-Bryndís-

sunnudagur, ágúst 31, 2003

minns er duglegur í dag

í dag tók ég "gömlu" stofugardínurnar af Ölduslóðinni upp úr kassanum og setti þær barasta fyrir stofugluggana mína hér. Og það kemur bara fínt út... munur að vera laus við þessar ógeðslega ljótu ullarteppagardínur sem voru fyrir. Skil bara ekkert í mér að hafa ekki dottið þetta í hug fyrr!!! Allavegana ég tók mynd ... hún er á leiðinni inn á netið :) bæ og knús

Í fréttum er þetta helst...

... ég er enn ekki farin að heyra frá fyrirtækinu. Ætla að hringja á morgun og vita hvað þeir eru að spæla... ... ég keypti mér nýjar buxur í Osló í gær :D Jeiii!!!! Afmælisdagurinn minn var fínn, maturinn var æðislegur... myndir eru hér. Við borðuðum góðan mat og drukkum hvítvín með. Ég fékk þónokkur símtöl, alltaf gaman þegar fólk man eftir manni :) Nú svo leið restin af vikunni bara án þess að nokkuð markvert gerðist í rauninni. Ég var alltaf að bíða eftir þessu símtali sem er ekki enn komið. Svo í gær fórum við til Osló í shopping og kós bara. Tókum rútuna hálfellefu og vorum komin til Osló kl. 12. Röltum okkur niður Karl Jóhan með stoppum í verslunarmiðstöðvum og ýmsum búðum. Ég fékk mér gallabuxur og bol. Styrmir fékk sér 2 peysur og skó. Ég keypti svo póstkort og skrifaði á... steingleymdi svo að senda þau, að sjálfsögðu. Þau verða þá bara kveðja frá Osló, send frá Kongsberg :) Við fórum út að borða á stað sem heitir Agra. Þetta er indverskur staður staðsettur á Akerbrygge hjá öllum hinum fínheitunum. Við vorum svo ánægð með matinn og þjónustuna, förum hiklaust þangað aftur. Maturinn var rosalega vel útilátinn og ekkert of dýr. Ég fékk mér tandoori kjúkling á grillspjóti með lauk og papriku og Styrmir fékk sér blöndu af kjúkling, lambakjöti og risarækjum. Það var svo flott þegar þjónninn kom með kjötið, það var á svona steikarpönnu og sizzlaði alveg í þessu öllu saman ennþá. Svo voru hrísgrjón og salat og mismunandi tegundir af sósum og dressingum. Og naanbrauð með hvítlauk og lauk sem var alveg himneskt. Ég held ég hafi borðað samtals svona tvo lauka á meðan á máltíðinni stóð. En galdurinn er að eftir matinn kom þjónninn með anískorn sem maður tyggur fyrir "góðan anda". Yndislegt, anís er svo gott. Svo eftir matinn fengum við okkur kaffi sem var rosalega fínt, greinilega eitthvað öðruvísi kaffi samt í Indlandi en hérna. Mjög gott kaffi samt. Við höfðum hugsað okkur að kíkja í bíó og fórum að kíkja á bíóauglýsingarnar þegar við vorum búin að borða. Kom þá í ljós að myndin var sýnd í einu bíó á Akerbrygge en hin tvö voru staðsett einhvers staðar lengra í burtu. Við hlupum eins og vitleysingar aftur niður á Akerbrygge en þá var að sjálfsögðu uppselt. Ætluðum að sjá Pirates of the caribbean. Svo við slepptum því bara að fara í bíó. Nenntum ekki að sjá bara eitthvað. Svo við fórum á Bar1 sem framreiðir hvorki meira né minna en 300 tegundir af koníaki. Við kíktum að gamni á seðilinn og þar mátti finna ýmislegt. T.d. var dýrasta glasið af koníaki 2999 NOKR. Sem eru rúm 30 þús íslenskar krónur fyrir 4 cl !!!!!! Wow, við slepptum því að smakka það ;) Nú svo töltum við okkur niður á rútustöðina og ætluðum að drífa okkur heim um hálftólf leytið en þá var rútan eitthvað biluð svo við þurftum að bíða og taka hálfeitt rútuna. Fórum á einhvern skrautlegasta bar sem ég hef komið á, sem er staðsettur við rútustöðina. Allskonar fólk og misdrukkið líka. Frumlegt. Í stuttu máli sagt fínn dagur en heima er best :) ps. ég er að senda myndirnar inn á síðuna mína... svo þær verða komnar ábyggilega á morgun. Tók mun fleiri myndir í þetta skiptið. Ekki það að þær hafi allar verið neitt sérstaklega góðar hehe.

miðvikudagur, ágúst 27, 2003

Karlmenn eru í útrýmingarhættu!

