Ojjj hversu svekkjandi er það að eiga frí í fyrstu tveim tímunum og mæta til að gera hópavinnu og hinn aðilinn mætir ekki!! :þ hér er ég að surfa og láta mér leiðast þegar ég hefði getað sofið til níu og mætt núna í skólann en ekki klukkan átta. Mig langar ógislega að fara í Smáralind í dag og versla mér einhver föt... allavegana skoða eitthvað sniðugt! Sé til hvort ég eigi einhvern tíma lausan. Ég bara verð að fara að finna mér buxur og skó og úlpu og peysu og húfu og trefil og vettlinga og ... og ... og.... svo framvegis :D Gott mál... ég vona að Smáralind reyni að vera öðruvísi og sé ekki búin að hengja upp þetta ógeðfellda jólaskraut sem mér finnst vera algjörlega óviðeigandi svona á miðju hausti :o !!!!
fimmtudagur, október 31, 2002
miðvikudagur, október 30, 2002
úffffff Það er nú farið að styttast í jólin en ef haft er til hliðsjónar teljarinn minn hérna til hliðar þá eru 1 heill mánuður og 25 dagar til jóla!!! Það eru eiginlega 2 mánuðir :/ Ég þarf ekki á að halda svona miklu jólaskrauti 1/6 af árinu sko!! Mér finnst persónulega að Kringlan ætti frekar að gefa mér peninginn sem það kostar að hafa ljós á þessu öllu saman, í október og nóvember, svo ég hafi efni á að koma þangað og kaupa jólagjafir yfir höfuð :D Þetta er kannski svo maður venjist birtunni smám saman? annars myndum við öll fá ofbirtu í augun 1. des og enginn myndi sjá allt draslið sem á að selja okkur fyrir jólin? Pæling!!!?!! Annars er ég alveg farin að hlakka til jólanna sko, bara þarf ekki allt þetta skraut til að hlakka meira til.
Mikið lifandi skelfingar ósköp verð ég fegin þegar ég verð búin í þessu skelfilega, ógeðslega fagi "markaðsfræði frá helvíti 101"!! ég held að ég ætli ekki einu sinni að eyða fleiri orðum í þetta :s ég ætla að fara heim og reikna stærðfræðidæmi, það hlýtur að láta mér líða betur... þetta getur allavegana ekki versnað úr þessu.
Og mætti hann semsagt gera þetta allt ef ekki kæmi til nálgunarbannið??? eftir því sem mér skilst má hann það?? hmmmm
þriðjudagur, október 29, 2002
Ó hvað ég er hamingjusöm, var að laga archive-in á bloggnum mínum og losnaði við leiðindabögg í leiðinni :D var búin að kalla út hjálparsveit en gat svo afturkallað hjálparbeiðnina :) Takk samt Iðunn mín, þú ert nú alltaf svo hjálpleg :D
Nokkuð mikið til í þessu.
mánudagur, október 28, 2002
Djö... er mikil hálka úti!!! Ég skautaði alla leiðina frá strætóstoppistöðinni og heim hehe. Þetta er almennilegt, kemur snjór og hálka allt í einum pakka, ég er nú allavegana mjög sátt við að hafa bara svona oggulítið frost... ég er t.d. mjög fegin að búa ekki við Mývatn þar sem mældist 22 stiga frost( já það er í mínus) brrrrrrrrrrr. Ég hef ekkert að segja, hef varla bloggað svo dögum skiptir en það lýsir því nú helst hvað það er ofsalega lítið um að vera hjá mér. Fór í mat á Laufvanginn um helgina, bæði laugardagskvöld og sunnudagskvöld, minns heppinn að þurfa ekki að elda aleinn :D Svo var ég ég bara nokkuð dugleg að læra á sunnudaginn... svona þannig ;) Í dag fór ég í þetta blessaða case-study próf, við vorum að spá í að skreyta skilablaðið, teikna blóm og lita þau og svona,,, en þegar kom til þá nennti því enginn svo við skiluðum þessu bara svona handskrifuðu og grámygluðu... rosalega verðuru það nú interesting að komast að því hvað mar fær svo í einkunn fyrir þetta useless drasl!! Eftir jól!!!! Einmitt, þetta er ekki hemja, það er farið