-Bryndís-

mánudagur, janúar 30, 2006

Þetta finnst mér óþarfi!!

Það er allt að sjóða yfir í miðaustrinu. Það voru myndir í fréttunum af palestínumönnum sem brenndu norska og danska flaggið og stöppuðu á því. Múslimar eru brjálaðir út í Dani og Norðmenn fyrir að hafa birt skopteikningar af Múhammeð spámanninum þeirra. Leiðtogar múslima hafa farið fram á boikott af dönskum og norskum vörum. Sumir ganga lengra og segja að boikott sé nú bara hallærislegt og eigi ekki eftir að skila neinu, nú sé komið að alvarlegri hefndum. Sem sumir vilja túlka sem ákall til sjálfsmorðs-sprengjumanna. Einnig hafa Saudi-Arabar og Lybíumenn kallað heim sína sendiherra frá Danmörku. Hef ekki heyrt um þetta í Noregi ennþá. Danirnir hafa ekkert viljað afsaka sig en Norðmennirnir eru hræddari. Opinber afstaða norskra stjórnvalda til málsins er þó sú að í Noregi er leyfi til að segja hvað sem hver vill og blöðin hafa tjáningarfrelsi. Lýðræði er fyrir alla og allir mega segja það sem þeim finnst. Einnig er vakin athygli á því að helstu og stærstu blöðin í Noregi hafa látið vera að birta þessar myndir þó þeim hafi verið boðnar myndirnar til birtingar. Hins vegar eru lög sem banna guðlast og hugsanlega heyrir málið undir þau. En þá verða þeir sem finnst á sér traðkað að fara í mál við blaðið. Ég held að fyrr verði eitthvað sprengt í loft upp. Það er ekki svo freistandi að vera að þvælast mikið í Osló að óþörfu á næstunni. Mér finnst þetta óþarfi. Það er ekki þannig að allt sem er ekki bannað, er leyft. Var ekki óþarfi að birta skopteikningar af spámanninum sem er eitt það mikilvægasta í trú múslima? Það stendur í Kóraninum að það er bannað að myndgera spámanninn. Þetta sýnir samt svo augljóslega muninn á því hvernig vestrænir (= ótrúaðir?) og svo múslimar líta á sín gildi. Vesturlandabúar gefa skít í allt sem ekki er merkilegt fyrir þá. Kannski er hægt að segja það sama um múslima, ég veit ekki nóg um múslima til að tjá mig um það. Og að sjálfsögðu er ekki til einn einsleitur hópur sem heitir múslimar, fólk er misjafnt þó það séu múslimar. Ekki vildi ég láta flokka mig eftir því hvað ég trúi á og að það jafngilti að ég gerði nákvæmlega eins og allir hinir sem trúðu á það sama. Það er bara eitt blað hérna í Noregi sem birti myndirnar, frekar lítið blað sem ég hef aldrei heyrt um áður en það komst í fréttirnar núna. Ritstjórinn kom í fréttirnar áðan, alveg með kúkinn í buxunum og segist ekki sjá eftir neinu. Hann er búinn að fá 20 morðhótanir og hundruðvís af hatursbréfum. Hann fær öryggisgæslu frá lögreglunni og þorir væntanlega ekki að ferðast mikið um einn að kvöldlagi. En nei nei, tjáningsfrelsið er það sem skiptir máli fyrir hann í þessu öllu saman. Stundum má satt kjurt liggja, á kannski að vissu leyti við í þessu máli. Án þess þó að þetta hafi verið neinn sannleikur sem líf og mannorð lágu við að birta. Góðar stundir og með von um að heimurinn fari að róa sig.

mánudagur, janúar 23, 2006

Stjörnuspáin mín í dag

MEYJA 23. ágúst - 22. september Hér eru þrjár leiðir til þess að bæta líðan sína. Í fyrsta lagi: Brostu oftar, ímyndaðu þér að þú hafir fengið það sem þú þráir og hættu að bera þig saman við aðra. Þú ert einstök og átt þinn sess í heildarmyndinni. Glæsilegt! Point taken, moving on :)

sunnudagur, janúar 22, 2006

Yndisleg heimavídeó

Það er keppni í gangi í einu netblaðinu hérna um fyndnasta heimavídeóið. Maríus er að reyna að blása á kerti og svo húsgrísinn Osvald í stofurallý

