-Bryndís-

föstudagur, desember 27, 2002

Gleðileg jól öllsömul!! ég hef bara varla kíkt í tölvuna í heila viku, var að lesa blogga, komin heil vika síðan ég las eitthvað síðast. Ég hafði það mjög gott um jólin og reyndar bara alla þessa síðustu viku, er alveg í skýjunum yfir því að hafa fengið Styrmir heim til mín. Vildi helst að hann þyrfti ekkert að fara út aftur. Við vorum með svínabóg á aðfangadagskvöld og hann var bara mjög vel heppnaður. Meðlæti af öllum sortum eins og á að vera. Forréttur grafinn lax og eftirréttur heimagerður ís og einhverjar voða fínar súkkulaðikúlur upp úr gestgjafanum. Ég var mjög ánægð með jólagjafirnar mínar en sérstaklega er það nú ein sem stendur upp úr. Hann elsku Styrmir minn færði mér lítið kríli sem heitir Rán, hún er hvít að mestu leyti en með brúnar og svartar skellur á hausnum og bakinu. Hún er sko algjör dúlla. Hún liggur hérna hjá mér sofandi í fanginu á mér þegar ég er að skrifa þetta. Hún er 7 vikna og alveg rosalega fjörug og hress. Hún er líka kelin og vill helst ekki vera annars staðar en við. Finnst ekkert gaman að hanga ein inn í herbergi ef við erum í stofunni. Ég er búin að borða alveg obboslega mikið af góðum mat, fengum Hólsfjallahangikjöt á jóladag, rosalega gott. Nú er bara spurning hvað á að borða í kvöld hehe... ég hugsa bara um mat þessa dagana.

föstudagur, desember 20, 2002

Ég fór á coldplay tónleikana í gær, hún Laufey vinkona mín var svo mikil dúlla að bjóða mér með sér :) Chris Martin er æðislegur... fæ alveg í hnéin að hugsa um sönginn hans og hvað hann er flottur á sviðinu. Þetta eru sko bestu tónleikar sem ég hef farið á!!! Og hann er svo mikill crowd pleaser... þeir tóku fullt af aukalögum og enduðu svo á jólalaginu. Þvílík snilld, ég á ekki orð til að lýsa þessu eiginlega. Og ég var ofsalega ánægð með skjáina þar sem var varpað upp myndum af meðlimum hljómsveitarinnar, sem þýddi að ég fékk að sjá þá almennilega. En annars stóð ég nú á tánum næstum allan tímann til að freista þess að sjá meira af Chris ;) Og viti menn eitt skipti var eins og áhorfendaskarinn hlustaði á mig og það opnaðist gat í mannfjöldann og ég sá hann, næstum því alveg niður að mitti. En svo lokaðist það aftur, jafn snögglega og það opnaðist. En ég sá hann allavegana aðeins. Ég er að fara til Keflavíkur í dag að sækja Styrmir, uppáhalds jólapakkann minn!! Get ekki hugsað mér betri jólagjöf en að fá hann heim, til mín, um jólin :D Jæja nú ætla ég að fara að leika duglega húsmóður og gera allt skínandi hreint og fínt fyrir jólin :) jebb tusku í ajax og homeblest í örbylgjuna ;) hehehe

fimmtudagur, desember 19, 2002

Jæja það er komið jólafrí!! ég er gjörsamlega búin á því og ætla heim að sofa, við fengum 8 fyrir verkefnið okkar, ég er bara sátt við það. Í kvöld fæ ég aftur rúm til að sofa í, hlakka ekkert smá til og það sem er ennþá betra er að á morgun, fæ ég stærsta jólapakkann sem ætlar að sofa við hliðina á mér í rúminu :D jæja ég ætla að fara heim að æfa mig í að sofa... hehe alveg komin úr æfingu eftir þetta verkefni! reyni kannski að vera oggupoggu duglegri að blogga núna þegar ég er komin í jólafrí.

miðvikudagur, desember 18, 2002

Storkurinn Styrmir fangaður

þriðjudagur, desember 17, 2002

Á netinu er svo einstaklega margt, stórt og lítið, fyndið og skrýtið að finna eins og til dæmis þetta ljóð og fleiri eftir hæfileikaríka reykjavíkurmær Kristínu Svövu góðir reykpíkingar

sunnudagur, desember 15, 2002

Vá þvílík rigning. Hljóp frá skólanum og út í strætóskýli og það tekur einmitt svona 2 mínútur... þegar ég var komin þangað var ég gjörsamlega rennblaut frá toppi til táar!!! Ég held barasta að ég hafi aldrei séð svona mikla rigningu í einu á Íslandi. Og það rigndi bara næstum því beint niður :o Núna sit ég hérna frekar frosin á táslunum og er svo þreytt að ég hef mig varla í það að fara að sofa. Ég get varla beðið eftir að það komi fimmtudagur og ég verði búin með þess önn í bili. Nema það sem ég þarf að taka upp í janúar :( En það er nú svo rosalega langt þangað til. Fyrst ætla ég að hafa það gott með mínum heittelskaða um jólin... svo fer ég að hafa áhyggjur af skóladrasli aftur. Mér dettur ekkert vitrænt í hug til að segja frá svo ég hætti bara núna. Bless og hafið það gott í jólaundirbúningnum. og á meðan ég man, Hafsteina til hamingju með að vera búin í prófum :D

miðvikudagur, desember 11, 2002

Jólahefðir i mat í Skandinavíu Hljómar misvel hmmmm...