fram á ýmislegt af nemendum en að það sé ekki hægt að fara fram á það að tveir kennarar fari yfir 20 svona case innan ákveðinna tímamarka er auðvitað bara hneyksli og ætti ekki að þekkjast á háskólastigi!! Þetta mun allt koma fram í kennslumatinu sem fer einmitt fram í næstu viku (djöfullegt glott í bakgrunni) múahahaha. Fór í Sporthúsið áðan í MRL kl. 17:20, það var bara ferlega fínt :D Dró Hrönn með mér, vona að hún geti komist sem oftast, miklu skemmtilegra að fara með einhverjum í ræktina og veitir smá aðhald ;)
Ég er svo hamingjusöm yfir þessum örfáu snjókornum sem hlunkast niður í dag, fékk alveg hjartakipp í morgun þegar ég hljóp til að ná strætó í morgun :D En kannski bara kannski hefði ég aðra skoðun ef ég væri búin að þurfa að vera úti í dag, að berjast áfram í gegnum hríðina með tvær töskur og snjókornin að fljúga upp í augun á mér.... hmmm. Þetta er allavegana mjög fallegt svona út um gluggann ;)
sunnudagur, október 27, 2002
| You are 21% geek | |
| OK, so maybe you ain't a geek. You do, at least, show a bit of interest in the world around you. Either that, or you have enough of a sense of humor to pick some of the sillier answers on the test. Regardless, you're probably a pretty nifty, well-rounded person who gets along fine with people and can chat with just about anyone without fear of looking stupid or foolish or overly concerned with minutiae. God, I hate you. | |
laugardagur, október 26, 2002
brp... ég eldaði mér heitan mat, jeiiii. í annað skiptið í vikunni, ég var orðin pínu þreytt á brauði með osti og brauði með kæfu :| ég átti þetta sko vel skilið eftir annasama viku að koma heim úr bónus klyfjuð af farangri og pínu matarkyns í poka og gefa mér tíma til að setjast niður og borða :D ég fór í baðhúsið eftir skóla, púlaði og fór svo í pottinn og dó í svona eins og hálftíma... þvílík sæla! ég ætla að fara í baðhúsið aftur í fyrramálið, reyna að ná í suðræna sveiflu... alltaf stemming ;) ég er löt og nenni ekki að skrifa meir... ætla að fara að sofa rétt bráðum ;)
fimmtudagur, október 24, 2002
Mér finnst msn vera algjör snilld, ég gæti miklu frekar verið án gsm símans heldur en msn!!!! ég var til dæmis að prófa nýtt í gær að spjalla með headsett í gegnum það og það bara virkar svona rosalega vel :D nú get ég t.d. talað við Styrmi í sólarhring á msn fyrir sama pening og einn klukkutíma hjá okkar elskulega landssíma!!! og ég var að fá mér afsláttarleiðina sem gefur mér 20% afslátt af internetsímanotkuninni svo núna verð ég bara á netinu fram í desember ;) en allavegana voðalega er maður seinn að taka við sér að fá sér svona afslátt sem er í boði frítt!! ekki það að landssíminn er nú kannski ekki að senda mér nein skilaboð um að ég megi fá eitthvað fríkeypis hjá þeim hehe... en þetta er semsagt allt til batnaðar :D ojjj ég er að mygla á þessu markaðsfræðiverkefni sem ég er að gera hérna... er ekki að nenna þessu :þ þarf að vera hérna upp í skóla til allavegana átta,,,, fer að hitta hópinn kl. 18 og ég er viss um að þetta á eftir að taka dáldinn tíma að hamra þessu saman í nothæft skjal sem við getum svo lært utan að fyrir mánudaginn, andskotans useless druslufag... það er nú ekki eins og mar sé að læra eitthvað mikið á þessu og fáum svo ekki einkunn fyrr en eftir að við erum búin að ná lokaprófinu,,, svo núna erum við að gera svona case-study í annað skipti en höfum ekki hugmynd um það hvort að fyrra dótið var rétt :( heimska druslufag!! well glad to have got that out of my system :D mig langar svo í eitthvað gott að borða!! well kannski á morgun
