-Bryndís-

laugardagur, apríl 24, 2004

Laugardagur

Nohhh, bara bloggað á hverjum degi núna. Vil byrja á því að óska litlu systir til hamingju með daginn. Orðin 19 ára þessi dúlla! :) Knús og kossar frá mér!!! Ég var að frétta að Ölduslóðin hefði verið á sölu núna fyrir nokkrum vikum. Sé ekki auglýsinguna, svo annaðhvort hefur hún hætt við eða er búin að selja. Sá einhver þessa auglýsingu? If so, hvað var sett á íbúðina? Íslenska sumarið er komið hérna í Noregi, í dag var 10 stiga hiti og sól. Voða fínt. Ég dreif mig út í garð með vatn í bala og tusku á lofti. Þreif garðstólana hátt og lágt og þurrkaði af grillinu svona til málamynda. Svo sumarið getur komið hérna þegar því sýnist :þ Annars er lítið að gerast. Reyndar tók Rán upp á því að fara að stökkva út um gluggann nánast. Held þetta séu einhver mótmæli við því hvað við erum léleg að hlaupa og hleypa henni út alltaf þegar henni langar. Hún semsagt fer út um eldhúsgluggann út á þakið yfir veröndinni og lætur sig svo bara gossa niður í garð. Ég var nú ekki alveg að trúa þessu. Hún semsagt hvarf bara í morgun, ég skildi ekkert hvað varð af henni. Leitaði út um allt, kíkti í allar gluggakistur og skápa sem ég hafði opnað í morgun. Svo kom ég auga á hnoðrann út í garði svona líka upptekna við að veiða fiðrildi og flugur. Svo hoppaði hún aftur núna seinnipartinn. Ég fylgdist að sjálfsögðu spennt með. Jújú hún læðist niður í þakrennuna og svo heyrist bara dynkur og hún er komin niður. Ótrúleg dirfska, þetta eru nú allavegana 3 metrar niður. Reyndar mjúk lending á grasinu. Jæja nóg af æsispennandi kisusögum úr sveitinni... sí jú leiter

föstudagur, apríl 23, 2004

Föstudagur

Bara reyna að láta vera að blogga ekki í tvær vikur... hitastigið gengur upp og niður og engan veginn hægt að segja um hvar þetta endar allt saman. fékk að fara snemma heim í dag, það var indælt. Rán var ánægð að sjá mig þegar ég kom heim.. svo kom rigningarskúr og nokkrar þrumur, alltaf hressandi well 3 jákvæðir hlutir fyrir daginn ... ekki sem verst eða hvað.

fimmtudagur, apríl 22, 2004

So cute I could just...

Sjáðu hérna Ath. þetta eru kisumyndir ;)

mánudagur, apríl 19, 2004

ég er enn á lífi...

... þjáist bara af mikilli skrifteppu. Við komum heim úr fríinu og höfum haft það bara indælt síðan. Vinna og skóli allt gengur sinn vanagang. Styrmir er að klára síðustu kennsludagana í skólanum svo tekur við upprifjun og upplestrarfrí. Hann klárar prófin í byrjun júní ef mér skjöplast ekki. ég er enn á höttum eftir nýrri vinnu og hef ákveðið að ég finni vinnu áður en maí lýkur. Hljómar vel! Rán hefur það fínt, er rosalega ánægð að vera heima og malar ef við nálgumst hana. Ekki leiðinlegt að eiga svona elskulegt og húsbóndahollt dýr. meira seinna...

þriðjudagur, apríl 06, 2004

Páskafrí

Jæja þá er blessað páskafríið að skella á. Kattakonan kom að sækja Rán í pössunina áðan. Ótrúlega erfitt að sjá á eftir henni. Við sjáumst ekki fyrr en eftir viku :'( Ég get svarið að ég sat bara eftir hérna með tárin í augunum. Kattakonan var samt voða hugguleg og vinaleg. Rán verður í góðum höndum. Verð bara að hugsa að hún hafi það gott þangað til við komum aftur. En ég hlakka samt til að fara til Svíþjóðar. Verður gaman að hitta Lísu og Birgi og Nökkva. Og rölta í bæinn og hafa það rólegt bara. Eins og það er nú alltaf standandi partý á okkur alla daga hérna heima sko!!! LOL Hef annars lítið í fréttum... fór í klippingu í dag og er bara sæmilega sátt. Gellan blés nú samt hárið á mér á eftir eins og ég hefði komið og beðið um lagningu. Kommon, ég er kannski ekki yngst í anda en tel mig nú samt vera undir sextugsaldrinum :þ later

mánudagur, apríl 05, 2004

Amazing honda ad

Amazing honda ad

ég hef fundið lækninguna... e. I have found the cure.

Nei ekki hljómsveitina.... hehehehe ég er svo fyndin... Did anybody notice? ég er algjör snilli sko! Skrifa bara bullið mitt inn í word eða notepad og klístra því svo inn í blogger og slepp við heiladoðann sem fylgir því að kveikja á þessari ljótu síðu... ér best! Allavegana sit ég og sit hérna við tölvuskjáinn... ábyggilega er margt sem ég ætti heldur að vera að gera- but this just feels so right somehow. ég ætla að fara á morgun og láta grynnka á hárlubbanum mínum. Fékk nett sjokk þegar ég, í gær, var að skoða myndirnar frá því að ég var nýbúin í klippingu síðast. Jújú hárið síkkar svosem á mörgum vikum... var bara ekki alveg að fatta hversu sjúskí þetta var orðið ;) Furðulegt eins og það er, þá sakna ég Bjargar á meðan hún er í fríinu sínu. Hvernig er hægt að sakna manneskju, sem maður hefur ekki hitt í 10 mánuði, meira af því að hún er í sólarfríi en ekki á sínum venjulega stað heima eða í vinnunni? Ekki eins og við kjöftum stanslaust þó hún sé heima hehehe. En ef hún væri heima væri þá alltaf séns að hitta á hana á msn... *knús* vinkona, hafðu það gott í sólinni! Og mundu að smyrja þig vel með sólkreminu. Ég er eiginlega þokkalega hamingjusöm/sátt þessa dagana. Samt er það nú einhvern veginn svo að þegar ég sest niður og hugsar þá kemur einhver depurð yfir mig. Samt ekki svona “depurð depurð”. Kannski er þetta bara tónlistin sem ég er að hlusta á. Ég fékk bara svona köfnunartilfinningu hérna um daginn, finnst ég vera að missa af svo miklu. Kaffihúsaferðum & blaðri um allt og ekkert. En hvað er lífið annað en að vera með fólki sem manni þykir vænt um og finnst gaman að eyða tíma með. So my life is not a waste ;) Vildi bara að ég gæti hitt & umgengist ennþá fleiri sem mér þykir vænt um!

hvernig er þetta hægt?

omg ... Ég sest niður við hotmail og orðin bara flæða og flæða út í bréfið.. misgáfuleg að sjálfsögðu! svo opna ég þessa síðu og dettur í hug að skrifa opið bréf hér ... en nei! Þá myndast bara eyða í heilanum á mér og mig langar ekki lengur að skrifa bréf... hvað er að?? well, vinir ættingjar og aðstandendur... afsakið hlé!!!!! gleðilega páska ef mér tekst ekki að opna flóðgáttirnar fyrr en eftir hátíðina *kiss* *kiss*

sunnudagur, apríl 04, 2004

Hérna er hægt að gleyma sér lengi lengi í happy happy landi: Kittens :)