-Bryndís-

laugardagur, ágúst 28, 2004

Takk fyrir mig

Kærar þakkir fyrir allar afmæliskveðjurnar :) Ég hafði það bara fínt á afmæliskvöldið mitt, dagurinn fór í það mesta í rútuferðina hingað til Gautaborgar. En hér var vel tekið á móti okkur og ég fékk meira að segja pakka :) Fékk þessi forláta vatnsglös frá ittala, þau eru alveg geðveik. Hlakka mikið til að nota þau þegar heim kemur. Þau eru svona blágræn á litinn eiginlega, held ég. Samt dökk, svona blágræn smoky. Allavegana, það koma myndir af þeim seinna. Erum búin að fá að prufa litlu dömuna aðeins, hún er voða sæt og pen. Ekki laust við að það fari aðeins að klingja hjá manni :D Jæja ætla að fara að njóta þess að vera hérna, get hangið í tölvunni heima :þ Sólarkveðja frá Gautaborg, Bryndís

föstudagur, ágúst 27, 2004

Jibbí jei

Minns á ammælis í dag :) Og verður að heiman mest allan ammælisdaginn. Við erum að fara til Gautaborgar að heimsækja Lísu og co. Rán verður bara heima að passa húsið og ætla nágrannarnir að líta inn til hennar og skammta mat og vatn. Hlakka til að sjá hvernig það gengur. Býst við að hún sofi bara alla helgina og verði alveg svefnkrumpuð þegar við komum til baka hehe. Tökum rútuna héðan um hálftólf og verðum komin til Gautaborgar um sex leytið. Smá tafir þarna í Osló, merkilegt að geta ekki látið rúturnar bara bíða eftir okkur eins og okkur hentar. En allavegana ætlaði bara að láta vita af þessu. Styrmir er með sinn síma með, svo það er hægt að ná í okkur þar ef þarf. Hafið það gott um helgina sem og alltaf. Knús, Bryndís 28 ára ;)

