-Bryndís-

sunnudagur, febrúar 29, 2004

Þessi er nettur

What a feeling

Afrakstur dagsins

Hérna eru myndirnar sem ég tók í dag. Fyrir þá sem nenna ekki að skoða leiðindanáttúrumyndir ;) þá eru myndir af mér hérna Ég og ég aftur. Svo er ég hérna, hérna og að lokum hérna.

Sunday morning blues

Sunnudagur lítur dagsins ljós og mér er orðið ljóst að helgin er að styttast í annan endann. Það eru þó nokkrir klukkutímar eftir af deginum sem ég á alveg sjálf. Þessi próf sem ég tók í vikunni voru kannski dáldið cruel. Ég er nú ekki alveg sammála þessu með Súdan dæmið hehe. Fyndið hvernig nokkrar saklausar spurningar leiða þessa niðurstöðu í ljós. Það er mest lítið að frétta af mér. Mér leiðist og vildi að það væri aðeins meira að gerast í áttina að því að getting someplace. Mér finnst ég bara spóla föst í sama farinu og ekkert af því sem ég óska mér gerist. En ég veit svosem að ég mætti vera duglegri að framkvæma til þess að óskirnar rættust. Stundum er bara svo erfitt að draga andann, hvað þá meir. Laugardagskvöld eru svo róleg kvöld hjá mér. Ekkert merkilegt í sjónvarpinu og eins merkilegt og það er, þá er aldrei neinn á msn. Þetta skil ég nú barasta ekki. Það mætti halda að allir aðrir en ég ættu líf :o Kannski er sjónvarpsdagskráin bara betri hjá hinum, hmmm. Allavegana eru sunnudagar alveg ágætir dagar. Sólin skín og það er ekta bakarísveður. Þúst svona skreppa í bakaríið og kaupa rúnstykki og sérbakað vínarbrauð. Norðmenn eru bara svo latir og heimakærir að það er allt svoleiðis harðlæst á sunnudögum. Nema kebabsjoppan og bensínstöðin, sem selja ekkert sem mig gæti langað í á fallegum sunnudegi. En nú held ég að ég verði barasta að koma mér aðeins út úr húsi. Njóta sólarinnar og safna fleiri freknum. Hey já, ég gleymi!! Sólin og góðviðrið hérna er þvílíkt að blífa. Það var klikkuð sól í vikunni og ég er bara þvílíkt útitekin og freknuð. Er meira að segja búin að finna til sólarkremið svo ég steikist ekki alveg í framan. Jei fyrir flottu veðri :)

fimmtudagur, febrúar 26, 2004

What country are you?


You're Sudan!
Every time you get a headache, you reach for some aspirin, only to realize that someone destroyed it. That's just how things are going for you right now... it's hard to eat, hard to sleep, hard to not have a headache. You try to relax, but people always jump on you about something that doesn't make sense. If you were a goat, you'd be a Nubian.
Take the Country Quiz at the Blue Pyramid

What book are you?


You're Cry, the Beloved Country!
by Alan Paton
Life is exceedingly difficult right now, especially when you put more miles between yourself and your hometown. But with all sorts of personal and profound convictions, you are able to keep a level head and still try to help folks, no matter how much they harm you. You walk through a land of natural beauty and daily horror. In the end, far too much is a matter of black and white. Take the Book Quiz at the Blue Pyramid.

