Hamingjuóskir til litlu systur sem er tvítug í dag!! Megi hamingjan fylgja þér alltaf! Knús og kossar!!!
Reyndar finnst mér nú voða stutt síðan þessi litla dúlla kom í heiminn. Svo voða lítil og nett.
Svo fór hún auðvitað snemma á gelgjuna, fékk geggjað margar bólur bara ca. 3-4 mánaða gömul. Man að mér þótti það mjög sérstakt. En á móti kemur að Salvör var mjög þroskuð eftir aldri og fór aldrei meir á gelgjuna, það var fyrir neðan hennar virðingu.
Ég man mjög vel eftir tímabili í ævi Salvarar þegar hún var upptekin af tísku og hárgreiðslu, það hefur reyndar loðað við hana síðan en þetta byrjaði mjög snemma. Um 3ja ára aldurinn var hún farin að "hanna" sína eigin tísku, en það var gert með því að t.d. klippa göt í föt eða endurhanna þau á einhvern álíka hátt.
Henni þótti líka mjög smart að vera með sítt hár og var því oftar en ekki með sokkabuxur á höfðinu og lét þá langa hárið annaðhvort liggja slétt eða í fléttu. Salvör var hins vegar í raun með stutt hár fram eftir aldri. Hún lét það samt ekkert á sig fá og klippti sig allavegana einu sinni, alveg sjálf! Mamma var ekki eins hrifin af útkomunni, man ég. Og Salvör var einmitt á leið í heimsókn til ömmu á Skaganum, svo amman fékk það hlutverk að fara með hana til rakarans til að bjarga því sem bjargað varð ;)
Það var ýmislegt sem fékk að finna fyrir skærunum á þessum árum, fatnaður, barnabílsætið og sjálfsagt fleira sem ég hef gleymt. Merkilegt að mamma hafi aldrei fattað upp á því að fela skærin :o
Allavegana, Salvör hefur komist alveg ótrúlega vel á legg og á eftir að pluma sig fínt áfram í lífinu. Það er spurning hvort að tíska og hár heldur áfram að vera aðaláhugamálið, það verður að fá að koma í ljós.
Elsku Salvör, eigðu góðan dag og ég hlakka til að fá að knúsa þig almennilega í sumar, hvar og hvenær sem það verður!!
þín litla stórasystir,
Bryndís