-Bryndís-

mánudagur, maí 31, 2004

Freknusöfnun í gangi


Frekna Posted by Hello Er búin að taka þónokkrar freknur inn í söfnun helgarinnar. Líst bara vel á þetta. Held ég sé loksins kominn upp á lagið með sólarvörnina. Nú er bara að halda áfram á sömu línu.

sunnudagur, maí 30, 2004

Bjútífúl veður

Ég er aðeins farin að kannast aftur við veðurfarið hérna í Kongsberg. Það er geðveikt veður, sól og hlýtt. En á sama tíma er smá vindur. Mar er svosem ekkert óvanur því ;) Er búin að sitja út í klukkutíma í morgun og hafa það gott. Ákvað að það væri sniðugt að taka smá pásu núna og fór inn í hádegishlé. Gott að spara húðina líka aðeins svona fyrstu dagana. Annars er ég að sjálfsögðu búin að smyrja mig hátt og lágt með sólkremi. Ætla að ná lit í sumar án þess að fuðra upp :D Hringdi í Bjarka frænda í gær í tilefni af afmælinu hans. Orðinn tuttuguogtveggja ára litli frændi. Á sama tíma sem ég heyri í fjölskyldunni heima átta ég mig á því hversu mikið ég sakna þeirra og allra hinna. Fékk á tilfinninguna í dag að ég gæti bara "skroppið" í heimsókn. Skrýtið eftir allan þennan tíma. Allavegana er í voða kósý skapi og hlakka til að komast aftur út í garð eftir pásu. knús og kossar, Bryndís

föstudagur, maí 28, 2004

Helgin er komin í hús :D

Loksins komin helgi aftur ;) Annars er nú ekki nema helgi nánast hjá manni, vikurnar líða svo fljótt. Strax kominn júní!! Það er búið að vera geðveikt flott veður síðustu tvo daga og ég er meira að segja farin að vinna í því að fá lit á leggina. Við Styrmir erum að njóta sumarsins sem er í aðsigi. Hann er úti við grillið að hafa til flotta steik handa mér. Svo er bara bjórinn við hönd og góða skapið í nokkuð góðum gír. Viva la sol! Viva la musíca! Viva la cerveza! Knús í krús til ykkar, Bryndís frekna

miðvikudagur, maí 26, 2004

Niður ... upp ... niður

Skapið flakkar... ótrúlegt að maður eigi svona margar tilfinningar á einu kvöldi. Hér sit ég ein við tölvuna og læt alls konar fólk og vitleysu fara í taugarnar á mér. Byrjaði að lesa bull á internetinu, fréttir og fleiri lygar. Ákvað svo að lesa falleg bréf sem ég hef fengið og hlusta á þægilega tónlist. Er núna bara töluvert afslöppuð og vellíðan streymir um kroppinn. Ég er svo þreytt á fólki sem sér alltaf djöfla í öllum hornum. Að nenna að vera að pirra sig á öðru fólki sem manni kemur ekkert við og þarf aldrei einu sinni að hafa samskipti við. Ég er blessunarlega laus við þetta akkúrat í þessu tímabili í lífi mínu. En ég er náttlega algjör hippókrati því þetta er svo nákvæmlega eins og ég hef svo oft óskapast yfir fólki sem mér kemur ekkert við og þarf ekki einu sinni að hafa samband við. En batnandi mönnum er best að lifa! Fékk dapurlegar fréttir í dag af konu sem ég kannast við. Hún á eftir ca. 2 ár í eftirlaun og var að fá þær niðurstöður að hún er í hættu á að missa sjónina að miklu eða öllu leyti. Þetta minnir mig bara enn og aftur á það að það er engann tíma að missa. Njóta skal lífsins á meðan getur. Auðvitað er allt best í hófi og allt það. En það má bara ekki gleyma því að við erum ekki hér endalaust. Og engar tryggingar höfum við fyrir góðri heilsu lífið á enda. Er að hugsa góðar hugsanir til hennar og óska henni góðrar betrunar.