ég las það í blaðinu í dag og ekki lýgur blaðið. Þetta er haft eftir einhverjum voða fínum vísindamanni. Greyið kallarnir, þetta stafar allt af því að Y litningurinn verður sjaldgæfari og sjaldgæfari... þeir eiga víst ekki nema svona 125.000 ár eftir. Voða fréttir eitthvað... jörðin verður hvortsem er löngu orðin ónýt þá.. svo þetta er nú ekki til að hafa miklar áhyggjur af. Allavegana ætla ég nú ekki að eyða mikilli orku í að pæla í þessu í dag ;) Koma tímar, koma ráð! Byrjaði á norskunámskeiðinu á mánudaginn, það var rosa fínt... þetta var léttur fyrsti tími, verið að skipta fólki niður í hópa fyrir veturinn. Ég prófaði fyrst miðjuhópinn en komst fljótt að því að það var alltof auðvelt. Svo ég er í flottasta hópnum. Þar sem fólkið kann mest... auðvitað :þ Það var svona aðeins útskýrt hvernig þetta fer fram í vetur og svo var fjallað um orðtök. Þau eru auðvitað svo stór hluti af málinu og það er ekki beint hægt að skilja þau með því að þýða orðin bara beint yfir í annað mál. Þetta var mjög skemmtilegt og ég er strax búin að læra eitthvað nýtt... jeiiii. Fólkið sem er með mér er á öllum aldri og frá mjög fjölbreyttum löndum. Með mér í hóp eru fólk frá Frakklandi, Þýskalandi, Englandi, Skotlandi, Póllandi, Adríu(?), Spáni, Usa og þá held ég að ég sé búin telja alla... hmmm nei það var ein stelpa líka sem gæti verið frá Tyrklandi eða eitthvað svoleiðis... jæja, ég ætla að fara að rölta mér í bæinn til að kaupa í matinn. Styrmir ætlar svo að elda fyrir mig kjúkling í poka, að hætti Jamie Oliver's. Mig hlakkar mikið til að smakka, þetta leit allavegana mjög vel út í sjónvarpinu. Það er kjúklingur og allskonar sveppir steikt í ofni í álpappírspoka. Svo er ég að spá í að koma við á kaffihúsinu og kaupa mér kökusneið í tilefni dagsins :) Við vorum svo að gæla við það að skreppa kannski til Osló á laugardaginn og fara þá út að borða. Það væri gaman, svo margir staðir í Osló sem ég get hugsað mér að borða á. Jæja, ég læt þetta duga í bili... sí jú leiter allígætor, inna væl krokkódæl! ps. það er bara allt í lagi að vera 27 :p

laugardagur, ágúst 23, 2003

Kisikis... hvar ertu ?

Þessi er svo dúlluleg að mar verður að setja hana hér...

Hver skrifar svona bull eiginlega... og les enginn yfir þetta heldur!!!

Slúðurfrétt um Angelinu Jolie á mbl.is. Þetta vakti undrun mína : "Þrátt fyrir að vitað sé að hún hafi prófað eiturlyf og að faðir hennar hafi lýst því yfir að hún ætti að leita sér hjálpar neitar Angelina því að hún eigi við geðræn vandamál að stríða" Ehemm, þýðir það semsagt að bara fólk sem er haldið geðrænum vandamálum prófi dóp? Og að það sé þá öruggur vísir að því að hún þurfi að leggjast inn í meðferð við geðrænum vandamálum?? Ekki það að ég sé eitthvað hlynnt því að fólk prófi dóp sko!

