Vá, ég er búin að vera ógeðslega dugleg í dag!!!!
Við byrjuðum daginn snemma (fyrir hádegi ss) og fórum í hina margfrægu asíubúð og versluðum fullt af grænmeti og góðgæti. Vorum komin heim fyrir klukkan eitt með 3 fulla poka af matvörum. Var alveg hissa hvað Meny(nýkaupið mitt) leit vel út, en venjulega höfum við verið að lufsast út í búð um 2-3 leytið og þá er allt að verða tómt. (Fólk er greinilega hrætt eins og við að svelta þegar búðirnar eru lokaðar á sunnudögum :þ )
Við tókum svo þvílíkan skurk í íbúðinni eftir það. Ég henti fullt af fötum sem ég var hætt að nota og söfnuðu ryki í skápnum, lagaði til i kústaskápnum, gangaskápnum og aðeins í gestaherberginu. Styrmir var duglegur líka og henti fötum og lagaði heilmikið til í gestaherberginu. Ég er ekki alveg viss hvað kom yfir okkur en þetta var gaman.
Nú er hrúga í ganginum sem bíður eftir að komast í ruslapoka og burt. Merkilegt hvað þetta er létt þegar maður kemst í gang!!
Við kíktum líka niður í geymsluhornið okkar en ég hafði ekki taugar til að takast á við það í dag. Er mjög ósátt við hvað það hefur verið farið illa með okkur í þessum geymslumálum. Erum með þriðjung af gömlu geymslunni og dótið okkar sést varla fyrir ryki. Eigandinn er að gera upp kjallarann og var löngu byrjaður þegar við komum heim ur fríinu. Þá var búið að færa dótið okkar í þessa geymsluræmu og svo er búið að vera á fullu að steypa gólf og laga veggi. Hann er á fullu þessa dagana að berja panel á veggina á sinni geymslu en það kemur niður á okkar.
Það sem pirrar mig mest er að ég var með nokkra kassa hérna uppi í gestaherberginu í sumar og núna erum við með svo litla geymslu að ég kem engu fleira inn :(
Veit að við erum að leigja fyrir mjög hagstæðan pening og vil þess vegna ekki vera með leiðindi en það er nú einu sinni þannig að við erum líka að borga fyrir leigu á þessari geymslu, sem ég var btw mjög ánægð með út af stærðinni. Verð reið þegar ég hugsa um dótið sem liggur undir skemmdum út af öllu þessu ryki. Er með fullt af hlutum þarna niðri sem ég vil eiga áfram, þó að sumt sé einskis virði og hafni örugglega í ruslinu að lokum.
Hef bara aldrei heyrt um svona að leigjendur séu bara fluttir úr geymslu sem þeir eru með á leigu án þess að spurt sé um leyfi einu sinni. Reyndar var þetta nú algjörlega punkturinn yfir i-ið því í vor var verið að skipta um vatnslagnir í götunni og inn í hús og þá var það í miðri geymslunni okkar. Einn daginn þegar ég fór niður í geymslu voru skíði og annar búnaður frá okkur á ganginum og risa gat í gólfinu. Engum hafði dottið í hug að láta okkur vita einu sinni :s
Jæja, en ég er allavegana reið yfir þessu en annars ánægð með mig að vera byrjuð að henda rusli og drasli!!