mánudagur, maí 24, 2004

Ég er bara hress

Fór í vinnu í dag. Það var eiginlega bara hressandi. Mjög fegin að ég tók af skarið heldur en að liggja heima í einn dag í viðbót. Er næstum viss um að líkaminn hefði fundið upp á einhverjum nýjum kvilla. Fyrir utan hvað maður fær mikla vöðvabólgu af því að liggja og sofa svona mikið :o Ég er bara lítið kvefuð og með smá kinnholubólgu. En það lagast nú ábyggilega fljótt :) Ég verð hálfhrædd við það hvað fólk leggur mikla áherslu á pensillín-kúra. Nokkrar í vinnunni voru mjög hneykslaðar á mér að hafa ekki drifið mig til læknisins um leið og fann að ég var veik og pantað kúr. Fyrir það fyrsta þá virkar pensillín ekki á flensu, kvef né flestar gerðir hálsbólgu. Í öðru lagi þá eru aukaverkanir töluverðar af því að fara á svona kúr. Og í þriðja lagi, afhverju að vera henda peningum í lyf sem hafa líklegast engin áhrif? Að sjálfsögðu ef ég lægi hér ennþá með bullandi hita og hálsbólgu, myndi ég leita læknis og spyrja hann ráða. Ég myndi EKKI panta nein lyf af því ég héldi að það væri best.

föstudagur, maí 21, 2004

Hvaða barbapabbi ert þú?

Academic
You are Barbatine! You are well-read and love to
learn. You were gloomy in your youth and found nothing you liked to taste, but you're older now,
and have an incisive sense of humour that makes you and others smile.

Which Barbapapa Personality Are You?
brought to you by Quizilla

Heilsan og hárið

Mér líður aðeins betur. Er samt ekki alveg frísk :/ Er búin að vera í svitaköstum núna í nótt og í gær. Einstaklega þægilegt að vakna upp við það að vera að fljóta út úr rúminu á eigin svita. Fötin og dýnan og sængin allt svona skemmtilega klesst við mann. Ég man ekki eftir því að hafa verið svona lengi veik í einu... ever. En á móti kemur að ég hef hörmulega lélegt minni. Svo væntanlega muna ættingja mínir eftir því að ég hef legið algjörlega hjálparvana í þjáningu. En ég svona heppin að geta gleymt öllu. Reyndar ekkert alltaf gaman að vera minnislaus. Og svo poppa líka oft minningar upp þegar maður síst vill muna. Alveg týpískt. Hárið á mér er annars sérstaklega fallegt í dag. Stendur í allar áttir. Og ég er svo ekki að nenna að gera neitt í því :D Er að spá í að setja bara á mig húfu þegar ég tek og hendi þvottinum út á snúru. Já ég hafði það virkilega af að setja í þvottavél. Svo þá hlýtur nú ástandið að vera að batna, right? Friður á jörðu, amen...

fimmtudagur, maí 20, 2004


Besti vinur minn  Posted by Hello

Hey kúl

Blogger er kominn með myndafeature líka... og þeir geyma myndirnar. Og þeir segja no restriction á geymsluplássi... sem hljómar reyndar of gott til að vera satt hmmmm. Og ég var ekki að grínast með rúlluna hérna á undan. Geri ekki annað en að snýta mér með fárra mínútna millibili. Ég hélt kannski að ég yrði hressari í dag en í gær... Eiginlega kominn tími á það. En nei! Svaf mjög slitrótt í nótt vegna sársauka í kinnholunum. Mér er farið að líða eins og ég sé að finna upp á einhverju til að verða ekki frísk. En ég ætla að ná úr mér hitanum í dag og vera orðin frísk á morgun. Nenni ekki að liggja lasin allt fríið mitt!

miðvikudagur, maí 19, 2004

Hljóð er nauðsyn

Kisudansinn

Minns villiggi vera veikur lengur...