þriðjudagur, febrúar 24, 2004

Sprengidagur og óveður

Í dag er sprengidagur og sjálfsagt borðað mikið af saltkjöti og baunum um allar trissur á íslandi. Ég væri alveg til í einn saltkjötsbita eða svo ;) Við Styrmir vorum nú samt ekkert að velta okkur upp úr því og smökkuðum fyrsta skammt af svíþjóðargóssinu. Fyrir valinu varð forláta nautakjötsbiti sem var skorinn í sneiðar og steiktur á pönnu. Meðlæti voru ofnbakaðar kartöflur, steiktir sveppir og improviseruð hunangs-soð-sósa. Nammigott og vel við hæfi á einföldu þriðjudagskveldi. Ég gerðist svo fræg í gær að baka í fyrsta skipti bolludagsbollur, vatnsdeigsbollur takk fyrir! Og heppnuðust þeir með eindæmum vel. Ég ætlaði varla að trúa því bara að mér hefði virkilega tekist þetta svona í fyrstu prufu. En þær smökkuðust bara yndislega vel með rjóma og bláberjasultu. Ég klikkaði nefnilega alveg á því að minna tengdó á það um helgina að það væri nú hefð fyrir því að baka nokkrar bolludagsbollur (tilsmökkunarskammt ;) á sunnudaginn fyrir bolludag. Svo þá var nú ekki annað að gera en að skella í nokkrar bollur sjálf. Því á ég ekki eftir að sjá eftir. Nú get ég án nokkurra vandræða bakað aftur bolludagsbollur að ári. Það var bara ROK í Kongsberg í dag, held það hafi bara verið nánast 3-4 metrar á sekúndu. Það LÁ VIÐ að jakkinn flaksaði og hárgreiðslan ryki út í veður og vind. *LOL* En það hefur nú samt verið óveður hérna í kring um veðurfriðhelgina. Fjallvegir hafa verið lokaðir vegna skafrennings og skafla. Og skip hafa lent í sjávarháska og neyðstoppum við Vestlandið. Þetta er nú norski veturinn minn í hnotskurn. Les um óveður annarsstaðar á meðan vindurinn rétt læðist um hríslurnar í garðinum. Get ekki annað sagt en ég sé nokkuð ánægð með þetta veðurfar!!

sunnudagur, febrúar 22, 2004

Venus í stofuglugganum

Það er stjarnan Venus sem hefur skinið svo skýrt undanfarið og það beint fyrir utan stofugluggann minn. Voða indælt og sætt að sjá hana svoleiðis glitra og tindra eins og hún lífið eigi að leysa. Svo er víst Júpíter annarsstaðar á himininum að glenna sig eitthvað. En hann sést ekki úr stofuglugganum svo ég hef ekkert tekið eftir honum. Í gær fórum við Styrmir í verslunarleiðangur til Svíþjóðar. Nánar tiltekið til Svínasunds þar sem allt var svoleiðis stappað af norðmönnum að spara peninga. Þetta er helgarhobbý hjá mörgum sem búa í skikkanlegri fjarlægð frá landamærunum. Við fórum með manninum hennar tengdó en hann átti einmitt erindi í Osló og þá er nú búið að keyra meira en helminginn af fjarlægðinni til Svínsundsins góða og ekki um annað að ræða en að nýta ferðina. Við spöruðum alveg obbo obbo mikið og munum líklega bara kaupa bíl fyrir allar þessar spöruðu krónur ;) hehehehe En við gerðum nú alveg sæmileg kaup og nú er frystirinn fullur af kjúkling og kjötbollum. Það tekur styttri tíma en ég hélt að keyra þessa leið og við vorum bara rétt rúma 3 tíma héðan frá Kongsberg til Svínasunds. Venjulega er þetta jafnvel styttra þegar göngin undir Oslófjörðinn eru opin. Svo þetta verður kannski hobbý hjá okkur þegar við verðum búin að fá okkur bíl. Spurning hvort maður splæsi samt ekki helginni á þetta og keyri niður til Gautaborgar sem tekur víst ekki nema ca. 5 tíma héðan í góðu færi (ss. þegar göngin eru opin). Við fórum semsagt í risastórmarkað og keyptum inn, svo fylgir svona útlandareisum að versla sælgæti og við gerðum nóg af því. Svíar eru nefnilega mjög góðir í að byggja stórar nammibúðir. Við fórum í eina, Godishuset, sem hefði sko látið Nammilandið í Hagkaup skammast sín. Og keyptum þvílík ósköp af sælgæti. Ég veit ekki hvar þetta endar eiginlega. Það er erfitt að gleyma því að maður eigi fleiri kg. af sælgæti upp í skáp. En ég veit svosem alveg hvar þetta endar allt saman. Nebblega í maganum mínum og Styrmis, vonandi samt yfir lengri tíma LOL ;) Í dag fór ég svo í stuttan labbitúr og langan kaffihúsatúr. Rölti mér niður í bæ og fór á Circa, kaffihúsið mitt. Þar fékk ég mér yndislegt 'Grænt te - Sitronella' sem er grænt te með sítrónukeim. Alveg yndislegt og virkar svo hollt og heilnæmt eitthvað. Svo las ég alveg bunka af stelpublöðum. Heilmikið um hús og hýbýli og svo smávegis af Cosmopolitan sem er reyndar ekki alveg minn smekkur af kvennablöðum. Alltof mikið drama eitthvað. Núna erum við svo á leiðinni til tengdó í mat. Hún varð fimmtug á föstudaginn og þá er nú tilvalið að fara í mat. Ooooo hvað ég vona að hún muni að það er bolludagurinn í dag.