þriðjudagur, desember 10, 2002

Jæja það er víst best að blogga þegar maður hefur tíma. Ég var að vakna eftir væran blund... kom heim um tvöleytið í dag eða gær? hmm hvernig sem maður segir þetta... og ætlaði bara að leggja mig í stutta stund en það vildi þannig til að ég slökkti á vekjaraklukkunni og hélt áfram að sofa. Svo glaðvakna ég klukkan korter í þrjú... Ég sem ætlaði að læra í gærkvöldi fyrir prófið mitt sem er á föstudaginn. Ég held ég reyni bara að læra núna þá í staðinn. Ástæðan fyrir því að ég var svona obboslega þreytt er sú að ég var upp í skóla frá sunnudagsmorgni til mánudagshádegis... ég er í verkefni núna og það voru skil á ákveðnum hluta svo við þurftum að klára það. Mér finnst ekki gaman að vera á nóttunni í skólanum :( Ég vona bara að þetta hafi alveg dugað og ég fái að halda nætursvefninum mínum það sem eftir er af þessu verkefni. Mér dettur bara ekki baun í hug til að skrifa um meir. Er í prófi núna á föstudaginn og svo aftur á mánudaginn. Þá er viðskiptaáföngunum lokið. Svo skilum við verkefninu á þriðjudaginn í næstu viku og tökum próf úr þeim áfanga á miðvikudaginn í næstu viku. Og svo get ég eytt korterinu mínu til að undirbúa jólin hehe. Jæja bið að heilsa ykkur í bili, njótið lífsins þið fólk sem eruð ekki í skóla og prófum og svoleiðis rugli ;)

mánudagur, desember 09, 2002

I was gratified to be able to answer promptly, and I did. I said that I didn't know. -- Mark Twain

-Have you heard of the object oriented way to get wealthy? -No. -Inherit. Hahahahaha

föstudagur, desember 06, 2002

Hvernig á því stendur að karlar hlusta aldrei og konur geta ekki bakkað í stæði.
Ert þú með karl- eða kvenheila?
Taktu Prófið!

Addý er búin að eiga, poppaði inn á msn áðan, rétt til að segja að allt hefði gengið vel. Strákurinn var stór, 17 merkur, hann heitir Keegan Jóhann fæddur 4.12.2002. Til hamingju með það, Addý mín :D

þriðjudagur, desember 03, 2002

Ég get nú ekki orða bundist yfir þessum svartsýnu fréttum sem dynja á manni í fréttum dag eftir dag! Fjöldauppsagnir á hverjum degi og varla hægt að segja að það sé vinna auglýst í boði. Hvað er í gangi? Ég held nú bara að ríkisstjórnin og jakkalakkarnir verði nú að fara að athuga sinn gang. Það var til lítils að vera að lækka um 2-3 % í vor ef að allar hækkanirnar eiga svo að skella á okkur núna um áramótin af fullum krafti. Og hvað er með þessi tryggingafélög, ég get nú ekki betur séð en að þau séu að skila hagnaði þrátt fyrir allt tal um rosaleg tjón sem þeir eru að lenda í, eru þeir ekki að átta sig á því í hvaða bransa þeir eru? Þeir eru ekki bara til að taka peninginn af okkur, það eru víst einhverjar reglur sem við skrifum undir þegar við veljum tryggingar að við eigum að fá peninginn til baka ef við lendum í tjóni!! Ég held nú bara að þessi félög séu aðeins að gleyma sér í matadorinu! Það þarf að fara að hrista upp í þessu þjóðfélagi jakkafatamanna og fara að taka af málum af skynsemi og til framtíðar. Setjum X - Bryndís á kjörseðilinn (LOL) Ein alveg að missa sig hérna, ég er bara orðin svo drulluleið á þessu helvítis væli í öllu þessu pakki sem hirðir af manni peninginn og þykist svo ekki eiga neitt afgangs til að reka fyrirtækin. Væri kannski ráð að geyma það að kaupa jeppann þar til bankareikningurinn skríður upp yfir núllið!!!!!! Og hafið það!

Ég var að tala við Addý, hún verður sett af stað í fyrramálið, til að eiga þriðja krógann... :D Allir að hugsa fallega til hennar kl. 15.00!!!!

mánudagur, desember 02, 2002

hehehe Þetta er flottasta vefbúð ever! Mig langar í Toaster Boat

ógislega töff

sunnudagur, desember 01, 2002

Ég fékk heimsókn í gær, meira að segja tvær og báðar heimsóknirnar vildu kaffi :D Frábært, því ég hef barasta ekki gefið neinum kaffi síðan ég veit ekki hvenær... mér finnst gaman að fá fólk í heimsókn. Bjarki og Hjalti komu yfir færandi hendi með kaffipoka og ferðatölvu. Við horfðum á Ísöld... hún var barasta mjög fín... litli kallinn með hnetuna var ógislega fyndinn. Sérstaklega fyndið þegar hún poppaðist hehe. Ég verð nú að segja að ég bjóst eiginlega við meiru en þetta var voðalega hugljúf saga um mannlegar tilfinningar... svosem græðgi, illkvittni, samkennd, fýlupoka, traust, kaldhæðni, umhyggju og sanna vini. Og auðvitað endaði hún vel :D í dag er fyrsti í aðventu og ég ætla að kveikja á kerti eða jafnvel kertum í tilefni af því.