Hvað ég er orðin leið á því að vera slöpp og illt og með hor og slím og viðbjóð!!! arggggg... Já þá er það komið út úr systeminu allavegana. Ég er eins og versta kelling hérna ligg alveg og engist af kvölum yfir því að vera með einhverja fjárans kvefpest. Og þegar ég held þetta sé alveg að lagast hættir íbúfenið að virka og mér er illt á nýjum stað. Það er nokkuð augljóst að ég kann ekki lengur að vera veik. Þarf svo sjaldan að upplifa það. 7,9,13...Bank bank bank!!! En ég tek semsagt aftur allar myndaðar og ómyndaðar hugsanir um vesalings fólkið sem liggur veikt um allar jarðir. Það er vont að vera veikur :'( Og það sem er ennþá verra er að ég þarf að troða í mig Strepsils og hunangstei í röðum alveg. Og ég er komin á það stig að finnast ekki sykur neitt spes nema það sé bland-í-poka að sjálfsögðu... þá bara "bring it on"! Djöfuls ógeð að vera með hálfsoðin munn af því að sjúga þessar töflur á 2ja tíma fresti. But this to will pass... verð bara að trúa því. Og heita svo sjálfri mér að leyfa mér aldrei að leggjast í rúmið aftur vegna veikinda. Það verður bara verra ef maður gefur eftir. Það er nokkuð ljóst!!!!! Annars er mar alltaf að læra eitthvað nýtt. Ég las það á einhverjum heilsuvefnum (is) að hálsbólga og eyrnabólga væri semsagt bara kvef í margföldun. Sem meikar auðvitað sens því þetta eru bæði vírusar. Hafði bara aldrei sett þetta í samband við hvort annað. Hef samt örugglega fengið kvef, hálsbólgu og eyrnabólgu samtímis. Allavegana kvef og hálsbólgu. Og hálsbólgu og eyrnabólgu. Svo þetta hefði að sjálfsögðu átt að vera deginum ljósara. En allavegana þá er þetta búið að eyðileggja gjörsamlega fyrir mér það sem hefði átt að vera 2 langar helgar með kósý 2ja daga vinnuviku í þessari viku. Maður nýtur frísins ekki eins og ef maður væri frískur og hefði hitt fólk og getað tekið þátt í einhverju. Well, góðu fréttirnar eru allavegana þær að ég hef 4 heila daga til að jafna mig áður en vinna tekur við á nýjan leik :s Voða vælblogg er þetta... en svona líður mér... svo það er niðurstaðan.

mánudagur, maí 17, 2004

Uppdeit

Ég ákvað að gerast mjög huguð og þrammaði út í sjoppu í hádeginu. Hélt kannski að ég væri ekki jafnslöpp og blessaður líkaminn reyndi að telja mér trú um. I was wrong!! Byrjaði að sjálfsögðu á því að labba alla leiðina út í sjoppu án þess að vera með peninga eða kort á mér. Styrmir hringdi til að tilkynna mér að hann væri með kortið mitt þegar ég stóð fyrir utan sjoppuna... Svo ég þrammaði alla leiðina heim í þessu yndislega veðri glampandi sól og þægileg gola. Nú svo var ekki annað að gera en að þramma eina ferð enn í sjoppuna. Kaupa stúdentanammi fyrir námsmanninn og hálsbrjóstsykur fyrir sjúklinginn. Var orðin frekar þrekuð og sveitt þegar ég komst loksins heim aftur. Svo það er nokkuð ljóst að öskubuska fer ekkert á ballið í dag neitt!!! Oh well, það kemur nýr 17. maí að ári. Þá verður þetta tekið með trompi ;) Skrúðganga kl. 7 og fleira þannig skemmtó... right! Sit bara hérna heima, sötra te með risa hungangsklessu í og bryð Strepsils í tíma og ótíma. En nú er ég orðin frekar stressuð yfir því að komast ekki í vinnuna á morgun. En sem betur fer er þetta stutt vika svo ég slepp vel ef ég þræla mér þá í vinnuna á morgun. Það er nefnilega Kristi himmelfarts á fimmtudaginn og skipulagsdagur í leikskólanum á föstudaginn(nema við erum búin að vinna hann fyrirfram) Svo þetta er bara 2ja daga vika. Well, þetta kemur í ljós í fyrramálið, það er nokkuð ljóst. Á meðan ætla ég að sötra meira te og glápa á bíómynd

Norðmenn eru bara skrýtnir...