miðvikudagur, október 23, 2002
Það er miðvikudagur og ég bara svíf hérna í tómri hamingju :D Var með saumó í gærkvöldi og bauð Hrönn, Björk og Eygló, þetta var rosalega gaman, kjaftaði á okkur hver tuska alveg framundir miðnætti. Víða komið við í umræðunni, mjög málefnalegt samt, eins og alltaf hjá okkur :) Ég eldaði svona grænmetislasagna alveg hrikalega gott... ooog ég á afgang í matinn í kvöld jeiiii. Svaf barasta nokkuð vel í nótt og er búin að vera svona hamingjusöm með daginn alveg hreint í allan dag nánast... ég er næstum smeyk, ekki svo oft sem skóladagar eru svona góðir, hmmmm. ég er á leiðinni í baðhúsið núna, er ekki alveg að nenna út í kuldann og rokið, gleymdi vettlingunum mínum heima :( svo væri nú líka hrikalega gaman að vera að fara að æfa með einhverjum öðrum ekki alltaf ein að þvælast... ótrúlegt hvað fólk leggur á sig bara til þess að þurfa ekki að æfa með mér... fer í bakinu og liggur í flensu og svona. hahaha Nei en ég vona nú þeirra vegna að þær fari að jafna sig og komist á fætur og upp úr rúminu bráðlega... annars eiga þær nú barast ekkert í mig ;) LOL Var að fá gefins svona headsett í gær svo ég ætla að prófa að "hringja" í Styrmi í gegnum MSN... ætti að bjarga útlandasímreikningnum mínum til muna ;) nú þarf ég bara að finna peningatré á leiðinni heim og þá verður allt í fínu :D verst ef að uppskeran lifir ekki af frostið... bara skorpnaðir og uppþornaðir hundraðkallar liggjandi um allt... kannski er bara hægt að setja þá í ofninn og þá verða þeir sléttir og fínir aftur??? Einmitt, nú ætla ég að fara að hlaupa niðrí Baðhús sem fyrst... greinilega komin í þörf fyrir fá útrás og svitna!!
þriðjudagur, október 22, 2002
Jæja ég er mætt í skólann fyrir kristilegan tíma að mínu mati, fékk far með elskulegu systrum mínum. Ég er svo syfjuð að ég sé varla á skjáinn :$ hehe. ég er orðin blond again :D Skrapp í klippingu í gærkvöldi til bestu frænku og hún gaf mér strípur og klippingu... jeiiii. No more sheep colors!!! æts ég bara veit ekki hvað er að gerast meira í heiminum núna, meira þegar ég er betur vöknuð, hugsanlega! ;) og ég verð víst að taka það fram að klukkan er 7:55 ekki 8:55 eins og blogginn sýnir!!!
mánudagur, október 21, 2002
Hey þessi pixie-beygla er ekki alveg í lagi... sýnir 2°c hita og er svo á stuttermabol með bert á milli??? Þó að það sé nú einhver smá sólarglæta þá er það nú ekkert til að vega upp á móti norðanáttinni sem smýgur upp um og inn um allt, brrrrrrrrr. Ég sit hérna INNI í tveimur peysum og er bara ekkert of hlýtt!!! Og nei þær ná alveg yfir naflann,,, ég er nú ekki þekkt fyrir að ganga mikið um með bert á milli ;)
Hver er munurinn amatörforritara og atvinnuforritara? Svar: Amatörinn heldur að 1kbyte sé 1000byte og atvinnuforritarinn heldur að það séu 1024m í einum Km LOL!!! nördahúmor bregst ekki :D
sunnudagur, október 20, 2002
Á hvaða tíma ætti ég að vera stillt?? Hélt það ætti að vera GMT ? Tíminn kemur samt alltaf vitlaust út, urrrgggg. kl. 23:00 :)
