-Bryndís-

þriðjudagur, mars 30, 2004

MIKILL missir fyrir Ísland. Ég veit að margir munu syrgja. tíhí

mánudagur, mars 29, 2004

Já, þetta var ansi fræðandi grein! Það er sko ekkert bara bara að eignast barn... og nei, ég er ekki ólétt. Það er ekki á dagskránni. Fannst þetta bara áhugaverð grein að kíkja á. Poppaði upp á msn-síðunni þegar ég loggaði mig út af. En annars var helgin rosa fín. Höfðum það gott á föstudagskvöldið, ég glápti á alla sjónvarpsþættina mína og hafði það bara rólegt á sófanum. Laugardagurinn var ekki eins góður, náði mér í einhvern slappleika sem var að ganga í leikskólanum. Lýsti sér í höfuðverk og ógleði, ekki gaman! Og það var sko geggjað veður! En þegar fór að líða á daginn náði ég að harka af mér og við skruppum í labbitúr í búðina og keyptum í matinn og svona. Það var ágætt að nota allavegana hálftíma út í góða veðrinu. Á sunnudaginn fórum við svo á tónleika í kirkjunni. Svei mér þá, það mætti halda að ég væri orðin strangtrúuð hérna. Forði mér allir heilagir frá því ;) En það kom þannig til að ein sem vinnur með mér syngur í Kongsberg Kantori sem er metnaðargjarn kór hérna í bænum. Þau sungu Requiem eftir Johannes Brahms og með þeim spiluðu Oslo Symfoniorkester. Svo var Isa Katarina sem söng sópransóló og Thorbjörn sem söng barítónsóló. Þetta er víst frekar þekkt verk, en þó ekki svo þekkt að ég hafi heyrt það fyrr. Ofsalega fallegir kaflar í því og þægilegt að hlusta á. Brahms skrifaði það þegar hann var á aldrinum 30-33 ára og það sem er frábrugðið í þessari dauðsmessu (eins og Requiem kallast) er að hann lofsyngur lífið og þá sem eftir standa þegar einhver deyr. En venjulega er það semsagt sá dauði sem er upphafinn og lofsunginn. Þá vitiði það! Ábyggilega verið mjög spennt að vita það líka ;) well, hef ekki svo mikið að segja annars held ég, hmmm. Jú verð nú eiginlega að senda henni Hildi vinkonu minni góða ferða/flutningakveðju því hún er að flytja til Englands. Er að fara út á miðvikudaginn. Hennar verður sárt saknað á Íslandi, en þetta er í rauninni gott fyrir mig því það verður nú ekki svo langt til hennar núna ;) Ég hef aldri orðið svo fræg að heimsækja England svo það er ábyggilega alveg kominn tími á það.

föstudagur, mars 26, 2004

Vitiði bara hvað...

þegar ég kom heim úr vinnunni í dag var Styrmir búinn að laga tölvuna mína :D Keypti nýjan straumbreyti þessi elska og var búinn að skipta um. Svo ég gat sest hér við elskulegu tölvuna mína og bara surfað away!!! Annars var þetta bara góður dagur. Við fórum út í nestisferð ekki að það sé í frásögur færandi. Við förum alltaf í hverri viku og stundum oftar en einu sinni. En allavegana í dag var verið að setja upp á sirkustjald á leiðinni sem við löbbuðum. Og við sáum tvö kameldýr sem voru að fá sér að drekka. Við stoppuðum og kíktum á þau og þau kíktu voða forvitin til baka. Svo byrjaði annað dýrið að vagga sér til og frá, alveg eins og það væri að dansa fyrir okkur. Ótrúlega ótrúlegur dagur :D Og já, við vorum að panta kisupass fyrir páskahelgina. Við erum búin að ákveða að fara til Gautaborgar frá 7. til 12. apríl. Það verður gaman að sjá Lísu og Birgir og Nökkva prakkara aftur. Höfum ekki séð þau síðan í ágúst í fyrra. Má segja að það sé kominn tími á aðra heimsókn!!

miðvikudagur, mars 24, 2004

Langt síðan ég sagði eitthvað af viti hér síðast...