Í dag er 17. maí. En hann er nú bara næstum búinn!!! Ég hafði hugsað mér að fara í bæinn og sjá skrúðgönguna og svona í dag. En klukkan er hálftíu og hátíðarhöldin eru bara langt komin :o Ég vaknaði reyndar kl. 7 við wake-up kallið. Þá er 21 skoti skotið af fallbyssu einhvers staðar upp í fjalli. Mér datt auðvitað ekki í hug að fara að rífa mig upp þá fyrir allar aldir. Hugsaði nú bara með mér að það væri nóg að rölta af stað einhvern tímann í kringum hádegið til að sjá fagnaðarlætin. En ég hefði betur verið búin að kíkja aðeins betur á dagskrána. Hún byrjaði nefnilega kl. 6.40(!!!) í morgun á því að kórarnir og það fólk sem á að skemmta mætti á staðin þar sem á að syngja. Svo upp úr sjö byrjar kórasöngur á spítalanum og elliheimilinu. Vesalings lasna fólkið sem er dregið upp á eyrunum til að hlusta á kórsöng. Svo var allt nákvæmlega tímasett þar til núna kl. 9.13 þegar skrúðgangan frá skólanum í okkar hverfi fór einmitt fram hjá húsinu. Og ég stend hérna á náttfötunum. LOL Það er ekki glæta að ég komist neitt af stað fyrr en í fyrsta lagi um 11. Er að drepast í hálsinum og er að bíða eftir að íbúfenið kikki inn. Og þá einmitt byrjar guðsþjónusta í kirkjunni. Og það er það síðasta á skipulagða planinu. Ég er einhvern veginn ekki alveg að trúa þessu :o Jæja ég updeita þetta þegar ég sé hvernig dagurinn fer. Ég á eftir að rölta í bæinn á eftir, sjá hvort ég sjái eitthvað sniðugt

laugardagur, maí 15, 2004

Júró skúró

Gvöð hvað ég sakna þess að eiga ekki deit við alla vini mína í júróvisjónpartýi í kvöld! Það er einhvern veginn ekki eins skemmtilegt að horfa aleinn heima. Ég glápti aðeins á forkeppnina en lögin voru bara öll svo slæm!! En það er auðvitað þess vegna sem þessi lönd eru í forkeppninni en ekki aðalkeppninni. Ég reyndar gafst upp við lag nr. 12 eða 13. Hugsaði með mér að eftir að úlfastelpan var búin að syngja þá gæti þetta bara ekki orðið betra. Hætta skal hverjum leik þegar hæst stendur. Næstum orðin suicidally sad þegar loksins kom að þessu hressa lagi. Og sú hugsun sem þýtur um hugann á mér alltaf þegar ég horfi á júróvisjón og svona vonlausar söngvakeppnir... "Hvernig voru hinir sem kepptu ef þetta var best???" Annars er löng fríhelgi hjá mér. Það er nefnilega 17. maí á mánudaginn, norðmenn halda upp á daginn sem þeir fengu eigin stjórnarskrá. Og auðvitað er það týpískt að ég sem verð aldri lasin!!(7, 9, 13. Bank bank) er lasin núna. Og sólin keppist við að skína svo fast að ég er með sólfar innan á augnalokunum. Ekki gaman. Alveg að drepast úr háls- og eyrnabólgu og kvefuð ofan á það! En það er fínt að taka bara allann pakkann í einu. Þá get ég kannski sleppt því að verða lasin þangað til á næsta ári. Ég er samt búin að ákveða að þræla mér í bíó í kvöld að sjá Kill Bill 2. Það eru nefnilega svo fáar sýningar hérna í Kongsberg. Og Styrmir er að fara í próf á þriðjudaginn. Og Þorri er að koma í heimsókn, ákváðum þegar við sáum fyrri helminginn að við myndum bjóða honum með okkur aftur á númer tvö. Svo ... þetta verður bara tekið með hörkunni. Maður er nú aldrei heldur of lasinn til að fara í bíó, hehe. Bara taka nóg af snýtuklútum og verkjatöflum, hlýt að halda út eina vesæla bíósýningu! Bestu kveðjur í júróvisjónpartýin!!

mánudagur, maí 10, 2004

wow flott nýja bloggerlúkkið :o

Heyrði bara að það var komið glæsilegt nýtt lúkk á bloggerinn... varð náttlega að tékka á því!! Svo er myndir af ánni, sem var í ansi miklum vexti fyrir helgi. Því miður náði ég ekki myndum þegar hún var sem mest... en þetta er samt alveg slatta mikið vatn í gangi sko! Sjá hér

þriðjudagur, maí 04, 2004

Alheimurinn er að segja mér að það sé kominn tími á tiltekt... á líkama og sál?

