Nú nýja árið er gengið í garð og ég er glöð. Það er alltaf gott þegar maður getur hreinsað aðeins af borðinu og byrjað með hreint. Og auðvitað ætlar maður að vera miklu betri, hollari, sniðugri, séðari, ástríkari, umhyggjusamari, trúr sjálfum sér og ég veit ekki hvað og hvað ;)
En það er líka fínt að maður vaknar aðeins til sjálfs síns og spáir í hvert lífið leiðir mann. Er þetta það sem ég vil? Var það þetta sem ég lagði upp með? Hvað get ég gert til þess að þetta ár verði enn betra en síðasta ár og ég betri manneskja? Svo er bara óskandi að maður leggist ekki í sama tilfinningadvalann þar til við næstu árskipti!
Ég er reyndar nokkuð viss um að árið 2004 verður spennandi, áhugavert og inniheldur breytingar á lífi mínu. Og það af stórum hluta vegna þess að ég ákveð það sjálf.
Ég ætla ekki að sjá eftir neinu á árinu 2003 en hafa það til hliðsjónar. Og taka til athugunar ýmis atriði sem gætu farið enn betur á þessu ári en síðasta. En eins og ég sagði: "No regrets!"
Því til hvers að vera að sjá eftir því sem maður getur ekki breytt. Allavegana þar til ég verð búin að finna upp tímavélina, getum við víst ekki farið aftur í tímann til að breyta hugsunum og athöfnum. Eina sem ég get gert er að átta mig á því að ég er reynslunni ríkari. Árinu eldri og svei mér þá bara kílói þyngri en um síðust áramót! Hey, það hefði getað verið verra :þ
Mæ mæ, hvað það er seint að vera að skrifa áramótaannál og áramótaheit(?) núna. Ég er bara svo lengi að hugsa stundum. Þurfti þessa daga til að koma hugsunum mínum í skiljanlegt form fyrir sjálfa mig.
Ég hef sterka þörf fyrir að reyna eitthvað nýtt á þessu ári. Er alveg orðin yfir mig þreytt á sjálfri mér og framtaksleysi síðastliðinna mánaða.
Ég held að einkennandi orð eða hugtök fyrir mitt 2004 verði: Sjálfskoðun, spenna, stress, breytingar(til hins betra, að sjálfsögðu), carpe diem - Njóttu dagsins!
Svo verð ég að há hina erfiðu baráttu við letipúkann!! Hann er öruggt eitt af því sem ég vil losna við sem mest úr lífi mínu!!
Það sem ég vildi helst hafa meira af í lífinu eru góðir vinir og kvöldstundir þar sem maður situr bara og talar um allt og ekkert. Fjölskyldan. Hreyfing. Meiri lífsánægja, lífsfylling heitir það kannski. Vera ánægðari með líðandi stundu og gera það besta úr því sem maður hefur og upplifir.
Ég sakna ykkar XXX