-Bryndís-

sunnudagur, júní 27, 2004

Gönguferð vikunnar

Í dag þóttumst við vera voða útivistar og fórum í gönguferð upp í fjall. Nánar tiltekið upp að Rundtjern sem eru vatnsbirgðir Kongsberg. Ég labbaði þangað upp um daginn með einni sem ég var að vinna með. Svo nú var komið að því að sýna Styrmi dýrðina ;) Við vorum náttlega ekki fyrr komin upp en mýið tók til við að reyna að éta okkur lifandi svo túrinn varð aðeins styttri en áætlað. Ég náði nú samt að sýna honum það helsta og smá útsýn yfir Kongsberg og svona, áður en við hopuðum niður á jafnsléttuna að nýju hehe. Við mundum aldrei þessu vant eftir því að smella af nokkrum myndum og þær má finna hér. Í gær fengum við vinnufélaga Styrmis í heimsókn og grilluðum og höfðum það gott bara. Vinnufélaginn er danskur og Styrmir skildi alveg einstaklega vel allt sem hann sagði. Get ekki sagt það sama um mig, því miður. En ég skildi svona það helsta. Ótrúlegur þessi danski kartöfluframburður :p Núna er landsleikurinn hérna í fullum gangi og maður getur ekki annað en fylgst með. Jeminn eini, ég held ég sé bara orðin skrýtin. Mín bara farin að fylgjast með tuðrusparki :o

laugardagur, júní 26, 2004

You Are Pulp!

You Are Pulp!: "


Which British Band Are You?
"

fimmtudagur, júní 24, 2004

Nei nú er þetta hætt að vera fyndið

Ég antisportistinn sjálfur sit límd yfir bráðabana á milli Englendinga og Portúgala. Heimur versnandi fer!! Sá David Beckham skjóta svo langt yfir markið að það var engu lagi líkt. En annars var ég að uppgötva að veðursíðan á Aftenposten er með veðurspá fyrir hverfið okkar. Þetta er frekar lítill bær en það er spá bæði fyrir okkar hverfi og fleiri hverfi í bænum. Alveg hreint frábært. Rak augun í þetta í dag þegar ég var að kíkja á spána fyrir morgundaginn. Slóðin er hér og líka til hliðar undir Linkar.

Svona verður þetta.... í bili

Alveg glötuð lúkk í þessu bloggertemplatedæmi... vona að þeir bæti bráðum einhverju aðeins skárra inná. Allavegana ekki séns að ég nenni að fikta í þessu lúkkdæmi. Var að skoða aðeins á blogskins en það er bara svo mikið af gelgju-templateum að ég var ekki að nenna þessu. En allavegana á milli þess ég sem ég breyti lúkkinu á bloggsíðunni minni þá hef ég farið aðeins í vinnuna. Var að leysa af á miðvikudaginn og bjóst svo ekkert við að koma aftur fyrr en í lok júlí þegar þeim vantar í tvo daga. Var alveg svoleiðis búin að kveðja alla með þvílíkum látum. Og svo var hringt í gærkvöldi og ég spurð hvort ég gæti komið í dag. Og svo vantar aftur á morgun. Ætla að kveðja aftur hátíðlega á morgun, þá verður kannski hringt í mig aftur á mánudag og ég beðin að koma ;) Annars er búinn að vera metrigningardagur hérna í Noregi. Búið að rigna stanslaust síðan í gær og svo hætti það fyrst núna um níuleytið í kvöld. Vona að það verði aðeins minna blautt á morgun. Allt í lagi með smá þurrviðri inn á milli. Rán greyið skilur hvorki upp né niður í þessum breyttu aðstæðum, vön að hafa Styrmi sinn heima alla daga til að klappa sér og hleypa út og inn eftir þörfum. Nú er hann bara burtu alla daga og ég í burtu suma. Svo hún kemst ekki svo rosalega mikið út þessa dagana. Bara þegar við erum komin heim. Í dag rigndi eins og áður sagði en hún ætlaði sko samt að fara út og fékk að sjálfsögðu vilja sínum framgengt. Svo kom hún inn eftir klukkutíma eða svo, alveg svoleiðis hundblaut. Leit út eins og hún hefði verið að koma úr sturtu, greyið. En hún venst svosem breyttum útivistartíma á nótæm. Sefur bara allan daginn í staðinn. Maður sér alveg svefnkrumpurnar á henni þegar maður opnar dyrnar. Og þá er hún alveg voðalega blíð og góð og malar hástöfum. Ótrúlega þakklát þessi litla frekjudolla og uppáhaldið okkar. Og svo er hún orðin svo voðalega góð eftir uppeldið hjá Styrmi, alveg hætt að bíta og klóra nema bara spari ;)