Þetta var yndislegur laugardagur :) Fór og verslaði mér pínu í matinn... bakaði svo köku og fékk vinkonurnar í heimsókn. Heiða kom með súkkulaði og mjólk og Björg gerði heitt súkkulaði fyrir okkur, ferlega kósý í svona vetrarkulda, brrrrrrr. Svo borðuðum við kökur og góðgæti og spjölluðum saman. Alltaf gaman að hittast og spjalla um daginn og veginn. Stundum virðist líða langt á milli sem maður hittir vini sína svona. Fór að spá í þetta um daginn, enginn er ódauðlegur, hvað ef ?... af hverju lætur maður samt þannig eins og það komi ekki fyrir mann sjálfan. Af hverju eyði maður ekki meiri tíma með þeim sem manni þykir vænt um? Ég fór að spá í þetta og af því að maður heldur að maður lifi að eilífu þá er maður kannski ekki mikið að spá í hvað maður eigi eftir að gera áður en eilífðin tekur við. Ekki það að það er ábyggilega ekki hollt að velta sér upp úr þessu neitt of mikið, þá verður maður bara þunglyndur. En ég gat ekki sagt eitthvað eitt sem ég ætti örugglega eftir að gera áður en ... ég veit þó að ég myndi vilja knúsa Styrmirinn minn allavegana einu sinni enn. En svona aðrir hlutir þá dettur mér ekkert mikið í hug. Er það vegna þess að ég líð áfram í gegnum lífið án þess að hugsa. Mér finnst ég ekki vera komin "þangað" ég er alltaf ennþá á leiðinni eitthvað og þess vegna er lífið ekki ennþá byrjað alveg, ef þetta meikar einhvern sens?? Jæja þetta er kannski dáldið þungt umhugsunarefni svona á laugardagskvöldi, ég er ekki í neinu þunglyndiskasti fjarri því. En það er einhver heimspeki dáldið á ferðinni í hausnum á mér þessa dagana :)
laugardagur, október 19, 2002
Fólk hefur komið að máli við mig og kvartað yfir því að ég sé löt að blogga... ég verð að fara að bæta mig :) Styrmir minn er að koma heim um jólin, hann er búinn að kaupa miðann. Svo þetta er ákveðið. Gott að vita það bara, þá þarf ekkert að velta því neitt meira fyrir sér. Og ég get farið að telja dagana :D Í dag eru 62 dagar þar til hann kemur, jeiiii. Það er laugardagur og ég er að fá stelpurnar i kaffiboð... ég sit hérna á náttfötunum og þær koma eftir u.þ.b. fjóra tíma... ég ætti kannski að fara að baka þessa köku sem ég ætlaði að baka, hmmm. það er að verða kalt hérna, pixie-inn minn er kominn í úlpu... hætt að vera ber á milli. Þvílíkur léttir,,, ég hélt kannski að það kæmi bara ekki vetur í vetur. Væri bara eitt langt haust fram á sumarvorið. Rosalega hefði það nú verið leiðinlegt. Ég horfði á fína mynd í gærkvöldi, Kate&Leopold, voðalega sæt ástarsaga um stelpu frá 21. öldinni og strák frá 19. öld sem verða ástfangin. Tímaferðalög koma við sögu. Mæli með henni. Mér finnst Meg Ryan líka frábær leikkona, svo mikil dúlla eitthvað. Hún var samt ekki svona alveg týpísk hún í þessari mynd. Fór í Kringluna í gær að leita mér að buxum, var ekki alveg að finna það sem ég leitaði að. Afhverju er þetta svona, þegar mar er ákveðinn í að kaupa eitthvað og búinn að taka frá pening þá finnur mar það ekki. En ef ég hefði farið í Kringluna ákveðin í að kaupa ekki neitt þá hefði ég sjálfsagt fundið alklæðnað á stundinni :) Nú verð ég bara að fara að gera eitthvað, times fun when you're having flies... :)
miðvikudagur, október 16, 2002
Ok kominn tími á smá bloggerí... það sem mig langar helst að vita núna er tvennt og bæði atriðin viðkoma íþróttaálfinum Magnúsi Scheving: 1. Hvað var hann að reyna að selja í "Ísland í dag" í gær? 2. OOOG AF HVERJU VAR HANN Í NÁTTSKYRTU AF ÖMMU SINNI? og hélt hann virkilega að fólk myndi taka eitthvað mark á honum í þessum bol/peysu??????? (Svo er ég næstum viss um að hann hefur fengið þennan óskapnað í einhverri af þessum "tískuvöruverslunum" hér í borg. ojjjj.)
