-Bryndís-

sunnudagur, nóvember 27, 2005

Evrópukortið


create your personalized map of europe or check out our Barcelona travel guide Ó alltaf fleiri og fleiri lönd að bætast við listann :) Komst að því að ég hef bara einu sinni komið út fyrir Evrópu og það var þegar ég fór til Marokkó í Afríku. Alveg spurning að bæta Ameríku eða Asíu inn á listann yfir heimsóttar heimsálfur.

Hversu skrýtin ertu?

Sá þetta hjá Heiðu vinkonu, sem er miklu minna skrýtin en ég greinilega ;)

You Are 70% Weird
You're so weird, you think you're *totally* normal. Right? But you wig out even the biggest of circus freaks!

sunnudagur, nóvember 20, 2005

Sunnudagur til sælu

Það eru allir svo latir að blogga, skil ekki í þessu. Og ekki er ég skárri sjálf. Það varð ekkert úr sunnudagsbloggi einu sinni í síðustu viku en úr því verður bætt í þessari viku. Ása kom til okkar seint á sunnudagskvöldið. Við fengum lánaðan bíl hjá tengdó og skutluðumst út á Gardermoen að ná í hana. Vikan er búin að vera fín, við Ása erum við það að verða búnar að sálgreina hvor aðra í ræmur. Mjög hollt og gott. Ótrúlegt að geta talað svona mikið án þess að detta úr kjálkalið hreinlega! Höfum bara verið rólegar í vikunni en skelltum okkur þó til Osló á föstudaginn í smá shopping og sightseeing. Ég átti inni frídag í vinnunni og nýtti mér hann. Í gær elduðum við Ása, Chili con carne, í sameiningu og það var bara svona þrælgott. Þorri kom í heimsókn og borðaði með okkur. Við Ása skelltum okkur svo á kaffihús til að sjá hvernig bæjarbúar fögnuðu þessu laugardagskvöldi en það hafa greinilega verið samantekin ráð að spara sig fyrir jólahlaðborðin sem eru að hefja innreið sína um þessar helgarnar. Semsagt fáir sem engir á ferli. Nokkrir unglingar á ímyndunarfyllerí en annars nánast bara lágdeyða. Læt þetta duga í bili af sunnudagshugvekjunni.

laugardagur, nóvember 12, 2005

Gullkorn

Fann þessi gullkorn á förnum vegi. Blessuð börnin eru alveg ágæt hahaha

Afmæli og heimsókn

Ég ætla að byrja á að óska vinkonu minni henni Björk til hamingju með daginn. Í gær átti Laufey vinkona afmæli og hún fær líka hamingjuóskir :) Á morgun fæ ég heimsókn. Ása systir ætlar að kíkja á okkur hérna á norðurhjaranum eftir mánaðarlanga skólavist í Frakklandi. Það verður gaman að fá hana í heimsókn. Stórfjölskyldan stóð á öndinni heima á Íslandi þegar fréttist af því að Ása ætlaði ekki að vera tvo mánuði í skólanum eins og hún ákvað til að byrja með. En eftir því sem ég kemst næst er Ása í góðu andlegu ástandi og er svona annars að njóta sín í nýju tilverunni sinni. Meiri upplýsingar síðar. Góða helgi

sunnudagur, nóvember 06, 2005

Sunnudagsbloggið klikkar ekki.

Var bent á það í dag góðlátlega að ég ætti eftir að skrifa sunnudagsbloggið. Svo hér kemur það. Er búin að eiga góðan dag. Drakk gott kaffi, las bók og naut þess að þurfa ekki að fara né gera nokkuð annað en það. Sólin skein þegar ég vaknaði og þá er ég ánægð. Í gær fékk ég mynd af Anne sem ég talaði um fyrir nokkrum vikum. Hún er voða krútt og ég ætla að heimsækja hana í vikunni. Mæli með "Við enda hringsins" eftir Tom Egeland. Norskur rithöfundur sem skrifar um svipaða hluti og Da Vinci code. Ath. Tom Egeland gaf út sína bók tveimur árum fyrir Da Vinci code. Samt eru bækurnar ótrúlega líkar. Óskiljanlegt. Bókin er spennandi og alveg þokkalega vel skrifuð. Er aftur að byrja að lesa Holy Blood, Holy Grail. Fengum hana í jólagjöf í fyrra en ég komst ekki lengra en á síðu 40. Varð að drífa mig í hana núna þegar ég er búin að lesa enn aðra bókina sem er skrifuð "uppúr" henni. Góðar stundir