ég er enn á lífi og lífið er bara ágætt þessa dagana. sumir dagar eru þó sveiflukenndir og þokukennt hvað maður er að gera með því að fara á fætur og framkvæma nákvæmlega sömu rútínuna og í gær :þ En þetta kemur, vorið virtist vera á næsta leyti hérna í sveitinni en Vetur konungur ákvað að það væri alltof snemmt fyrir litla léttfætta vorið að vera að troða sér inn á dagskrána strax. Það hefur snjóað hér síðustu 3 nætur og allt er voða hvítt og bjart þegar ég fer á fætur. Sem er svosem ekkert slæmt... en mig langar samt alveg í vor bráðum. Líklega verður nú samt hægt að búast við svona snjórugli fram að páskum. ég hef eiginlega minna en ekki neitt að segja. langar að segja eitthvað gáfulegt og framúrskarandi. en einhvern veginn er það svo að þegar ég opna þessu síðu þá verður einhver andleg auðn og það eina sem mér dettur í hug að skrifa er tómleiki, auðn eða ekkert. Get samt alveg sagt frá því að ég er með heimþrá dauðans og ég sakna þess svo ótrúlega mikið að hitta fólk sem ég þekki... veit ekki hvar þetta endar :(

föstudagur, mars 19, 2004

hehehehe

Ferskir vindar... alltof langt síðan ég las Baggalút síðast!!! Var að lesa þennan: API VIKUNNAR Baldvin Þorsteinsson EA fyrir að liggja í leti á ströndinni í heila viku og sóla sig í stað þess að veiða loðnu eins og öll almennileg skip.

miðvikudagur, mars 17, 2004

úff hvað það er gott að þessi dagur er búinn

Sumir dagar sko! Þetta var einn af þessum dögum, þar sem hefði verið gott að sofa bara til hádegis og vakna svo úthvíldur og ákveða að í dag væri dagurinn sem þú ætlaðir bara að eyða á snyrtistofunni, snyrtivörubúðinni, fatabúðinni og SPA-inu... en nei, það er náttlega ekki hægt að hafa svoleiðis daga alla daga. Ég vaknaði voða sybbin í morgun, fór í vinnuna en dagurinn var bara dæmdur til að vera óhappa/leiðindadagur. Stundum er bara ekki hægt að breyta til með góðu hugarfari. Ekki að ég hafi nú ofreynt mig á því að reyna ;) Nenni ekki einu sinni að skrifa um eða muna eftir bömmerum dagsins. En allavegana eftir situr að ég er svo gjörsamlega úrvinda af þreytu, hálfsólbrunnin í framan og með risablöðru aftan á öðrum hælnum. Dagurinn á morgun getur ekki annað en orðið himneskur í samanburði við daginn í dag :D Jei!!!! og það er nú eitthvað til að hlakka til. Allavegana er vorið að brjótast fram með látum bara hér í sveitinni. Snjórinn bráðnar svo það myndast pollar og stöðuvötn um allar trissur. Jeiiii slabb, uppáhaldið mitt. Ég reyni að pollýannast og hugsa bara um næsta síson á eftir... en svo kom reyndar í ljós að það er næsta á eftir því sem ég á að hlakka til. Því á eftir snjóbráðnunarsísoninu kemur að rigningarsíson... jibbí Ég er alltof þreytt til að vera að skrifa hérna. Gerist hér með ofursniðug og set sjálfa mig í ritbann until after at least 8 hours of sleepy-sleep. Góða nótt