föstudagur, ágúst 22, 2003

MEYJA 23. ágúst - 22. september Sólin er í þínu merki núna og næsta mánuðinn. Þetta er rétti tíminn til að safna kröftum sem endast þurfa þér út árið. Æ hvað þetta er nú kósý stjörnuspá... nú get ég haldið áfram að liggja í leti með GÓÐRI SAMVISKU :þ

fimmtudagur, ágúst 21, 2003

Nýja uppáhaldslagið mitt

Þetta er búið að vera mjög áberandi lag í sumar. Stelpan sem syngur það hefur hlotið mikla athygli og hún er meira að segja búin að gefa út plötu. Þetta er semsagt KókaKóla auglýsing... dúlluauglýsing dauðans :þ

þriðjudagur, ágúst 19, 2003

Svíþjóðarferðin fræga

Við Styrmir fórum til Gautaborgar um helgina, ferðin varð frekar stutt í þetta skiptið vegna þess að ég þurfti að fara í atvinnuviðtalið sem ég talaði um í síðasta bloggi. Það kom nú samt ekki í veg fyrir að við höfðum það ofsalega fínt hjá litlu fjölskyldunni á Lonsegärdsvägen. Við brunuðum af stað klukkan fjögur á föstudaginn og stefndum á Ås þar sem finnst hið fínasta kattahótel. Við skutluðum Rán þangað, hún var ekkert sérstaklega ánægð en lét sig hafa það. Henni finnst ekkert gaman að hitta aðrar kisur, það er nokkuð ljóst. En hún hafði gott af helginni og knúsar okkur óspart síðan, finnst greinilega gott að vera heima :) Svo héldum við áfram ferðinni til Gautaborgar, við vorum dágóða stund á leiðinni, tafir urðu vegna þess að ég kann ekki að lesa kort né vegamerkingar... alveg merkilegt hvað ég get misskilið hvert skal beygja eða hvenær :þ Nú við náðum loksins til Gautaborgar, rétt eftir tíu um kvöldið og var tekið vel á móti okkur af fjölskyldunni. Nökkvi opnaði afmælisgjöfina sína og var alveg hæstánægður með hana. Nú svo var spjallað um allt milli himins og jarðar til að verða þrjú um nóttina en þá fórum við í háttinn. Á laugardagsmorguninn vaknaði ég við ilminn af nýbökuðum rúnstykkjum og það tældi mig fram úr á nótæm. Settist út í sólina og borðaði nýbökuð rúnstykki og drakk kaffi. Síðan ákváðum við Lísa að það væri mjög góð hugmynd að kíkja aðeins á ströndina og fórum að taka okkur til. Við kíktum á Fiskebäcks-ströndina sem er bara í nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá þeim. Það var fínt að prufa aðeins á ströndina og ég synti meira að segja aðeins í sjónum... brr það var dáldið kalt, samt 20°c hiti á vatninu. En það var dáltill vindur sem skemmdi fyrir stemmingunni. Svo ákváðum við að kíkja á Göteborgs Kalaset, sem er svona borgarhátíð í Gautaborg. Það er matur og vín og tónlist um allan miðbæinn. Það var mjög kósý og yndislegt að rölta um bæinn í sólinni og þurfa ekkert að gera. Við kíktum aðeins í Åhlens en þurftum ekkert að versla í þetta skiptið. Frábær búð samt, það fæst allt þarna, ég skoðaði heila hillu sem var full bara af salt- og piparkvörnum. Og svo allt hitt, allt til heimilisins, dömufatnaður, barnafatnaður, herrafatnaður, snyrtivörur, bækur, geisladiskar og fleira og fleira og fleira. Og þetta er bara ein búð í Fimmunni sem er stærsta mollið í Gautaborg. En við fórum ekki til að versla svo við gátum farið út með góðri samvisku án þess að kaupa nokkuð. Um kvöldið grilluðum við yndislegt nautakjöt og kartöflur, maís, papriku og lauk. Í forrétt borðuðum við Höfðingja sem er ofsalega gott kjöt frá Íslandi. Þetta er semsagt hrátt hangikjöt, reykt sauðakjöt. Með þessu vorum við með piparrótarsósu, parmesan og melónu. Yndislegt... Þetta kjöt var í boði hennar Friðbjargar frænku minnar sem sendi mér það með Bjarka þegar hann kom yfir um Versló. Takk fyrir okkur, þetta var yndislegt :) Á sunnudeginum skelltum við okkur svo í Ikea og keyptum okkur hillur í stofuna, þetta eru rosa fínar svona Billy hillur, kosta næstum ekki neitt og líta alveg þokkalega út :) Fengum eina 2 metra háa hillu og svona hornhillu við það, svo keyptum við meters háa hillu líka. Síðan keyptum við sjónvarpshillu/skáp, þar sem við getum sett sjónvarpið upp á og vídeóið undir... græjurnar komast svo við hliðina á sjónvarpinu. Hugsað fyrir öllu í Ikea. Við fengum okkur svo náttborð í svefnherbergið. Þannig að við eigum nóg af hirslum núna, það verður aldeilis hægt að taka upp úr bókakössunum og raða núna. Verð að taka myndir fljótlega og setja í myndasafnið. Well, þegar við vorum búin í Ikea fórum við heim á Lonsegärdsvägen og borðuðum yndislegt pastasalat með kjúklingi. Þá var kominn tími til að fara að tía sig af stað því við vorum búin að ákveða að versla okkur ódýran kjúkling í matinn og fleira. Svo við brunuðum í búðina og svo af stað út úr bænum um fjögurleytið. Við vorum komin að sækja Rán um hálfátta og hugsuðum okkur gott til glóðarinnar að vera komin heim eftir ca. 2 tíma, en nei... aldeilis ekki. Göngin undir oslofjörðinn voru lokuð og við máttum gjöra svo vel að keyra með ÖLLUM HINUM í gegnum miðbæinn í Osló... á gönguhraða nánast. Ekki gaman þegar maður á ekki von á því og er búinn að hugsa að maður sé NÆSTUM kominn heim :s Við vorum nú samt himinlifandi yfir því að Rán var "réttum" megin við fjörðinn og hún kom með okkur í Oslótraffíkina, annars hefðum við lent í vandræðum með að sækja hana (verið alltof seint á ferðinni). En heim komumst við að lokum, sátt en nokkuð uppgefin eftir ferðina löngu ;) Nú er bara að fara að plana næstu ferð í sæluna til Gautaborgar, spurning að rölta einn hring í Liseberg næst ef það verður ekki lokað, það væri gaman. Það er kominn nýr rússíbani (Baldur) sem sem við eigum eftir að prófa :D