mánudagur, október 14, 2002
Í tilefni af fyrstu föllnu snjókornunum í Noregi í dag þá átti ég svona skemmtilegt samtal um snjó: Bryndís says: það er byrjað að snjóa pínku í noregi!!!! Bryndís says: komu nokkur korn í dag Bryndís says: það þýðir víst að það er að koma vetur,,, eða eitthvað svoleiðis Björg says: ohh ég hlakka ekki til þegar byrjar að snjóa Bryndís says: nibbb Bryndís says: það kemur ekki alveg strax til okkar Bryndís says: held ég Bryndís says: mér finnst það samt svo flott þegar er logn og snjóar og snjóar og það er myrkur úti Bryndís says: æ mig hlakkar eiginlega pínu til þegar fyrsti snjórinn kemur, mér finnst það svo rómantískt Björg says: já reyndar Björg says: það er það Bryndís says: reyndar er slabb alveg þvílíkt turn-off!!! Björg says: já Björg says: ég veit Björg says: en hvítur snjór nýfallinn Björg says: jömmí Björg says: það er alveg satt Björg says: svo bjart og næs úti Bryndís says: já ég veit, mann langar bara til að kasta sér í næsta skafl og hlæja og hlæja Mér finnst snjór fallegur og mig langar alltaf til að deila honum með einhverjum, sérstaklega að fara í göngutúr með þeim sem maður elskar, langan göngutúr, heyra braka í snjónum og haldast í hendur. Verða pínu kalt og sjúga upp í nefið. Labba lengra og svo þegar við erum næstum komin heim að byrja að prakkarast og kasta snjóboltum í hvort annað. Samt ekkert gaman að fá einn í hausinn *roðn*. Mér finnst snjór flottur. Sérstaklega þegar það falla niður svona stórar stórar flyksur og tréin eru alveg þakin í snjó. Allt verður að snjóveröld í smá tíma. Svo friðsælt og fallegt :) Eru engin tvö snjókorn eins??
sunnudagur, október 13, 2002
Ég er búin að vera svo dugleg að læra í dag, er bara frekar stolt af sjálfri mér. Ég var nefnilega bara oggulítið löt í gær... hmmm var ég að viðurkenna þetta? Ég horfði á nýja þáttinn Laugardagskvöld með Gísla Marteini, rosalega er hann Gísli Marteinn nú fínn í sjónvarpinu. Svo fagmannlegur og alveg laus við einhverja smeðjustæla eða yfirborðskennd. Bara virkilega mikið í hann varið. Óskandi að það væri til meira af svona "real" fólki. Það er svo gaman að taka svona próf:
take the non-offensive quiz.
and go to mewing.net. laura = great.
laugardagur, október 12, 2002
ég er núna að slæpast á netinu og er að hlusta á einn af fáu góðu diskunum sem ég á... Röyksoppe... er að fíla þá geðveikt! Áðan var ég að hlusta á Vilhjálmi Vilhjálmssyni, frábært lag með honum Einni þér ann ég... ef þið hafið möguleika ættuð þið endilega að hlusta á það og tjútta jafnvel aðeins með :) Gerði þesssa þvílíku uppgötvun að maðurinn á bara snilldargóð lög og bara hrúguna af þeim meira að segja!
föstudagur, október 11, 2002
Nú skil ég loksins :D Af hverju brjóstin á mér eru að hverfa!! LOL
Jæja, það er föstudagsbloggið... Vikan hefur einkennst af stressi og gráu veðri flesta dagana. Ég var í stærðfræðiprófi í dag, vona að ég nái því... er búin að læra stærðfræði svona 2/5 af þessari viku held ég... hef sjaldan lært jafn mikið og jafn lengi og núna. Samkvæmt simplex aðferðinni gæti ég kannski hafa hámarkað árangur minn með því að læra u.þ.b. 4/5 en með því að eyða út með Gauss Jordan aðferðinni þá sá ég að ég myndi aldrei halda geðheilsu á þann hátt. Og þar sem að alþjóða gerðheilbrigðisdagurinn var í þessari viku tók ég tillit til þess og held að ég hafi náð að hámarka getu á móti vilja og fengið út sæmilega niðurstöðu. Helgin mun verða undirlögð af fjárhag og bókhaldi með stuttum hléum þar sem mögulega verður neytt fæðu og vökva og kannski reynt að horfa á fræðsluþætti í sjónvarpskassanum. Ég er pínu uppgefin, þess vegna ætla ég núna að fara og hlaupa og svitna í Baðhúsinu... svo kannski tjái ég mig frekar eftir það ;) en fyrir þá sem eru löngu hættir að lesa þessa þvælu, segi ég bara góða helgi!!!
