Er búin að nota mér frían aðgang að tonlist.is um helgina, hlóð niður öllu sem ég fann með Eivör Pálsdóttur. Er búin að vera spennt fyrir henni um nokkurn tíma, hún hefur svo geggjaða rödd. Og diskarnir eru fjölbreyttir. Svo núna verður hún í playlistanum um stund.
Hef reyndar komist að því að mér finnst mikið af tónlist sem er með svona þjóðlegum blæ skemmtileg. Þetta hefur verið dálítið í tísku hérna í Noregi, að poppa upp þjóðlagablæinn. Er alveg að fíla það.
Er alveg búin að komast að því að ég verð orðinn algjör sveitalubbi þegar ég loksins flyt heim... glæsilegt, það verða bara mussur og þjóðlagagítarinn!! Frábært og allir eiga eftir að hlæja að mér því Íslenski draumurinn er tíska og háhælaðir skór. Nei ég verð víst að sætta mig við að ég verð aldrei töff :$
Var að lesa í einhverjum veflinum að skv. amerískri rannsókn er 33 ára alveg pottþéttur aldur til að eignast barn(sbr. ólétta Mary Danakrónprinsessu). Konur eru tilbúnar og halda sér mikið frískari, líkamlega og andlega, eftir meðgönguna og fæðinguna.
Mikið er ég fegin að heyra það. Ég sem var alveg komin í krísu yfir þessari skynsemi í mér að bíða eftir rétta tækifærinu til að fara að unga út rollingum. Það er alltaf verið að hamra á því í veflunum hérna að 22 ára sé bara toppurinn af öllu að byrja að unga út. Var orðin hrædd um að ég væri bara útrunnin. Og nei, elsku fólk, ekkert enn í gangi á þeim vellinum. I will keep everyone informed.
Annars hafa norðmenn miklar áhyggjur af "ungviði" landsins þar sem allir eru bara orðnir menntasjúkir!!! og alltaf minnkar hópurinn sem leggst í barneignir um tvítugt. Flestar norskar konur eru um þrítugt þegar þær fæða fyrsta barn.
Ég er enn að bíða eftir bókinni sem ég pantaði, fæ að vita á mánudaginn endanlega hvort bókabúðin getur reddað þessu, annars pöntum við hana bara á netinu. (Eins og við hefðum greinilega átt að gera til að byrja með.)
Ég er samt eitthvað svona skeptísk á netviðskipti almennt, ég er svo gamaldags. Fínt að fara bara í búð og kaupa með peningum, hehe.
Eitt sem mér finnst heillandi er að sjá hvað fólki dettur í hug að kaupa á netinu. Skoða stundum síðu hjá einni íslenskri stelpu, sem er þó ekki í frásögur færandi. Nema að nýjasta sem hún var búin að "gefa sér" í tækifærisgjöf var eitthvað svona skartgripa-thingie til að hafa á farsímanum. Og það kostaði eitthvað 1200 ísk. Ég er greinilega alltof nísk!!! Hefði ekki keypt eitthvað svona bandadóterí til að hafa hangandi á símanum mínum fyrir 1200 kall. En það kemur því kannski eitthvað við að síminn minn er ALDRAÐUR og TEIPAÐUR saman. Ég þarf á því að halda að setja 1200 kallinn upp í nýjann síma við tækifæri.
Get bara ekki ákveðið hvernig síma mig langar í. Nota hann líka næstum ekki neitt! Hringi í Styrmir max 1x í viku í 1,5 mín. Sendi ca. 5-10 sms á viku. Tek á móti ca. 4 símtölum í mánuðinum. Já, ég er óvinsæl með meiru hehe.
Það tekur því ekki að fá sér einhvern geggjaðan síma með bluetooth, myndavél, gprs, umtf, edge, 3G og dagbók fyrir þessa notkun. Sammála??
Lag dagsins - Om jeg vågar með Eivör Pálsdóttir