MEYJA 23. ágúst - 22. september Þetta er kröftugt tímabil í lífi þínu. Haltu dauðahaldi í trúna á sjálfa/n þig og minntu þig um leið á það að þú þarft ekki að vera fullkomin/n.

þriðjudagur, júní 22, 2004

Er að prufa nýtt lúkk... bear with me

Finnst þetta dáldið bleikt en ætla að sjá hvort ég venst því ;) Hvað finnst ykkur?

Bítlarnir syngja um tölvutengd mál

YESTERDAY Yesterday, All those backups seemed a waste of pay. Now my database has gone away. Oh I believe in yesterday. Suddenly, There's not half the files there used to be, And there's a milestone hanging over me The system crashed so suddenly. I pushed something wrong What it was, I could not say. Now all my data's gone and I long for yesterday-ay-ay-ay. Yesterday, The need for back-ups seemed so far away. I knew my data was all here to stay, Now I believe in yesterday. UNIX MAN (Melodi: Nowhere Man) He's a real UNIX Man Sitting in his UNIX LAN Making all his UNIX plans For nobody. Knows the blocksize from du(1) Cares not where /dev/null goes to Isn't he a bit like you And me? UNIX Man, please listen(2) My lpd(8) is missin' UNIX Man The wo-o-o-orld is at(1) your command. He's as wise as he can be Uses lex and yacc and C UNIX Man, can you help me At all? UNIX Man, don't worry Test with time(1), don't hurry UNIX Man The new kernel boots, just like you had planned. He's a real UNIX Man Sitting in his UNIX LAN Making all his UNIX plans For nobody ... Making all his UNIX plans For nobody.

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag...

Elsku besta vinkona mín, hún Björg, á afmæli í dag. Til hamingju með daginn, vona að þú hafir það sem allra best í dag. Knús og klem frá mér :D

mánudagur, júní 21, 2004


Which Sex and the City Player Are You? Find out @ She's Crafty

föstudagur, júní 18, 2004

Ligga ligga lái

Hver haldiði að sé loksins búin að fjárfesta í miðum til Íslands? Guðfreður Ingihildarson að sjálfsögðu!! Og ég :D Við Styrmir komum semsagt heim 4. ágúst og verðum í næstum tvær vikur, förum heim aftur 17. ágúst. ó hvað ég hlakka til!!! Verðum endilega að finna kvöld þar sem við getum hist :) Meira seinna, er að pakka niður fyrir sumarferðina mína og það gengur eitthvað hægt, skil ekki afhverju.

fimmtudagur, júní 17, 2004

Gleðilegan þjóðhátíðardag!