laugardagur, mars 13, 2004

Ég er þokkalega leið yfir því að besti vinur minn sé óstarfhæfur :/

Ég er að byrja að átta mig á því hvað þetta þýðir í raunveruleikanum. Elsku litla rúsínudúllan mín er dáin og kemur ekki aftur. Það sem ég vonast eftir núna er að litli ræfillinn sem ég er að keyra núna, krassi ekki á næstunni. Ég verð að spara bigtime og hef nú ekki það mikið að moða úr fyrir. Og að hugsa sér allt sem mig langar miklu meira að gera en að spara fyrir nýrri tölvu :( 1. Fara í ferðalag 2. Kaupa bíl 3. Endurnýja innihaldið í fataskápnum 4. og svo eru náttlega ótal námskeið um allt milli himins og jarðar sem mig langar til að taka þátt í. En þetta verður að bíða, allavegana þar til ég er búin að vinna í lottóinu. Mér líður eins og það vanti part á mig. Samt eru báðar hendurnar á réttum stað og ég taldi tíu fingur fyrr í dag. (Lítið að gera, u know!) Eftir því sem ég kemst næst er ég í heilu lagi. Við reyndum að vera heví sniðug og skipta út straumgjafanum en svo kom í ljós að gamli passar ekki í mína. Svo það féll um sjálft sig. En að sjálfsögðu komumst við ekki að því fyrr en við vorum búin að rífa hann úr sambandi. Þoli ekki svona vesen. Svo er að sjálfsögðu bara eitthvað leiðindarugl í tv-inu og ég sit hérna og veit ekki í hvorn fótinn ég á að stíga. Ble rugl :( Annars er ég annars í lagi. Er búin að vera að fá svo geðveikt skemmtileg og uppbyggjandi hrós í vinnunni. Var spurð að því á föstudaginn hvort ég væri alveg viss um að ég hefði aldrei unnið á leikskóla. Þetta gengi svo vel hjá mér. Og afhverju ég hefði hreinlega ekki menntað mig til að vera fóstra fulltime. Það var svosem draumurinn once upon a time in the past. Man ekki alveg afhverju það varð svo ekki raunhæft val. Ég held kannski að öll þessi félagsfræði sem ég tók í Flensborg hafi bara drepið áhugann. Man allavegana mjög vel eftir því að hafa verið gjörsamlega komin með ógeð á henni. Svo hef ég alltaf verið eitthvað viðkvæm fyrir hugsuninni að vinna með fólk. Kannski vantaði bara að fá að prufa? En verið alveg róleg, ég er ekkert að fara að skrá mig í fóstruskólann. Best að gefa því námi sem maður er þó búinn að puða sér í gegnum smá séns fyrst. Hlýtur að fara að koma að mér!! Mér líður allavegana mikið betur eftir þessa mánuði í þerapíu á Skavanger. Maður lærir svo mikið um sjálfan sig þegar maður vinnur með börn. Það þýðir svo ósköp lítið að missa sig yfir öllum smáatriðum og vera pirraður all day long! Málið er compromise compromise compromise. Sem gildir víst, er mér sagt, líka í daglegu lífi með fullorðnu fólki?? anyone?? Mér líður stundum eins og ég sé stödd í öðru lífi en því sem ég hef upplifað áður. En það er bara gott merki, maður vex og þroskast á hverjum degi. Hittir nýtt fólk og verður að finna út hvernig maður hefur samskipti við það, þannig að allir séu ánægðir. En rosalega er ég samt einangruð, ég hef haft mikinn tíma til að hugsa undanfarið. Hvernig kemur maður sér í svona aðstöðu? Allt í einu er ég bara ekki í sambandi við neinn. Nokkur orð á msn. Símtal 2-3 hvern mánuð. Og það er nú bara bull að hugsa að það sé öllum hinum að kenna. Allavegana hef ég ekki áhuga á því að hugsa þannig. Afhverju loka ég mig frá öllum? Það er nefnilega mikilvægt að átta sig á því þegar aðstæður eru ekki eins og þú vilt hafa þær er hægt að skoða hvað þú sjálfur gerir rangt. Ég hef verið þokkalega hrædd við að tala við fólk því þá þarf ég að segja eins og er, ég er enn ekki komin með þá vinnu sem ég helst myndi óska mér. Ég hélt að þetta yrði mikið léttara að finna vinnu, að sumu leyti hef ég verið óheppin með tímasetningu. Að öðru leyti hef ég verið of hrædd og of óframfærin til þess að geta átt nokkurn séns á því að fá vinnu. Mér líður þannig í dag að ég óska mér að fá betri vinnu. Ég get hugsað um sjálfa mig þannig að ég eigi það skilið að finna mér vinnu við mitt hæfi. Ég er einhvers virði. Fyrirtæki gæti virkilega haft gott út úr því að fá mig sem starfskraft. Ég hef öðlast trú á sjálfa mig aftur. Það er gott að finnast maður einhvers virði :D Og nú er bara að halda áfram að vinna að settu marki. Því þessi vinna var ekki ástæðan fyrir því að ég flutti hingað! (hard to believe? I know!! :O ) well, best að hætta á trúnó í bili... damn, hvað svona tölvubreakdown hefur víðtæk áhrif!!! knús til ykkar allra sem nenna að lesa

fimmtudagur, mars 11, 2004

It had to happen sooner or later...