mánudagur, febrúar 16, 2004

þá er það á hreinu :)

MEYJA 23. ágúst - 22. september Þú ert óhrædd/ur við að taka á þig aukna ábyrgð á börnum. Þetta er af hinu góða. Barnauppeldi er eitt af mikilvægustu störfum okkar hér á jörðinni.

sunnudagur, febrúar 15, 2004

Myndir af mér

Myndir af mér. Þær eru reyndar ekki neitt rosa góðar en hugmyndin af klippingunni og strípunum sést ;)

Jæja sunnudagurinn er runnin upp. Afmælið var rosa fínt. Afmælisbarnið eldaði yndislegan mat handa okkur. Í forrétt fengum við rússneska rauðrófusúpu og í aðalrétt fengum við kjúklingabringur bornar fram með sérstakri kartöflumús með sellerí og graslauk, besta kartöflumús sem ég hef smakkað! svo voru grænar langar baunir, steiktar furuhnetur og yndisleg eplasósa sem var algjörlega punkturinn yfir i-ið. Í eftirrétt fengum við súkkulaðifrauð með appelsínu. Maturinn var yndislegur í alla staði og félagsskapurinn ekki síðri. Við sátum og spjölluðum svo fram á nótt um hin ýmsustu málefni. Baldur er hundurinn hennar Önnu og hann var yndislega stilltur og góður allt kvöldið. Hann var reyndar mjög forvitinn um okkur þegar við komum í hús. En greyið var svo mikill klaufi, hann lagði loppuna sína undir fæturna á ruggustólnum sem Anna sat í. Og svo kom að sjálfsögðu að því að hún færði sig og hann klemmdi sig, greyið. Vældi og haltraði aðeins um. En það jafnaði sig. Ekki stór skaði, sem betur fer. Þetta var næstum alveg eins og þegar Rán stakk loppunni inní falsinn á fataskápnum og ég sá það ekki. Svo lokaði ég skápnum... ekki gaman. Hún skrækti auðvitað og gargaði upp yfir sig. Svo hljóp hún um stofuna í nokkrar mínútur og haltraði. Ég fékk alveg rosa verk í hjartað og grenjaði dáldið. Það var far í fætinum á henni í tvo daga og hún var ekkert sérstaklega hrifin af mér í svona 3-4 daga. En hún er alveg búin að jafna sig núna. Grey vesalings kisa. En allavegana þá er fínn sunnudagur í dag og ég er mikið að spá í að fara út og viðra mig og jafnvel Styrmi líka. Sólin skín og það er fínasta veður.

laugardagur, febrúar 14, 2004

Heppí valentæns

Ér að fara í ammæli í kvöld. Hlakkar bara þokkalega mikið til. Anna sem vinnur með mér á leikskólanum varð 36 ára á fimmtudaginn og bauð nokkrum af okkur í ammælis í kvöld. Ég fór í tilefni útborgunardags og ammælis í strípur og klipp í dag... þvílíkur munur að sjá hausinn á mér. Rétt að geta þess að ég hef átt svona bad hair weeks núna undanfarnar tvær. Skil bara ekki hvað þetta er með hárið á mér. Það fýkur niður af hausnum á mér og er farið að ná niður á herðar áður en ég get sagt "kommon, ég fæ ekki útborgað fyrr en eftir langan tíma :o" Held ég sé komin með rytmann á þessu núna. Sé allavegana fram á að geta farið aftur í klipp í næsta mánuði svo það er bara greit. Svo fór ég í fatabúðina og keypti mér bol. Sá meira að segja flottan rauðan kjól sem mar notar við buxur. Verð að geyma að kaupa hann þar til næst samt. Vona að hann verði enn til þá... eða að það verði komið eitthvað nýtt sem mig langar í. Annars er allt með kyrr kjörs bara. Ég var að fá tilboð um að vera áfram á leikskólanum og er búin að samþykkja það. Verð allavegana út apríl en staðan er laus til 15. júní. Það kemur allt í ljós með tíð og tíma. Svo þetta þýðir að ég fæ péning péning péning alveg langt út á sumarið. Þokkalega flott bara. Well anyways, happy valentines til jú gæs alle sammen. Góða helgi ps. þarf að taka myndir af NÝJA HÁRINU MÍNU og troða þeim inná... vonandi á morgun.