mánudagur, ágúst 23, 2004

Loforð er loforð

Ekki satt? Ég var búin að lofa að setja inn ferðasöguna, ég er reyndar ekki búin með hana. Svona er þetta að vera bara með eina tölvu. En við ætlum að fara að splæsa í nýju móðurborði og fleira dóti svo bráðum eigum við tvær tölvur. Jeiiii!!!! En hérna kemur ferðasagan, vona að þið séuð búin að koma ykkur þægilega fyrir með nesti, því þetta er langt. Og þetta er bara helmingurinn. Lái engum að nenna ekki að lesa í gegn. En þetta er nú líka mest fyrir mig ;) Við byrjuðum ferðina hérna heima í Kongsberg 4. ágúst. Tókum lestina fyrir hádegi frá Kongsberg til Gardermoen, vorum komin pínu tímanlega en það var bara fínt. Við versluðum eitthvað smálegt í fríhöfninni og settumst svo niður á veitingastað við hliðið okkar og fengum okkur að borða. Nú svo fór flugið á réttum tíma og við með. Pabbi og Ása komu að sækja okkur í Keflavík. Ég hljóp í gegnum tollskoðunina og skildi Styrmir eftir með tollinn og hann lenti næstum í vandræðum. Talandi um að sakna fjölskyldunnar ;) En það bjargaðist allt saman. Hann dró mig inn aftur og við gátum vottað það að vera komin á aldur til þess að kaupa áfengi. (Meira sem maður er unglegur!!!) Fyrsti dagurinn fór friðsamlega fram, við Ása fórum í Fjarðarkaup, sem ég hef saknað mikið, og keyptum alls kyns góðgæti. Svo fórum við heim og reyndum að elda hrygg. Það gekk ekki alveg þarna í fyrstu tveimur tilraununum en í þriðju var hann ljúffengur og svo góður að við steingleymdum að skilja eftir sneið handa pabba sem var á kvöldvakt. Pabbi fékk reyndar örlitla sneið af lundinni, sem er náttlega besti bitinn, svo ég held okkur hafi alveg verið fyrirgefið. Á öðrum degi, fimmtudaginn 5. ágúst, fórum við Styrmir og pabbi í Bláa lónið. Það var yndislegt, hlýtt og gott en blés nokkuð hressilega. Mikið af allra þjóða kvikindum í lóninu eins og vant er og þó nokkuð af norðmönnum. Ætlunin var svo að keyra eitthvað um Reykjanesið eftir baðið en þegar að því var komið vorum við öll frekar uppgefin og ákváðum að fara frekar heim. Þar má kenna um of stórum skammti af afslöppun og gufubaði. Um kvöldið fórum við í kaffi til Önnu og Mörtu. Sátum hjá þeim langt fram eftir kvöldi og var Marta eins og hetja ennþá að leika sér þegar við fórum. Anna sýndi okkur teikningar af nýju íbúðinni á Álftanesi sem þær ætla að flytja í fyrir jól. Á föstudeginum 6. ágúst, fórum við í sund í Laugardalslaugina með Salvöru. Þetta var ansi fín sundferð, þó að við hefðum nú verið alveg til í að hafa Laugar Spa í sama pakka eins og við héldum. Pottarnir stóðu samt algjörlega fyrir sínu, sérstaklega nuddpotturinn. Gufan var heldur heit og við Styrmir héldumst aðeins inni í örfáar mínútur, held tvær. Eftir það fórum við smá rúnt til að tékka hvort miðbærinn liti ekki eins út og áður. Seinnipartinn fórum við Styrmir svo í kaffi til Friðbjargar og sátum fram að kvöldmat. Mikið spjallað um allt og ekkert. Hittum Önnu og Mörtu aftur, þegar þær komu í heimsókn til Frænku. Anna kom í klippingu en Marta var þreytt eftir vöku yfir gestum kvöldið áður og steinsofnaði yfir Línu. Um kvöldið grilluðum við svo lambakjöt á laufvanginum, hvað annað en lambakjöt á diskinn minn? Enn seinna um kvöldið skellti ég mér í heimsókn til Bjargar í næstu blokk. Sátum og sötruðum sitthvorn bjórinn og spjölluðum þar til Hjörtur kom einhvern tímann í kringum miðnættið. Geta má þess að við Björg settum hægamet í bjórdrykkju en það tók okkur frá 9-12 að drekka sitthvorn stóra bjórinn. Getið bara ímyndað ykkur hvað við töluðum mikið ;) Á laugardeginum 7. ágúst, fór ég á hárstofu Álftaness ásamt Ásu og við fengum klippingu og strípur ásamt því sem Anna fékk uppsett hárið í tilefni þess að hún var að fara í brúðkaup. Það var frekar gott að Friðbjörg hafði ekkert ætlað sér út úr húsi þann daginn því við tókum allan daginn frá henni í þetta hárstúss. Um kvöldið fór ég svo að hitta vinkonur mínar úr HR og héldum við hátíðlega árshátíð matarklúbbsins á Skólabrú. Byrjuðum í kokteil hjá Ingunni á Bragagötunni og héldum svo á Skólabrú um átta leytið. Þar var tekið á móti okkur með kampavín í fordrykk og okkur boðið að setjast í koníaksstofuna á meðan allir voru að skila sér. Við vorum 8 saman: ég, Hrönn, Björk, María, Sirrý, Ingunn, Hrefna, Eygló. Okkur var svo vísað til borðs í hliðarsal á fyrstu hæðinni. Staðurinn er mjög huggulegur, allur málaður í ljósum lit með