Gleðileg jól!
Kæru lesendur fjær og nær, Óska ykkur gleðilegra og friðsælla jóla. kveðja, Bryndís
Stjornuspain er lifleg og spennandi i dag. Daldid eins og mer leid i morgun. Jeiii. MEYJA 23. ágúst - 22. september Meyjan reynir að gera það sem rétt þykir en frjálslyndur tvíburi er meira en til í að afvegaleiða hana. Líklega skemmtir hún sér betur ef hún gerir eins og hann segir. Allir tviburar gefi sig fram i kommentakerfinu, frjalslyndir edur ei ;)
Ég les stundum Tikin.is og fann ótrúlega fína grein í þetta skiptið. Fjallar um hvernig við launum mismunandi störf. Skemmtilega fersk sýn á þessi mál. Lesið þetta
Jæja ég tók bloggrúntinn þegar ég kom heim eftir búðaráp áðan. Fyrsta sem blasir við mér er að Unnur Birna er fallegust í heimi 2005. Góð frammistaða þar. Hamingjuóskir til hennar og Íslands sem er einmitt fallegasta land í heimi öll ár.
Skrapp semsagt í búðaráp í dag, taka smá gluggaversl áður en ég fæ útborgað á mánudaginn. Það er svo mikið fallegt í búðunum, verður ekki erfitt að velja þegar ég fer í alvöru verslunarleiðangur. Fólk er voða afslappað og allir í góðu skapi. Vona að sú stemming haldi sér alveg fram yfir jól.
Í gærkvöldi fórum við Styrmir á tónleika í Orkumyllunni sem er tónleikastaður bæjarins. Voða krúttleg gömul mylla(held ég allavegana) sem hefur verið gerð upp til að þjóna tónelskum bæjarbúum.
Í þetta sinn var hálfíslensk stelpa að troða upp, hún heitir Lindis Margrét Botolfsen. Mamma hennar er íslensk og heitir Björk og hefur búið hér lengi lengi. Það sem er sérstakt er að þegar ég byrjaði að vinna í leikskólanum þá var ég stundum kölluð Lindis því þær mundu svo vel eftir þessari stelpu og hún var hálfíslensk, svo nöfnin okkar blönduðust eitthvað saman þarna stundum.
En allavegana þá er Lindis efnileg söngkona og ég vona að við eigum eftir að heyra meira frá henni. Tónleikarnir voru mjög fínir og fjölbreytt efni tekið fyrir. Það voru lesin ljóð eftir hana sjálfa á milli atriða. Hún söng a cappella Sofðu unga ástin mín og kom bara mjög vel frá því. Svo í lokin tók hún íslenskt jólalag sem ég hef aldrei heyrt áður. Textinn var einfaldur og endurtekinn nokkrum sinnum, eina línan sem ég man er "líður að hátíðum". Tvö eða þrjú vers og ofboðslega einfalt lag. Fínt að fá íslenska jólastemmingu til að taka með sér heim.
Fredag 9. desember
SOM EI ELV GJENNOM MITT HJERTE
Sangerinnen og arrangøren av prosjektet er ei 23 år gammel Kongsberg-jente, Lindis Margrèt Botolfsen. Dette blir hennes debutkonsert og et springbrett til å søke videre på sangskoler. Den unge jenta føler seg inspirert av mange slags musikkgenre, deriblant jazz, pop, rock, folkemusikk og klassisk musikk, derav navnet på prosjektet.
Hun vil synge låter av blant annet Joni Mitchell, Tom Waits, Cornelis Vreeswijk, Radka Toneff, The Beatles og Jóhann Sigurjónsson. Med seg har hun pianisten Sven Ohrvik og den lokale gitaristen Vegard Eggum.
Það er kominn tími á að tjá sig hérna. Hef verið voða innhverf undanfarna daga. Það er ýmislegt sem er að brjótast um í hausnum á mér en öllu miðar til framtíðar, eins og það á að vera.
Ég er búin að vera framtaksöm um helgina. Fór á föstudagskvöldið niður í kjallara og náði í kassann með jólaskrautinu. Er búin að pynta aðeins hérna í stofunni svona í tilefni aðventunnar.
Í gær þvoði ég þvott og moppaði rykið til og frá hérna. Í dag ákvað ég að komið væri að mér að njóta hvíldardagsins og lagðist í blöð helgarinnar og las upp til agna.
Í eftirmiðdaginn fannst mér vera komið nóg af kyrrsetu og skellti mér í sundlaugina og synti nokkrar ferðir. Tók svo smá spa-sveiflu með peeling og gufubaði. Þægilega fáir í sundlauginni og engin grenjandi börn. Endaði svo dekrið á kaffihúsinu mínu þar sem ég drakk nýpressaðan appelsínusafa og las í Skyndibitunum mínum. Alltaf gott að rifja upp allt þetta góða sem maður hefur lesið og veit að virkar.
Kom svo hingað heim og við Styrmir elduðum núðlur með svínakótilettum í sameiningu. Eftir matinn dreif ég mig í bakstursgírinn og sullaði saman í nokkrar súkkulaðibitakökur. Þær eru obboslega góðar, við erum strax búin að smakka nokkrar. En þær voru bakaðar til að borða þær, svo þetta er allt á réttri leið.

Afrakstur dagsins
Posted by Picasa
Amma hringdi í mig í dag, það var fínt að heyra í henni. Hún var sjálf sæmilega hress og byrjuð að huga að jólunum. Var að fara að hengja upp jólagardínurnar hjá sér. Sem minnir mig á að ég á víst jólagardínur einhvers staðar upp í skáp. Alveg spurning að athuga hvort þær finnist og breyta til í eldhúsglugganum.

2 kveikt í dag
Posted by Picasa