miðvikudagur, febrúar 11, 2004

Morgunblaðið á Netinu: "MEYJA 23. ágúst - 22. september Þú átt sérdeilis auðvelt með að koma skipulagi á líf þitt og leggja hart að þér um þessar mundir.Nú er rétt að taka til og losa sig við minnst fimm hluti, sem þú notar ekki lengur. " hehe.. aldeilis sérdeilis auðvelt já.

Results...

Results...: "sneakers
Sneakers- funny, laid-back, and goofy, you love to
make people laugh and have a good time. You
enjoy comfort and don't care to much about what
people think of you. You like to hang out with
your buddies and just have a good time. [please
vote! thank you! :)]

What Kind of Shoe Are You?
brought to you by Quizilla"

þriðjudagur, febrúar 10, 2004

MEYJA 23. ágúst - 22. september Þetta er góður dagur til að taka til hendinni þar sem hlutirnir eru að fara úr böndum. Sérstaklega skyldi hugað að þvotti og tiltekt. +-*/*LOL*+-*/ Þetta er nú bara skondnasta stjörnuspáin sem ég hef fengið... Og það er nú allt bara í ágætum málum hjá mér í sambandi við þvott og tiltekt. Var einmitt svo dugleg um helgina að moppa allt og snurfusa til. Og þvottavélin er ekkert í svo mikilli uppreisn þessa dagana, þeytirvindir alveg hreint sæmilega... svo þar er ekkert að vanbúnaði. En af mér er semsagt allt fínt að frétta barasta... er að fara að hlaupa út í vinnuna. Verð að skrifa meira seinna... knús til ykkar allra, sérstaklega til systu, Bryndís

miðvikudagur, febrúar 04, 2004

MEYJA 23. ágúst - 22. september Ekki láta efasemdir um eigið ágæti halda aftur af þér. Þú verður að hafa trú á sjálfri/sjálfum þér til að skila vel unnu verki. Gerðu það upp við þig hvað þú ætlar að gera og taktu svo til óskiptra málanna. Ég veit, ég veit svo vel...

mánudagur, febrúar 02, 2004

Stórafmæli og væntanlegt slabbveður

Hún amma mín á afmæli í dag, orðin 70 ára. Vá! Til hamingju með daginn amma. Vona að ég verði jafn hress og hún þegar og ef ég verð sjötug. Eins og þeir sem skoðuðu vetrarmyndirnar mínar vita, er geðveikislega mikill snjór hérna! Og auðvitað hef ég druslast með þessa heimsku íslensku veðráttu með mér hingað, því nú er spáð uppáhaldsveðrinu mínu, hlýindum oní snjóinn sem þýðir: a) stórflóð, b) slabb aldarinnar, c) rennrennrennblauta skó og sokka þegar skaflaósköpin fara að bráðna *skæl* *sniff sniff*. Mér finnst að það ætti að banna slabb með lögum! :( Annars hef ég það svosem ágætt, er bara að drepast úr leti og leiðindum. (Mætti halda að ég væri sjötug!!)

sunnudagur, febrúar 01, 2004


create your own visited country map Ekki svo mörg lönd fyrir mig, 10 lönd eða 4% af þessum löndum sem eru talin upp. Samt eru þetta eiginlega bara 9 því Vatikanið telst með sem heilt land. Löndin sem ég hef farið til eru: Ísland, Danmörk, Svíþjóð, Noregur, Sviss, Frakkland, Ítalía, Vatikanið Holy state, Marokkó og Spánn. Að sjálfsögðu teljast millilendingar ekki með, ja, ekki nema þú hafir millilent og farið út af flugvellinum actually. Og séð eitthvað! :p