Er búin að vera að hlusta aðeins á Rás 2 í dag. Bara íslensk tónlist í gangi og núna er bein útsending úr miðbæ Reykjavíkur. Voða gaman að taka aðeins þátt í 17. júní þó úr fjarska sé. Ég er búin að vera voða dugleg undanfarið í gönguferðum og búin að sjá bara heilmikið nýtt í Kongsberg og nágrenni. Núna síðast fór ég með Önnu, sem ég var að vinna með, og hundinum hennar Baldri. Við fórum í göngu upp í fjall og gengum umhverfis vatnsbirgðir Kongsberg. Þær samanstanda semsagt af tveimur sæmilega stórum tjörnum sem heita Rundtjern og Tangentjern. Þetta er semsagt í fjallinu sem ég sé út um stofugluggann minn hérna. Þetta var mjög passlegur túr, við vorum 2 og hálfan tíma á labbinu. Ég uppgötvaði þvílíkan haug af berjalyngi en það liggur að sjálfsögðu fjærst Kongsberg eins og það getur verið. En það verður þá bara góður labbitúr í haust að tína ber ;) Þarna var bæði bláberjalyng, krækiberjalyng og trönuberjalyng ef ég skildi þetta rétt. Svo voru allavegana tvær tegundir af berjum til. Ein heitir moltur, sem er á íslensku múltuber og á ensku cloudberry. Hef aldrei heyrt það áður á ævinni, en þau eiga víst að vera voðalega fín á bragðið. Jæja ætli ég sé ekki bara komin up to date. Um helgina er ég að fara í bústað konum sem ég var að vinna með. Ein af þeim á hytta(kofa) í Grimstad (sem liggur nálægt Kristiansand ef mér skjátlast ekki). Grimstad er ein af strandperlum Noregs og það er víst alveg yndislegt þar. En veðurspáin er ekki alveg hin hagstæðasta því það er spáð vindi og rigningu jafnvel. Allavegana ekki sól :( En þetta kemur allt saman í ljós. Nú þá verður það bara regngallinn og regnhlífin sem blífur, ekkert erfiðara en það ;) 17. júní veðrið í Kongsberg er frekar íslenskt, vindur og skýjað sumstaðar meira að segja mjög grá ský sem hóta rigningu. Samt búið að hanga þurrt í dag. Vona að það hangi þurrt áfram þar til ég er búin að grilla ;) Við Styrmir ætlum að sjálfsögðu að halda aðeins upp á 17. júní. Ég er búin að kaupa sauðafilet sem ég ætla að skella á grillið á eftir ásamt ýmsu grænmetiskyns. Þetta verður í fyrsta skipti sem við smökkum norskan sauð, spennandi að komast að hvernig hann er miðað við íslenskan. Svo keypti ég ný norsk jarðarber í eftirrétt. Jarðarberjaárstíðin var einmitt að skella á hérna. Fyrstu berin komu í fyrri viku en voru óheyrilega dýr. Karfan kostaði í kringum 55 norskar krónur, hæsta verðið sem ég frétti af var 85 krónur. Verðið á eftir að falla samt niður í svona 10-15 krónur karfan. Þá er um að gera að stappa í sig berjunum, vítamínunum fyrir veturinn. Eitt enn, eins og margir vita ætlum við Styrmir að kíkja heim í sumar. Höfðum í huga að koma í júli en svo kom í ljós að Styrmir verður yfir stóru verkefni allan þann mánuð og kemst ekki frá. Svo við komum heim í ágúst í staðinn. Væntanlega verða það þá fyrstu tvær vikurnar í ágúst því skólinn byrjar ýkt snemma í ár. Fyrsti kennsludagur er uppgefinn 16. ágúst. Þeir ætla greinilega að taka þetta bara með trompi í ár :D Jæja það var allt í bili...

Stjörnuspáin

Þessi stjörnuspá er bara svo einstaklega viðeigandi á þessum tímamótum í lífi mínu: MEYJA 23. ágúst - 22. september Þú ættir að líta yfir farinn veg í dag og velta því fyrir þér hvar þú viljir verða eftir tíu ár. Ekki láta líf þitt ráðast af tilviljunum. Gerðu áætlanir og leggðu þannig drög að framtíð þinni.

