það vera :) Við erum að fara í páskareisu á mánudaginn, ætlum að stoppa í Odense og í Gautaborg. Ætlum að sigla frá Larvik til Frederikshavn og taka svo lest þaðan til Odense. Hlakka til að sjá hvernig er í Odense, því þangað hef ég ekki komið áður. Hef góðan leiðsögumann en bærinn hefur svosem stækkað og breyst mikið frá því að Styrmir bjó þarna fyrir einhverjum áratugum síðan ;) Það verður líka gaman að sjá systkinin, Nökkva og Sögu í Gautaborginni. Þau eru bæði búin að stækka síðan við sáumst síðast. Erum búin að fá familíuna niðri til að taka að sér að gefa dýrinu að éta og viðra hana aðeins ef það hentar dagskránni. Ætlum að vera á ferðalagi þar til á laugardaginn eins og planið er í dag.
Hún Hafsteina vinkona mín á afmæli í dag :) Til hamingju með daginn!! Knús og kossar frá mér :)
Það er við hæfi að senda hamingjuóskir til Lynn í Ameríkunni. Litli bróðir, Zachary Chase, er kominn í heiminn, rúm 3 kg og tæpir 51 cm. Hann var tekinn með keisaraskurði í gær. Rachel er voða stolt stóra systir. Litli bróðir er víst ekkert hræddur við að láta vita af sér sem eru viðbrigði því stóra systir var svo voða róleg þegar hún kom í heiminn. Þau eiga von á pabbanum heim frá Írak í fyrsta lagi á fimmtudaginn í þessari viku en annars eftir næstu helgi. Talaði við ömmuna rétt áðan í gegnum hotmailið og hún bað mig endilega að koma skilaboðunum áfram til Íslands.
Hildur vinkona mín á afmæli í dag, verður þrítug gellan. Sendi henni hamingjuóskir í tilefni dagsins. Knús :)
| You Are Not Scary |
![]() Everyone loves you. Isn't that sweet? |
Mæli með seríunni Desperate housewifes sem byrjar í Sjónvarpinu í kvöld. Fyrsti þátturinn var kannski heldur stífur fyrir minn smekk, en skánar strax mikið í öðrum og þriðja þætti þegar maður er búinn að kynnast persónunum betur. Er reyndar með heilkenni sem segir mér að vera ofurskeptísk þegar er búið að hype-a upp sjónvarpsþætti löngu áður en þeir eru teknir til sýninga. Held það fjalli eitthvað um að ég er að reyna að vera ekki eins og allir hinir. En vil að sjálfsögðu ekki skera mig mikið úr skaranum. Það væri hræðilegt, gæti einhver farið að glápa á mig!! Svo er ég líka svo hjartanlega á móti raunveruleikasjónvarpi en það er allt önnur saga. Gæti reyndar skrifað fleiri síður um álit mitt á Idol og Survivor og fleiri svona seríum, en ég ætla að láta það vera. Nenni ekki að vera að æsa mig upp að ástæðulausu. Er að reyna að hætta að horfa á sjónvarpið nema það sé eitthvað mjög sérstakt, er orðin leið á því að vikurnar og mánuðirnir þjóti hjá án þess að ég fái nokkuð gert að því.
Ég fékk tilboð í dag sem ég hef svooo ekki hugmynd um hvort ég á að taka eða kasta út um gluggann. Vildi að ég væri ekki í svona miklu fokki!!! Hvar er skynsemin og púkinn sem segir mér hvað ég á að gera núna?? Afhverju getur ekki einhver bara komið og tekið við stjórninni í þessu rugli í hausnum á mér. Svo auðvelt að ímynda sér að allir aðrir myndu hafa taklað aðstæðurnar betur en ég. Afhverju þurfti þetta endilega að koma upp í dag, af öllum lifandis dögum. Ég sem var ekki í "ég er svo ákveðin hvað ég vil gera restina af lífinu" skapinu mínu. Heldur ligg bara og reyni að loka augunum og ímynda mér að ég sé ekki hérna at all.
Jæja þá er afstaðin norska forkeppnin fyrir júróvisjón. Það hefði verið mun skemmtilegra að horfa á hana í góðra vina hópi og jafnvel með einn öl eða tvo innbyrðis. Ég kom inn í miðja keppni en missti ekki af miklu. Lögin voru misjöfn að gæðum og styrk ef svo er hægt að komast að orði. Lagið sem vann var lagið sem innihélt mesta stemningu og skemmtanagildi. Sveitin heitir Wig Wam og spilar glamrock af bestu gæðum. Ekki að ég sé stærsti aðdáandinn. Ég spái því að þetta verði ferskur andblær í júróvisjónkeppni ársins. Fyrir þá sem eru einlægir aðdáendur júróvisjón er tengill á lögin hér.