-Bryndís-

laugardagur, apríl 27, 2002

Það er nákvæmlega ekkert að gerast :( ég er í fýlu!! en það þýðir víst lítið, ég er búin að sitja í allan dag en samt gengur ekkert, það er ekki eitt verkefni leyst í dag ég hlýt að vera að safna stigum einhvers staðar?!! ætla að vera klukkutíma í viðbót til hálfníu núna eru nákvæmlega 12 tímar síðan ég vaknaði í morgun :) alltaf gaman að hugsa út í klukkuna...

föstudagur, apríl 26, 2002

WoW stundum líður manni bara svo illa!!!!! en mér líður betur núna... þó það sé í rauninni engin ástæða í heiminum til þess verkefnið er stopp þar til ÉG finn eitthvað til þess að bæta við það svo hægt sé að finna út úr þessu rugli kemur í ljós á morgun hvernig þetta allt saman fer en á meðan lítið á Huga til dæmis... fín síða og margt áhugavert þar

Komdu og talaðu við mig ég þarf á þér að halda núna annars veit ég ekki hvort ég þarfnast einhvers lengur ég skelf inn í mér ég er ráðalaus hugsunarlaus ekkert nema kvíði þetta er sárt

fimmtudagur, apríl 25, 2002

Æji stundum er bara erfitt að vera til... ég er að jafna mig samt :| mig langar ekki til að vera að gera það sem ég er að gera alltaf eitthvað annað!! ég vil bráðna í örmum þínum Bjargaðu mér!! ::ég::vil::vera::hjá::þér::

miðvikudagur, apríl 24, 2002

Ég er ekki stressuð... Ég er ekki stressuð... Ég er ekki stressuð... eða kannski bara pínu. En ég reyni allavegana að vera ekki of stressuð... takk fyrir mig! Góða nótt,,,

mánudagur, apríl 22, 2002

Stóru steinarnir fyrst!!! Dag einn var sérfræðingur í tímaskipulagningu að tala fyrir framan hóp viðskiptafræðinema. Til að koma merkingunni almennilega til skila notaði hann sýnikennslu sem nemendurnir gleyma aldrei. Þar sem hann stóð fyrir framan þennan hóp af metnaðarfullu fólki sagði hann: ,,Jæja, þá skulum við hafa próf." Hann tók upp 5 lítra krukku með stóru víðu opi og setti hana á borðið fyrir framan sig. Svo tók hann um það bil 10 hnefastóra steina og varfærnislega kom hann þeim fyrir í krukkunni, einum af öðrum. Þegar krukkan var full og ekki hægt að koma fleiri steinum í hana spurði hann: "Er krukkan full?" Allir í bekknum svöruðu já. "Jæja" sagði hann. Hann teygði sig undir borðið og tók upp fötu með möl. Því næst sturtaði hann smá möl í krukkuna og hristi hana um leið, sem orsakaði það að mölin komst niður í holrúmin á milli stóru steinanna. Svo spurði hann hópinn aftur: "Er krukkan full?" Í þetta sinn grunaði nemana hvað hann var að fara. "Sennilega ekki" svaraði einn þeirra. "Gott!" svaraði sérfræðingurinn. Hann teygði sig undir borðið og tók upp fötu af sandi. Hann hellti úr henni í krukkuna og sandurinn rann í öll holrýmin sem eftir voru milli malarinnar og stóru steinanna. Enn spurði hann: "Er krukkan full?" "Nei!" æptu nemendurnir. Aftur svaraði hann. "Gott!" Hann tók því næst könnu af vatni og hellti í krukkuna þar til hún var alveg full. Svo leit hann á bekkinn og spurði. "Hver er tilgangur þessarar sýnikennslu?" Einn uppveðraður nemandinn rétti upp höndina og sagði: "Tilgangurinn er að sýna að það er sama hversu full dagskráin hjá þér er. Ef þú virkilega reynir geturðu alltaf bætt fleiri hlutum við!" "Nei" svaraði sérfræðingurinn. "Það er ekki það sem þetta snýst um. Sannleikurinn sem þetta dæmi kennir okkur er þessi: Ef þú setur ekki stóru steinana í fyrst, þá kemurðu þeim aldrei fyrir." Hverjir eru stóru steinarnir í þínu lífi? Börnin þín? Fólkið sem þú elskar? Menntun þín? Draumarnir þínir? Verðugt málefni? Að kenna eða leiðbeina öðrum? Maki þinn? Gera það sem þér þykir skemmtilegt? Tími fyrir sjálfa(n) þig? Heilsa þín? Mundu að setja STÓRU STEINANA í fyrst eða þú munt aldrei koma þeim fyrir. Ef þú veltir þér upp úr litlu hlutunum (mölin, sandurinn, vatnið) fyllirðu líf þitt með litlum hlutum sem skipta í raun ekki máli og þú munt aldrei hafa þann tíma sem þú þarft til að eyða í stóru mikilvægu hlutina í þínu lífi (stóru steinarnir). Sem sagt, í kvöld eða í fyrramálið þegar þú hugsar um þessa stuttu sögu, spurðu sjálfa(n) þig þá þessarar spurningar: "Hverjir eru stóru steinarnir í mínu lífi?" Settu þá svo fyrst í krukkuna!

