S1 Vebbtíví
Hvílík gargandi snilld er Sylvía Nótt á Skjáeinum?! Ég var að fá vísbendingu um bara í vikunni að maður gæti séð þáttagerð Skjáseins á netinu og varð að nýta mér það að sjálfsögðu. Reyndi að horfa á AlltÍDrasli en það var nú meira draslið. Meikaði ekki parið þarna á Akureyri sem fékk þrif á íbúðinni sinni. Kemst ekki yfir þennan kjánahroll og tilgerðarlegheitin í íslensku sjónvarpsefni. Fíla reyndar yfirhöfuð ekki þessa þætti sem fjalla um að laga til heima hjá fólki. Vikuna á eftir verður allt komið í sama haugadraslið hjá þessu trailertrashi á eyrinni. Reykjandi yfir kakómaltlepjandi og kattamatsétandi börnunum! Og hvað var málið með Hauk Hauksson og þessi lesnu komment? En svo byrjaði ég að horfa á Sylvíu Nótt og hún snerti einhverja taug í mér. Fannst hún fyrst alveg tær snilld og svo ekki eins mikil snilld en svo aftur tær gimsteinasnilld. Sérstaklega fílaði ég hvernig hún kallaði verk listamanna föndur og spurði þá hversu lengi þeir hefðu verið atvinnulausir. Og svo eftir heilalausa þögn "Eh, viltu senda kveðju?" Bwahahahahaha. Nægilega "heimskt" til að vera afþreying. Eða var það kannski hvernig var ýjað að því að allir svona þættir eru ógeðslega heimskir. (Er Sylvía Nótt kannski að apa Möggu Stínu úr Hljómsveit kvöldsins?) Elska Daylight Savings Time, ég græði heilan klukkutíma í nótt. Því klukkan þrjú í nótt breytist tíminn til baka klukkan tvö og jei klukkan verður tvisvar þrjú og þá get ég vaknað klukkan tíu í fyrramálið og verð þá eiginlega búin að sofa til ellefu á sumartíma. Eh, já eða þannig sko. Er ekki drukkin en gæti þjáðst aðeins af svefngalsa. Og sykursjokki eftir laugardagsnammið. Já já, held það bara.