mánudagur, júní 14, 2004

Best að byrja að skrásetja söguna um síðustu daga

Það er ýmislegt sem á daga mína hefur drifið síðan ég skriftaði síðast. Hef bara ekki verið í aðstöðu né stuði til þess að skrifa. Í fyrsta lagi er það vegna þess að tölvan mín er dáin, aftur. Nú er það líklegast örgjörvinn sem hefur gefið upp öndina svo ekki er líklegt að það komist í lag á næstunni. Það er semsagt aftur kominn tími á að safna fyrir nýrri tölvu :s Nú svo er alltaf eitthvað spennandi að gerast hjá mér þessa dagana. Það hefur verið svo mikið að gera í júní að það er alveg ótrúlegt. Allar helgar uppteknar með yndislegu samstarfskonunum mínum. Byrja á þarsíðustu helgi. Á föstudeginum 4. júní þá var haldið óvænt gæsapartý fyrir eina sem ákvað skyndilega að giftast sambúðarmanni sínum til 20 ára. Það var mjög gaman að koma henni á óvart og skemmta sér saman með henni. Hún fékk margar skemmtilegar gjafir frá okkur gestunum og það var heilmikið fjör. Við grilluðum og djúsuðum svo fram á nótt. Allt fór fram með siðsamlegum hætti að sjálfsögðu. Nú svo helgin sem leið. Þá gifti hún sig loksins þessi fagra snót sem hafði beðið svo lengi. Það gerðist núna á föstudaginn var. Við fórum starfsmennirnir af deildinni sem vinnum með henni með börnin niður í bæ og köstuðum hrísgrjónum á þau þegar þau komu út frá "sýslumanninum". Það var voða kósý og börnunum fannst mjög gaman að kasta hrísgrjónunum. Á föstudagskvöldið fór ég svo í göngu með einni úr vinnunni. Það voru frískar konur frá Kongsberg sem ætla að koma á fót hefð fyrir kvennagöngu í júní í minningu 2ja dætra konungsins Kristjáns IV. En þær hétu einmitt báðar Christiane... mjög frumlegur maður. Hann átti reyndar fleiri börn og þau hétu hvert sínum nöfnum, t.d. einn sonur sem hét Christian :) En allavegana þessi ganga var alveg frábær og flottur félagsskapur alla leiðina niður til Kongsberg frá Knutehytta. Þetta er venjulega svona 2-3 tíma ganga en með öllum söng og drykkjustoppum á leiðinni þá vorum við aðeins lengur en það. Við vorum komnar upp á Knuten um níuleytið og niður í bæinn um tvöleytið. Svo þetta var fimm tíma gönguferð en á mjög þægilegum gönguhraða og með heilmörgum skemmtilegum stoppum þar sem sungið var um Kongsberg og Christiane og jarðarber og fleira. Morguninn eftir var ég alveg oggupoggu sybbin þegar ég vaknaði um áttaleytið, eftir um fimm tíma svefn, til að sturta mig og gera mig klára fyrir sumarhátíð leikskólans. Það var semsagt sumarhátíð fyrir starfsmenn leikskólans. Því miður vorum við bara 7 (af 20) sem höfðum tækifæri til að vera með í þetta sinnið. En við semsagt keyrðum sem leið liggur til Drammen og svo niður í Drammensfjörðinn og hittum eina af sem vinnur með okkur en hún á einmitt sumarhús í Dramstadsbukta sem er lítil vík inn af Drammensfirðinum. Við áttum svo ótrúlega flottan dag, sólin skein allan daginn eins og hún fengi borgað fyrir