Ég settist við tölvuna í mesta sakleysi einhverju eftir að ég kom heim í dag úr vinnunni. Byrjaði á bloggrúntinum eins og venjulega. Var búin að lesa yfir það mesta. Þá datt þessi hættulega hugmynd inn í hausinn á mér: Best að sjá hvort ég sé ekki búin að vinna fullt af pening í happdrættinu án þess að vita af því :o Svo slæ ég inn www.hhi.is og ENTER. Þá gerðist það, svo hræðilegt að ég get næstum ekki hugsað um það. Það heyrðist lítið hljóð og skjárinn varð svartur. Svo slökkti hann á sér og búmm, tölvan mín er dáin. Það var ekki hægt að slökkva á henni, ég varð að rjúfa strauminn handvirkt með því að taka rafmagnið frá henni. Greyins litla dúllutölvan. Sem gerði engum neitt. Bara leyfði mér að surfa netið og vesenast það mesta. Farin svona ung, hún er rétt orðin 4 og hálfs.... sniff sniff. Styrmir vélbúnaðargúru kíkti á hana og potaði í alla enda sem honum datt í hug. En ekkert hjálpar. Hún er bara alveg dauð. Ég þori næstum ekki að hugsa um harða diskinn. Hann verður bara að vera í lagi. Annað kemur ekki til greina :'( Svo núna er ég búin með góðri hjálp frá Styrmi að drusla Linux vélinni í samband. Ég er bara svo viðkvæm ennþá og við það að skæla að ég fíla engan veginn að vera að standa í einhverjum byrjunarörðugleikum í linuxheiminum í dag :( En kannski maður eigi bara að vera hamingjusamur fyrir það sem maður þó hefur. Ég kemst á netið og er búin að downloada og kickstarta amsn. Svo ég er allavegana þannig séð í sambandi. Og ég er lifandi en ekki sprengd í tætlur í Madrid. Hversu tilgangslaust er þetta að allt þetta fólk hafi misst lífið í dag!!!

mánudagur, mars 08, 2004

Heilsubrauð

MEYJA 23. ágúst - 22. september Þú ert hugfangin af einhverju og vilt því að allir í kring um þig komi auga á ágæti þess. Reyndu að muna að við getum ekki þrögvað skoðunum okkar upp á aðra. Best að þröngva þá upp á lesendur heilsubrauðsuppskriftinni minni ;) Alveg við hæfi!! Þessi uppskrift dugar í fjögur 1,5 lítra brauð eða þrjú 2 lítra. Ég hef gert bara hálfa uppskrift og fæ þá tvö 1,5 lítra brauð :) Efni: 1,3 kg fínt heilhveiti (fin sammalt hvete) 200 g fínt rúgmjöl (fin sammalt rug) 200 g heilhveitikorn (helkorn hvete) 75 g pressuger (eða 1,5 pokar af þurrgeri) 2 tsk salt 9 dl hveitiklíð 1,8 l volgt vatn (37°C), eða 1 l súrmjólk og 8 dl vatn 1 dl hörfræ 1 dl sólblómafræ Aðferð: Öllum þurrefnum blandað saman í skál, leysið pressugerið upp í hluta af vökvanum og blandið saman við restina annaðhvort í hrærivél eða með sleif. (Ef þurrger er notað er það bara sett í með þurrefnunum og vatninu bætt út í). Það er mjög mikið vatn í deiginu og þess vegna létt að hræra það saman með sleif í skál. Ath! Deigið er mjög blautt og ekki er hægt að hnoða það á borði. Svo er deigið látið hefast í klukkutíma í skálinni. Ég set plastfilmu yfir skálina. Eftir klukkutímann er loftið bankað úr deiginu með því að slá skálinni í borð. Látið hefast aftur í hálftíma og sláið svo loftið aftur úr. Hellið þvínæst deiginu í smurð form og bakið brauðin í miðjum ofni á 220 °C undir og yfirhita (200°C í blástursofni) í ca. klukkutíma. Brauðin eiga að vera blaut/klesst inní. Þá þarf maður líka minna álegg :D (Nú er ég að skrifa beint upp úr uppskriftinni, ég nota alveg jafn mikið álegg og áður). Mér finnst þetta brauð mjög gott og við erum búin að baka það tvisvar núna. Fyrst prufaði ég pressuger en núna í seinna skiptið notaði ég þurrger, finn ekki svo mikinn mun á þessu. Ég setti reyndar pínu meira salt núna í seinna skiptið og fannst það betra. Hef ekki prufað að nota súrmjólk en á ábyggilega eftir að prufa það næst. Ég segi bara gangi ykkur vel að baka og verið viðbúin að missa kíló. Það var nefnilega heil opna í vikublaðinu sem ég fékk uppskriftina úr, þar sem var talað um hvað margar konur eru búnar að missa fleiri kíló á ári eftir að hafa farið að borða þetta brauð. Ég bakaði það nú samt ekki þess vegna, leist bara vel á uppskrift að virkilega grófu brauði.

