-Bryndís-

þriðjudagur, apríl 18, 2006

Ég er að flytja héðan

... frá blogger. Er að græja nýtt svæði á wordpress... Mig verður framvegis að finna hér

Tekist á við skrifteppuna

Það hefur sjaldan verið svona erfitt að skrifa færslu hérna. Hef verið haldin algjörri skrifteppu undanfarið. Átti yndislega páska með frænkunum mínum sem komu í heimsókn til mín. Anna og Marta komu fljúgandi á pálmasunnudag og héldu heim á leið á páskasunnudag. Þær komu færandi hendi með dýrindis lambakjöt, kaffið góða og fleira gotterí. Ég var að vinna mánudag og þriðjudag og þá sá Styrmir um að sýna þeim Kongsberg. Var svo í fríi á miðvikudag og við frænkurnar fórum í skemmtiferð til Osló. Ég náði að sýna þeim nokkrar búðir á Karl Jóhan og svo fórum við í Vigelandsgarðinn. Ég var bílandi í fyrsta skipti í Osló og það gekk svona ljómandi vel. Á fimmtudaginn skoðuðum við okkur um hérna í nágrenni Kongsberg, fórum meðal annars upp á fjall í Knutehytta og fengum okkur kaffi og vöfflur/súkkulaðiköku. Á föstudaginn fórum við frænkurnar upp á skíðasvæði í blíðviðrinu, þar sem ég og Marta fengum lánaðar snjóþotur og renndum okkur í brekkunum. Höfðum með nesti, drukkum kaffi og borðuðum eplaköku. Ekta páskastemming með hinum túrglöðu norðmönnunum, sem brældu bál til að grilla sér pylsur og svona. Á laugardaginn elduðum við páskalambið, sem var þá búið að liggja í meira en sólarhring í æðislegri marineringu sem innihélt eina papriku en ekki tvær ;) Mjög gott kjöt og vel heppnuð máltíð í alla staði. Vert að minnast á sveppasósuna sem er mitt uppáhald. Annars höfðum við það mjög gott alla vikuna, borðuðum góðan mat, spiluðum á spil og nutum þess að vera í góðum félagsskap. Marta var "þjófa"meistari vikunnar án efa, ansi snjöll í spilunum. Takk fyrir yndislega heimsókn og verið velkomnar aftur

mánudagur, apríl 17, 2006

Your Birthdate: August 27
You are a spiritual soul - a person who tries to find meaning in everything. You spend a good amount of time meditating, trying to figure out life. Helping others is also important to you. You enjoy social activities with that goal. You are very generous and giving. Yet you expect very little in return.
Your strength: Getting along with anyone and everyone
Your weakness: Needing a good amount of downtime to recharge
Your power color: Cobalt blue
Your power symbol: Dove
Your power month: September