klassískum húsgögnum í alla staði. Í litla salnum sem við sátum í, voru tvær fallegar myndir málaðar af Þorra Hringssyni. Myndirnar voru af tveimur konum. Í stóra salnum, fengum við svo að sjá seinna um kvöldið, eru fleiri myndir eftir Þorra. Frumlegar myndir af mat, segi ekki meir :) En að matnum, fyrst fengum við framreiddan lystauka sem var kjúklingaseyði með pínulitlum kartöflu og grænmetisbitum, borið fram í staupglasi. Í forrétt fengum við svo humar á sveppaflani með blaðlaukssósu. Ofsalega gott allt sem var á disknum, reyndar allt gott sem var á öllum diskunum. Svo fengum við millirétt sem var Þykkvalúra en það er fiskur sem ég hef aldrei smakkað áður en hann er barasta alveg yndislegur á bragðið. (Segir konan sem er ekki sérstaklega hrifin af fiski, það virðist reyndar vera að breytast, kannski er maður að verða fullorðinn??). Með forréttinum og milliréttinum var borið fram gott hvítvín sem ég er alveg búin að steingleyma hvað hét. Svo aðalrétturinn, það var nautalund með stökksteiktum sniglum. Rosalega gott líka, ég er að verða uppiskroppa með lýsingarorð. Með því fengum við rauðvín frá Maipo Vally, sem heitir Casilero Del Diablo. Bragðmikið vín frá Chile, alveg eins og mér finnst svo best. Þegar hér var komið sögu vorum við flestar orðnar sæmilega glaðar alveg. Allar voru í skýjunum með matinn og enn var eftirrétturinn eftir. Og það var punkturinn yfir i-ið. Það var frosið jógúrt & frosin hindber, súkkulaðifrauð/búðingur og möndlukaka. Ég verð að segja að þetta kvöld á eftir að lifa í minningunni, ég skemmti mér mjög vel og var svo miklu meira en sátt með matinn og þjónustuna. Eftir matinn var okkur svo boðið upp í koníaksstofuna á ný og þar var sest og spjallað út í nóttina. Svo að lokum fannst okkur kominn tími á hreyfingu og þegar ég var búin að fá skoðunarferð um staðinn með Hrönn og Hendrik fórum við stelpurnar áleiðis á Thorvaldsen Bar. Tróðum okkur að sjálfsögðu í VIP röðina þar sem við áttum að eiga pláss. Það hafði víst verið aðeins fyrr um kvöldið en okkur tókst samt að komast inn fljótlega. Nú svo var dansað og ég hringdi í Styrmi og hann kom og hitti okkur. Við tvö fórum svo og hittum ”alla hina vinina” inni á Mojitos sem er nýji elítu-staðurinn fyrir ofan Apótekið. Fannst þetta nú hálfskrýtið með skemmtistað í þessum sal þar sem ég hafði síðast verið í fermingarveislu með ömmu og fleirum misgömlum frænkum. Við Styrmir og Júlía héldum svo á Glaumbar þar sem við hittum Ásu og Ösp og dönsuðum eitthvað með þeim. Júlía fór heim og við ákváðum að kíkja annað. Hittum annan Styrmi á leiðinni og ætluðum að draga hann með á Hverfisbarinn en þar var röð út september svo við ákváðum að það væri sniðugt að kíkja inn á Celtic Cross sem er hinum megin við götuna. Get ekki sagt að allar ákvarðanir sem eru teknar svo síðla kvölds/snemma morguns séu sniðugar! Djís hvað við vorum öll sammála að þetta var allt annað en snyrtilegur staður og ákváðum að fara heim. Fórum í leigubílaröð sem náði út að MR en komumst þó heil heim að lokum. Meira að segja hinn almennilegasti Skagastrákur sem keyrði okkur heim. Þetta var semsagt að kvöldi GayPride og ég var ekki hissa þegar hann sagðist hafa fengið margar hamingjuóskir í tilefni dagsins. Hann kannaðist samt ekkert við að vera þannig hýr. Þúsund þakkir fyrir mig, Hrönn og Hendrik. Skólabrú hefur að mínu mati allt til þess að bera að verða góður veitingastaður og farsæll í ykkar eigu. Megi hamingjan fylgja ykkur og staðnum til framtíðar. Á sunnudeginum, 8. ágúst, var ég frekar þreytt, ekki svo þunn, þó við hefði mátt búast eftir tvöþúsund og tvær sortir af víni og bjór. Við Styrmir fengum okkur bita á Fridays í Smáralind um kvöldið og fórum svo í bíó í Álfabakkanum. Til allrar hamingju mættum við snemma, þvílík röð!! Við sáum myndina The Village, hún var í lagi svosem en hefði getað verið betri. Skemmdi ótrúlega mikið fyrir okkur að við hliðina á mér sátu tvær stelpur sem sáu sér ekki fært að horfa á myndina án þess að reka upp þvílík öskur reglulega. Við sátum með hellur í eyrunum og misstum eiginlega alveg af því hvað var svona scary : Mynd: 3 stjörnur af 5 mögulegum. Sætisfélagar: hauskúpa. Ég er náttlega ekkert búin með hálfa ferðasöguna, þetta eru bara fjórir dagar. Mér fannst ég bara búin að skrifa svo obboslega obboslega mikið. En jæja, restin er í vinnslu. Kannski kemur meira á morgun, get ekki lofað því.

