Ég hef ekkert nennt að blogga hér of lengi.
Það er samt ekki þannig að það sé ekkert í gangi. Ég er búin að vera í viðtölum hjá fyrirtæki hérna í bænum. Fæ svar í næstu viku hvað þeir ákveða að gera. Við erum 3 sem komumst í þetta seinasta viðtal. Allir að hugsa jákvætt fyrir mig :) Mig langar í þessa vinnu.
Annars er allt á kafi í snjó hérna í bænum, veit ekki hvað eru margir cm en það er NÓG AF SNJÓ allavegana. Krakkarnir eru farnir að velta út fyrir girðingarnar á leikskólanum liggur við. Það er nóg að gera að passa að enginn detti út fyrir, "svona alveg óvart".
Pínu þungt að labba í og úr vinnu en það hefst. Við skulum segja það þannig að ég hef ekki samviskubit yfir því að vera ekki farin að æfa. Kem alveg sveitt heim eftir hálftímalabb úr vinnunni. En það er ekkert hægt að setja út á ruðningskallana hér í bænum, þeir eru að allan sólarhringinn og þetta er alveg hreint ágætt hjá þeim. Þeir geta ekkert að þessu gert þó það kyngi niður snjó. Það er spáð pásu í snjókomu núna um helgina en það á að snjóa enn meira í næstu viku. Verður spennandi að sjá hvort við þurfum að fá mokstursþjónustu við að tæma garðinn í leikskólanum af snjó.
Það var forsíðufrétt í bæjarblaðinu að upp í einum dalnum hérna, Lyngdal, er snjóhæðin orðin 86 cm. Krakkarnir eru alveg í skýjunum, nóg af snjó!! Gott að vera ungur og þurfa ekkert að hafa áhyggjur af færð eða kostnaði við ruðninginn :D
Ég er nú ekkert að hafa áhyggjur af færðinni né kostnaðinum heldur. Veit að strætó gengur alltaf og þá er minns sáttur.
Um helgina ætlum við Styrmir að hafa það gott og fara út að borða. Þetta er búið að standa til ansi lengi en alltaf eitthvað sem hefur stoppað okkur að láta verða af því. Erum mest að spá í að fara á steikhús sem opnaði í sumar og heitir Big Horn. Eða bygårn eins og mér heyrist heimamenn segja alltaf. Merkilega fínir í enskum framburði þessir norsarar. Og ég er að verða alveg eins. Þegar maður reynir að bera það rétt fram þá skilur enginn hvað maður er að tala um.
Annars get ég sagt að ég er orðin dauðleið á þessu teiknimyndastríði. Ég trúi ekki helmingnum af þessum fréttum sem er verið að sýna hérna. Það er svo mikið af myndefni sem er sýnt í fréttum sem eru bara hreinn uppspuni og sviðsett. Múgæsingur og vitleysa. Getur fólk ekki bara lifað í sátt og samlyndi. (En nei, hvað ættu fréttamenn þá að segja frá?) Virðing til allra trúandi múslima sem fannst þetta mógðun. Það fólk er samt ekki brennandi fána, kastandi steinum og hótandi að drepa alla norðmenn, dani o.s. frv.
Rólegan, rólegan... Ég er farin að leggja mig. Bestu kveðjur