mánudagur, ágúst 18, 2003

Þetta gekk nú bara nokkuð vel

Búin í atvinnuviðtalinu og það gekk bara vel, fannst mér :) Ég fæ að vita um miðja næstu viku hvort ég fæ að fara í annað viðtal ;) Fékk að vita að ég kæmi mjög líklega til greina. Þeim leist mjög vel á menntunina og reynsluna mína úr skólanum. Svo skemmdi ekki fyrir að ég tala norsku, ensku og pínu frönsku. Svo mér er töluvert létt... fúfffff. En samt var ég hissa á því að ég væri ekki meira stressuð eiginlega. Ég svaf vel í nótt og var ekki með neitt rosalega hjartslátt þegar ég labbaði inn í viðtalið. Mennirnir sem tóku viðtalið voru mjög viðkunnanlegir og það var allt vel útskýrt. Bæði fyrirtækið og starfsemin, mjög fínt. Nú er bara að bíða eftir að vikan líði.

miðvikudagur, ágúst 13, 2003

Furðulegt

Mér finnst þetta mjög furðulegt hvað ég er ótrúlega lengi að koma mér að því að blogga um nokkurn skapaðan hlut. Því það er nú ekki eins og ég sitji pökkuð inn í bómul inn í fataskáp alla daga! Allavegana, þá er það nýjasta að Salvör er farin til Köben, hún fór í gærkvöldi með rútunni. Ég grenjaði auðvitað í svona eins og tvö lök þegar hún var farin en ég er að jafna mig ;) Þetta er nú næstum ekki sniðugt hvað ég á erfitt með að kveðja fólk, það mætti halda að ég þjáðist af breakdown-saying-goodbye-syndrom... hmmm en allavegana. Næsta mál á dagskrá er að við Styrmir förum til Gautaborgar á föstudaginn. Ég er búin að panta á kattahóteli fyrir Rán þar sem hún mun eyða helginni fram á sunnudag þegar við komum heim. Styrmir fær lánaðan bíl í vinnunni sinni svo við getum verslað eitthvað fínerí í matinn í Svíaríki... verst hvað frystirinn er nú þegar troðinn af góðgæti frá Þýskalandi, Danmörku og Íslandi :) hehehe, en við verðum þá bara nett í innkaupunum. Nú svo að því mest spennandi sem hefur gerst hjá mér í atvinnumálunum, ég fer í atvinnuviðtal á mánudaginn eftir hádegi. Þess vegna ætlum við að stoppa svona stutt í Svíþjóð í þetta skiptið, annars ætluðum við að vera fram á mánudag eða þriðjudag. Það var semsagt hringt í mig í gær og mér boðið að koma í viðtal hjá Buhrs media craft. Ég mun segja frá síðar hvað starfið felst í og þess háttar ef það verður eitthvað úr þessu. En allavegana líst mér ofsalega vel á þetta, þó ég geri mér nú grein fyrir því að ég er ekki komin með vinnuna, þetta er bara fyrsta viðtal. Það er samt gott að vita að ég kem þó til greina í það. Ég hef aldrei áður farið í atvinnuviðtal í útlöndum. Ég er ekki farin að stressa mig neitt á þessu, en fékk samt að vita að viðtalið myndi vara ca. 1,5 til 2 klukkutíma. Hvað verð ég eiginlega spurð um?? Svona í lokin.... á ekki að fara á menningarnótt??

sunnudagur, ágúst 10, 2003

Menningarreisan