sunnudagur, mars 07, 2004

Sunnudagur - nafn með rentu

Fyrir einhverjum dögum heyrði ég það útskýrt í leikskólanum að mjög mikilvægt væri að drekka nóg af mjólk til að fá í sig nóg af kalki. Þetta var vegna þess að hér í litla Noregi fáum við svo lítið af sól. En guð minn góður! Íslendingar ættu nú ekki að lifa af ef það væri miðað við sólarmagn hér og þar. Sólin hefur skinið nánast upp á dag í einn mánuð ef ekki bara einn og hálfan. Til sönnunar á því vísa ég í myndirnar mínar. Ég er komin með freknur!!! Og það hefur verið svo flott veður hérna svo lengi núna að ég er gjörsamlega alveg að verða búin að gleyma umhleypingum og vitleysu á Íslandinu góða. Samt er eitthvað í mér sem bíður alltaf eftir því að vakna einn morguninn og þá verði virkilega subbulega ömurlegt veður. Rigning og rok og suddi. Ég er að verða nokkuð viss um að það verði bara að bíða betri tíma eða þar til ég hef efni á miða heim til Íslands ;) Að öðru, það er auðvitað alveg yndislegt að sólin skín eins og hún eigi lífið að leysa alla daga. Það brást ekki í dag frekar en aðra daga. Svo ég neyddi Styrmi til að koma með mér í labbitúr í dag. Bara rétt til að geta sagt að við höfum nýtt veðrið í dag. Við gerðum okkur ferð niður á "tjörn" og hentum brauði í nokkrar endur og 3 svani. Ég bjóst nú við að endurnar væru að sökkva af ofneyslu í dag en þær voru bara spenntar og busluðu mikið til að ná bestu molunum. Ohhh hvað það er nú hressandi að gera eitthvað nýtt. Ég mæli sterkt með því að allir gefi sér tíma til að fara og kasta brauðmolum í endurnar. Þær voru svo þakklátar og sælar með gamalt og óhresst brauð. En að sjálfsögðu klikkaði ég alveg á myndavélinni í dag, mundi ekki eftir henni fyrr en við vorum að byrja að kasta brauðinu. Og þetta hefði nú verið svo þvílíkt gott tækifæri til að festa Styrmi á mynd. Eins og myndaalbúmið gefur til kynna hefur hann ekki verið svo æstur að fara með mér í göngu í vetur. Kannski það breytist með hækkandi hitastigi. Mér fannst allavegana mjög gaman að fá félagsskap í sunnudagsröltið. Það var líka svo hlýtt og yndislegt veður. Hitamælirinn okkar sýndi 14 hitastig. Ég er reyndar ekki alveg sannfærð um að hann sýni alltaf rétt. Nú svo skellti ég í heilsubrauð og það er að bakast í ofninum as I type. Komin yndisleg brauðlykt í húsið og ég hlakka til að smakka nýbakað brauð. Ég fékk þessa uppskrift upp úr norsku vikublaði. Þetta er algjört æði núna, kallast megrunarbrauð en ég er nú ekki að nota það neitt sérstaklega þannig. Fannst bara æðislegt að fá uppskrift að virkilega grófu brauði. Og okkur reiknaðist til að þetta væri nú bara sambærilega dýrt og gróf brauð í bakaríinu. Við horfðum á Formúlu-1 keppnina í dag og hún var með eindæmum viðburðarlítil og leiðinleg. Að sjálfsögðu vann Michael Schumacher eins og undanfarið og Barrichello í öðru. Hlýtur að vera leiðinlegt að keyra og þurfa varla að stressa sig á því að hinir veiti samkeppni? Eftir að Ferrari hefur unnið með svona miklum yfirburðum undanfarið hef ég fundið fyrir því að áhugi minn hefur dalað allverulega fyrir því að horfa á keppnina. Ekkert gaman að fylgjast með þegar maður veit nánast hver vinnur fyrirfram :þ