fimmtudagur, október 10, 2002
Meyjan (23.ágúst - 22.sept) Þú krefst árangurs af þér og ættir því aðeins að slaka á. Lífið tjáir sig á breytilegan hátt og þegar meyjan lærir að gefa það sem hún helst kýs að eiga hefur hún áhrif á dans eigin vitundar á jákvæðan máta. Taktu daglega ákvörðun um að aðstoða náungann og gleymdu því ekki að áhrifamestu gjafirnar eru ekki efnislegar. Þegar þú leitar eftir því að bæta úr þörf þeirra sem leita til þín, mun allt annað veitast þér. Stjörnuspáin í boði www.spamadur.is
Ok þetta er að skána :} Dagurinn var það slæmur að hann gat bara ekki annað en besnað... ég er búin að reikna í allan dag og gengur svona þvílíkt vel keep up the good work :D
Það er EKKERT gaman í dag!! - það rigndi mikið á mig í morgun - mér er kalt - ég fór ALLTOF SEINT að sofa - ég á eftir að læra alltof mikið - ég er alltof mikið ekki að nenna því = Það er ekkert gaman að vera ég í dag :( Please do not try to cheer me up, it's not worth the bother :( úfffffffff
miðvikudagur, október 09, 2002
Þetta var í mogganum í dag
Gleymdi sér við tölvuna
Suður-Kóreumaður lést í gær eftir að hafa spilað tölvuleik samfellt í 86 tíma. Maðurinn, sem var 24 ára og atvinnulaus, lést á netkaffihúsi í borginni Kwangju, en vitni segja að hann hafi setið þar frá því á föstudag án þess að taka sér hlé til að borða eða sofa. Maðurinn missti meðvitund á þriðjudagsmorgun en komst fljótlega aftur til meðvitundar. Hann fannst síðan látinn á snyrtingu kaffihússins nokkru síðar.þriðjudagur, október 08, 2002
mánudagur, október 07, 2002
Mánudagur ...
mánudagar eru æðislegir... sérstaklega þegar sólin skín og allir eru í góðu skapi. Þú kaupir þér ís og rúntar niður laugaveginn. Þú ferð í búðir og kaupir þér flott föt. Þú borðar góðan mat með skemmtilegu fólki. Þú horfir á góða mynd og hugsa með þér, rosalega er ég nú glöð að hafa séð þessa mynd, ég hefði ekki viljað missa af henni. Það er definitely ekki svoleis mánudagur í dag!! Það er bara skýjað og skóli. Ooooog ég þarf að læra undir stærðfræðipróf :} jeij... og á morgun þarf ég að taka strætó í skólann jeij, orka ekki einu sinni að lyfta upp hendinni til að taka undir þetta jeij... úfff. ;) en ég er samt í góðu skapi því ég er búin í skólanum í dag og ætla að hendast út í bíl og hlusta á Eva Cassidy syngja fyrir mig :D Helgin var fín, laugardagskvöldinu var eytt í afvötnun í mjög góðum potti á álftanessvæðinu... ég var með þvílíkar rúsínutær og rúsínuputta þegar ég nennti loksins að standa upp úr pottinum!! Æðislega kósý og meira segja sást aðeins í nokkrar stjörnur og alles. Svo horfði ég á Shrek í skvilljónasta skiptið, þetta er bara svoooo góð mynd, ég get horft á hana aftur og aftur og aftur. Sérstaklega asninn, hann er uppáhalds fígúran mín.föstudagur, október 04, 2002
Hér í bakgrunni er verið að spila tölvuleikinn UT2003, mjög skemmtilegt!! "Red team on offense" "Blue team on offense" "Blue fumbles" "Blue team on offense"... virkar mjög fjölbreytt ;) "Red fuuumbles" "Blue team on offense" etc, etc, etc.... Fine by me, ég fæ að surfa á netinu og nota alla adsl(512) tenginguna á meðan :þ
Fös 4.10.2002 Meyjan (23.ágúst - 22.sept) Meyjan býr yfir mjög jákvæðum eiginleika sem felst í því að vera fær um að lýsa upp umhverfi sitt með nærveru sinni einni saman ef hún aðeins lætur áhyggjur af því hvað aðrir hugsa um hana lönd og leið. Mannfagnaður einkennir umhverfi þitt hér þegar helgina framundan er tekin fyrir. Þú setur þér háleit markmið og ættir daglega að efla eigin styrk í átt að draumum þínum. Stjörnuspáin var í boði Spámaður.is
I'm exceptionally artistic! Find your soul type at kelly.moranweb.com.