Mikið var nú gaman að komast í menninguna í Osló. Við tókum rútuna rétt fyrir ellefu hérna í Kongsberg ásamt svona 10 öðru fólki. Rútan var alveg troðin og allir á leið til Osló! Það tekur venjulega 1 klukkutíma og 20 mínútur að komast til Osló en við vorum eitthvað lengur en það á leiðinni. Vorum komin rétt fyrir eitt í bæinn. Það var brjálæðislega mikið af fólki á Akerbrygge þar sem við byrjuðum ferðina. Það var mikið að gerast við höfnina, til dæmis var tívolí þarna, vínsmökkun á yfir 60 vínum, sýning á bílum frá Arctic trucks og síðast en ekki síst var hraðbátakeppni í Oslófirðinum. Svo ábyggilega margt meira sem ég tók ekki eftir. Fólk var líka bara að hafa það gott í sumarveðrinu, röltandi um til að sýna sig og sjá aðra. Við byrjuðum á því að hlamma okkur niður á veitingastað og kaupa okkur samloku í hádegismat. Staðurinn heitir D/S Louise og er breiddur yfir hálfa höfnina. Samlokurnar voru mjög fínar og við mjög sátt við að fara að tölta okkur yfir á Karl Jóhann, sem er strikið þeirra í Osló eins og ég nefndi í síðasta bloggi. Nú við röltum í fullt af búðum, Hennez&Mauritz, Popin, KappAhl, VeroModa og Carlings sem er uppáhalds búðin hans Styrmis... hann finnur sér alltaf eitthvað að kaupa þar. Við enduðum með sitthvora tvo bolina og vorum bara nokkuð sátt við það. Svo settumst við á útikaffihús og drukkum bjór. Ákváðum svo að rölta aftur niður á Akerbrygge í stemminguna. Þar settumst við á kaffihús sem var eiginlega bátur... ferlega fyndið, við ætluðum fyrst að sitja lengst frá bryggjunni en fengum sjóriðu eftir 2 mín svo við færðum okkur á annað "dekk" sem var meira fast við bryggjuna, svo við yrðum nú ekki alvarlega sjóveik LOL. Þegar við vorum sest "nánast á þurrt land" þá byrjaði hraðbátakepnin rétt fyrir utan bryggjuna. Þetta var voða stemming, allir á kaffihúsinu stóðu upp og fylgdust með þegar bátarnir sigldu hring eftir hring. Þetta voru nú samt svona ansi skondnir hraðbátar, næstum eins og einhver geimskip í laginu. Þetta eru lokaðir bátar sem fara hratt, hratt, hratt!! :p Þegar við vorum búin að horfa á nógu marga hringi af hraðbátunum ákváðum við að fá okkur eitthvað að borða og líkt og oft áður fórum við á Peppe's Pizza... sem er alveg yndislegur pizzastaður. Fengum okkur pizzu með beikoni, barbíkjú kjúlla og pepperoni. Hún smakkaðist vel að vanda. Þegar við vorum búin að borða ákváðum við að fara að kíkja heim á leið og tókum rútuna í sveitina kl. 20 mín í níu. Það var bara mjög fínt og ég var rosalega glöð yfir því að verða ekki bílveik, jeiii!!! Ég fékk annars mjög skemmtilegt símtal í gærkvöldi þegar ég var á leiðinni að fara að sofa. Ásta Guðmunds hringdi í mig frá Ameríkunni, hún var í Orlando í ferlega ömurlegu veðri, búið að vera rok og rigning og fellibylir og ég bara veit ekki hvað. Svo sendi hún mér fullt af myndum af litlu ömmudúllunni sinni, henni Rachel, sem er orðin alveg obboslega stór og sæt stelpa. Núna er rosalega fínt veður úti og ég lá úti í tvo tíma í morgun, kom bara inn til að borða í hádeginu og spara mig fyrir síðdegissólina. Það verður alltaf svo rosalega heitt um hádegisbilið og þá sting ég af inn í skuggann. Núna er klukkan að verða tvö og ég er á leiðinni út með bókina mína. Er að lesa Hobbittann á ensku. Ferlega skemmtileg bók :D Later...