laugardagur, mars 06, 2004

Leiðindi á laugardagskvöldi og bryndís er nískupúki (who would have thought :o hahahaha)

jæja það eru alltaf jafnfáir online á msn á laugardagskvöldum. Ég verð nú fljótlega bara að fara að auglýsa skemmtiatriði, live á netcaminu hjá mér ;) hehe Þetta er búinn að vera ótrúlega viðburðarlítill dagur en samt bara kósý. Sat í tölvunni, hleypti Rán út, sat lengur í tölvunni og hleypti Rán inn. Kúrði mig undir sæng í sófanum, hleypti Rán út, kúrði mig meira undir sæng og hleypti svo Rán inn aftur. Nú svo hlustaði ég á tónlist og hleypti Rán út, hlustaði á meiri tónlist og hleypti Rán inn. Náið kannski hugmyndinni. Hún er mikið fyrir að skipta um umhverfi og finnst ekkert neitt rosalega gaman inni. En það er nú samt öruggara að tékka á því reglulega hvort það sé kominn meiri matur í skálina ;)En ég fékk allavegana hreyfingu út úr þessu. Svo röltum við út í búð og keyptum sveppi til að hafa í kvöldmatinn. Áttum sko mat heima en það var tilvalið að koma sér aðeins út úr húsi og anda að sér fersku lofti þó ekki væri nema í fáar mínútur. Ég er búin að vera að glápa á norsku forkeppnina í júróvisjón. Íslendingar geta alveg snarhætt að skammast sín fyrir sína forkeppni heima. En reyndar var nú einn ískaldur af klakanum sem spilaði með í einu laginu. Ég held að þáttastjórnandinn hafi sagt að hann heiti Birkir. Birkir sagði eitthvað á þessa leið: Góða kvöldið kæru íslendingar í Noregi. Þið megið gjarnan kjósa okkkar framlag. Alltaf gaman að heyra íslensku í sjónvarpinu. Jibbíí. Annars er alveg rándýrt að horfa á sjónvarpið hérna. Sérstaklega ef þú ert með gemsann við höndina. Það rúllar varla einn þáttur í gegn án þess að áhorfendur séu spurðir um álit eða eigi að kjósa í vinsældarkeppni. Og ég onkel Scroooge fussa og sveia yfir þessu öllu saman. Það kostar fokking 5 krónur (NOK) að senda inn sitt atkvæði. Semsagt 50 kall ísk. Til dæmis er PopIdol í gangi á TV2 núna. Þeir eru svoleiðis að fokking stórgræða á því að allir unglingarnir (og fleiri greinilega) liggja í símanum og kjósa sinn uppáhalds keppanda eða uppáhalds keppendur. Þáttastjórnendurnir hvetja mikið til þess að greiða atkvæði til allra sem þér finnst fínir. Síðustu þættir hafa verið að taka inn ca. 800.000 NOK sem eru 8 milljónir fyrir hvern þátt. Svo eru þeir með góða auglýsingasamninga líka. Það er bara gott mál að vinna í sjónvarpi þessa dagana. En ég er svo gömul og nísk að ég tími ekkert að kjósa :s Ég verð nú næstum því að spyrja, er þetta orðið svona á Íslandi? Ég veit að það hafa verið svona söngvakeppnir og svona sem nýta sms kosningar. En eru allir umræðuþættir komnir með þetta sem fastan lið?