sunnudagur, ágúst 22, 2004

ég er komin aftur

Er búin að setja inn myndir frá sumarfríinu okkar heima og laga til í myndamöppunni. Færði allar myndir frá 2004 inn í rétta möppu. Sá þessa hugmynd að röðun í myndagalleríinu hjá Iðunni og fannst það svo sniðugt að ég varð bara að herma eftir. Vona þér sé sama Iðunn mín, þetta var bara svo einfalt og fínt að hafa þetta undir árinu. Maður leitar svo mikið langt yfir skammt. Er á fullu að skrifa ferðasöguna í word, hún kemur væntanlega inn á morgun. Við gerðum bara heilmikið þó við höfum ekki alveg komist yfir allt eins vel og ég hefði viljað. En það er þá bara ástæða til þess að koma sem fyrst aftur!! T.d. hefði ég viljað eiga meiri tíma með vinkonunum og svo steingleymdum við að fá okkur ís með dýfu. Sem er náttlega þvílík yfirsýn að ég veit bara ekki hvað ég get gert til að bæta úr þessu :þ Hafið það áfram gott í kvöld og svo hendi ég ferðasögunni, kláraðri eða ókláraðri, inn á morgun! Góða nótt

Þetta er allt að koma

MEYJA 23. ágúst - 22. september. Sólin er komin í meyjarmerkið og því eru fjórar plánetur í merkinu þínu þessa dagana. Lífið ætti því að leika við þig. Það hljómar ekki svo illa. Ég er alveg að verða búin að peppa mig upp í að blogga aftur.

föstudagur, ágúst 20, 2004

Hvaða áfengur drykkur ertu?

Cocktail
Cocktail

?? Which Alcoholic Drink Are You ??
brought to you by Quizilla

fimmtudagur, ágúst 19, 2004

Píp

Píp, píp. Vildi bara koma í veg fyrir að fólk færi að segja að það heyrðist ekki píp frá mér. Get bara ekki byrjað að blogga aftur eftir frí.

þriðjudagur, ágúst 10, 2004

Letin

Jæja ég nenni ekkert að skrifa ... mikið að gera sko ;) Við erum að fara í sveitina, förum á Arnarstapann og gistum hjá ömmu hans Styrmis. Svo er hugmyndin að kíkja í bústaðinn hennar ömmu minnar. Ætlum allavegana að hafa það gott og slappa af. Later...

miðvikudagur, ágúst 04, 2004

Ég er komin heim í heiðardalinn

Lentum korter yfir þrjú í dag og erum bara að chilla hérna með famílíunni. Verið að elda hrygg handa okkur og fínerí. Allt var næstum eins hérna á klakanum og mér líður eins og ég hafi ekkert farið. Kannski einhverjar smávægilegar breytingar á vegakerfinu en veðurfarið alveg eins og ég man það. Voða kósý að vera komin heim í faðm fjölskyldunnar. Ætlum í bláa lónið á morgun þar sem við þurfum að gera okkur ferð í Keflavík að skutla kærasta Salvarar í flug. Við erum hjá pabba í Hafnarfirðinum, síminn er 5553472 ef einhverjum langar að heyra í okkur.

mánudagur, ágúst 02, 2004

Hamingjuóskir

Innilegar hamingjuóskir til Öddu og Halla sem fengu dóttur á laugardaginn :)