Bíó

Ég fór í bíó á föstudagskvöldið. Fór að sjá Pride and Prejudice með Keira Knightley í aðalhlutverki. Ein af bestu myndum sem ég hef séð lengi. Ótrúlega fullkomin ástarsaga. Munu elskendurnir ná saman eða ekki? Mun stolt þeirra og fordómar koma í veg fyrir hina einu sönnu ást. Skammast mín eiginlega fyrir að hafa aldrei lesið söguna, þetta er nú þrátt fyrir allt ein af þekktari ástarsögum sem eru til. En mæli eindregið með því að allir skelli sér í bíó sem fyrst. Ekki gleyma vasaklútnum. Ps. það er loksins hætt að snjóa, sá í blaðinu að snjódýpt hér í Kongsberg mældist 71 cm í gærmorgun, nefna má að það snjóaði allan daginn í gær í viðbót svo það eru örugglega fleiri cm í viðbót við þennan 71.

laugardagur, janúar 21, 2006

Enough is enough

Jæja það er fjórði dagurinn í stanslausri snjókomu og ég finn ekki OFF-takkann ... Var heldur ósátt í síðustu viku fannst vera heldur lítill snjór og alltof mikil hálka. Svo ég óskaði mér þess að það snjóaði aðeins meira. Ég hefði greinilega ekki átt að leggjast svona fast á bæn ;) En án gríns er búið að snjóa stanslaust núna á fjórða dag. Granni hefur ekki við að keyra með snjóblásarann og garðurinn er að verða fullur af snjó! Og allt þetta magn bara á þessum fáu dögum. Sem betur fer er mjög stillt veður að öðru leyti og lífið gengur sinn vanagang. Ég finn til með íbúum norður Noregs sem hafa verið að upplifa þvílíkan storm og kulda síðustu dagana. Heilu útihúsin hafa verið að splundrast, bátar sökkva vegna ísingar og margir eru án rafmagns. Enginn hefur þó látist af völdum veðurs og vonandi gerist það ekki. Annars er bara allt í góðu lagi hjá mér, ég er mjög ánægð með allt ljósið sem snjórinn gefur og finnst ég fá orku úr þessari birtu. (Svo reyni ég að halda mig innandyra, helst undir sæng með heitt kakó og góða bók) Fór í atvinnuviðtal í vikunni, fæ að vita um miðjan febrúar líklega hvað gerist í framhaldinu. Læt að sjálfsögðu vita þegar eitthvað fréttist. Þetta er semsagt starf hér í Kongsberg þar sem ég get nýtt menntunina mína með fyrri reynslu. Hafið það gott um helgina og þar til ég nenni að skrá mig hérna inn og skrifa línu aftur. Er ekki eðlilega löt að tjá mig hérna, sýnist þetta reyndar vera að ganga. Ætli þetta sé svona tjáskiptaflensa sem er að ganga?

fimmtudagur, janúar 12, 2006

Þetta er mikilvægt

Hérna eru mikilvæg orð... De fem friheter Friheten til å se og høre det som er istedenfor det som burde være, var eller kommer til å bli. Friheten til å føle som du gjør istedenfor det som du burde føle. Friheten til å si det du tenker og føler istedenfor det du burde tenke og føle. Friheten til å be om det du ønsker istedenfor å vente og se om du får det. Friheten til å ta sjanser på egne vegne istedenfor alltid å være på den sikre siden. - Virginia Satir Eiginlega finnst mér þetta mikið betur orðað á norsku en á ensku. Samt er þetta upphaflega skrifað á ensku. Kannski er það bara ég sem er orðin svona vön norskunni. Ég reyndi að þýða þetta yfir á íslensku en fannst það bara hljóma kjánalega. Svo ég læt þessar tvær útgáfur duga. Norskan af því að mér finnst hún falleg. Enskan fyrir þá sem eru ekki alveg með norskuna á hreinu. Hérna er þetta á ensku... The Five Freedoms The Freedom to see and hear what is here, instead of what should be, was, or will be. The Freedom to say what you feel and think, instead of what you should. The Freedom to feel what you feel, instead of what you ought. The Freedom to ask for what you want, instead of always waiting for permission. The Freedom to take risks in your own behalf, instead of choosing to be only "secure" and not rocking the boat - Virginia Satir