góður punktur : Why wings?? Myndir þú vilja svona? þetta er líka ótrúlega cool ;) hehe
Búin í prófum í þessari viku, jeiii... núna er bara að fara að byrja á verkefnum næstu viku, skilaverkefni á mánudag og próf á föstudag í stærðfræði... og fleira og fleira. Ég ætla nú samt að gera eitthvað skemmtilegt um helgina,,, kannski taka spólu eða bara horfa á eitthvað af þessum silljón sjónvarpsstöðvum sem eru í boði á gervihnattadisknum ;) Ég ORKA ekki að skrifa meira í bili...
ER ÞÉR LÍKA SKÍTSAMA??
Do you give a fuck?
This quiz style was designed by alanna, adapted by Batfish Designs, and created by Missanthropy
fimmtudagur, október 03, 2002
Nennir ekki HHI að fara að hringja í mig og segja mér að ég hafi loksins unnið þann stóra, hmmmm. I really need it... er ekki að ljúga. En allavegana ég er búin í prófi I og er að fara í próf II á morgun... svo núna er það bara lesa læra lesa læra, jeiiii Og allir sem eru ekki í skóla: Njótið dagsins.... stundum er BARA gaman að vera að vinna ;) en þetta líður hjá, veturinn verður fljótur að líða... strax búinn fyrsti mánuðurinn :D
Grenj.... mig langar!!!!!!!!!!!!!!! Osló 10-13 okt Upplifðu haustlitadýrðina í Osló nú í október. Osló, er þekkt fyrir að taka vel á móti þeim sem hana heimsækja og sumir hafa gengið svo langt að kalla hana höfuðborg matarmenningar í Skandinavíu. Enda kannski ekki að furða, því Osló er elsta höfuðborg Norðurlanda, stofnuð 1048 ef eitthvað er að marka Snorra Sturluson. Allt um það í vefjunum sem við vísum í hér fyrir neðan. Reykjavík - Osló 10okt Osló - Reykjavík 13.okt Verð krónur 23.790,- Innifalið: Flug og flugvallarskattar Verð: 20.000,- + skattar 3790,
miðvikudagur, október 02, 2002
Einstaklega skemmtileg villa :) jeiiii Error 503: Unable to load template file. We're working on this. Please try back later.[more info]
Jæja ég var að bæta svona Haloscal commenta dóti inn hjá mér, er ekki alveg viss um hvort þetta er að virka...
Ég svaf svo vel í nótt... mig langaði minna en ekkert framúr í morgun þar sem ég lá undir dúnsænginni í upphituðu vatnsrúmi og rigningin buldi á glugganum og vindurinn gnauðaði í öllu!!! En ég hafði bílinn til að hlaupa útí og þurfti ekkert að hanga úti eftir strætó svo það hjálpaði mér aðeins til þess að opna augun og byrja að vakna... þvílíkt sældarlíf :D Mér finnst að það ættu allir að eiga bíl, en hey... það eiga allir bíl nema ég *roðn*.
þriðjudagur, október 01, 2002
Er að passa bíl og hús og unglinga... það er fínt... þeir eru með adsl :D fæ frítt að borða í viku og þarf ekki að gera neitt eiginlega, svo þetta er bara góður díll. Vildi að það væri ekki svona rosalega mikið að gera í skólanum svo ég gæti surfað meira á netinu og horft meira á sjónvarpið, en það er ógislega heiladautt svo það er kannski bara best að það er svona mikið að gera ?? Er að fara að gera stórskemmtilegt skilaverkefni í SmallTalk forritunarmálinu, líst ágætlega á þetta... eigum að gera svona Bridge forrit. Kennarinn var pínu hissa á því að við skyldum ekki öll skoða bridgedálkinn í mogganum á hverjum degi en svo þegar hann leit upp og sá okkur þá kannski áttaði hann sig á því hver við vorum og varð allt í einu svona nett vandræðalegur. Skemmtilegt þegar fólk gleymir sér alveg svona í einhverju sem það hefur rosalega mikinn áhuga á og byrjar að gera ráð fyrir því eiginlega að aðrir hafi sömu þekkingu á hlutnum og það sjálft.