sunnudagur, apríl 21, 2002

jæja margt hefur gerst síðan síðast :) búin að fá einkunn... 9,3 í prófinu og þá 9 í kúrsinum :) partý í gær, það var rosa gaman :) -grillað lambakjöt og kartöflur, nammi namm... -partý fram eftir nóttu, allt fór vel fram ;) svo er maður kominn aftur á fastastaðinn í dag reynir að rembast við að koma einhverju frá sér ég elska þig, elsku litli skógarbjörn (",) 33 dagar to go...

fimmtudagur, apríl 18, 2002

æji rusl... var að reyna að setja inn svona javascript dótarý en það var ekki að virka..... jæja ok, manual þá :| það eru ennþá 37 dagar þar til ég verð búin í skólanum... þetta er eitthvað furðulegt... ég taldi greinilega vitlaust þarna síðast hehe en kannski ef ég hugsa að 23. maí verði síðasti dagurinn sem ég þarf að gera eitthvað... hmmm allavegana, þá verður einkunnin fyrir lokaverkefnið birt þá :) bæjó.... ps. ég er ógislega svekkt að vera ekki ennþá komin með einkunn út Tölvusamskiptakúrsinum :(

mánudagur, apríl 15, 2002

Ég er búin í prófunum jeiiiiiii !!!!!! nú er bara lokaverkefnið eftir fram í maí :) og nú ætla ég að slæpast í allan dag af því tilefni, hehe nú eru bara 37 dagar þar til ég verð búin í skólanum á þessari önn...

laugardagur, apríl 13, 2002

Bráðum verð ég búin í prófunum, ligga ligga lái... ég get varla beðið eftir að ég verði búin með skólann í vor og fái að fara og vera með kallinum mínum!!! núna er hann úti að djamma og ég sit hérna heima á klakanum að læra, bráðum allavegana... :) ég sakna hans og vildi að ég væri hjá honum :(

fimmtudagur, apríl 04, 2002

vá hvaða dagur er eiginlega í dag?? í morgun þegar ég var að taka strætó í skólann klukkan korter í átta var uppdópuð stelpa að finna sér kúnna í strætóskýlinu... ferlega ógeðslegt, ég vorkenndi stelpunni ekkert smá.. greinilega illa farin af dópi og fleira... samt svo ung, ábyggilega ekki orðin tvítug. svo er ég búin að lesa fréttirnar og þar er talað um fólk sem hefur verið að brjótast inn og sofna og fólk sem er að sofna í miðbæ akureyrar, ölvunarsvefni or something.... hvaða dagur er eiginlega í dag? ég get ekki hætt að hugsa um þessa stelpu þar sem hún pikkaði upp einhvern útlending... rússa eða eitthvað slíkt og hann var greinilega bara mjög sáttur... ojjjj. hún sjúskuð með maskara út um allt andlit og öll eitthvað ónýt. sorglegt :( þetta er nú sjálfsagt ekki það óalgengt en það er bara ég sem bý í svo vernduðu umhverfi og sé ekki svona lagað venjulega. í Osló sá ég líka mikið af svona fólki sem var einhvern veginn svo hrikalega illa á sig komið, labbandi á tunglinu og eitthvað rugl. þetta er bara svo fáranlegt og ætti ekki að gerast t.d. í Noregi ríkasta landi í heimi og Íslandi "saklausasta" landi í heimi?

miðvikudagur, apríl 03, 2002

-Óska eftir verndarengli-

ég er svo þreytt... mig langar óskaplega að einhver hugsi um mig og knúsi mig... sjálfstæðið er svo einmannalegt þessa stundina,,, stundum vill maður bara grúfa sig oní hlýja bringu eða tárast á vinalega öxl og láta segja sér að allt fari vel.,.,., en jæja það þýðir víst ekkert að segja svona, verð bara að þrauka! finn samt hvernig kuldinn umlykur hjartað mitt og veit að það verður aldrei samt við sig, það verður ekkert við því gert úr þessu.

Home sweet home!!! whatever ... Mig langar bara ekkert að vera hérna alein heima hjá mér :( ég er alveg ákveðin í að fara út í sumar og vera að vinna og leika mér!! Helgin var æðisleg, ekki spurning! Ég hefði ekki viljað sleppa henni fyrir neitt annað... en svo er dálítið vandasamt að sætta sig aftur við hinn napra raunveruleika að maður þurfi að takast á við leiðinlega hluti og klára verkefni og fleira svoleiðis... en þetta kemur það eru BARA átta vikur þar til ég verð alveg búin í skólanum!!! hvað eru það aftur margar sekúndur, bara að spauga :) hef ekkert meira að segja annað en hæ ástin mín :þ