það. Við byrjuðum á því að drekka kaffi og borða heimabakaðar lummur(heitir lapper, sveler á norsku) með jarðaberjasultu á lítilli bryggju rétt fyrir utan Holmsbu (sem er lítill bær sem liggur við Drammensfjörðinn). Svo um miðjan daginn fórum við á Hurum Billedgalleri þar sem er föst sýning á myndum eftir listmálarann Henrik Sørensen sem er einn af þekktustu listmálurum sem Noregur hefur átt. Og þvílíkur kappi þessi maður var. Og mannvinur. Allir voru jafnir fyrir honum hvort sem það voru stórkallarnir sem hann heimsótti í þingið eða rónarnir sem sátu fyrir utan sjálft þinghúsið. Og þvílík framþróun á litum og stílum sem hann fór í gegnum á ferlinum. Eftir málverkasýninguna fórum við svo niður í bæinn í Holmsbu. Þetta er mjög lítill en ótrúlega krúttlegur bær, þar sem smábátahöfnin skipar stóran sess í miðjum bænum. Ég fékk svona ekta sumarfrís-tilfinningu af því að rölta þarna með fram höfninni og fara svo í fiskbúðina og kaupa fiskibollu til að hita upp og borða (Frumlegt, afhverju er þetta ekki hægt á íslandi? Ótrúlega handy og fínt takeaway á hlaupum. Hollt og gott!!). Svo fórum við í fínustu ísbúðina sem ég hef séð lengi og hún var aðallega svo fín af því að hún bauð upp á 18 mismunandi tegundir af kúluís og svo var bætt um enn betur og hægt að fá rjómaís á toppinn af kúluísnum. Sem ég prufaði reyndar ekki en ég prufaði allt hitt ;) Nammi góður kúluís... Svo brunuðum við á herragarðinn til að grilla. Sátum fyrst upp við húsið þar sem hesturinn Knut kom og heilsaði upp á okkur. Svo vildi hann helst af öllu fara inn en það vildi hún helst ekki sú sem býr þar... alveg ótrúlegt. Þannig að hann hélt bara áfram að slá grasið og skipti sér ekkert meir af okkur. Svo fórum við niður á strönd og sátum þar og grilluðum nautainnralæri og borðuðum yndislegt kartöflusalat með. Svo var að sjálfsögðu boðið upp á ný norsk jarðarber í eftirrétt og svo sátum við og spjölluðum þar til sólin settist. Þá var klukkan farin að nálgast ellefu og við byrjuðum að pakka saman. Ég var komin heim um miðnætti og svaf ofursætt þar til morguninn eftir. Nú svo var ég ekki meira uppgefin en það að ég dró Styrmi með mér í langan göngutúr um Kongsberg á sunnudeginum. Við skoðuðum meðal annars nýjan gosbrunn sem var settur upp við kirkjuna og svo fórum við á hálfgert byggðasafn, Lågdalsmuseet, og skoðuðum dýr sem eru þar á sumrin. Og svo kíktum við líka aðeins á gömlu húsin sem eru til staðar þarna. En dýrin voru fínust. Geitur, kindur, hænur, kanínur, svín og beljur. Úff hvað það var vond lykt úr svínastíunni ojjjj. Og svo í tilefni af útborgunardegi og sunnudegi og af því að mér þykir vænt um hann, þá bauð ég Styrmi út að borða á Jonas Gundersen sem er skemmtilegur pizzastaður hérna í Kongsberg. Nú bara get ég ekki bloggað meira í bili. Hef samt meira að segja! Ótrúlegt en satt ;) Takk fyrir áheyrnina, lifið heil knús Bryndís