miðvikudagur, janúar 11, 2006

mánudagur, janúar 09, 2006

Til hamingju með daginn

Byrjum á kveðjunum... Anna frænka á afmæli í dag. Til hamingju með daginn :) Ég var annars að kíkja á Deigluna eins og ég geri af og til. Las eina skemmtilega grein hérna. Ég rak einmitt augun í þetta sama og greinarhöfundurinn.

fimmtudagur, janúar 05, 2006

Dagarnir koma og dagarnir fara, það er lífið.

Ég fæ mikla orku úr nýrri byrjun. Eins og til dæmis áramótum. Ég er dálítið upptekin af því þessa dagana að reyna að beina þessari orku inn á réttar brautir. Er að finna út úr því hvað mér finnst mikilvægt að nota orkuna í. Mér finnst mikilvægt að gera hluti sem ég hef gaman af og sem skilja eftir góða tilfinningu hjá mér. Ég hef ákveðið að í ár skal áramótaheitið ekki vera það að fara í megrun og milljón sinnum í ræktina. Ég er að verða fullorðin, enda kominn tími á það. Ég ætla að halda áfram að borða hollan mat eins og ég hef gert að mestu leyti á árinu 2005. Auðvitað er alltaf hægt að gera betur en það eru aðrir hlutir sem eru mikilvægari fyrir mig en að fullkomna matarinntökuna. Mitt markmið fyrir árið 2006 er að verða meðvituð. Meðvituð í eigin lífi og tilfinningum. Eftir því sem ég pæli meira í þessum málefnum skil ég ekki hvernig ég hef komist af þessi 29 ár án þess að vera meðvituð. En kannski er þessi meðvitund eitthvað sem maður tapar án þess að verða var við það? Eina setningu ætla ég að forrita mig með á þessu ári og framvegis: Dagarnir koma og dagarnir fara, það er lífið. Lífið er í dag, það er ekki eftir neinu að bíða! Ég fór á frábært námskeið í vikunni sem passaði vel inn í mínar pælingar. Fyrirlesarinn setti upp módel af manneskju. Og það var svona: 50% er :) (Frábært, gott og allir ánægðir) 30% er :| (Viðunandi, rútína og fastir liðir) 20% er :( (Óviðunandi, svartir blettir) 50% af því sem við gerum er æðislegt og allir eru ánægðir. 30% er hlutir sem verður að gera en er ekki sérstaklega skemmtilegt. 20% er hlutir sem við eigum erfitt með að horfast í augu við að við gerum, hlutir sem særa og gera öðrum erfitt fyrir. En allt er gott ef við erum meðvituð um 20 prósentin og vinnum markvisst í því að bæta okkur. Og eftir því sem við vinnum meira í okkur og tökumst á við fleiri galla því betri manneskjur verðum við. Svo sagði hún margt fleira á námskeiðinu en þessi mynd sem hún teiknaði fyrir okkur stóð uppúr. Ó hvað ég elska svona vakningarnámskeið, gæti hugsað mér að hlýða á svoleiðis oft í mánuði!!

sunnudagur, janúar 01, 2006

Gleðilegt nýtt ár

Kæru vinir og vandamenn! Langaði bara að þakka ykkur fyrir öll gömlu árin og óska ykkur gleðilegs og framgangsríks nýs árs. Þetta ár verður ár breytinga hjá okkur skötuhjúunum og hjá fleirum. Styrmir klárar skólann um mitt ár og það mun væntanlega hafa einhverjar breytingar í för með sér. Við erum ekkert að flýta okkur heim en það er vissulega á þriggja ára planinu. Draumarnir sem fylgja nýju ári eru margir og megi þeir allir rætast bæði fyrir okkur og ykkur. Ég get svarið að ég bara svíf yfir gólfinu í dag, ég er svo uppfull af gleði og væntingum til ársins 2006. Knús og kossar, Bryndís *high_on_a_happy_wave*