föstudagur, ágúst 08, 2003

Bloggedí bloggedí bligg

Jæja nú er ég farin að hafa stórar áhyggjur af þessari bloggleti minni... meira en vika síðan ég bloggaði síðast. Ég verð að fara að standa mig betur í þessu. Þetta hafa verið rólegir dagar undanfarið... Bjarki frændi kom yfir verslunarmannahelgina með ferðatöskuna fulla af góðgæti handa okkur. Lambakjöt og höfðingja(sem er hrátt hangikjöt, ég hlakka mjög mikið til að smakka), harðfisk og Kaffitár sem er alveg ómissandi. Svo fylgdi með glanstímarit og þar var nú ýmislegt krassandi slúður í gangi. Við skelltum okkur aðeins á Blúsinn í Notodden á föstudagskvöldið og eins og nafnið segir til um varð dáldið um blús þar. En ekki orð um það meir. Annars höfðum við það svo gott bara í sólinni og yfir 25 stiga hita flesta dagana sem hann stoppaði. Á föstudagskvöldið var prófuðum við að hafa svona hefðbundinn norskan sumarmat, en þá kaupir maður frosnar rækjur sem eru í fötunum ennþá með hala og alles og ber þær fram í stórri skál. Með þessu er borðað franskbrauð og majónes. Þetta er vona akkúrat sumarstemmingarmatur. Allir sitja við borð og pilla rækjur á brauðið sitt og drekka hvítvín með. Ferlega kósý, við Styrmir fengum svona í vinnupartýi hjá Tveiten-hjónunum í fyrra og vorum búin að láta okkur dreyma um þetta síðan þá. Eina sem er skondið við þetta að maður lyktar eins og slor á höndunum eftir matinn. Ekki mjög sessí :p En ég vaskaði upp eftir matinn og losnaði alveg við slorlyktina við það, sjibbí :D Svo var auðvitað grillið nýtt óspart og þar kom naut og maískólfar og kjúlli við sögu um helgina. Ferlega er gott að grilla svona maísstöngla og setja svo smjör og salt á. Þetta er bara algjör tærasta snilld í geimi. Af hverju var enginn búinn að benda mér á þetta fyrr? Núna um helgina liggur svo leiðin til Osló... algjörlega kominn tími á að kíkja í höfuðborgina svona einu sinni :) Þar mun verða rölt um Karl Jóhan sem er Strik norðmanna og kíkt á bera líkama í Vigelandsparken. Svo mun ábyggilega matur og drykkur verða innbyrtur eftir þörfum. En núna held ég að það sé örugglega kominn tími á að gera eitthvað annað en að sitja við tölvuna í góða veðrinu. Ég er farin út í garð að sóla mig. Góða helgi!!