sunnudagur, júní 06, 2004

jájá þannig var sá sunnudagurinn

Hef mikla þörf fyrir að uppfæra blogginn minn og ýmislegt sem ég gæti sagt frá en einhvern veginn er einhver stífla í gangi... það er búið að vera fínt veður í dag... ég var bara samt úti í eins og einn geisladisk og 3 smásögur. Var svo inni og dundaði mér við hitt og þetta. Bakaði til dæmis nanbrauð og eldaði kvöldmat handa próflestrarhestinum. Hef aðeins betri samvisku í þessum seinni hluta próftarnarinnar en ég hafði í fyrri hlutanum þegar ég lá veik og þurfti nánast að láta þjóna mér í rúmið :$ Annars var Styrmir nú alveg einstaklega skilningsríkur og tillitssamur við mig þá, eins og hann er nú alltaf, þessi elska :D Er búin að vera bara nokkuð dugleg að lesa undanfarið. Var að lesa bók eftir Lars Ramslie sem heitir Fatso. Hún var vægast sagt skrýtin til að byrja með. Fjallar um mann sem býr einn og er hálfgerður aumingi. Voða perri sem gerir ekki annað en að rúnka sér og glápa á klámmyndir. En svo kemur stúlka til sögunnar sem flytur inn og leigir hitt svefnherbergið í íbúðinni hans (pabbi hans á reyndar íbúðina). Og allt breytist til hins betra. Svo boðskapur sögunnar er eiginlega sá að félagslegur umgangur skiptir mjög miklu máli!!! Gott mál. Svo mundi ég eftir því að Roald Dahl er norskur og því hlyti að vera efni með honum á bókasafninu. Tók smásagnasafn, reyndar tvö!! og las í gegn. Hann skrifar svo frábærar sögur. Hann hefur mjög svartan húmor og skemmtilegan frásagnastíl. Roal Dahl skrifaði til dæmis söguna um Matthildi sem var svo gerð bíómynd eftir. Danny Devito og litla Mara Wilson (ótrúlega fín leikkona!) leika í henni. Hann skrifaði líka söguna Frosen, sem fjallar um konu sem drepur manninn sinn með því að slá hann í hausinn með frosnu kjötstykki. Og eins og það hafi ekki verið nóg þá lætur hún lögreglumanninn sem rannsakar morðið á manninum borða sönnunargagnið ;) Og svo er kannski þekktasta sagan um Kalla og súkkulaðiverksmiðjuna, en það á einmitt að koma ný bíómynd með sögunni á næsta ári. Og Johnny Depp leikur Willy Wonka... *tilhlökkun* Svo las ég í eftirmála smásagnasafnsins í dag að hann var með sjónvarpsþætti sem hétu Tales of the unexpected. Finnst það hljóma voða kunnuglega en er ekki alveg viss hvort ég sé eitthvað að blanda saman. Jæja stíflan hefur rofnað, allavega að hluta til...

miðvikudagur, júní 02, 2004

Þá er það ljóst

Megrun er vitleysa dauðans! Það er bara lífsstílsbreyting sem er málið. Hreyfa sig meira og borða í hófi. "Síendurtekin megrun hefur slæm áhrif á ónæmiskerfið Niðurstöður nýlegrar rannsóknar benda til þess að síendurtekin megrun og svo þyngdaraukning geti skaðað ónæmiskerfi kvenna. Rannsóknin sem gerð var af Fred Hutchinson-krabbameinsrannsóknamiðstöðinni leiddi ennfremur í ljós að konur sem halda sömu þyngd virðast með betra ónæmiskerfi. Rætt var við 114 eldri konur sem voru yfir kjörþyngd en heilsuhraustar að öðru leyti. Þær voru spurðar út í þyngdartap síðastliðin 20 ár. Konurnar urðu að hafa haldið sömu þyngd í þrjá mánuði áður en þær tóku þátt í rannsókninni. Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að ónæmiskerfið dapraðist í réttu hlutfalli við fjölda megrunarkúra. Virkni náttúrulegra drápsfruma var könnuð en þessar frumur eru liður í ónæmiskerfinu og drepa veirur og fleira. Lítil virkni þessara fruma er talin auka líkurnar á krabbameini og kvefi og sýkingum. Ein af rannsakendunum, Cornelia Ulrich, segir það ekki skaðlegt ónæmiskerfinu að hafa lést einu sinni um 4,5 kg eða meira á 20 árum en það virðist hafa slæm áhrif á virkni drápsfrumanna ef slíkt þyngdartap verður oftar. Þær konur sem sögðust hafa lést oftar en fimm sinnum voru með um þriðjungi minni virkni drápsfruma. Konur sem höfðu haldið sömu þyngd í a.m.k. fimm ár voru með 40% meiri virkni drápsfruma miðað við þær konur sem höfðu haldið sömu þyngd í styttra en tvö ár." Frétt tekin af mbl.is Slóð