Stjörnuspáin mín í dag segir: MEYJA 23. ágúst - 22. september Þetta er góður dagur til að leita leiða til að bæta eigur þínar með einhverjum hætti. Losaðu þig við það sem þú hefur ekki lengur not fyrir og gerðu við það sem þarfnast viðgerðar. Og í morgunblaðinu mínu var heil opna um mikilvægi "vorhreingerningar". Losa sig við drasl sem maður á ekki eftir að nota og er bara að þvælast fyrir! Feng shui er algjörlega með ofnæmi fyrir kaos. Ég er svo sammála. Ég er tilbúin í vorhreingerningu. Gott að ég á nú ekki svo mikið drasl :) Þetta verður þá kannski fljótgert. Verst að ég er með söfnunaráráttu í ríkjandi genunum mínum :s *LOL* Mest af öllu þarf ég þó að losa mig við óvelkomnar tilfinningar og óæskileg utanaðkomandi áhrif. Ég er að vinna í því. Þetta kemur allt saman. Ég er djúpt hugsi þessa dagana. Vorið vekur mann. En stundum er bara sárt að horfast í augu við hlutina eins og þeir eru. En þá er bara að setja í fluggírinn og keyra þetta í gegn. Sumarið kemur með breytingar í farteskinu. Eitt er ljóst og það er að allt fer einhvern veginn. Það verður ekki komist hjá því. Mér finnst svo gott að skrifa í einhverjum svona voða "undir rós" skrifstíl. Stundum veit ég ekki einu sinni sjálf hvað ég var að tala um daginn eftir. Talandi um að vera lokuð týpa.

sunnudagur, maí 02, 2004

Jæja það varð víst ekki mikið úr bloggi þessa vikuna. Allt með kyrrum kjörum hér á bæ. Vikan var frekar tíðindalítil. Skilaði skattaskýrslunni og var viðstödd fyrsta foreldrafundinn á ævinni. Merkilegt fyrirbæri svona fundir. Það er eins og það séu samantekin ráð að þegja hvern annan gjörsamlega í kaf. Annars skil ég þetta svosem ágætlega, fólk er svo ofur kurteist í kringum annað fólk sem það þekkir ekki alveg. Betra að þegja en að móðga einhvern eða segja einhverja vitleysu. Í gær fórum við svo í mat til Tótu í nýja húsið sem hún var að kaupa sér. Vorum rosalega hrifin af húsinu, miklir möguleikar og margt sniðugt að sjá. Hún erfði ýmis konar skrýtið dót með húsinu. Margt flott en annað bara furðulegt. Í dag er ég búin að steikja mig gjörsamlega í sólinni. Settist á veröndina mínu litlu sætu í morgun með "morgunkaffið" og bók. Vissi svo ekki af fyrr en ég var búin að sitja í klukkutíma í sólinni. Sem er ekki gáfulegt fyrir mig þegar ég er ekki búin að smyrja mig í sólarvörn. Svo þá var ekki annað að gera en að smyrja á sig aftersun og tjilla inni í smá tíma. En ég var nú ekki að nenna að húka inni í allan dag í góða veðrinu. Svo ég smurði þykku lagi með sólarvörn á mig og doblaði Styrmi út í labbitúr. Við löbbuðum um ýmis hverfi og sáum mörg sniðug og sæt hús. Sérstaklega sætt hverfi í gamla bænum, rólegt og falleg hús. Svo er að sjálfsögðu enginn fullgildur sunnudagslabbitúr án þess að kaupa ís. Svo það var gert samviskusamlega á leiðinni heim :þ Sumarið er á næsta leyti, rosalega sem mér líst vel á það!!